Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, tengdasonur og bróðir,
GUNNLAUGUR CARL NIELSEN
vélfræðingur,
lést af slysförum í Namibíu aðfaranótt sunnu-
dagsins 23. ágúst.
Björk Eiríksdóttir Nielsen,
Linda Björk Nielsen, Einar Carl Nielsen,
Ingi Björn Nielsen, Heimir Freyr Heimisson,
Gunnlaug Þ. Gunnlaugsdóttir,
Einar L. Nielsen, Svanhildur Jóhannesdóttir,
Margrét Hjartar,
Ingunn Halldóra Nielsen,
Vilborg Nielsen,
Kristín Nielsen,
Guðni Páll Nielsen,
Einar Leif Nielsen,
Rannveig Klara Matthíasdóttir,
Bjarni J. Jóhannesson.
KARL STRAND
Lát mig starfa, lát mig vaka.
Lifa meðan dagur er.
Létt sem fuglinn lát mig kvaka.
Lofsöng, drottinn flytja þér
meðan ævin endistmér.
Lát mig iðja, lát mig biðja,
lífsins faðir, Drottinn hár.
Lát mig þreyttan þjáðan styðja,
þeirra tár og græða sár,
gleðja og fóma öll mín ár.
(Öterdahl. Margrét Jónsdóttir þýddi.)
Þessar ljóðlínur lýsa vel kynnum
mínum af herra Karli Strand, fyrr-
verandi yfirlækni geðdeildar Borg-
arspítalans, sem lést 14. ágúst síð-
astliðinn. Karli kynntist ég er hann
tók við stöðu yfirlæknis geðdeildar-
innar vorið 1968. Þá var spítalinn í
uppbyggingu og geðdeildin að taka
til starfa í nýju húsnæði Borgarspít-
alans. Sjúklingamir komu aðallega
frá geðdeild sem til húsa var í
gamla Farsóttarhúsinu við Ingólfs-
stræti en sú deild var í kjölfarið
lögð niður. Það var mikil breyting
hjá skjólstæðingum og hjúkrunar-
fólki að flytja úr gamla húsinu á
Farsótt og í nýtt húsnæði á Borgar-
spítalanum. Nýi yfirlæknirinn var
nýkominn frá Englandi, fullur hug-
mynda um góðar breytingar, ein af
þeim var til dæmis að geðdeildin
skyldi vera „opin deild“. Á hverju
fimmtudagskvöldi voru kvöldvökur
þar sem fólkið var hvatt til að
skemmta sér og tjá sig. Karl gekk
ævinlega stofugang tvisvar í viku, á
mánudags- og fóstudagsmorgnum.
Karl bjó til nýyrðið „iðjuþjálfun" og
setti fljótlega upp iðjuþjálfun við
geðdeildina þar sem fólk skyldi
hvatt til að hefja vinnu á ný, enda
sannfærður um að „vinnan göfgaði
manninn".
Ég sem þessar línur rita varð
þeirrar ánægju aðnjótandi að vera
með þeim íyrstu sem unnu undir
stjórn Karls á geðdeildinni. Karl
var meðalmaður á hæð, skarpeygur
með fallegt hökuskarð. Hann var
maður vel lesinn og hafði skemmti-
lega frásagnarhæfileika og ríka
kímnigáfu. Karl var maður traustur
og ráðhollur og gott til hans að leita
með ýmis mál. Ég hef fyrir satt að
meðan Karl og Margrét kona hans
bjuggu í Englandi var heimili þeirra
griðastaður námsmanna, sjómanna
og þeiira sem í vanda voru staddir.
Karl skrifaði meðal annars bók-
ina „Hugur einn það veit, þættir um
hugsýki og sálkreppur", auk greina
í tímarit, en ég læt öðrum eftir að
rekja nánar hina miklu menntun
hans í geðlæknisfræði svo og rit-
störf.
Að leiðarlokum leyfi ég mér, fyrir
hönd gömlu vinnufélaganna, að
þakka Karli Strand fyrir langt og
gott samstarf og hvatningu sem
aldrei bar skugga á. Við vottum frú
Margréti og fjölskyldu okkar
dýpstu samúð. Veri Karl Strand
kært kvaddur, Guði á hendur falinn.
Hafi hann hjartans þökk fyiir allt
og allt.
Jónína Björnsdóttir,
fyrrv. iðjuþjálfi geðdeildar
Borgarspítala.
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON
fyrrv. verkstjóri,
Lindargötu 57,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu að kvöldi laugar-
dagsins 22. ágúst.
Sævar Guðmundsson, Álfheiður Bjarnadóttir,
Helgi Þór Guðmundsson, Salóme G. Guðmundsdóttir.
+
Ástkær dóttir okkar og sonardóttir,
HEIDI MARGARET,
lést af slysförum í Fort Wayne, Bandaríkj-
unum, sunnudaginn 9. ágúst sl.
Útförin hefur farið fram.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu.
Sue og Þórhallur Halldórsson,
Þóra Ólafsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KLARA ÍSFOLD JÓNATANSDÓTTIR,
Ásbraut 8,
Grindavík,
lést á hjúkrunarheimili aldraðra, Víðihlíð í
Grindavík, laugardaginn 1. ágúst sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
innilegt þakklæti til starfsfólks Víðihlíðar fyrir
umönnun hennar. Þökkum vináttu og hlýhug.
Baldur Ketilsson,
Viktoría Ketilsdóttir, Guðjón Þorláksson,
Hildur Ketilsdóttir, Halldór Þorláksson,
Klara S. Halldórsdóttir, Gísli J. Sigurðsson,
Þuríður Halldórsdóttir,
Jóhanna Halldórsdóttir.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir, systir og amma,
MARIA MAGNÚSDÓTTIR
sjúkraliði,
Lækjarási 4,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju, Garðabæ,
miðvikudaginn 26. ágúst kl. 15.00.
Tryggvi Tryggvason,
Tryggvi Gunnar Tryggvason, Guðbjörg Haraldsdóttir,
Helga Tryggvadóttir,
Hildur Tryggvadóttir,
Elínborg Kristófersdóttir,
Kristinn Magnússon,
Alexandra Ósk.
Blámaslofa
Friðfmns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík * Sími 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skrcytmgar fvrir öLl tilefni.
Gjafavörur.
Krossar á íeiði
Ryðfrítt stáí - vamníegt eftti
Krossamir em framkiddir
úr kvíthúduðu, ryðfríu stáíi.
Minnisvarði sem endist
um ókomna tíð.
Sóíkross (táknar eiCíft ííf)
Hceð 100 smfrd jörðu.
Hefðbundinn feross m/munstruðutn
endum. Hceð 100 smfrájörðu.
Hringiö í síma 431-1075 og fáið litabækling.
BLIKKVERKt
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
Sími 431 -1075, fax 431 -3076
JENS
ÓLAFSSON
+ Jens Ólafsson
fæddist í
Stærr a-Ár skógi 11.
mars 1936. Hann
lést á heimili sínu
15. ágúst síðastlið-
inn og fór útför
hans fram frá Akur-
eyrarkirkju 24.
ágúst.
Þá er sú stund sem
ég óskaði að aldrei
kæmi runnin upp. Það
er sárt að kveðjast en
ég þakka þér íyrir allar
þær góðu stundir sem
við áttum saman. Nú ríkir í huga
mér bæði sorg og gleði. Sorg yfir
ÍWIDWUA
JlðTÍL ÍOK
iUSTflUMNT • (Jlíí
Upplýsingar í s: 551 1247
því hversu mikið ég hef
misst og líka gleði yfir
því hversu heppin ég
var að hafa fengið þig
sem eitt af mínum leið-
arljósum. Þó að erfitt
sé að skilja hvers
vegna þú fórst veit ég
að þú ert ekki langt í
burtu. Ég sé augun þín
glitra í stjörnunum og
spegilsléttu hafinu.
Kannski situr þú hjá
mér, með geislabaug
og vængi, og vonast til
að ég snúi mér að þér
og taki utan um þig.
Ég veit ekki hvar þú ert elsku afi,
en einhvers staðar var þörf fyrir
sterka sál. Ég veit að Guð hefur val-
ið svo miklum manni góðan stað þar
sem þú verður eflaust innan
skamms orðinn hinn mesti leiðtogi.
Þú munt alltaf búa í hjarta mínu
þangað til við hittumst á ný. Guð
geymi þig. Góða ferð ástarengillinn
minn.
Erna Hrönn Ólafsdóttir.
, " v/Nýbýlaveg
SÓLSTEINAR 564 4566
Legsteinar
Lundi
LEGSTEINAR
Islensk framleiðsla
Vönduð vinna, gott verð
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
LEGSTEINAR
I rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410