Morgunblaðið - 16.08.1998, Page 22
22 E SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Þungamiðjan er
neðan beltis
NÚ ER sko gaman að
vera fréttafíkill. Alltaf
eitthvað æsi-spenn-
andi í fréttunum á
hverjum degi. Og þá á ég ekki við
sömu, gömlu leiðindamálin, sem
allir eru búnir að fá nóg af endur
fyrir löngu. Ætla Irakar að leyfa
vopnaefth-litsmönnunum að leita
sýklavopna svo hægt sé að aflétta
viðskiptabanninu? Eina vikuna
virðist svo vera, en áður en mað-
ur veit af, er kominn kengur í allt
saman og farið er að tala um ann-
an Flóabardaga. Þá er samið og
samið, dag og nótt og loks er
undirritað samkomulag. Allir
virðast voða fegnir.
Eða þá kallarnir Ai-afati og
Netanjahúi fyrir botni Miðjarð-
arhafsins. Betur væi-u þeir
komnir á botninum? Þeir slá
náttúrlega öll met. Hvað er búið
að takast mikið í hendur og
skála mikið fyrir öllum friðar-
samningunum milli araba og
Israela í gegnum árin? Og
frændur okkar Norðmenn, sem
ekki geta einu sinni_ samið um
Smuguna við litla Island eða
skilað Leifi heppna, sem þeir
tóku ófrjálsri hendi, halda, að
þeir geti búið til friðarformúlu
og skikkað Fata og Neta til að
búa saman í sátt og samlyndi
eins og ekkert hafi gerst.
Hvað þá með sannkiástna fólk-
ið á Norður-írlandi, sem búið er
að sprengja og skjóta hvert ann-
að í meira en aldarfjórðung af
eintómri ættjarðarást? Hver
nennir að láta teyma sig á asna-
eyrunum og hlusta á endalausar
ræður þar sem leiðtogarnir
klappa hverjum öðrum á bakið
fyrir að hafa komið á friði, sem
endist í nokkra daga, þar til
næsta hroðaverk er framið? Lítið
er svo spennandi að horfa á end-
urtekið efni af Balkanskaga. Vor-
um búin að sjá það allt í Bosníu.
Við, hérna í henni Ameríku,
þurfum sko ekki að eyða okkar
dýrmæta tíma í að horfa og
hlusta á fréttir á borð við það,
sem drepið er á hér að framan.
Nú hafa meiri og mikilvægari
fréttir loks rutt sér braut inn á
hvert heimili. Og á þessum frétt-
um hefir fólkið áhuga!
Þungamiðja alls þess, sem
áríðandi er, hefir færst niður fyr-
ir beltið og nú getur múgurinn
tekið þátt í umræðunum, því allir
hafa skoðanir og vitneskju um
það, sem þar gerist. Skal hér
lauslega drepið á þau mál, sem
efst eru á baugi á þessu grösuga
frétta-sumri.
Fyrst skal nefnt undralyfíð
Viagra, sem framkallað hefir
feiknin öll af umfjöllun í frétta-
miðlunum og enn fleirí brand-
ara. Sumir vísindamennirnir,
sem virtust vera orðnir leiðir á
að glíma við alvarlega sjúkdóma,
tóku nú fyrir nýstárlegt vanda-
mál, sem búið var að láta hanga
allt of lengi. Kynferðisleg van-
geta margra karla læknaðist við
að taka eina Viagra pillu, var
sagt í fréttunum, og varð nú
mikill handagangur í öskjunni.
Alla vega pör voru dregin fram í
dagsljósið og látin vitna um
þetta undraefni. Sáum við marg-
ar brosandi konur og glottandi
karla í sjónvarpinu.
En lyfið er all dýrt, eða 10.00
dollara pillan, enda þarf framleið-
andinn að moka inn nokkur
hundruð milljónum. Var við því
Þórir S. Gröndal
búist, að sjúkrasamlögin myndu
borga brúsann, en flest þeirra
hafa færst undan, þótt sagt sé, að
nokkur ætli að skammta „sjúk-
lingunum“ svo sem eina eða tvær
pillur á mánuði. Það verða því
ríku vangetumennirnir, sem geta
lyft sér á kreik hvenær sem þeim
sýnist, en hinir verða að láta sér
nægja skammtinn. Heyrst hefir,
að sumar fullorðnar konur, sem
voru svo „heppnar“ að eiga van-
getumenn og voru orðnar vanar
góðum nætursvefni, séu bálreiðar
út í uppfinningamenn Viagra og
er talið, að margir hjónaskilnaðir
geti af þessu orðið. Svo kemur
einn lítill Viagra brandari í lokin.
Það verður að renna pillunni
fljótt niður, því annars getur við-
komandi fengið hálsríg!
Stór skemmtileg umræða
spannst í sumar út af ummælum
forseta öldungadeildar Banda-
ríkjaþings, repúblikanans Trent
Lott. Hann sagði, að kynvilla
væri synd og væri sambærileg
við áfengisvandamál og stelsýki.
Harmaði hann mjög, að það væri
bókstaflega í tízku, að kynvilhng-
ar hömpuðu þessari villu sinni og
væru hreyknir af henni. Þeir töl-
uðu eins og um væri að ræða fæð-
ingar- eða erfða-galla og heimt-
uðu, að þjóðfélagið tæki þá ekki
bara góða og gilda, heldur veitti
þeim ýmis sérréttindi. Taldi
þingmaðurinn, að tími væri til
kominn, að allt „venjulegt", sann-
kristið fólk tæki höndum saman
um að hefta útbreiðslu „syndar-
innar“.
Fjöldi af frammámönnum
hægrisinnaðra, kristinna
repúblikana tóku í sama streng
og var hafin auglýsingaherferð.
Var því haldið fram, að hægt
væri að lækna kynvillu alveg eins
og áfengisvandamál og stelsýki.
Var leitt fram fyrrverandi synd-
ugt og kynvillt fólk, sem snúið
hafði á rétta braut með bæna-
haldi og sérstakri meðferð. Hinir
hægrisinnuðu skoruðu einnig á
almenning að sækja ekki
skemmtigarða Disneys, því það
fyrirtæki hampaði kynvillingum.
Ekki er vitað, hvort framhald
verður á herferðinni, en ekki er
útilokað, að þingið blandi sér í
málið með einhvers konar frum-
varpi. Gaman verður að fýlgjast
með því.
Og þá er komið að rúsínunni í
pylsuendanum, kynórunum í
Hvíta húsinu. Hafið þið heyrt
nokkuð jafn skemmtilegt? For-
setinn, þessi dugnaðarforkur, er
sagður hafa verið mikið upp á
kvenhöndina í árafjöld. Sögurn-
ar hafa elt hann og sem þetur
fer eru fjölmiðlarnir ekkert að
hlífa honum, þótt hann sé leið-
togi voldugasta ríkis í heimi.
Þakka skyldi honum! Hann hefir
verið krafinn skýringa, jafnvel i
vitnaleiðslu, en alltaf hefir hann
komist einhvern veginn út úr
klemmunum. Hann hefir verið
alveg stórkostlegur! Nú er beðið
í spenningi eftir að sjá, hvernig
hann stendur sig í stærstu
eldrauninni, yfirheyrslunni í
kviðdómnum hjá Starra gamla.
Síðasta ævintýrið hans, með
Mónikku Lúvinskí, ætlar að
verða það safaríkasta. Sögurnar
hafa verið dísætar og öll þjóðin
fengið að njóta minnstu smáat-
riða. En auðvitað eru alltaf ein-
hverjir fýlupokar og það eru vit-
anlega repúblikanarnir, sem láta
sér ekki nægja að kjamsa á frétt-
unum af afrekum Klintons kven-
sama, heldur setja þeir upp helgi-
slepju, alveg eins og þeir gerðu
út af kynvillunni, og tala um að
þjóðin geti ekki afborið að hafa
syndugan mann í Hvíta húsinu.
Ætla þeir að reyna að nota þetta
smáræði til að koma forsetanum
frá.
En meirihluti fólks vill ekkert
slíkt heyra, því Klinton fær einatt
háa einkunn fyrir embættis-
færslu sína. Margir vorkenna þó
konu hans og einhver sagði um
daginn, að betra hefði líklega ver-
ið fyrir hana að eiga vangetu-
mann. Enginn dómur skal á það
lagður. Og þá er heldur ekki vit-
að, hvernig þetta allt saman fer
nú, en við því má samt búast, að
Klinton haldi áfram að vera kven-
samur og að hann þurfi hvorki að
eyða eigin peningum í Viagra né
láta skammta sér af sjúkrasam-
lagi, að minnsta kosti ekki í ná-
inni framtíð.
s M Á A U G LV S 1 IM G A R
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smiðjuvegi 5, KópQvogi.
Samkoma í kvöld kl. 20.00.
Mikil lofgjörð, predikun orðsins
og fyrirbæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
KROSSINN
Sunnudagur: Almenn sam-
koma kl. 16.30. Kevil L. White frá
Church on the Rock predikar.
Hann og félagar hans frá Ala-
bama verða með samkomuher-
ferð í Borgarleikhúsinu í vikunni
á þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagskvöld kl. 20.30. Við
*3 hvetjum alla sem vettlingi geta
valdið að koma og sjá almáttug-
an Guð gera undur.
Mánudagur: Sjónvarpsútsend-
ing á Omega kl. 21.30.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30. Kraftur, dýrð og
blessun.
Bóka- og gjafavöruverslun okkar
í Hliðasmáranum verður opin
alla virka daga frá kl 14—18.
Netfang: Krossinn@skima.is
Dagsferðir sunnud. 16 ágúst
Frá BSÍ kl. 09.00: Hlöðufell.
Ekið að Hlöðufelli og gengið á
fjallið um lítið dalverpi. Farar-
stjóri verður Gunnar Hólm
Hjálmarsson. Verð 2.700/3.000.
Frá BSÍ kl. 09.00: Brúarár-
skörð. Gengið frá upptökum
Brúarár og farið um Brúarár-
skörð. Svæði sem býður upp á
ótrúlega náttúrufegurð.
Verð 2.700/3.000.
Helgarferðir í ágúst:
21.-23. ágúst: Laugavegurinn
hraðferð.
21. -23. ágúst: Básar.
22. -23. ágúst: Fimmvörðuháls.
28.-30. ágúst: Veiðivötn.
28. -30. ágúst: Básar.
29. -30. ágúst: Fimmvörðuháls.
Spennandi sumarleyfisferðir
í ágúst:
15.-19. ágúst: Laugavegur -
trússferð. Ekið í Landmannal-
augar. Gengið að Álftavatni í
Emstrur, suður Almenninga í
Þórsmörk. Farangur fluttur á
milli gististaða. Fararstjóri Sylvía
Kristjánsdóttir.
20. -23. ágúst: Sveinstindur -
Skælingar - Eldgjá, trússferð.
Spennandi ferð. Fararstjóri verð-
ur Hákon Gunnarsson. Gengið
frá Sveinstindi við Langasjó í
Skælinga. Gist í skála í Skæling-
um. Síðasta daginn er gengið í
Hólaskjól.
21. -23. ágúst: Fjallabaksleið-
ir# hjólreiðaferð. Hjóluð Kraka-
tindleið í Hvanngil. Farið um
Mælifellssand, eftir gömlum
slóðum inn í Álftavatnskrók. Síð-
asta daginn er farið í Eldgjá og
ekið um Fjallabak heim.
Útivist - ferðafélag,
Hallveigarstig 1,101 Rvik,
sími 561 4330 - fax 561 4606.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Hjálpræðissamkoma kl 20.00
Kafteinn Miriam Óskarsdóttir
talar.
Kriitif simfila)
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
Kl. 20.00 Almenn samkoma.
Predikun: Jón Þór Eyjólfsson.
Beðið fyrir þörfum einstaklinga.
Föstudagur kl. 20.30:
„Eldur unga fólksins."
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 16. ágúst kl. 13:
Ketilstígur — Seltún — gömul
þjóðleið. Skemmtileg ganga yfir
Sveifluháls. Verð 1.200 kr., frítt f.
börn með fullorðnum 15 ára og
yngri. Brottför frá BS(, austan-
megin og Mörkinni 6.
Dagsferðir í Þórsmörk sunnu-
dag 16., mánudag 17. og mið-
vikudag 19. ágúst. Með brott-
för kl. 8.00 að morgni, einnig
hægt að dvelja á milli ferða.
Næstu helgarferðir í Þórs-
mörk og á Fimmvörðuháls eru
21.—22. ágúst. Heglarferð
Laugar — Eldgjá — Álftavatn,
21.—23. ágúst.
Laus sæti í sfðustu „Lauga-
vegsferðirnar" og ferðina
„Við rætur Vatnajökuls"
27.—31. ágúst.
fomhjalp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Fjölbreyttur söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Vitnisburðir. Barnagæsla.
Ræðumaður Brynjólfur Ólason.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hverfisgata 105, s. 562 8866
Sunnudagskvöld kl. 17.00
Fjölskyldusamkoma.
Predikun: Hilrnar Kristinsson.
„Gróska í Guðsíkinu."
Þriðjudagskvöld kl. 20.00
Biblíuskóli.
Föstudagskvöld kl. 21.00
Gen-X-kvöld fyrir unga fólkið.
Trúboð í miðbænum kl. 23-4
í Grófinni 1.
Gönguferðir, klettaklifur,
tjaldbúðalíf, ísklifur, fjöru-
ferð og margt fleira.
Sumarleyfisferðir:
Núpsstaðaskógar—Skaftafell
27.—30. ágúst.
Laki—Núpsstaðaskógar
23.-26. ágúst.
Núpsstaðaskógar—
Djúpárdalur
18.—21. ágúst.
Hvannadalshnjúkur og skrið-
jöklar daglega.
íslenskir fjallaleiðsögumenn,
sími 587 9999.
s
Islenska
Kristskirkjan
Samkoma á Bíldshöfða 10,
2. hæð, kl. 20.00.
Mikil lofgjörð, vitnisburðir og
fyrirbænir. Allir velkomnir.
^VBAHÁ’Í
VÚ OPIÐ HÚS
Sunnudagskvöld kl. 20:30
Margrét Gísladóttir:
Andleg
umbreyting
Kaftl og veiiingar
Alfabakka 12, 2. hœð
sími 567 0344
www.itn.is/bahai
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræð-
um. Vörður L. Traustason. Tón-
listarsamkoma kl. 20.00. Lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu syngur.
Ræðum. Glenn Kaiser, leiðtogi
hljómsveitarinnar Resurrection
Band (ath. hljómsveitin kemur
ekki fram).
Allir hjartanlega velkomnir.
Mið. kl. 20.00 bænastund
Fös. kl 20.30 unglingasamkoma.
Lau. kl. 20.30 bænastund.
Heimasíða: www.gospel.is
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Fagnadarsamkoma
Fögnum heimkomu kristniboð-
anna Guðlaugs Gíslasonar, Birnu
Gerðar Jónsdóttur, Guðlaugs
Gunnarssonar, Valgerðar Gísla-
dóttur, Bjarna Gíslasonar,
Elísabetar Jónsdóttur og barna
þeirra i kvöld kl. 20.30.
Hugleiðingu hefur Kjartan Jóns-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
KENNSLA
Að virkja orku og sköpunar-
kraftinn.
Dags- og/eða
helgarnámskeið í
náttúruperlunni
Nesvík á Kjalarnesi
22.-23.8 og 12.-13.9.
Þessi námskeið
eru fyrir þá sem vilja:
•Opna og orkujafna orkustöðvar
•Losa stress/spennu og lina
sársauka
•Uppgötva röddina sína
•Upplifa sjálfstjáningu
•Heila með orku og tónun
Kennari verður Esther Helga
Guðmundsdóttir, fv. skólastjóri
Söngsmiðjunnar. Upplýsingar
og skráning i sima 699 2676.
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
Nám í svæðameðferð
byrjar fimmtudaginn 3. sept.
Viðurkennt af Svæðameðferðar-
félagi íslands.
Skráning fyrir 20. ágúst.
Fáein pláss laus.
Upplýsingar og innritun í Heilsu-
setri Þórgunnu í símum 562 4745
og 896 9653.