Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNB L AÐIÐ Georg Lárusson verður varalögreglustióri 15. növember:i Gefnar 33 milljónir til Reykjalundar Á SUNNUDAGSKVÖLD höfðu safnast 33 milljónir króna í söfnun SÍBS fyrir endurbótum á endur- hæfíngaraðstöðu á Reykjalundi. Ingólfur Garðarsson, fram- kvæmdastjóri söfnunarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að söfnunin hefði gengið ágætlega miðað við það að símakerfi hennar datt út um tíma á föstudagskvöld. „Við stefndum á að safna 40 milljónum króna um helgina en miðað við þessi skakkaíoll erum við þokkalega ánægðir." sagði hann. „Við vitum að við hefðum getað safnað meiru hefði þetta ekki komið upp á en erum sérstak- lega ánægðir með þann mikla og breiða stuðning sem við fundum fyrir meðal landsmanna. Krafa þjóðfélagsins um endurhæfingu eykst frá ári til árs og við finnum ekki síst fyrir henni hjá fyrirtækj- um sem leggja mikið fé í að þjálfa starfsmenn sína. Lendi starfs- mennirnir í skakkaföllum er það Söfnun SÍBS haldið áfram næstu tvær vikur hagur fyrirtækjanna að þeir geti fengið endurhæfingu og komið aft- ur til starfa.“ Verðlögðu skegg vinnufélagans Ingólfur segir mikið sjálfboða- liðastarf hafa verið unnið þessa helgi bæði á vegum SÍBS og Ör- yrkjabandalagsins. Einnig hafi vistmenn og starfsmenn á Reykja- lundi lagt söfnuninni lið. Þá segir hann mörg skemmtileg atvik hafa komið upp við söfnunina. Á laugar- dagskvöld hafi hann t.d. fengið upphringingu frá hópi fólks sem var úti að skemmta sér. Fólkið hafi skorað á einn starfsfélaga sinn að fylgja í fótspor Össurar Skarphéð- inssonar, sem lagði skegg sitt und- ir í beinni útsendingu á fóstudags- kvöld. Það hafi verðlagt skegg vinnufélagans á 70 þúsund krónur og gert það að skilyrði fyrir af- hendingu peningana að aðstand- endur söfnunarinnar sendu rakara á staðinn innan hálftíma. „Villi rakari var ræstur út og þar sem hann hafði engan rakspíra við höndina var notast við það sem fannst á barnum.“ segir Ingólfur „Þetta varð síðan til þess að fleiri starfsmenn ákváðu að láta snyrta sig og að því loknu kom Villi til baka með um 90 þúsund krónur." Söfnunarfé verður varið til byggingar nýrrar sundlaugar og æfingaraðstöðu á Reykjalundi. Sími söfnunarinnar, 800 6060, verður opinn næstu tvær vikur auk þess sem gíróseðlar munu liggja frammi í bönkum og spari- sjóðum. Nýkomið! Gardínuefni-prentuð báðum megin, 6 nýir litir, verð kr. 1.550 Tvíofin áklæðaefni, henta í púða, dúka, áklæði og margt fleira, verð kr. 1.770 bgu< gluggatjaldadeild, Skeifunni 8 Námskeið um íþróttalæknisfræði Algengustu meiðsl á hnjám, ökklum og öxlum Heilbrigðisrað íþrótta- og ólymp- íusambands íslands stendur fyrir námskeiði um íþróttalæknisfræði sem haldið verður dagana 8.-10. október næstkomandi. Birgir Guðjónsson hefur ásamt samstarísmönnum sínum staðið að undirbún- ingi þessa námskeiðs. „Álþjóðaólympíunefndin og alþjóðasérsambönd og læknanefndir þeirra hafa lengi stuðlað að betri og fræðilegri umönnun íþróttamanna. Þetta er gert með útgáfu fræðslu- efnis, námskeiðahaldi eða styrkveitingu til námskeiða um íþróttalæknisfræði. Læknaráð fyrri Ólympíu- nefndar hélt slík námskeið ý þrígang með styrk frá Ólympíusamhjálpinni. Þátttaka á þeim námskeiðum var mjög mik- il. Eftir samruna hreyfinganna kemur þetta í hlut Heilbrigðis- ráðs íþrótta- og ólympíusam- bands Islands." Birgir segir að námskeiðið að þessu sinni sé einkum ætlað læknum, sjúki-aþjálfurum og íþróttaþjálfurum og með því sé verið að reyna að bæta undirbún- ing og árangur íþróttafólks og meðferð ef slys ber að höndum." - Hefur undirbúningi íþrótta- fólks verið ábótavant? „Það hefði mátt gera meira af því að leita ráðgjafar í upphafi æfingaferlis. Það skiptir miklu að vinna skipulega mað þjálfun strax frá upphafi og þekkja þannig álagsmöguleika og forð- ast slys sem hafa viljað hrjá íþróttamenn fram eftir öllu.“ -Eru íþróttameiðsl algengari hér á landi en annars staðar í heiminum? „Það höfum við því miður litlar upplýsingar um en algengustu meiðsl eru á hnjám, ökklum og öxlum.“ Hann segir að á námskeiðinu verði farið yfir meiðslamöguleika á liðum og hvað vöðvar líkamans þola. Ýmsir sérfræðingar koma að þessari umræðu á námskeið- inu. „Sigurjón Sigurðsson læknir ræðir um ökklameiðsl, Ragnar Jónsson læknir um bakmeiðsl, Atli Þór Ólason læknir mun fjalla um hnémeiðsl og Ágúst Kárason læknir um axlameiðsl. Að lokum munu Gauti Grétarsson og Stef- án S. Ólafsson sjúkraþjálfarar kenna plástrun á ------------- meiðslum." -Þið komið líka inn á lyfjanotkun í íþrótt- um. „Já, lyf hafa verið notuð í íþróttum hér á “ landi eins og annars staðar og þá aðallega í kraftagreinum og frjálsum íþróttum. Einn hand- boltamaður hefur orðið uppvís að því að nota lyf hér á landi. Ástæðan fyrir því að við förum í lyfjamálin sérstaklega eru þeir atburðir sem hafa átt sér stað úti í heimi undanfarið. Þar ber helst að nefna hjólreiðarnar í Frakk- landi og við ræðum um þau lyf sem þar voru misnotuð." Auk þess sem Birgir mun ræða um lyfjamisnotkun mun Sigurður Magnússon líffræðingur ræða um lyfjaprófanir. Birgir segir að efni námskeiðs sem þessa mótist af aðalfyrir- lesurum hverju sinni og að þessu sinni er aðalfyrirlesarinn dr. Birgir Guðjónsson ► Birgir Guðjónsson er fæddur á Akureyri árið 1938. Hann lauk eand.med. prófi frá lækna- deild Háskóla fslands árið 1965 og fór síðan í sérfræðinám í lyf- læknisfræði og meltingarsjúk- dómum við Yale háskólasjúkra- húsið í New Haven í Connect- icut ríki í Bandaríkjunum. Birgir var aðstoðarprófessor við Yale háskólann í nokkur ár og rekur nú eigin lækninga- stofu í lyflæknisfræði og melt- ingarsjúkdómum. Hann er yfír- læknir við Hrafnistu í Hafnar- firði. Birgir stundaði íþróttir og þjálfaði á sínum skólaárum. Hann hóf aftur þátttöku í fé- lagsstörfum eftir heimkomu ár- ið 1978 og er nú m.a. formaður Laga- og tækninefndar Frjálsí- þróttasambands Islands og situr í Læknanefnd Aþjóðafrjálsí- þróttasambandsins. Birgir er í varastjórn fþrótta- og ólympíusambands Islands og formaður Heilbrigðisráðs þess. Eiginkona hans er Heiður A. Vigfúsdóttir og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Walter Frontera prófessor og yf- irlæknir í endurhæfingu við Har- vard-háskóla. Hann er félagi Birgis úr læknanefnd Alþjóða- frjálsíþróttasambandsins og er mikilvirkur í íþróttalæknisfræði. „Hann heldur tvo fyrirlestra og fjallar sá fyrri um styrkleika- þjálfun. Þar skýrir hann frá því hvernig best er að ná styrkleika- þjálfun á réttan hátt, án þess að fara yfir markið og hversu mik- ‘ ið má leggja á vöðva líkamans. Seinni iyrir- lesturinn fjallar um “ endurhæfingu íþrótta- manna sem hafa lent í meiðsl- Styrkleika- þjálfun án þess að fara yfir markið - Hvað mun fleira verða fjallað um á námskeiðinu? „Fríða Rún Þórðardóttir nær- ingarfræðingur og Pétur Magn- ússon lyfjafræðingur ræða um næringarfræði og fætubótarefni. Margrét Jónsdóttir fótaaðgerða- fræðingur talar um fótaaðgerðir vegna álags á fætur og Stefán B. Sigurðsson lífeðlisfræðingur ræðir um þreytu auk þess sem Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkr- unarfræðingur og Lárus H. Blöndal ræða um sálfræðiundir- búning. Þá mun ég fjalla um ferðasmitsjúkdóma." Hægt er að skrá sig á nám- skeiðið hjá skrifstofu ÍSÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.