Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 16
16 PRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/KVM MARGIR komu til messu þegar ljósakróna sem gefin var Grundarfjarðarkirkju var helguð. Ljósamessa í Grundar- fjarðarkirkju Grundarfirði - Margir komu til messu þegar hr. Sigurður Sig- urðarson, vígslubiskup í Skál- holti, helgaði ljósakrónuna, sem Grundarljarðarkirkju var gefin. Þarna var gripurinn formlega af- hentur söfnuðinum og tók sókn- arpresturinn, sr. Karl V. Matthí- asson, við gjöfinni fyrir hönd safnaðarins. Að messu lokinni var boðið upp á kirkjukaffí, sem kvenfélag- ið Gleym mér ei og félagar úr kirkjukórnum stóðu að. Hægt er að hafa mismunandi birtustig á Ijósakrónunni og öðrum ljósum í kirkjunni allt eftir tilefni og dagsbirtu. Með gjöfinni fyldi eftirfarandi gjafabréf: „Eg undirritaður gef hér með Grundarfjarðarkirkju ljósakrónu þessa í þakkar- og minningargjöf um eiginkonu mína Kristínu Guðríði Kristjáns- dóttur, ljósmóður, f. 11. október 1908, d. 5. desember 1993, og foreldra mína Sigurð Eggertsson skipsljóra, f. 21. september 1876, d. 6. júní 1922, og Ingibjörgu Pétursdóttur húsfrú, f. 6. janúar 1887, d. 8. ágúst 1959. Einnig minnist ég í þakklæti með gjöf þessari föðurömmu minnar, Jóhönnu Guðmundsdótt- ur, f. 6. júní 1842, d. 10. ágúst 1921, svo og fjögurra látinna systkina minna, Guðmundar Sig- urðssonar vélsljóra, f. 20. ágúst 1899, d. 23. desember 1957, Guð- ríðar Stefaníu Sigurðardóttur, símstöðvarstjóra, f. 17. júlí 1910, d. 26. apríl 1991, Halldóru Ólafar Sigurðardóttur, f. 27. nóvember 1911, d. 10. febrúar 1914, og Þór- arins Stefáns Sigurðssonar, sveit- arstjóra, f. 31. janúar 1922, d. 8. apríl 1994. Jesús sagði: „Eg er upprisan og lífíð. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifír og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja.“ (Jóh 11:25 - 26.) Guð blessi sóknarprest og sóknarbörn Setbergsprestakalls. Þorkell J. Sigurðsson." Grundfírðingar eru Þorkeli afar þakklátir fyrir þá ræktar- semi og hlýhug sem hann sýnir gömlu byggðinni sinni með þess- ari gjöf. Morgunblaðið/Sig. Fannar. ÁRNI Benediktsson verslunarstjóri Hornsins Hornið stækkar um helming Selfossi - Verslunin Hornið á Sel- fossi sem rekin hefur verið af Gunn- arí B. Guðmundssyni og fjölskyldu í 13 ár mun taka miklum breytingum í dag þegar verslunin verður form- lega opnuð eftir stækkun. Verslunin var áður 250m2 en verður eftir stækkun 500m2. Að sögn Árna Benediktssonar, verslunarstjóra, þá eru breyting- arnar liður í því að svara kröfum samtímans um aukin hraða og þjón- ustu í matvöruverslunum ásamt því að styrkja samkeppnisaðstöðu verslunarinnar á Selfossi. „Við munum í kjölfarið stórauka vöruúr- val og þjónustu í ferskvöru, ásamt því að kappkosta við að auka af- kastagetu verslunarinnar á anna- tíma,“ segir Árni. Hann segir Hom- ið verða að hraðbúð þar sem hægt er að versla alla helstu nauðsynja- vörur og gott betur. Lögfræðingar sameinast Egilsstaðir - Stofnuð hefur verið ný lögfræðiskrifstofa á Egilsstöðum, Lögmenn Egilsstöðum ehf. Það eru fjórir lögfræðingar af Austurlandi sem hafa sameinast um rekstur stofunnar, sem áður var rekin af Jónasi A.Þ. Jónssyni. Auk hans eru það Adolf Guðmundsson, Helgi Jensson og Hilmar Gunnlaugsson sem sameinast sem Lögmenn Egils- stöðum ehf. Fyrirtækið er með aðalskrifstofm- á Egilsstöðum en hefur að auki að- setur á Seyðisfirði og Eskifirði. Stof- an veitir fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum lögfræðiaðstoð. Enn- fremur rekur stofan fasteigna- og skipasölu fyrir allt Austurland. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdófctir EIGENDUR Lögmanna Egilsstöðum ehf. eru Adolf Guðmundssón, Helgi Jensson, Jónas A.Þ. Jónsson og Hilmar Gunnlaugsson, allir lögfræðingar. Prestar settir í embætti í Eyjum Vestmannaeyjum - Nýir prestar í Landakirkju í Vestmannaeyj- um voru settir inn í embætti fyr- ir skömmu. Dr. Gunnar Krist- jánsson, prófastur Kjalarnespró- fastsdæmis, setti séra Kristján Björnsson í embætti sóknar- prests og séra Báru Friðriks- dóttur í embætti safnaðarprests. Hjónin séra Bjarni Karlsson og séra Jóna Hrönn BoIIadóttir, sem þjónað hafa í Eyjum undanfarin ár, hurfu til starfa á höfuðborg- arsvæðinu í sumar og taka þau Kristján og Bára við þjónustu safnaðar Landakirkju af þeim. 0 A Isiandspóstur og Landsbanki Islands Rekstur sameinað- ur á Bfldudal og Króksfjarðarnesi SAMNINGUR um samstarf íslands- pósts hf. og Landsbanka Islands hf. var undirritaður í húsakynnum bank- ans á Akureyri á fimmtudag, en í samningnum er kveðið á um að fyrir- tækin muni sameina rekstur á Bfldu- dal og Króksfjarðamesi. Samningur- inn um samstarfið á Bfldudal tók gildi í gær, 1. október, en rekstur fyrir- tækjanna í Króksfjarðamesi verður sameinaður um næstu áramót. Starfsemin verður flutt í sameigin- legt húsnæði og samrekstur fyrir- tækjanna tveggja verður að svo miklu leyti sem lög heimila. Samhliða þessu mun Islandspóstur efla þjónustu sína við íbúa Reykhólasveitar sem auð- veldar þeim að notfæra sér banka- þjónustu Landsbankans í héraðinu. Aukin þjónusta í Vestmannaeyjum Þá hefur Landsbankinn sett upp hraðbanka í húsnæði íslandspósts í Vestmannaeyjum sem verður að- gengilegur allan sólarhringinn. Á næstu mánuðum mun Landsbankinn bjóða einstaklingum og fjölskyldum í Vestmannaeyjum aukna fjáiTnála- þjónustu á grundvelli samstarfs bankans og Islandspósts. Auk þessa munu fyrirtækin kanna sameiginlega hvernig þau geti með samstarfi sín á milli um allt land veitt viðskiptavinum betri og um- fangsmeiri þjónustu en um leið stuðlað að hagkvæmari rekstri. Ánægja með samstarfíð „Þetta er mjög mikilvægur samn- ingur frá sjónarhóli Landsbanka ís- lands,“ sagði Halldór J. Kristjánsson bankastjóri. „Við erum afar ánægð með að samstarf hefur tekist á þess- um stöðum og vonandi verður fram- hald á, við höfum augastað á nokkrum stöðum á landinu til viðbót- ar þar sem við gætum komið á sam- staifí af svipuðum toga.“ Einar Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri íslandspósts, sagði fyiirtækið með þessum samningi halda áfram á þeirri braut sem hófst með álíka sam- komulagi við sparisjóðina sem gert var fyiT á árinu. Hann sagði fyrirtæk- ið sífellt leita leiða tfl að gera rekstur- inn hagkvæmari. Samningar af þessu tagi væru heppilegir fyrir íbúa á smærri stöðum á landsbyggðinni, sem nytu þá betri þjónustu en ella og hefði Islandspóstur því fullan hug á að skoða fleiri valkosti í þessu sambandi. Morgunblaðið/Kristján HALLDÓR J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, og Einar Þorsteinsson, forstjóri íslandspósts, undirrita samninginn. Gísli J. Johnsen á minjasafn í Garðinum Garði - Einn elzti björgunarbát- ur landsins, Gisli J. Johnsen, hefir nú endanlega verið tekinn á þurrt en hann mun í framtíðinni standa við Þorsteinsbúð gestum og gang- andi til sýnis. Að sögn Ásgeirs Hjálmarsson- ar, formanns Sögu- og minja- safnsnefndar, eignaðist SVFÍ bát- inn 1956 að gjöf frá stórkaup- manninum Gísla J. Johnsen og eiginkonu hans og fékk báturinn nafn Gísla. Báturinn var lengst af í Reykjavík við hús SVFI þar sem hann var ætíð hífður upp með sér- stökum gálgum. Þá var báturinn í Hafnarfirði, á Homafirði og síð- ast á Rifi á Snæfellsnesi. Hann lauk síðan ferli sínum á æfingunni við Viðey á dögunum þar sem Ás- geir tók við bátnum og sigldi hon- um til Keflavíkur. Hann kom svo í Garðinn sl. miðvikudag og var settur niður við Þorsteinsbúð á fimmtudaginn. Morgunblaðið/Arnór ÞAÐ þurfti stórvirk tæki til að flytja bátinn upp í Þor- steinsbúð þótt ekki væri um langan veg að fara. Sögusafn SVFI hefir verið opið í allt sumai' en það var opnað 29. maí sl. með viðhöfn. Framvegis mun safnið aðeins verða opið um helgar en opnað á öðmm tímum fyrir hópa sem áhuga hafa. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson NÝIR prestar við Landakirkju í Eyjum, séra Kristján Björnsson og séra Bára Friðriksdóttir, ásamt dr. Gunnari Kristjánssyni, prófasti Kjalarnesprófastsdæmis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.