Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Halldór Sveinbjörnsson VINNUFÉLAGARNIR Páll Kristjánsson og Einar Stefán Einarsson, fjær, á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði í gær. Þeir féllu átta metra þegar körfubíll valt á Isafirði á föstudagskvöld. Tveir sluppu naumlega er körfubíll fór á hliðina á Isafírði Bj argaði að gras- flötin gaf vel eftir ísafirði. Morgunblaðið. Miramax vill útstöð á Islandi MIRAMAX kvikmyndafyrirtækið, sem er einn stærsti óháði kvik- myndairamleiðandinn í Bandaríkj- unum, er tilbúið að taka hér sex kvikmyndir næstu 1-2 ár ef samn- ingar takast við stjómvöld um skatt- fríðindi. Cary Granat, forseti Miramax, hefur átt fundi með emb- ættismönnum um málið og mun m.a. hitta iðnaðarráðherra og fjármála- ráðherra. Þorfinnur Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs, seg- ir að Miramax hafi stofnað útstöðvar í nokkrum öðrum löndum, þ.e. Nýja Sjálandi, Suður-Afríku, írlandi, Mexíkó, Kanada og Danmörku. Hann segir að fyrirtækið taki flestar sínar myndir utan Bandaríkjanna vegna skattafríðinda sem fyrirtæk- inu bjóðist annars staðar. Miramax hafi fjárfest mikið í kvikmyndaiðnaði í þessum löndum og byggt heilu kvikmyndaverin. Að sögn Þorfinns eru samningar Miramax við stjórnvöld í þessum löndum á þann veg að fyrirtækið fær endurgreidd 30-50 sent af hverjum dollara sem það ver til kvikmynda- framleiðslunnar og vill fyrirtækið gera sams konar samninga hérlendis. Þorfinnur segir að ef samningar takist og fyrirtækið hefur töku kvik- mynda hér á landi yrði meirihluti þehra sem ynnu við gerð þeirra Is- lendingar en leikarar erlendir og myndirnar flokkast alfarið sem bandarískar. Hvarf af gæsluvelli TVEGGJA ára barn, sem var í gæslu á gæsluvellinum Norðurberg við Norðurvang í Hafnarfirði í gær, komst út af vellinum síðdegis. Lögreglu var tilkynnt um hvarf bamsins og kom það í leitimar skömmu síðar. ------------- Jeppi valt við Sauðárkrók JEPPI valt við Brennigerði sunnan við Sauðárkrók í gær. Ökumaður var einn í bílnum og slasaðist hann lítilsháttar. Að sögn lögreglu losnaði um hátt fermi á þaki jeppans en við það missti ökumaður stjóm á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt. Afsökun- arbeiðni Sl. sunnudag birtist auglýsing á bls. 7 þar sem samanburður er gerður á áfengismagni í mis- munandi tegundum áfengra di-ykkja. Auglýsing þessi birtist fyrir mistök. Morgunblaðið biðst afsökunar á þeim mistökum. „ÞAÐ ER óskiljanlegt að það skuli vera hægf að sleppa lifandi úr þessu. Þetta er kraftaverk," sagði Páll Kristjánsson húsa- smiðameistari á ísafirði í samtali við blaðið, en hann og Einar Stef- án Einarsson féllu um átta metra þegar körfubfll sem þeir voru að vinna í við Landsbankann á ísa- firði valt á hliðina á föstudags- kvöldið. „Og svo gerðist annað krafta- verk þegar ég var kominn á sjúkrahúsið. Litlifingur á hægri hendi varð á milli körfunnar og gálgans í fallinu og má segja að hann hafi klippst af, hann hékk bara á einhveijum skinntægjum. En ég var svo heppinn að fyrir- hitta snilling á sjúkrahúsinu, Þor- stein Jóhannesson yfirlækni, sem setti fingurinn aftur á sinn stað og tengdi allt saman, æðar og sin- ar og taugar, og ég er meira að segja strax kominn með tilfinn- ingu í fingurinn. Þorsteinn læknir vann þetta verk með dyggilegri aðstoð eiginkonu sinnar, Friðnýj- ar Jóhannesdóttur yfirlæknis á Heilsugæslunni, og fleira góðs fólks á spítalanum," sagði Páll. Hann fékk einnig höfuðhögg, en það var fremur smávægilegt, að hans sögn. „Svo fékk ég tölu- vert högg neðan til á spjald- hrygginn, en sem betur fer er það bara mar sem er að ganga út núna með tilheyrandi kvölum. Sem betur fer meiddist ég ekki annað en þetta.“ - Manstu hvað þú hugsaðir á leiðinni niður? „Þennan tíma sem við vorum að fara niður, þessar fáu sekúnd- ur, þá finnst mér að ég hafi eig- inlega hugsað um allt lífið. Áður en karfan skall til jarðar hugsaði ég með sjálfum mér að það væri útilokað að maður lifði þetta af. En svo lentum við á þeim eina stað þar sem var mjúkt undir. Það bjargaði örugglega lífí okk- ar að grasflötin gaf svo vel eft- ir.“ Átti ekki að geta gerst Vinnufélagi Páls, Einar Stefán Einarsson, múrari úr Reykjavík sem vinnur við viðgerðir á hús- eignum Landsbanka fslands, rif- beinsbrotnaði og tognaði í hné og kom vökvi inn á liðinn. Þeir fé- lagar voru í körfunni í um átta metra hæð og voru að undirbúa viðgerð á steyptum þakrennum á húsinu. „Ég var svo viðkvæmur í iljunum daginn eftir, af því að höggið var svo mikið þegar við lentum, að ég gat ekki gengið," sagði Páll. „Þetta átti ekki að geta gerst, en Vinnueftirlitið er með málið til rannsóknar. Það verður tekið til við þetta verk á ný strax og heilsan leyfir og haldið áfram við það.“ Páll Kristjánsson hefur um árabil rekið körfubfl á fsafirði og var búinn að vera með þennan bfl í tvö til þijú ár, en áður var hann með minni bfl. Beið bana í Gnúpverja- hreppi BANASLYS varð á bænum Steins- holti í Gnúpverjahreppi síðastliðinn sunnudagsmorgun. Hinn látni hét Sveinn Eiríksson, 84 ára að aldri. Hann bjó með systkinum sínum í Steinsholti og var ókvæntur og barnlaus. Slysið er talið hafa orðið með þeim hætti að nýborin kýr, sem Sveinn hugðist vitja, stangaði hann og lést hann skömmu síðar. Engin vitni voru að slysinu. Sveinn starfaði ötullega að fé- lagsmálum í sinni sveit um áratuga skeið og gegndi meðal annars for- mennsku í Sauðfjárræktarfélagi Gnúpverjahrepps frá 1946 til 1988 og sat í hreppsnefnd frá 1946 til 1982. Hann var í stjóm Ung- mennafélags Gnúpverja frá 1942 til 1948 og starfaði með ungmennafé- laginu um áratuga skeið. Þá var Sveinn fjallkóngur Gnúpverja árin 1976-1985. ♦♦♦ Lést í bflslysi í Namibíu GUNNLAUGUR Karl Nielsen, yfír- vélstjóri á frystitogaranum Sea- flower, lést í bílslysi í Liideritz í Nam- ibíu sl. laugardag. Gunnlaugur, sem bjó í Namibíu ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum, lést, samkvæmt upplýsing- um íslenskra sjávarafurða, eftir að hann missti stjóm á bíl sínum í ná- grenni Luderitz. Hann lætur einnig eftir sig fósturson. Frystitogarinn Seaflower, sem Gunnlaugur starfaði á, er í eigu samnefnds fyrirtækis í eigu Namib- íumanna og íslenskra sjávarafurða. Hann er gerður út frá Lúderitz. Stgörnuspá á mbl.is í DAG verður opnaður vefur á mbl.is tileinkaður stjörnuspám og efni sem þeim tengist. Á vefnum mun á degi hverjum birtast stjörnuspá dagsins ásamt umsögn um þá sem eru fæddir þennan dag. Hægt er að senda afmæliskveðjur beint inn á vefínn sem birtast þá innan tíðar. Þá géta afmælisbörn dagsins heimsótt vefinn til að at- huga hvort þeim hafi borist kveðjur. Hægt er að athuga hvernig stjömumerkin eiga saman, skoða má spána fyrir árið 1998 fyrir öll merkin ásamt því að lesa frekari lýsingu um hvert merki fyrir sig. Stjörnuspárvefinn má nálgast á forsíðu Fréttavefjarins með því að smella á hnappinn Spáðu í stjömumar. Með Morgun- * blaðinu í dag • fylgir fjög- I urra síðna • auglýsinga- • blað frá * Heimsferð- • um. Það heit- * ir „Skíðaferð- • ir veturinn 1 98-99“ og J eru þar • kynntar * skíðaferðir til • Austurríkis. ! Þrír Norðurlandameistarar unglinga í frjálsíþróttum/B2 Nottingham Forest með Auðun Helgason undir smásjánni/B1 Á ÞRIÐJUDÖGUM R

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.