Morgunblaðið - 25.08.1998, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK f FRÉTTUM
Stutt
Crosby frest-
ar tónleikum
► Læknar hafa uppálagt
rokkaranum David Crosby,
sem fékk lifrarígræðslu ári
1994, að
fresta tón-
leikum
næstu tvær
helgar
vegna þess
að hann er
með hita og
sýkingu.
Crosby er
þekktastur
fyrir að leika með tríóinu
Crosby, StiIIs og Nash á sjö-
unda áratgnum. Hann hefur
ekki verið lagður inn á spít-
ala en „fylgst er náið með
honum“.
Clinton á vini
í Hollywood
► Clinton Bandaríkjaforseti
á góða að í Hollywood sem
hafa hjálpað honum að
greiða niður
skuldir
vegna
óheyrilegs
málskostn-
aðar. A með-
al þeirra
sem lögðu til
hámarks-
styrk eða
700 þúsund
krónur eru leikarinn Tom
Hanks, framleiðendinn
Norman Lear og parið Kate
Capshaw og Steven Spiel-
berg. Talsmaður styrktar-
sjóðsins segir að Clinton
skuidi um 450 milljónir
króna vegna lagaaðstoðar í
málum, sem eru allt frá
Whitewater til Paulu Jones
og Monicu Lewinsky.
Stone gefur út
geisladisk
► LEIKSTJÓRINN Oliver
Stone sem er helsti uppfinn-
ingamaður á samsæri í
Hollywood
ætlar að
gefa út tvö-
faldan
geisladisk
28. ágúst
næstkom-
andi með
tónlist úr
kvikmyndum
sínum.
► Hip-O Records gefur
safnið út, en í fyrra gaf það
út „Tarantino Connection"
með safni úr nokkrum
myndum Quentins Tarantin-
os. __
► Á safndiski Stones verða
lög úr „Salvador“, „The
Doors", „Platoon“, „Wall
Street“, „Natural Born Kill-
ers“ og „U-Turn“. Þar
verða einnig viðtalsbútar
þar sem Stone ræðir um
tengsl tónlistar og kvikmynda.
Lag til minning-
ar um Dodi
► Mohammed Al-Fayed hefur
fengið djassgítaristann George
Beonson til að
semja lag til
minningar um
son sinn Dodi,
sem lést í bflslysi
með Díönu
prinsessu í fyi'ra,
að því er New
York Daily News
greinir frá. Ben-
„ son hefur sjálfur
Benson misst þrjá syni.
'----------------------------m
Oliver
Stone
Bill
Clinton
David
Crosby
JAMES Fox á í höggi við vafasama menn í
myndinni „Performance" frá árinu 1970.
DONALD Sutherland bugaður af sorg í DAVID Bowie og Cindy Clark í myndinni
myndinni „Don’t Look Now“ frá árinu 1973. „The Man Who Fell to Earth“ frá árinu 1976.
UM MIÐJAN áttunda áratuginn
var nafn leikstjórans Nicolas
Roegs á allra vörum. Þessi sér-
stæði og persónulegi listamaður,
sem var snemma kunnur fyrir að
fara eigin leiðir, víðs fjarri meðal-
veginum, var orðinn virtasti leik-
stjóri Breta. Orðsporið skóp hann
strax með fyrstu myndunum sín-
um ljórum. Þær voru ferskar og
sérstakar og báru öll helstu sér-
kenni leikstjórans, sem hefur
jafnan lagt mikla áherslu á eró-
tíska hlið persónanna og sjónræn-
ar brellur sem oft á tíðum um-
turna venjubundinni, sjónrænni
framvindu. Tamið sér óbeinan
frásagnarmáta, gjarnan duirænan
og torráðinn og notað ábúðar-
miklar persónur í flestar mynda
sinna.
Nicolas Jack Roeg stendur á
sjötugu þegar þessar línur eru
skrifaðar, og er búinn að vera við-
riðinn kvikmyndagerð í röska
hálfa öld. Byrjaði hjá litlu kvik-
myndafyrirtæki 1947, við að texta
franskar myndir og hella uppá
könnuna. MGM réð hann í sínar
raðir 1950, sem aðstoðartöku-
mann við The Miniver Story. Hóf
störf sem tökumaður átta árum
seinna og árið 1964 var röðin
komin að hans fyrsta kvikmynda-
tökustjóraverkefni við AIP hroll-
vekjuna Table Bay. Vann sig síð-
an hægt og bítandi upp metorða-
stigann, fyrir leikstjóra einsog
Truffaut, Schlesinger og Huston.
Leið margra góðra leiksljóra
liggur í gegnum kvikmyndatöku-
stjórnina, sú varð raunin með
Roeg. 1970 stýrði hann frumraun-
inni, Performance (í samvinnu við
Donald Cammel). Myndin var sál-
fræðilegt drama um glæpamann
(James Fox) sem leitar hælis hjá
DON’T LOOK NOW (1973)
Spennumynd með hrollvekjandi
yfirbragði um hjón (Donald Suther-
land og Julie Christie), sem missa
dóttur sína í slysi og flytja til Fen-
eyja. Konan reynir að ná sambandi
við barnið sitt með aðstoð miðla, en á
sama tíma gengur morðingi laus í
borginni. Ohugnaðurinn læðist að
manni með hverri mínútunni í meist-
aralegri uppbyggingu Roegs,
myndatöku og notkun á drungaleg-
um tökustöðum. Kraftmikilli per-
sónusköpun (tvíburarnir eru einstak-
ir) og frábærri beitingu á skyggni-
gáfu annarrar aðalpersónunnar. Ást-
arsenan með Sutherland og Christie
NICOLAS
ROEG
rokkstjörnu á niðurleið (Mick Jag-
ger). Hún hafði talsverð áhrif á
samtíðina í Bretlandi. Fox, Anita
Pallenberg og ekki síst Jagger
fengu góða dóma einsog myndin í
heild, enda skipaði hún sér fljót-
lega í flokk kultmynda. Almennt
brautargengi hennar var ekki
umtalsvert.
Performance er ágætur sam-
nefnari fyrir myndir leiksljórans,
þær sem á eftir fylgja draga af
henni talsverðan dám og viðbrögð
fólks eru oftast á sama veg. Roeg
gerir myndir sem falla fáum í
geð, en hann á því traustari hóp
ódrepandi aðdáenda. Við buðum
honum að vera gestur á kvik-
myndahátíð Listahátíðar undir
lok níunda áratugarins. Sem hann
gat ekki þegið sökum anna við
tökur myndarinnar Track 29. Á
sömu hátíð voru sérstakir Roeg-
dagar, honum til heiðurs, þar sem
sýnd voru öll helstu verkin hans.
Þá kynntust ófáir mögnuðu hand-
bragði og sérstæðum stíl þessa
einstaka listamanns. Það þarf að
gefa myndum hans tíma og þolin-
mæði og athyglin þarf að vera
vakandi, þá er áhorfandanum
umbunað.
Önnur mynd Roegs var hin seið-
andi og dulmagnaða Walkabout
(‘71), í kjölfar hennar fylgdu aðrar
bestu myndir leikstjórans; Don’t
Look Now (‘73), The Man Who Fell
LEIKSTJÓRINN Nicolas Roeg
ásamt leikaranum Buck Henry
við tökur á myndinni „The Man
Who Fell to Earth“.
to Earth (‘76), Bad Timing (‘80),
Eureka (‘82) og Insignificance
(‘85). Margir eru hrifnir af Mann-
inum sem féll til Jarðar, sem fjall-
ar, einsog nafnið bendir til, um
geimveru (David Bowie) sem
íklæðist mannlegu dulargervi til
að villa á sér heimildir meðal Jarð-
arbúa. Þeir eru þó fleiri sem finnst
sögufléttan svo snúin að hún krefj-
ist vegakorts. Með Rip Torn. Bad
Timing gerist í Vínarborg og ijall-
ar um stirt en ástríðufullt sam-
band sálfræðings (Art Garfunkel)
við fráskilda konu. Hún er leikin
af eiginkonu Roegs, hinni glæsi-
legu Theresu Russell, sem hann
Sígild myndbönd
er ein sú besta sinnai’ tegundar.
Gerð eftir spennusögu Daphne du
Maurier. Klassík.
EUREKA (1982)
irtrkV.2
Gullleitarmaðurinn Hackman
finnur auðugustu gullnámur verald-
ar eftir ærna leit á norðurslóðum, en
það færir honum litla hamingju.
Myndin gerist að mestu 20 árum síð-
ar, nú eru gullleitarmenn af öðrum
toga á hælum Hackmans, þar sem
hann hefur hreiðrað um sig á para-
dísareyju í Karíbahafinu. Glaumgos-
inn Rutger Hauer á eftir augastein-
inum, dóttur hans (Russell), og Mafí-
an vill koma upp spilavíti á Edens-
eyjunni. Kynngimögnuð skoðun á
tálsýn auðs og valda, drifm áfram af
kraftmiklum leik Hackmans og hug-
myndaríkri leikstjórn Roegs. For-
vitnilegur hópur sterkra aukaleikara
(Joe Pesci, Corin Redgrave, Mickey
Rourke, og ekki síst B-myndaleikar-
inn Ed Lauter, sem hér fær að
spreyta sig í alvöru), og eiginkonan
fagra, Theresa Russell, gæðir þessa
fáguðu, framsæknu mynd kynferðis-
legu seiðmagni. Myndir á borð við
Eureka víkka sjóndeildarhring
myndbandaneytenda og gera valið
fágaðra og forvitnilegra.
WALKABOUT (1971)
irtck'k
Eftir aldarfjórðung sækir þessi
áleitna mynd enn á, og heilu atriðin
hefur notað uppfrá því í mismun-
andi kynferðislega ögrandi hlut-
verkum, sem hentar nautnalegri
konunni vel. Þunglamaleg mynd
og sársaukafull. Með Harvey
Keitel og Denholm Elliott. Insigni-
ficance fjallar um frægðina og
hvað hún hefur að segja fyrir þá
sem verða hennar aðnjótandi. Per-
sónurnar minna meira en lítið á
Marilyn Monroe, Joe Di Maggio,
Einstein o.fl. Sterk mynd og slá-
andi og vel leikin af Russell, Tony
Curtis, Gary Busey o.fl. Castaway
(‘87) segir af manni (Oliver Reed)
sem auglýsir eftir konu (Amanda
Donohoe) til að búa með sér heilt
ár á eyðieyju. Frumleg og óvenju-
leg, einsog vænta má af Roeg, og
býður uppá myndrænan glæsileik.
Verður þó aldrei nógu spennandi
né forvitnileg.
Nornaþing - The Witches (‘90)
er síðasta áhugaverða mynd leik-
stjórans. Gerist a afskekktu
strandhóteli á Englandi, þar sem
nornir þinga. Ungur gestur sér í
gegnum mannlegan felubúning
þeirra og kemst að því, sér til
skelfingar, að nornasamtök ver-
aldar ætla að breyta ollum krökk-
um í mýs! Skemmtilega óhugnan-
leg, Anjelica Huston sem aðal-
nornin og Mai Zetterling sem
amma drengsins, báðar í góðu
formi, einsog gervin hans Jims
Hensons. Track 29 (‘88), Cold
Heaven (‘92), Two Deaths (‘95) og
Hotel Paradise (‘95) voru allar
bíómyndir, en gengu illa og hafa
ekki verið sýndar hérlendis. Önn-
ur verk Roegs á seinni árum,
Sweet Bird of Youth (‘89), Heart
of Darkness (94), Full Body
Massage (‘95) og Samson og
Delilah (‘96) eru öll gerð fyrir
sjónvarp.
standa manni fyrir hugskotssjónum.
Roeg tekur myndina í óbyggðum
Ástralíu og segir af draumkenndu
sambandi hvítra og frumbyggja. Tvö
borgarbörn (Jenny Agutter og
Lucien John) eru skilin eftir af föð-
urnum úti í auðninni, er hann skýtur
sig til bana. Ungur frumbyggi (Da-
vid Gulpilil) kemur þeim til bjai'gar.
Dulúðug mynd með áhrifaríkum,
sjónrænum klippingum á milli hinna
ólíku menningai'heima, sem eru ætíð
að skarast, ekki aðeins i bjargarleysi
hinna hvítu gagnvart þekkingu og
kunnáttu frumbyggjans, heldur
kemur ástin til sögunnar og kynferð-
islegi undirtónninn sterkur og
raunalegur.
Sæbjörn Valdimarsson
► „Meðan á lagasmíðunum stóð
bað ég konuna mína að hlusta á
það sem ég hafði skrifað,“ $egir
hann. „En ákveðnir kaflár í lag-
mu voru of erfiðir. Varirnar á
mér titruðu. Ég var með hugann
bundinn við minn eigin missi,
gat ekki horft framhjá því og
varð að hætta flutningnum."
► Um hálft
hundrað kvik-
mynda og 27
stuttmyndir
verða sýndar á
Kvikmyndahátíð-
inni í Boston sem
stendur frá 10.
til 20. september.
► Á opnunar-
kvöldinu verður
sýnd myndin „Rounders" með
heimamanuinum Matt Damon,
„Monument Avenue" með Denis
Leary undir leikstjórn Ted
Derame, „With Friends Like
This“ með Alan Arkin og „Digg-
ing to China“ með Kevin Bacon
undir leikstjórn Timothy
Hutton.
Lést af of
stórum skammti
af lögreglu
► Dustin Hoffman lék hann í
myndinni en nú fær Robert De
Niro einnig að úttala sig um
manninn. De Niro er leiðsögu-
maður um hugarheima og ævi-
starf sviðsspaugarans Lennys
Bruce í nýrri lieimildarmynd
sem nefnist
„Lenny Bruce:
Swear to Tell the
Truth“ og verður
frumsýnd í New
York 21. október
næstkomandi.
► Kvikmynda-
gerðarmaðurinn
Robert B. Weide
hefur varið 12 ár-
um í að gera
myndina, en þar eru viðtöl við
umboðsmann Bruce, fyrrverandi
konu hans, dóttur, móðurina
Sally Marr og fleiri. Þá verða
sýndar fjölmargar myndir frá
ferli Bruce.
► Bruce lést af of stórum
skammti af heróíni. Hann var
ósjaldan handtekinn vegna ósið-
samlegrar og grófrar fram-
komu. Málefnin sem hann tók
fyrir voru meðal annars kjarn-
orkutilraunir, kynþáttafordóm-
ar, trúarbrögð, ólöglegar fóstur-
eyðingar, eiturlyf og dauðarefs-
ingar.
► Bruce hélt því eitt sinn fram
að hann hefði verið handtekinn
„ekki vegna ósiðsemi heldur fyr-
ir skoðanir mínar“. Eftir að
hann lést sagði framleiðandinn
Phil Spector, sem einnig var vin-
ur hans, að hann hefði látist úr
„of stórum skammti af lög-
reglu“.