Morgunblaðið - 25.08.1998, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 33
!
!
I
!
!
I
I
I
I
1
I
: J
3
i
3
3
!
J
GUÐJÓN
GUÐMUNDSSON
+ Guðjón Guð-
mundsson,
framreiðslumaður,
fæddist 25. desem-
ber 1925 í Reykja-
vík, hann lést á
heimili sínu 19.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Guðjóns
voru Indiana
Bjarnadóttir frá
Norðfirði og Guð-
mundur Gíslason,
gullsiniður, frá
Berjanesi undir
Eyjafjöllum. Systk-
ini Guðjóns voru 7,
Albert (látinn), Gísli (látinn),
Skarphéðinn, Erla, Valentínus,
Steinþór og Ingólfur. Kjörsystir
er Inga Magnúsdóttir frá seinna
hjónabandi Indiönu við Magnús
Magnússon.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
jóns er Gunnþórunn Gyða Sig-
uijónsdóttir frá Höfða á Vatns-
leysuströnd, f. 8.6. 1925. Þau
gengu í hjónaband 29.1. 1950.
Börn þeirra eru: Gunnar Geir
Kristjánsson, f. 3.9.
1944, sem er sonur
Gunnþórunnar frá
fyrra hjónabandi,
Magnús, f. 30.1.
1948, Indiana, f.
27.8. 1950, Þórar-
inn, f. 5.1. 1955, Að-
alheiður, f. 13.9.
1956, Svava Krist-
jana, f. 11.6. 1959,
Margrét Ásta, f.
14.6. 1960. Bama-
börnin eru orðin 23,
langömmu- og afa-
börnin 12, alls eru
afkomendur þeirra
orðnir 43.
Guðjón lærði ungur fram-
reiðslu og starfaði sem veit-
ingaþjónn á ýmsum stöðum um
40 ára skeið. Hann rak inn-
römmunarverkstæði í 14 ár og
nú 7 síðustu árin var hann um-
sjónarmaður í húsi Krabba-
meinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Útför Guðjóns fer fram frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Á mildum ágústmorgni lagði okk-
ar kæri vinur Guðjón Guðmundsson
upp í sína hinstu fór eftir erfiða bar-
áttu við illvígan sjúkdóm. Hann
barðist hetjulega og aldrei heyrðist
hann kvarta, enda ekki hans stíll.
Við hjónin kynntumst honum Gauja
okkar fyrir átján árum þegar hann
hóf störf á Ráninni á Skólavörðustíg
sem yfirþjónn. Eric, maðurinn minn,
vann þar sem yflrkokkur og var
samvinna hans og Gauja með ein-
dæmum góð og mynduðust með
þeim sterk vinatengsl. Gaui var
glæsilegur þjónn í sínum fína
smóking. Hann var ætíð yfirvegaður
og jákvæður í starfí og þrátt fyrir að
staðurinn hafí verið tví- og þrísetinn
lét Gaui það aldrei á sig fá og leysti
störf sln af hendi með háttvísi og
prúðmennsku, svo einstök þolin-
mæði prýddi skapgerð hans. Aldrei
heyrðum við hann Gauja okkar hall-
mæla neinum því hann var svo heill
og góður.
Við kynntumst fljótlega konunni
hans, henni Þóru okkar, og
komumst að þvi hversu mikinn
dugnað og gæði hún hefur að
geyma. Hún hefur alla tíð staðið við
hlið Gauja í gegnum súrf og sætt.
Gaui og Þóra eiga yndislegan sum-
arbústað í Þrastarskógi sem hefur
verið þeirra paradís í gegnum árin.
Eg og Eric urðum þeirrar sælu að-
njótandi að fá sumarbústaðinn
þeh'ra að láni fyrir sextán árum. Þar
vorum við með erlenda gesti í heila
viku og nutum þeirra yndislegu
paradísar. Þar með vorum við komin
með sumarbústaðardelluna og það
liðu ekki nema þrjú ár þar til við
gátum eignast okkar eigin bústað
rétt fyrir neðan Þóru og Gauja. Það
var ósjaldan að við leituðum ráða
hjá þeim hjónum og voru þau ætíð
fús til að liðsinna okkur. Við hóf-
umst handa við að rækta garðinn
okkar og Gaui og Eric grófu holur á
meðan ég og Þóra fórum og keypt-
um trén. Þau litu inn hverja helgi til
að sjá til þess að nýgræðingarnir
væni nú örugglega búnir að vökva
og sá áburði á litlu trén. Þau voru
sérfræðingar í garðrækt á þessu
svæði og án þeirra hefði sjálfsagt lít-
ið sprottið í okkar garði. Þetta voru
yndislegir tímar sem við munum
ætíð varðveita í huga okkar og
hjarta.
H""""
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Sími 562 0200
rxxxxxxxnxrl
Það verður sárt að fara austur
núna og fínna ekki hann Gauja okk-
ar að sýsla eitthvað í garðinum sín-
um, því honum féll aldrei verk úr
hendi.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Við hjónin vottum Þóru, börnum
þeirra, tengdabörnum og barna-
börnum okkar dýpstu samúð. Elsku
Þóra, þú veist hvar okkur er að
fínna.
0, sólar faðir signdu hvert auga
og sér í lagi þau sem tárin lauga.
(Matthías Jochumsson)
Guðbjörg og Eric Paul.
Hann afí okkar er dáinn. Daginn
áður vorum við, sem það gátum, hjá
honum og héldum í höndina á hon-
um, það var dýrmæt kveðjustund
fyrir okkur öll. Maður áttar sig á því
hvað manni þykir rosalega vænt um
hann, þegar svona kemur upp á. Við
vildum að við hefðum getað verið
meira hjá honum og kynnst honum
betur, það er sárt að hafa misst
hann svona, en honum líður ábyggi-
lega vel núna, í hendi Guðs, og við
vitum að Guð passar upp á hann og
verndar hann, elsku afa okkar.
Við, sem ekki gátum komið tíman-
lega til að kveðja afa, fínnum sárt til
þess, en við vitum að hann afi skilur
það og veit að við vorum með hug-
ann hjá honum, hann sem alltaf
hafði faðminn opinn og fagnaði okk-
ur og þótti vænt um okkur eins og
við erum.
Við áttum okkur ekki á þessu
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöna revnsla.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
strax, að afí eigi ekki eftir að vera
með okkur, en við vitum, að hann
mun alltaf vera hjá okkur í huganum
og hjartanu. Við söknum þín sárt,
elsku afí, og við vildum að þú værir
hér hjá okkur, en við vitum að það
verður hugsað vel um þig, Guð
blessi þig og vai’ðveiti.
Við biðjum líka Guð um að vera
með henni ömmu okkar og gefa
henni styrk og öllum sem syrgja
hann afa.
Eggert, Arnheiður, Katrín
og Magnús Einar.
Minningin um afa á alltaf eftir að
sitja fast í huga mér. Með tilveru
hans þá var lífið gott og umhverfið
betra. Afí hafði kosti sem allir gætu
verið stoltir af að hafa. Hann var
lífsglaður og hjálparhöndin var
aldrei langt undan og vildi allt íyrir
alla gera og þannig mun ég muna
eftir honum. Hann fór aðfaranótt
þriðjudagsins og með honum fór
mikill friður og hamingja og hann
lést hamingjusamur.
Það voru mikil forréttindi að eiga
Guðjón Guðmundsson að afa. Líf
hans ætti að geta kennt okkur hin-
um mikið. Það geta allir verið sam-
mála mér um það að afi var maður
sem hafði mikla kosti og allir vilja
láta muna eftir sér eins og við mun-
um eftir honum. Þess vegna þurfum
við hin að eiga fyrirmyndir eins og
hann og lifa í gleði og hamingju, sátt
og samlyndi.
í desember á síðasta ári flutti fjöl-
skylda mín í nýja íbúð og fengum við
mikla hjálp. Sú hjálp kom frá afa og
ömmu, þau hjálpuðu okkur að flytja
innbúið á þriðju hæð, mála, þrífa og
allt það vesen sem fylgir því að
flytja. Og sá greiði er geymdur en
ekki gleymdur og eiga þau inni hjá
okkur greiða. Á þeim tíma var aifi
friskur og hress og maður gat aldrei
ímyndað sér að hann myndi fara
innan árs. Það á enginn maður eins
og afi skilið að deyja. Undir eðlileg-
um kringumstæðum hefði hann átt
að eiga nóg eftir af ævi sinni og
þetta á líka við um okkur. Þess
vegna verðum við að meta lífið
meira því maður veit aldrei hvað
gerist næst. Veikindi geta komið
hvenær sem er og til hvers sem er.
Stundum getur lífíð verið ósann-
gjarnt. Eg sakna hans mikið og mun
hann lifa í minningu minni sem góð-
ur, hjálpsamur, duglegur og sam-
kvæmur sjálfum sér. Afi var þannig
maður sem öllum þótti vænt um og
ég er engin undantekning á því.
Ég kveð þig, afí, og þakka þér íyr-
ir ómetanlegar stundir sem þú hefur
eytt með mér síðan ég var smá-
strákur. I ferðalögum, í bústaðnum,
á jólum, um áramót. Ég get enda-
laust talið upp góða tíma. Ég veit að
þú fylgist með okkur.
Með eilífðri kveðju.
Páll Heiðar.
€rfi 6 Sí ísclrykkjur 'Veitingoliú/ið GdPi-inn mi 555-4477
,|-rrw
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
t
Eiginmaður minn,
ÁSGEIR BJARNASON,
Litlahvammi 9a,
Húsavík,
lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst.
Jóna H. Guðjónsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HLÍF ÞÓRARINSDÓTTIR,
Naustahlein 6,
Garðabæ,
lést á lyflækningadeild Landspítalans föstu-
daginn 21. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórarinn Ólafsson, Marta Bjarnadóttir,
Geir Ólafsson, Ingibjörg Bjarnardóttir,
Ragnar Ólafsson, Matta Rósa Rögnvaldsdóttir,
og fjölskyldur.
t
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN ELIMUNDARDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunar- og dvaiarheimilinu
Seljahlíð að kvöldi laugardagsins 22. ágúst sl.
Þorgrímur Guðmundsson,
Sigurður E. Guðmundsson, Aldís P. Benediktsdóttir,
Kristinn R. Guðmundsson, Anna G. Ólafsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, Guðjón Albertsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJARNDÍS TÓMASDÓTTIR,
Miklubraut 54,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 22. ágúst.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 2. september kl. 15.00.
Sigríður Gísladóttir, Páll Sigurjónsson,
Ólafur Gíslason, Gerða S. Jónsdóttir,
Helgi Gíslason,
Kristín Gísladóttir, Aðalsteinn Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar,
ÓLÖF VILMUNDARDÓTTIR,
Laufásvegi 42,
Reykjavik,
lést á Landakotsspítala laugardaginn 22. ágúst.
Ólafur Þorsteinsson,
Kristín Þorsteinsdóttir.
t
Ástkær amma, tengdamóðir, langamma og langalangamma,
MAGNEA V. EINARSDÓTTIR,
Sólvangi,
áður Grænukinn 17,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi föstudaginn 21. ágúst 1998.
Jarðarförin auglýst síðar.
Haraldur R. Gunnarsson, G. María Gunnarsdóttir,
Ársæll Már Gunnarsson, Magnea Þ. Gunnarsdóttir,
Olga Gunnarsdóttir, Auður Gunnarsdóttir,
Gunnar Már Torfason,
tengdabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/