Morgunblaðið - 07.10.1998, Side 20

Morgunblaðið - 07.10.1998, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ ERLENT Reuters GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar (fyrir niiðju), með nýjum ráðherrum í stjórn sinni. Frá vinstri: Björn Rosengren, viðskipta- og iðnaðarráðherra, og aðstoðarráðherra hans Mona Sahlin, þá Ingegerd Wörn- ersson, menntamálaráðherra, Britta Lejon, dómsmálaráðherra, og Kjell Larsson, umhverfisráðherra. Dregur til tíðinda á flokksþingi breska Ihaldsflokksins Hague hótar að skilja Evrópusinnana eftir Bournemouth. Reuters. Imelda Marcos sýknuð Manila. Reuters. HÆSTIRÉTTUR Filippseyja hnekkti í gær dómi undirréttar yfir Imeldu Marcos, ekkju fyrrverandi einræðisherra, Ferdinands Marcos, sem dæmt hafði hana til tólf ára fangelsisvistar fyrir spillingu. Þessi úrskurður olli írafári meðal stjórnmálamanna í landinu, sem sögðu að hann gæti orðið til þess að ryðja Marcos- fjölskyldunni aft- ur leið í valda- embætti. „Ég er berg- numin af ánægju yfir réttarsigrin- um,“ sagði Imelda Marcos er dómurinn lá fyrir, að sögn lögfræðings hennar. Dómurinn hnekkti dómi sér- staks spillingardómstóls, sem árið 1993 dæmdi Imeldu fyrir brot á spill- ingarvarnalögum. I janúar sl. virtist sem hún yrði að sætta sig við að þurfa að afplána fangelsisdóminn, þegar dómur skipaður fimm hæsta- réttardómurum staðfesti undirrétt- ardóminn. En hún fékk fullskipaðan hæstarétt til að taka málið íyrir, sem í gær komst með átta atkvæðum gegn fimm að þeirri niðurstöðu, að sýkna bæri ekkjuna. Dómurinn er endanlegur og óáfrýjanlegur. Fleiri málaferli En Imelda Marcos er ekki laus undan armi réttvísinnar. Fjöldi málaferla gegn henni er í vinnslu á lægri dómsstigum, þar sem hún er m.a. sökuð um að hafa lagt eigin- manni sínum lið við að raka saman milljörðum dollara af almannafé á 20 ára valdaferli hans. Ekkjan hefur neitað öllum sakargiftum. WILLIAM Hague, leiðtogi breska íhaldsflokksins, varaði í gær nokkra fyrrverandi ráðherra flokks- ins við og sagði, að þeir, sem væru andvígir stefnu hans í Evrópumál- um, yrðu skildir eftir ef þeir féllust ekki á, að málið væri útrætt. Kom þetta fram hjá Hague á fyrsta degi flokksþings Ihalds- flokksins í Boumemouth en flokks- félagar hafa samþykkt með miklum mun stuðning við þá stefnu leiðtog- ans, að Bretar gerist ekki aðilar að evrópska myntbandalaginu næstu átta árin. Hague sagði í ræðu sinni, að hann vildi, að alhr yrðu sér samferða en þeir, sem vildu það ekki, yrðu ein- faldlega skildir eftir. Beindi hann þeim orðum sérstaklega til Evrópu- sinna í íhaldsflokknum undir for- ystu þeirra Michaels Heseltines, fyrrverandi aðstoðarforsætisráð- herra, og Kenneths Clarkes, fyrr- verandi fjármálaráðheira. Þeir halda því fram, að atkvæðagreiðslan um Evrópustefnuna hafi verið óþörf og geti komið flokknum í koll. Sama gengisleysið Hague segir aftur á móti, að at- kvæðagreiðslan hafi verið nauðsyn- leg til að vilji flokksmanna kæmi ljóslega fram og til að kveða niður deilumar í flokknum. Hague tók við forystunni í íhalds- flokknum eftir kosningaósigurinn í fyrra, þann mesta síðan 1832 en þá fékk hann aðeins fjórðung þing- sæta. Flokknum hefur þó ekki vegnað neitt betur í stjómarand- stöðunni. Samkvæmt skoðanakönn- un, sem birtist í dagblaðinu Guardi- an í gær, fengi íhaldsflokkurinn að- eins 29% atkvæða nú en Verka- mannaflokkurinn 51%. Síðdegisblaðið Sun, sem einu sinni studdi Ihaldsflokkinn hvað ákafast, hæddist að honum í gær og birti mynd af Hague í líki dauðs páfagauks. „Þessi flokkur er ekki lengur til, hann er bara fyrrverandi flokkur. Banameinið: Sjálfsvíg," sagði blaðið. Svíþjóð Stjornar- stefnan óbreytt GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti í gær við setningu sænska þingsins stefnu nýi'rar rík- isstjórnar sinnar. Sagði hann mark- miðið um þriggja prósentustiga hagvöxt og lágmarksverðbólgu eftir sem áður njóta forgangs. Persson ítrekaði í stefnuræðunni það takmark stjórnarinnar, að koma atvinnuleysi í landinu niður fyrir fjögur prósent árið 2000. Hann sagði nauðsynlegt að efna til víð- tækrar upplýsingaherferðar um Efnahags- og myntbandalag Evr- ópu (EMU), sem ellefu aðildarríki ESB verða stofnaðilar að um næstu áramót. Svíþjóð er ekki í hópi stofn- aðildarríkja EMU, en Persson sagði að ítarleg umræða um kosti og galla aðildar yrði að fara fram. Ákvörðun um þátttöku yrði að bera undir þjóðaratkvæði. Hann útilokaði þó að efnt yrði til slíkrar atkvæða- greiðslu samhliða kosningum til Evrópuþingsins næsta sumar. Sahlin aftur í stjórn Persson upplýsti ennfremur í gær, hvaða breytingar hann hygðist gera á stjórninni. Anna Lindh, fyrr- verandi umhverfisráðherra, á að verða utanríkisráðherra í stað Lenu Hjelm-Wallén. Tekur Hjelm-Wallén við embætti aðstoðarforsætisráð- herra. Mona Sahlin, sem nefnd var sem líklegt leiðtogaefni jafnaðar- manna fyrir þremur árum en neyddist síðan til að segja af sér ráðherraembætti, kemur inn í stjórn að nýju sem aðstoðarráð- herra. Imelda Marcos Mannréttindasamtökin Amnesty International efna til herferðar Mannréttindabrot í Bandaríkjunum gagnrýnd Washington. Reuters. AFTÖKUHERBERGI í fangelsinu í Lucasville í Ohio. Þar bíða nú 180 fangar aftöku, í rafmagnsstól eða með banvænni lyfjagjöf. Amnesty Intemational hófu í gær al- þjóðlega herferð til varnar mann; réttindum í Bandaríkjunum. f tengslum við herferðina hefur verið gefin út skýrsla, þar sem meðal ann- ars er fjaliað um lögi’egluofbeldi, dauðarefsingar og slæma meðferð á fóngum og flóttafólki. í skýrslunni segir að greina megi „stöðugt og víðfeðmt mynstur mann- réttindabrota" í Bandaríkjunum, og þar er meðal annars farið fram á að dauðarefsingar verði afnumdar, að lögregluofbeldi verði rannsakað af óháðum aðilum og að alþjóðareglur um mannréttindi verði virtar. Sam- tökin hvetja einnig Bandaríkjastjóm til að setja strangari reglur um út- flutning vopna og tækja sem notuð eru til pyndinga. Fangar fórnarlömb alvar- legra mannréttindabrota Lögregluofbeldi er víðtækt vanda- mál í öllum fylkjum Bandaríkjanna, að því er fram kemur í skýrslunni. Flestar kvartanir em vegna meið- inga og barsmíða við handtökur, og algengt er að fólk, sem er í haldi lög- reglu, sé beitt raflosti eða úðað með piparúða, og því sé haldið í fjötrum eða stellingum sem hindra öndun. Einnig era dæmi um að óvopnað fólk hafí orðið fyrir byssukúlum lögreglu. Nærri tvær milljónir manna era á bak við lás og slá í Bandaríkjunum, og verða fangar oft fórnarlömb al- varlegra mannréttindabrota, að sögn samtakanna. Rannsóknir benda til þess að algengt sé að fangar verði fyrir líkamlegri og kynferðislegri misbeitinu af hendi fangaverða. í trássi við alþjóðlega samninga eru jámhlekkir viða notaðir í bandarísk- um fangelsum og þess eru jafnvel dæmi að vanfærar konur hafi verið hafðar í hlekkjum. í skýrslunni er lýst áhyggjum vegna skorts á lækn- isaðstoð í fangelsum og fjölgunar ör- yggisdeilda, þar sem fóngum er haldið í einangi'un til langs tíma. Bandarísk fangelsi era gjarnan yf- irfull, að því er fram kemur í skýrsl- unni. í sumum fylkjum hefur verið reynt að draga úr kostnaði með því að einkavæða fangelsi, en að mati Amnesty getur það aukið líkurnar á slæmri meðferð fanga. Samkvæmt heimildum samtakanna eru að minnsta kosti 3.500 ungmenni undir 18 ára aldri vistuð í fangelsum fyrir fullorðna í Bandaríkjunum, en það brýtur í bága við alþjóðlega mann- réttindasáttmála. Aftökum fjölgar Dauðarefsingar eru leyfðai' í 38 fylkjum Bandaríkjanna, og frá því að hæstiréttur heimilaði þær á ný árið 1976 hafa nær 500 afbrotamenn ver- ið teknir af lífi. Öfugt við þróunina í flestum iðnvæddum ríkjum hefur dauðadómum þar fjölgað, og hvergi í heiminum bíða nú fleh'i aftöku, eða um 3.300 menn. I Bandaríkjunum era leyfðar aftökur á andlega veilu fólki, í bága við alþjóðlega mannrétt- indasáttmála, og gagnstætt alþjóða- lögum heimila 24 fylki dauðadóm vegna glæpa sem ungmenni fremja fyrir 18 ára aldur. Vakin er athygli á því að fólk sem tilheyrir minnihlutahópum, eða er félagslega eða efnahagslega illa sett, verður helst fyrir mannréttindabrot- um. Svertingjar, sem dæmdir hafa verið fyrir að nauðga eða myrða hvíta manneskju, eru til dæmis mun líklegri til að hljóta dauðadóm en hvítir afbrotamenn, og síður er kveð- inn upp dauðadómur ef fórnarlambið er svart. 60% fanga í Bandaríkjunum tilheyra minnihlutahópum, og þar af er helmingurinn svertingjar, en þeir eru aðeins 12% af heildarmann- fjölda. Bandaríkin sein til að staðfesta alþjóðasáttmála Samtökin benda á að Bandaríkin hafi verið sein tU að staðfesta alþjóð- lega mannréttindasáttmála og reynt að komast hjá_ eftii'liti með fram- kvæmd þeirra. I skýrslunni segir að Bandaríkin vísi óhikað tU alþjóðalaga þegar það þjóni hagsmunum þeiira, en sniðgangi þau ella. Þau hafi tU- hneigingu til að gagnrýna mannrétt- indabrot ríkisstjóma sem taldar séu óvinveittar, en sitji aðgerðalaus hjá þegai' brot séu framin í vinveittum ríkjum. Þá er hai-ðlega gagm-ýnt að marg- ir flóttamenn, sem æskja hælis í Bandaríkjunum, séu settir á bak við lás og slá þegar þeh' koma til lands- ins. Þeir fá þá sömu meðferð og aðrh- fangar, og eru jafnvel fjötraðir og settir í einangrun. Fjölmörg dæmi era um að flóttafólki sé meinað að hafa samband við ættingja, lögfræð- inga eða flóttamannasamtök. Einnig er fullyrt að Bandaríkin stuðli að mannréttindabrotum með því að veita tækniaðstoð og selja tækjakost til ríkisstjórna og vopnaðra hópa, sem vitað er að beri ábyrgð á pynd- ingum, pólitískum morðum og öðrum mannréttindabrotum. Heldur Prodi velli? ROMANO Prodi, forsætisráð- herra Ítalíu, sagðist í gær ætla að bjóða Oscar Luigi Scalfaro, forseta Italíu, afsögn sína ef stjórn hans fellur í traustsyfirlýsingu þings, sem fram fer í dag. Kommúnistar hættu stuðningi við stjórnina í síðustu viku vegna óánægju með fjárlög hennar en einn kommúnista sagði í gær að meirihluti þingmanna flokks- ins styddi ekki þá afstöðu flokksins að hætta stuðningi við Prodi. Mubarak leit- ar lausnar HOSNI Mubarak, forseti Eg- yptalands, flaug í gær til Tyrklands til að reyna að finna friðsamlega lausn á deil- um tyrkneskra og sýi’lenskra stjórnvalda sem hafa farið stigvaxandi undanfarna daga. Sýrlendingar saka Tyrki um samvinnu við Israela á meðan Tyrkir hafa haft í hótunum við Sýrlendinga fyrir að styðja uppreisnarlið Kúrda í Tyrk- landi. Sagði Mesut Yilmaz, forsætisráðherra Tyrklands, að hann hefði gefið Sýrlend- ingum lokaviðvöran í þessu máli en sýrlensk stjórnvöld neita statt og stöðugt ásökun- um Tyrkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.