Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sambýli og heilsugæslustöð tekin 1 notkun á Grenivík
Starfsemi Grenilundar
mikilvæg í sveitarfélaginu
GRENILUNDUR, nýtt sambýli
fyrir aldraða og heilsugæslustöð
var tekin í notkun á Grenivík í
Grýtubakkahreppi á laugardag
að viðstöddu Ijölmenni.
Húsið er á svonefndu
Hiaðatúni við Túngötu 2 og er
517 fermetrar að stærð, en þar af
er heilsugæslustöðin í um 64 fer-
metrum. Ein íbúð er í húsinu og
átta einstaklingsherbergi.
Margrét Jóhannsdóttir for-
maður bygginganefndar rakti
söguna, en hún nær aftur til árs-
ins 1991 þegar fyrst var farið að
huga að slíkri byggingu. Fóru
forsvarsmenn víða í leit að heppi-
legri lausn og á það sinn þátt í
hversu vel tókst til, að sögn
Margrétar. Bakslag í atvinnulífi
hreppsins í kjölfar erfiðleika
frystihússins og bygging íþrótta-
húss höfðu þau áhrif að ekki var
hafist handa fyrr en í fyrra en
ákvörðun um að ráðast í þetta
stórvirki var tekin í ársbyijun
1997 og fyrsta skóflustungan
tekin í sumarbyrjun. Sjö íbúar
eru þegar fluttir inn í húsið og
fleiri hyggja á flutning á næstu
vikum og mánuðum.
„Þetta er sannkallaður hátíðis-
dagur,“ sagði Margrét við vígslu
hússins „og gott þegar aldurinn
færist yllr að vita af þessu skjóli
hér í sveitarfélaginu."
Séra Pétur Þórarinsson sókn-
arprestur blessaði húsið og vígði
það. Sagði hann m.a. að íbúar
hreppsins gætu verið stoltir af
því að sveitarfélagið gæti boðið
upp á þessa þjónustu. Var sókn-
arprestur sannfærður um að íbú-
Morgunblaðið/Margrét Póra
FJOLMENNI var við vígslu Grenilundar, sem er sambýli fyrir aldraða
í Grýtubakkahreppi og jafnframt heilsugæslustöð.
MARGRÉT Pálsdóttir og Guðmundur Jónsson hafa komið sér vel fyrir
í hjónaíbúðinni í Grenilundi, en hún heitir Látrar. Auk íbúðarinnar eru
á sambýlinu einnig herbergi fyrir átta einstaklinga.
FRIÐRIK Vagn Guðjónsson og Hjálmar Freysteinsson heilsugæslu-
læknar, á milli þeirra stendur Sesselja Bjarnadóttir hjúkrunar-
fræðingur, en þau eru þarna stödd í nýjum húsakynnum heilsugæslu-
stöðvarinnar á Grenivík. Þeir Friðrik og Hjálmar koma tvisvar í viku
til að sinna íbúum í Grýtubakkahreppi og hafa tekið miklu ástfóstri við
þá. Þeir hafa í hyggju að setjast þar að þegar aldurinn færist yfir og
skora í kjölfarið á eldri konur á elliheimilinu á Akranesi í línudans!
ar Grenilundar myndu eiga nota-
legt ævikvöld við góða umönnun
í hinu nýja húsi.
Allt nema flugvöllur
Guðný Sverrisdóttir sveitar-
sljóri sagði stofnunina hafa mikla
þýðingu fyrir sveitarfélagið, en
að geta boðið upp á þjónustu af
þessu tagi gerði samfélagið
vænna til búsetu en ella. Valgerð-
ur systir hennar alþingismaður
sem ávarpaði samkomuna sagði
mikla uppbyggingu hafa orðið í
hreppnum á sfðustu tveimur ára-
tugum, m.a. hefði risið nýr
grunnskóli og nýtt íþróttahús og í
raun vantaði ekki neitt í sveit-
arfélagið nema flugvöll!
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra Iauk lofsorði á
góða samvinnu við hcimamenn
um bygginguna en þeir hefðu
verið kappsamir og duglegir.
Húsið væri mikil bæjarprýði og
gaman væri að sigla inn í ár
aldraðra með því að taka svo
glæsilegt hús í notkun.
Haukur Haraldsson og Fanney
Hauksdóttir á Arkitekta- og
verkfræðistofu Hauks á Akureyri
sáu um hönnun hússins. Verktaki
við byggingu þess var Trésmíða-
verkstæði Þorgils Jóhannessonar
á Svalbarðseyri og nam kostnað-
ur við bygginguna um 47,5 millj-
ónum króna, en áætlaður
kostnaður var um 54 milljónir
króna. Fjóla Stefánsdóttir hjúkr-
unarfræðingur hefur verið
ráðinn forstöðumaður Grenilund-
ar, en auk hennar starfa þar fjór-
ir aðrir.
Margar góðar gjafír bárust,
m.a. gaf Kvenfélagið Hlín sjón-
varps- og myndbandstæki,
Lionsklúbburinn Þengill gaf
blóðþrýstingsmælitæki og sykur-
mælir fylgdi með, hönnuðir gáfu
bókina Byggðir og bú í Suður-
Þingeyjarsýslu, Arnbjörg Hall-
dórsdóttir gaf útsaumaða mynd
og íbúarnir færðu húsinu einnig
útsaumaða muni og þá færði
Hrafn Pálsson heimilinu
hljómplötu.
Nemendur Sjávarútvegsskóla SÞ á námskeiði við Háskólann á Akureyri
Stjórnun físk-
vinnslufy rirtækj a
og markaðsfræði
Morgunblaðið/Kristján
ÞORSTEINN Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Tumi
Tómasson, skólastjóri Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna.
NEMENDUR í Sjávarútvegs-
háskóla Sameinuðu þjóðanna hafa
stundað kennslu við Háskólann á
Akureyri síðustu tíu daga, en þar
hafa þeir sótt námskeið um stjórn-
un fiskvinnslufyrirtækja og
markaðsfræði. Nemendurnir eru
alls sex og koma þeir frá þremur
Afríkuríkjum, Úganda, Gambíu og
Mósambik.
Nemendumir hafa sótt bóklega
kennslu fyrir hádegi og heimsótt
sjávarútvegsfyrirtæki á Eyjafjarð-
arsvæðinu síðdegis.
„Nemarnir hafa hvarvetna hlotið
góðar viðtökur," sagði Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri „og fært mönnum heim
sönnur á að sjávarútvegur er lífvæn-
leg atvinnugrein." Telur rektor að
samvinna milli Sjávarútvegsháskóla
Sameinuðu þjóðanna og Háskólans
á Akureyri muni eflast og dafna, en
þetta námskeið væri fyrsta skrefíð í
samvinnu milli þeirra. Gera mætti
ráð fyrir að í kjölfar þess myndi
Háskólinn á Akureyri í auknum
mæli taka þátt í grunnnámi og sér-
hæfmgu nemanna.
Reynslan nýtist þegar
heim er komið
Tumi Tómasson, skólastjóri
Sjávarútvegháskóla SÞ, sagðist
ánægður með samstarfíð við
Háskólann á Akureyri. Nemamir
sex eru þeir fyrstu sem sækja þetta
nám, en það tekur alls sex mánuði.
Byrjað er á gmnnnámi og voru
nemamir að ljúka því með dvölinni
á Akureyri. Þá tekur við nám á sér-
sviðum og kvaðst Tumi vænta þess
að hægt yrði að stunda það að ein-
hverju leyti fyrir norðan.
Nemamir eru allir vel menntaðir,
hafa lokið háskólaprófí, eru með
reynslu af störfum á sjávarútvegs-
sviði og eru allir í áhrifastöðum inn-
an þess í sínum heimalöndum.
Við val á nemendum er að sögn
Tuma haft að leiðarljósi að þeir
komi frá löndum þar sem fískveiðar
eru í vexti og sjávarútvegurinn að
færast inn í alþjóðlegt umhverfí.
Reynslan af Islandsdvöldinni ætti
því að nýtast þeim er heim er komið.
Norðurland eystra
Atvinnu-
lausum
fækkar
ATVINNULAUSIR á Norðurlandi
eystra vom 328 um síðustu
mánaðamót, 241 kona og 87 karlar
og hafði atvinnulausum fækkað um
19 frá mánuðinum á undan. Af þess-
um hópi eru 117 í hlutastarfí en
þiggja atvinnuleysisbætur á móti.
Samkvæmt yfirliti frá Svæðis-
vinnumiðlun Norðurlands eystra,
voru 246 manns á atvinnuleysisskrá
á Akureyri, 183 konur og 87 karlar.
Á Húsavík og nágrenni voru 9 á
skrá, 8 konur og einn karl, í Olafs-
firði voru 16 á skrá, 11 konur og 5
karlar og á Dalvík voru 2 á skrá, ein
kona og einn karl.
Helena Karlsdóttir forstöðumað-
ur Svæðisvinnumiðlunarinnar sagði
að atvinnuástand á svæðinu hafi
verið með allra besta móti að und-
anfornu, en allt eins mætti búast við
að eitthvað fjölgaði á atvinnuleysis-
skránni á næstunni.
Nokkrir eldtraustir skjalaskápar
með 20% afslætti
FireKing diÉ/l
Stærsti framleiðandi heims á
eldtraustum skjalaskápum,
hágæðavara.
Gagni
Sunnuhlið 1, Akureyri, símar 461 4025 og 555 0528
Aukin tengsl við
Hafnai’íjörð
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum fyrir helgi að
stefna að auknum tengslum milli
Akureyrar og Hafnarfjarðar.
Bæjarráð fól fræðslumálastjóra í
samráði við fulltrúa Hafnarfjarðar-
bæjar að vinna að undirbúningi að
slíkum samskiptum næstu tvö ár.
Starfsmenn menningarmála á Ak-
ureyri og í Hafnarfirði hafa átt í
viðræðum um möguleika á að koma
á nánari tengslum milli bæjanna.
Bæjarráði Akureyrar var gerð grein
fyrir þeim viðræðum, auk þess sem
lögð var fram greinargerð um hugs-
anlegan ramma að slíkum tengslum.
Ingólfur Ármannsson, fræðslu-
málastjóri Akureyrarbæjar, sagði
að gert væri ráð fyrir að hefja sam-
skiptin upp úr næstu áramótum með
einhverjum samkomum og til
viðbótar verði 2-3 eyrnamerkt verk-
efni á hvoru ári. Þar er um að ræða
verkefni, þar sem aðilar geta haft
eitthvert gagn hvor af öðrum, bæði
á menningarsviðum og fleiri sviðum.