Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 68
Atvinnutryggingar
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Vilhjálmur Egilsson um alþjóðlegt viðskiptasvæði
Viljum tvöfalda veltu
vegna sjávarafurða
STJÓRNVÖLD undirbúa nú laga-
setningu um að leyft verði að stofna
hérlendis alþjóðleg viðskiptafélög
sem njóti skattafríðinda og stundi
viðskipti við erlenda aðila með vörur
sem eiga uppruna sinn erlendis og
falla utan gildissviðs samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið, eink-
um fisk.
„Petta getur orðið byltingar-
kenndur atburður í íslensku efna-
hagsumhverfí ef allt gengur eftir,“
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra á blaðamannafundi þar
sem frumvarpsdrög um alþjóðleg
viðskiptafélög voru kynnt í gær.
Davíð Scheving Thorsteinsson,
einn nefndarmanna, sagði að um það
bil 10% af veltu stóru íslensku sölu-
samtakanna, um 10 milljarðar króna,
ættu nú þegar rætur að rekja til við-
skipta milli tveggja landa sem færu
um þriðja landið. „Það má því búast
við að þeir færu býsna fljótt að not-
færa sér þetta hér,“ sagði Davíð.
Vilhjálmur Egilsson, alþingismað-
ur, segir að markmiðið með hug-
myndinni um alþjóðleg við-
skiptafélög sé að skjóta fleiri stoðum
undir íslenskt atvinnulíf, auka fjöl-
breytni og þjóðartekjur „og kannski
það sem skiptir mestu máli, að skapa
fleiri hálaunastörf en eru til staðar í
okkar efnahagslífí í dag,“ sagði hann.
Stofnendur alþjóðlegs við-
skiptafélags geta verið erlendir eða
innlendir. Alþjóðleg viðskiptafélög
fá heimild tO að færa bókhald og
ársreikninga í erlendri mynt. Þau
greiða 5% tekjuskatt og erlendir
eigendur greiða 5% skatt af
arðgreiðslum en með arð innlendra
eigenda er farið á annan hátt.
Aiþjóðleg viðskiptafélög greiða eng-
in stimpilgjöld nema af fasteigna-
kaupum innanlands. Þau greiða ekki
eignarskatt.
Vilhjálmur kvaðst telja að fyrsta
markmið Islendinga ætti að vera að
tvöfalda veltu vegna viðskipta með
sjávarafurðir á þremur árum. Velt-
an er núna 100 milljarðar króna.
„Þegar okkar fyrirtæki væru búin
að ná upp 200 milljarða veltu í
sjávarafurðum værum við komnir á
góða braut,“ sagði Vilhjálmur Egils-
son, alþingismaður og framkvæmda-
stjóri Verslunarráðsins.
■ Geta orðið byltingarkenndar/6
Forsætisráðherra um kjör öryrkja
Öryrkjar ekki
orðið útundan
í gooærinu
FRAMLÖG til velferðarmála eru
lægst á íslandi af öllum Norðurlönd-
unum og munar mest 21,5 prósentu-
stigum af vergi-i landsframleiðslu
milli Islands og Svíþjóðar árið 1995.
Þetta segir Harpa Njáls, félags-
fræðings hjá Hjálparstofnun kirkj-
unnar, en stofnunin hefur hvatt
ráðamenn til að bæta net almanna-
trygginga. 50% skjólstæðinga
Hjálparstofnunar eru öryrkjar.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að öryrkjar hafi ekki orðið
útundan í góðærinu; þeir hafi notið
góðs af auknum kaupmætti vegna
hærri bóta og lágrar verðbólgu þótt
þeir hafi ekki hlotið sömu hækkanir
og þeir hópar sem mest hafa borið
úr býtum vegna launaskriðs.
Forsætisráðherra sagði að heil-
brigðisráðherra hefði lýst því yfir að
það væri tU skoðunar að draga úr
eða afnema skerðingu á bótum til
öryrkja vegna tekna maka. Ef af
yrði mundi það kosta um 200 millj-
ónir króna.
Garðar Sverrisson, hjá Öryrkja-
bandalagi Islands, segir að sam-
kvæmt norrænni skýrslu fyrir árið
1995 hafi verið greiddar að
meðaltali rúmar 38.000 kr. til hvers
öryrkja á Islandi á mánuði. Bætur í
Danmörku og Finnlandi hefðu verið
um tvöfalt hæri-i á hvem einstak-
ling og um 50% hærri í Noregi og
Svíþjóð.
■ Aðskilnaðarstefnu/12
Rigning
- í Reykjavík
ÞAÐ rigndi mikið á landinu í gær;
raunar svo mikið að þessir kátu
krakkar töldu vissara að koma
sér fyrir í bát niðri við hafnar-
bakka. Þau höfðu á orði að það
hefði Nói gamli gert og þannig
hefði hann bjargast í flóðinu
mikla fyrir mörgum árum. Horfur
eru á rigningu áfram í dag, en
síðan fer að stytta upp. Það eru
því litlar líkur á öðru Nóaflóði, en
allur er varinn góður.
Víðtæk
■J símabilun á
höfuðborg-
arsvæðinu
SÍMASAMBANDSLAUST varð í
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði,
Mosfellsbæ og á Álftanesi í um tvær
klukkustundir í gærkvöldi. Ástæðan
var rafmagnstruflun í Kópavogi.
Mestallur Kópavogur og hluti
Garðabæjar voru rafmagnslausir í
18 mínútur í gær. Vel gekk að koma
rafmagni á aftur, en lengri tíma tók
að koma símanum í lag.
Að sögn Þorgeirs Einarssonar,
'—‘ verkfræðings hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, datt háspennustrengur
milli aðveitustöðva í Kópavogi og
Garðabæ út um kl. 18:30. Hann segir
ekki fullkannað hver ástæðan er, en
mestar líkur séu taldar á að myndast
hafi yfirálag. Tengt hafi verið fram-
hjá strengnum og rafmagn hafi verið
komið á eftir um 18 mínútur. Við
könnun á strengnum hafi síðan kom-
ið í ljós að hann var í lagi.
Stuttu eftir að rafmagn fór af
Kópavogi datt síminn út í Kópavogi,
Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ
og á Álftanesi. Að sögn Hrefnu
Ingólfsdóttur, upplýsingafulltrúa
Landssímans, þurfa símstöðvarnar
að hlaða sig að nýju þegar rafmagn-
ið dettur út. Slíkt tekur 2-3 mínútur,
en að þessu sinni kom aðeins hluti
númeranna sjálfvirkt inn. Setja
þurfti stærstan hluta númeranna
inn handvirkt. Það tók á annan
^—klukkutíma að gera öll númerin virk
'^að nýju.
■m
■1
L
Morgunblaðið/RAX
Reglur um hættulegan
farm í ólagi að mati ESA
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
(ESA) í Brussel hefur sent íslenzk-
um stjómvöldum tvö rökstudd álit
vegna meints brots á samningnum
um Evrópskt efnahagssvæði. Stofn-
unin segir Island ekki hafa leitt í lög
með fullnægjandi hætti tvær breyt-
ingar á tilskipun Evrópusambands-
ins um skip, sem flytja hættulegan
farm, en það hefði átt að gerast í
síðasta lagi 19. júní síðastliðinn.
Samgönguráðuneytið hyggst gera
bragarbót á þessu strax í vikunni.
Hákan Berglin, yfirmaður laga-
deildar ESA, sagði í samtali við
Morgunblaðið að stofnunin hefði áð-
ur sent íslandi formlegt erindi
vegna þessa máls, en ekki fengið
viðbrögð við því. Rökstutt álit er
efsta stig athugasemda stofnunar-
innar áður en máli er vísað til
E FTA-dómstóIsins.
Málið leyst í vikunni
Ragnhildur Hjaltadóttir, deildar-
stjóri í samgönguráðuneytinu, segir
að málið hafi verið „of lengi“ í undir-
búningi í ráðuneytinu, en ekkert sé
nú að vanbúnaði að leiða brejding-
una í lög. „Eg á von á að við náum að
leysa málið í vikunni með birtingu
reglugerðar,“ segir hún.
Tilskipun ESB um skip, sem
flytja hættulegan farm, er til þess
ætluð að draga úr hættu á slysum
vegna flutnings hættulegs eða
mengandi farms og takmarka af-
leiðingar slíkra slysa, eigi þau sér
stað. Breytingamar tvær, sem ís-
land á eftir að leiða í lög, voru gerð-
ar til að taka mið af nýjum reglum
alþjóðastofnana á sviði siglingamála.
Noregi hafa einnig verið send tvö
rökstudd álit vegna misbrests á lög-
leiðingu sömu reglna.
Slys í að-
veitustöð
STARFSMAÐUR Rafmagns-
veitu ríkisins frá Egilsstöðum
slasaðist í vinnuslysi á
Fáskrúðsfirði er hann féll fjóra
metra þegar hann var að vinna
að tengingu á straumspenni í
húsi aðveitustöðvar Fáskrúðs-
fjarðar kl. 10.30 í gærmorgun.
Enginn straumur var á
spenninum, en maðurinn mun
hafa rekið sig í með þeim af-
leiðingum að hann datt. Hann
var fluttur á heilsugæsluna í
Neskaupstað og er, að sögn
læknis, með brjóstholsáverka,
en ekki í lífshættu.