Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 25
MORGUNB LAÐIÐ LISTIR URIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 25 YFIR 3000 manns sóttu Listasafn Reykjavíkur þar sem sýning á verkum Erró stendur yfir. AFRÍKANSKUR trumbusláttur með Hailgrímskirkju í bakgrunni. Morgunblaðið/Halldór LINDA Vilhjálmsdóttir og Elísabet Jökulsdóttur lesa ljóð í Tjarnarhólmnuin Fjórði hlutinn, sem byrjaði klukk- an ellefu, var athyglisverður en þá kom fram Olína Þorvarðardóttir og flutti 'rímnakve'ðskap við ýmsar ís- lenskar stemmur sem hún tilgreindi, s.s. Vatnsdælingastemmu og Hólastemmu svo þeirra algengustu sé getið. Þessa 500 ára gömlu hefð sagði hún næstum gleymda en hún gerði sitt til að blása í glæðurnar þetta kvöldið. Þórarinn Eldjárn flutti ljóð með fyndnar endalínur en Bragi Olafsson var mótvægið í þess- um hefðbundna og formfasta hluta með sín óbundnu ljóð og prósa. Fimmti og síðasti hlutinn byi’jaði á kostulegu atriði með íslenskri glímu þar sem Ingibergur Sigurðs- son glímukóngur Islands og Sigurð- ur Nikulásson áttust við en Sjón flutti glímubrag undir. Það hvarflaði að manni að þarna væri verið að setja á svið táknræna glímu hefðar- innar við nýljóðið. Og jafnvel að írónía hafi verið skipuleggjendum ljóðakvöldsins í huga við samningu dagskrár. Hvað sem því líður þá var þetta bráðskemmtilegt atriði. Hér var komið fram yfh' miðnætti og yngi’i ljóðskáldin áttu sviðið. Hallgn'mur Helgason var með „uppistand“, þar sem hann m.a. svaraði nýlegri gagnrýni Þrastar Helgasonar á ljóð eftir hann sjálfan með því að snúa út úr ljóði Jónasar Hallgrímssonar „Þröstur minn góð- ur“. Sá háttur var hafður á, til gamans og til að magna stemningu, að mæla klappstyrk eftir lestur hvers og eins með þar til gerðum mæli. Klappið jókst skiljanlega þegar á leið en sig- urvegarinn í „desibelamælingu" kvöldsins varð Haraldur Jónsson, myndlistannaður og skáld. Ljóðin hans vöktu kátínu gesta en stundum veit maður varla hvort maður á að hlæja eða gráta. Að því er virðist vinnur hann með eins konar „ofur- flatneskju“ í ljóðum sínum. Hann endar mörg þeirra á því sem kallað er á ensku „punch-line“, eins konar rúsínu í pylsuendanum, líkt og Þór- arinn Eldjárn, nema að hjá Haraldi er um eins konar „and-rúsínur“ að ræða. Enn yngdist nóttin þegar Doktor Gunni og Heiða komu fram og fluttu ljóð eftir Dag Sigurðarson í rokkuð- um og hæfandi búningi. „Jæja. Allir menningarlegir í kvöld og svona,“ sagði Dr. Gunni áður en þau Heiða keyrðu af stað. Síðast ljóðskálda var svo Berlind Ágústsdóttir en hún flutti ljóð sín með teknótakti og músík. Einhverju sinni var sagt að „ljóð- ið ætti ekki að merkja heldur vera“ en upp á ensku er þá sagt „A poem should not mean, but be.“ Þorgeir Þorgeirsson sneri út úr þessu og sagði „A poem should be mean“, eða „ljóð ætti að vera grimmt“. Ekki fór mikið fyrir grimmdinni á þessari ljóðanótt. Hefðin var, eins og áður segir, í fyrirrúmi. Gerður Kristný var að vísu köld í sínum ljóðum (það fennir meira að segja í „Sumarljóð- inu“ hennar!), og Jóhamar hneyksl- aði fólk af eldri kynslóðinni með gömlum súrrealískum töktum en á heildina litið virðist fátt vera að ger- ast í ljóðinu hjá skáldum af yngstu kynslóð, af kvöldinu að dæma. Varla gerist mikið við að fylgja forskrift- um Hallgríms og annarra neo- Fjölnismanna um allsherjar aftur- hvarf í rímaðan og þrælbundinn kveðskap. Heimsfrægir á póstsvæði 101 MYIVPLIST Fiskurinn MARGMIÐLUN Þorvaldur Þorsteinsson og Jónf Jóns- dóttir. Opið daglega frá 14:00 til 18:00. Aðgangur ókeypis. Til 26. ágúst. „STJÖRNUGÖTUKORT 101“ er þriðja sýningin af fjórum í tíma- bundnum sýningarsal á Skóla- vörðustíg 22c, Fiskinum, en allar eru þær samvinnuverkefni tveggja eða fleiri listamanna. Aðstandend- ur sýningarsalarins lýsa sýningun- um sem kynningu á efni sem tekið verður saman og birt á margmiðl- unardiski að sýningunum loknum. Verkin á sýningunum eru því gerð með geisladisk og tölvuskjá í huga. Tölva er til taks í sýningarsalnum, þannig að sýningargestir geta kynnt sér hvernig efnið kemur væntanlega til með að líta út í sinni endanlegu stafrænu mynd á tölvu- skjánum. Bragi Halldórsson hefur umsjón með gerð margmiðlunar- efnis. Að þessu sinni er samvinnan í höndum Jóníar Jónsdóttur og Þor- valdar Þorsteinssonar. Jóní er bet- ur þekkt sem meðlimur í Gjörn- ingaklúbbnum, sem einnig hefur gengið undir nafninu The Icelandic Love Corporation. Þorvald þarf varla að kynna. Stjörnudýrkun fjölmiðla og sífellt yfirvofandi heimsfrægð íslenskra listamanna er skotspónn þeirra á sýningunni. Þau hafa látið útbúa kort af því svæði í Reykjavík sem afmarkast af póstsvæði hundrað og einum. Á kortinu er merkt hvar helstu „stjörnurnar" búa og hvar þær halda sig helst, t.d. veitingastaðir og fatabúðir. Hverju nafni fylgja sérútbúnar merkingar til að gefa til kynna á hvaða sviði stjarnan Fylgstu með nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is hefur getið sér frægðar. Hægt er að fá eintak af kortinu í sýningar- salnum, ef menn vilja leita uppi staðina. Við þurfum þó ekki að ómaka okkur, því hugmyndin er sú að á margmiðlunardiskinum verði hægt að bregða upp kortinu á skjánum, smella á tölusetta punkta, þar sem heimilisfang stjarnanna er merkt inn á, og kalla fram mynd sem Þorvaldur og Jóní hafa tekið í leyni fyrir utan heimil- in. En flest af þessu hefur verið vel tíundað í Morgunblaðinu undan- farna daga, þar á meðal stjörnum prýdd opnunarhátíðin, þar sem há- punkturinn var þegar þeir félagar í Tvíhöfða, Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr, mættu og þrykktu handafór sín í blauta steypu á gangstéttinni, eins og kvikmynda- stjarna er siður vestur í Hollywood. Allt er þetta hið mesta glens og kannski liðm- í því að færa listina nær „fólkinu“, eða a.m.k. því fólki sem hefur aðallega áhuga á því sem gerist á síðum Morgunblaðs- ins „Fólk í fréttum" og í vikuritinu „Séð og heyrt“. En grínið ristir nú ósköp grunnt og ef þetta á að vera kaldhæðni þá missir hún marks. Kortið og margmiðlunarefnið er fagmannlega unnið, en hvorki betra né verra en búast má við af þokkalegri auglýsingastofu. Marg- miðlunarefnið býður ekki upp á hugmyndaríkari úrlausn en víða er að finna á Netinu og kemur ekki lengur á óvart. Sýningin skilur varla meira eftir sig en brosvipru í öðru munnvikinu. En það er gott ef menn geta glaðst yfir litlu. Gunnar J. Árnason Heitir pottar úr akrýli! • Níðsterkir, auðveldir að þrífa • Fást með loki eða örvggishlíf • Nuddkerfl fáanlegt • Margir litir, 8 gerðir, rúma 4-12 Komið og skoðið pottana uppsetta í sýningarsal okkar, eða hringið og fáið sendan Utprentaðan bækling og verðlista. Verð frá aðeins kr. 94.860,- Hjallalirauni 2,220 Hafnarfjörður. Sími: 555 1027 Fax: 565 2227 JlbCompAÍr Holman Loftpressur og verkfæri ^Compto 42 llanlegt beisli • Landhjól • CC Ijósabúnaður bremsur og handbremsa nljóðeinangrun ^ Einnig gott úrval lofthamra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.