Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 227. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Verkföll og mótmælaaðgerðir boðaðar um allt Rússland í dag Prímakov hvetur fólk til að sýna stillingu Moskvu. Reuters. Kínaheimsókn Peking. Reuters. JEVGENÍ Prímakov, forsætisráð- herra Rússlands, hvatti almenning í Rússlandi í gær til að sýna stillingu en í dag hafa verkalýðsfélög og kommúnistar boðað til verkfalla sem þau spá að verði þau mestu frá því Sovétríkin liðu undir lok. Aðrir drógu það í efa í gær og bentu á, að verka- lýðshreyfmgin í Rússlandi væri mjög veik og ekki líkleg til stórræðanna. Sagðist Prímakov skilja vel að margir þeirra sem hygðust taka þátt í mótmælunum hafa fyllstu ástæðu til að vera óánægðir. Hann biðlaði hins vegar til fólks að sýna stiilingu því ekki þyrfti miklar gárur á hafínu til að sigla rússnesku þjóðarskútunni í kaf. Hét Prímakov því jafnframt að laun fólks yrðu greidd, og það fyrr en síðar, og sagði efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar í burðarliðnum. Alexei Súríkov, varaformaður Sambands sjálfstæðra verkalýðsfé- laga, sagði fyrr í gær, að 28 milljónir manna að minnsta kosti myndu leggja niður vinnu tO að mótmæla ringulreiðinni og skortinum í land- inu. Launin, þegar þau fást greidd á annað borð, eru orðin lítils virði en meginkrafa verkalýðsfélaganna er samt, að útistandandi laun, um 330 milljarðar ísl. kr., verði greidd án tafar. Auk þess verða hafðar uppi kröfur um að Borís Jeltsín forseti segi af sér. Búist var við, að fjölmennustu mótmæli yrðu í Moskvu og Péturs- borg en þátttakan er þó talin munu fara mikið eftir veðri. Var spáin ekki sem best. TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, vakti í gær máls á málefnum Tíbets og mannréttindum í því sem hann kallaði „hreinskilnum skoðana- skiptum" við Zhu Rongji, forsætis- ráðherra Kína. Daginn áður höfðu kínversk stjórnvöld undirritað sátt- mála Sameinuðu þjóðanna um stjórnmálaleg borgararéttindi. Blair, sem er fyrsti brezki ríkis- stjórnarleiðtoginn sem heimsækh- Kína í sjö ár, lagði áherzlu á hve per- sónulegt samband þeirra starfs- bræðranna væri gott. Eftir alllangan fund þeirra í Peking í gær stigu leið- togarnir fram fyrir fjölmiðla með breitt bros á vörum til að undirstrika hve vel færi á með þeim. Blah- sagði að þeir Zhu, sem hann sagði að stæði „sannarlega fyrir nútímavæðingu", hefðu átt „hreinskilin skoðanaskipti, jafnvel á sviðum þar sem okkur greindi á“. Þar með átti hann við mannréttindamálin, sem hafa verið í brennidepli athygli umheimsins frá því Pekingstjórnin undirritaði sátt- mála SÞ um borgaraleg og pólitísk réttindi í fyrradag. Samskiptin í „eðlilegt horf‘ Sáttmálinn kveður á um að borg- urunum sé tryggt tjáningarfrelsi, réttur til sanngjarnrar réttarmeð- ferðar og vernd gegn pyntingum. Kínverskh- andófsmenn og Mary Robinson, yfirmaður mannréttinda- mála hjá SÞ, sem heimsótti Kína fyr- ir skömmu, tóku þessu skrefi Kína- stjórnar vel, en þó með fyrirvörum. Þótt Kínastjórn hafi nú undirritað þennan mikilvæga mannréttinda- sáttmála er óvíst hvenær hún muni staðfesta hann og hvort hann muni Blairs þegar á reynir hafa einhverja áþreif- anlega þýðingu fyrir mannréttinda- baráttu innan Kína. „Ég vil sérstaklega leggja áherzlu á það hve vel forsætisráðherrann og ég höfum vingazt persónulega," sagði Zhu. Hann hældi Blair fyrir hinn „sögulega þátt“ sem hann hefði leikið í því að skila Hong Kong undir kínversk yfirráð. Það ferli hefði gengið mjög vel og tekizt hefði að dreifa áhyggjum þeirra sem óttuðust breytinguna sem endalok nýlendu- stjórnar Breta í héraðinu þýddi. I för með Blair er fjölmenn við- skiptasendinefnd, sem gerir sér von- ir um að geta í ferðinni bætt upp töp- uð tækifæri sem farið hafa forgörð- um vegna gagnkvæmrar tortryggni og fyrirvara sem almenningur í Bretlandi, Hong Kong og víðar hafa haft gagnvart Kína. Fundir Richards Holbrookes með Milosevic Júgóslavíuforseta árangurslausir Auknar líkur taldar á hernaðaríhlutun NATO Jerúsalem, Pristina, Washington, Moskvu. Reuters. JAMES Rubin, talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, sagði í gær að Bandaríkin myndu ekki láta andstöðu Rússa gegn hernaðaríhlutun Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Kosovo stöðva sig ef engin önnur leið er fær til að stöðva kúgun- araðgerðir Serba í héraðinu. Sagðist hann telja æ líklegra að NATO ákvæði að beita hernaðaríhlutun og ítrekaði Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, einnig í gær að taki Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjalla- lands, ekki sönsum muni koma til loftárása. Nokkm- andstaða er þó við fyrirhugaðar árásir og telja Rússar að NATO þurfi samþykki öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna til að geta látið til skarar skríða, en þau skilaboð bárust frá Moskvu í gær- morgun að rússnesk stjómvöld myndu beita neit- unarvaldi í öryggisráðinu og hið sama hyggjast kínversk stjómvöld gera. Varaði Bon's Jeltsín, for- Rússar ætla að beita neit- unarvaldi í öryggisráði SÞ seti Rússlands, við því að valdbeiting NATO gæti haft „alvarlegar afleiðingar á alþjóðavettvangi". Bandaríkjamenn gáfu hins vegar til kynna að NATO myndi hugsanlega hefja loftárásh- jafnvel þótt öryggisráð SÞ gæfi ekki grænt ljós á aðgerð- irnar. Ræddust þeir Bill Clinton og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, við símleiðis í gær og urðu sammála um að beita yrði valdi ef nauðsyn krefði. „Niðurstaðan veltur algerlega á Slobodan Milosevic,“ sagði talsmaður Blairs. Varaði Jacques Chirac, forseti Frakklands, Milosevic einnig við þvi að íhlutun NATO væri óum- flýjanleg hættu Serbar ekki aðgerðum sínum í Kosovo. Verða hafnai- viðræður um það í dag í höf- uðstöðvum NATO hvort beita eigi hemaðaríhlutun. Richard Holbrooke, samningamaður Banda- ríkjastjómar, hitti Milosevic öðru sinni í gærkvöld og hugðist gera úrslitatilraun til að telja hann á að binda enda á kúgunaraðgerðir Serba í Kosovo. Reyndist fundurinn hins vegar árangurslaus eins og sá fyrri á mánudag en þar sakaði Milosevic NATO um að undirbúa „glæpsamlegt athæfi“. Hol- brooke heimsótti fyrr í gær Pristina, höfuðborg Kosovo, og átti þar fund með fulltrúum Vesturveld- anna sem haft hafa eftirlit með ástandinu í Kosovo og framferði serbneskra hersveita þar. Létu eftir- litsmennimir Holbrooke í té „óhugnanlegar upp- lýsingar" um framferði serbneskra lögreglumanna í Kosovo og slæman aðbúnað flóttamanna frá Kosovo, sem Serbar gerðu ómögulegt að snúa aftur til síns heima. Hitti Holbrooke einnig Ibrahim Ru- gova, leiðtoga Kosovo-Albana. Andstaða við norska fj árlagafrum varpið Allsherjar- verkfall skipulagt Ósld. Morgunblaðið. MEIRA en 1,2 milljónir Norðmanna hyggjast taka þátt í allsherjarverk- falli í næstu viku til að mótmæla fjár- lagafrumvarpi ríkisstjórnar Kjells Magne Bondeviks sem lagt var fram á mánudag. Munu Norðmenn leggja niður störf í 2 tíma fimmtudaginn 15. október og er þetta umfangsmesta vinnustöðvun í Noregi ef frá era tal- in verkföll launþegasamtakanna. Astæða verkfallsins er sú að í fjár- lagafrumvarpinu er gert ráð fyrir af- námi opinbers frídags og er talið lík- legt að annar í hvítasunnu geti orðið fyrir valinu. Fjárlagafrumvarpið fel- ur að öðm leyti í sér mikla lækkun ríkisútgjalda en ríkisstjórnin hyggst einnig hækka skatta og ýmis gjöld. Hefur stjórnai-andstaðan þegar lýst mikilli óánægju með frumvarpið. Ársfundur IMF og Alþjóðabankans Clinton segir efl- ingu hagvaxtar meginmarkmiðið Washington. Reuters. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagði í ræðu á ársfundi Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og Al- þjóðabankans í gær að mikilvægt væri að stíga þegar þau skref sem þyrfti til að sigrast á alþjóðlegum efnahagsvanda sem magnast hefur að undanförnu. „Við horfumst í dag í augu við sennilega erfiðasta efnahagsvanda í um hálfrar aldar skeið,“ sagði Clint- on en kvaðst sannfærður um að vinna mætti bug á vandanum. Sagði hann hins vegar að til að það mætti verða yrðu allir, Evrópubúar, Japan- ir, Bandaríkjamenn og aðrir, að beita samtakamætti sínum. Sagði forsetinn eflingu hagvaxtar í heimin- um meginmarkmið þeirra sem mót- uðu stefnu í þessum málum en lagði að öðru leyti ekki fram sérstakar hugmyndir um hvernig taka ætti á vandanum. Framkvæmdastjóri IMF, Michel Camdessus, sagði í sinni ræðu að ekki væri um það að ræða að einstak- ar þjóðir ættu við efnahagsvanda að stríða heldur væri allt fjármálakerfið í uppnámi, enda hefði mönnum ekki enn tekist að aðlaga það nægilega vel þeim kostum og göllum sem fylgdu alþjóðavæðingu í fjármálum. Reuters TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands (t.h.), og kínverskur starfsbróðir hans, Zhu Rongji, fylgjast með heið- ursverði hermanna fyrir framan Alþýðuhöllina í Peking við vesturenda Torgs hins himneska friðar, í gær. Rætt um mannréttindi í • /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.