Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNB L AÐIÐ
Mál Clintons borið undir fulltrúadeild Bandaríkjaþings
Líklegt að rannsókn
verði samþykkt
Búist er við að full-
trúadeild Banda-
ríkjaþings samþykki
tillögu um að hafín
verði formleg rann-
sókn á máli Bills
Clintons forseta,
sem gæti leitt til
ákæru á hendur
honum til embættis-
missis. Margir telja
að spurningin sé
aðeins hversu marg-
ir demókratar sam-
þykkja rannsóknina
og framvindan gæti
ráðist að miklu leyti
af hollustu þeirra
við forsetann í at-
kvæðagreiðslunni.
DÓMSMÁLANEFND fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings samþykkti
í fyrradag að leggja til að hafin yrði
formleg rannsókn á máli Bills Clint-
ons forseta, sem hefur verið sakað-
ur um meinsæri og fleiri lögbrot í
tengslum við rannsókn á sambandi
hans og Monicu Lewinsky, fyrrver-
andi starfsstúlku í Hvíta húsinu.
Nefndin sendi fulltrúadeildinni til-
lögu að ályktun þess efnis að hún
heimili nefndinni að „rannsaka til
hlítar hvort nægjanlegur gi-undvöll-
ur sé fyrir því að fulltrúadeildin
beiti stjómarskrárbundnu valdi
sínu til að ákæra William Jefferson
Clinton til embættismissis".
Gert er ráð fyrir því að fulltrúa-
deildin, sem er skipuð 435 þing-
mönnum, greiði atkvæði um álykt-
unina síðar í vikunni, hugsanlega á
morgun, fimmtudag. Ályktunin
verður eitt af síðustu málunum
sem deildin afgreiðir fyrir kosning-
amar 3. nóvember.
Rannsókn en ekki ákæra
Nefndin ræddi málið í ellefu
klukkustundir í fyrradag og áður
en umræðan hófst minnti ------
foi-maður hennar,
repúblikaninn Henry
Hyde, nefndarmennina á
að þeir ættu á þessu stigi
aðeins að ákveða hvort _____
rannsaka ætti málið
frekar, en ekki taka afstöðu til þess
hvort ákæra bæri forsetann til
embættismissis.
„Við erum ekki hér til að fella
dóm yfir einum né neinum,“ sagði
hann. „Við erum hér til að svara
þessari einu spurningu - á grund-
velli þess sem við vitum nú - ber
okkur skylda til að kafa dýpra eða
líta undan?“
Samþykki fulltrúadeildin álykt-
unina tekur dómsmálanefndin
málið til frekari rannsóknar og svo
getur farið að hún yfirheyri Clint-
on og Monicu Lewinsky. Nefndin
ákveður síðan hvort leggja eigi til
að fulltrúadeildin samþykki form-
lega ákæru á hendur forsetanum
til embættismissis. Hyde kvaðst
búast við því að nefndin afgreiddi
málið fyrir næstu áramót.
Reuters
BARNEY Frank, fulltrúi repúblikana í dómsmálanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, hvíslar í eyra nefndarformannsins og flokksbróður
síns, Henrys Hydes, á sögulegum fundi nefndarinnar í fyrradag.
Meðal síðustu
mála sem af-
greidd verða
fyrir kosningar
Samþykki fulltrúadeildin ákæru
með meirihluta atkvæða dæmir
öldungadeildin í málinu undir
stjórn forseta hæstaréttar Band-
aríkjanna. Komist tveir þriðju öld-
ungadeildarinnar að þeirri niður-
stöðu að forsetinn hafi gerst sekur
um alvarleg lögbrot verður hann
að láta af embætti.
Klofnar fulltrúadeildin
eftir flokkslínum?
Þetta er aðeins í þriðja sinn í
sögu Bandaríkjanna sem
dómsmálanefndin leggur til form-
lega rannsókn á hendur forseta.
Andrew Johnson hélt embættinu
árið 1868 þegar aðeins eitt atkvæði
vantaði til að hann yrði dæmdur
sekur um embættisbrot í öldunga-
deildinni.
Richard Nixon sagði hins vegar
af sér eftir að dómsmálanefndin
hóf formlega rannsókn á Waterga-
te-hneykslinu árið 1974.
Þegar dómsmálanefndin óskaði
eftir heimild fulltrúadeildarinnar
til að rannsaka frekar ásakanirnar
á hendur Nixon var hún samþykkt
með 410 atkvæðum gegn fjórum.
Mjög ólíklegt er að niðurstaðan
verði jafn afdráttarlaus í atkvæða-
greiðslunni síðar í vikunni í máli
Clintons.
Stjórnmálamenn í Washington
búast flestir við því að fulltrúa-
deOdin heimili dómsmálanefndinni
að rannsaka mál Clintons frekar,
--------- enda eru repúblikanar
með meirihluta í deild-
inni. Klofni deildin hins
vegar eftir flokkslínum
eins og dómsmálanefnd-
in í fyrradag er líklegt að
almenningur í Band-
aríkjunum líti aðeins á rannsókn-
ina sem þátt í flokkapólitíkinni á
þinginu.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
í fulltrúadeildinni gæti því gefið
mikilvægar vísbendingar um fram-
vindu málsins. Snúist aðeins örfáir
demókratar á sveif með
repúblikönum í málinu er líklegt að
margir líti á rannsóknina sem
pólitíska atlögu að forsetanum;
verði þeir 50-70 veikist staða for-
setans verulega.
Því fer fjarri að öruggt sé að öld-
ungadeildin dæmi Clinton sekan
um alvarleg embættisbrot með til-
skildum meirihluta atkvæða. Eins
og staðan er nú er líklegt að hann
fái þau 34 atkvæði sem hann þarf
til að halda velli. Það gæti þó
breyst eftir kosningarnar í nóvem-
ber þar sem repúblikanar gætu
verið með 60 þingsæti í öldunga-
deildinni þegar hún tæki málið fyr-
ir. Fari svo - og klofni repúblikan-
ar ekki í málinu - þyrftu aðeins sjö
demókratar að snúast á sveif með
repúblikönum til að forsetinn
missti embættið.
Allir repúblikanar dómsmála-
nefndarinnar, 21, greiddu atkvæði
með ályktuninni og allir 16 nefnd-
armenn demókrata á móti. Margir
demókratanna gagnrýndu hegðun
Clintons harðlega en sögðu að
ásakanirnar á hendur honum væru
ekki nógu alvarlegs eðlis til að þær
réttlættu ákæru til embættismiss-
is.
Áður en ályktunin var samþykkt
lögðu demókratar til að umfang
rannsóknarinnar yi-ði takmarkað
og að hún færi fram í tveimur
áfóngum. Þeir vildu að nefndin
skilgi-eindi fyrst hvaða lögbrot
teldust réttlæta ákæi-u til embætt-
ismissis áður en ákveðið yrði hvort
hefja bæri formlega rannsókn. Sú
tillaga var felld.
Sakaður um 15 lögbrot
Fyrir lokaatkvæðagreiðsluna
færði David Schippers, lögfræðileg-
ur ráðgjafi repúblikana, rök fyrir því
að ástæða væri til að ákæra forset-
ann. Hann sagði að fyrir lægju
„viðamiklar og trúverðugar vísbend-
ingar“ um að Clinton hefði hugsan-
lega gerst sekur um 15 lögbrot sem
réttlættu ákæru til embættismissis.
Kenneth Starr, sem var falið að
stjóma rannsókn á Clinton-málinu,
hafði sakað forsetann um 11 lögbrot
sem hann taldi réttlæta ákæru.
Niðurstaða Schippers, sem er
demókrati og lögfræðingur frá
Chicago, er frábrugðin ásökunum
Starrs í nokki-um atriðum. Sehipp-
ers sleppti tveimur veikustu ásök-
unum Starrs, m.a. þeirri að Clinton
hefði misnotað vald sitt með því að
óska eftir því að aðstoðarmenn sín-
ir yrðu undanþegnir vitnaskyldu
og neita að bjóðast sjálfur til að
bera vitni. Hvað varðar hugsanlega
ákæm um meinsæri ákvað Schipp-
ers að breyta orðalaginu þannig að
Clinton hefði gerst sekur um rang-
an vitnisburð, sem nokkrir nefnd-
armenn telja auðveldara að sanna.
Ráðgjafinn skipti nokkrum ásök-
unum Starrs og bætti nokkrum við,
sakaði forsetann m.a. um að hafa
látið hjá líða að skýra frá því að
Lewinsky hefði borið Ijúgvitni í
eiðsvarinni yfirlýsingu. Forsetinn er
nú einnig sakaður um að hafa tekið
RANNSÓKNIN Á MÁLI CLINTONS
DÓMSMÁLANEFND fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í fyrradag að
leggja til að deildin heimilaði formiega rannsókn, sem gæti leitt til ákæru á
hendur Bill Clinton forseta til embættismissis. Þetta er aðeins í þriðja sinn í
sögu Bandaríkjanna sem mælt er með slíkri rannsókn.
Nefndin óskaði eftir víðtækri heimild til að rannsaka mál Clintons.
Hugsanlegt er að hún nái til Whitewater-máisins. Gert er ráð fyrir að
fulltrúadeildin greiði atkvæði um tillöguna sfðar í vikunni.
Janet Reno felur Kenneth
Starr að stjórna rannsókn á
máli Clintons
RAMMRÓk'MAR Rannsókn Kenneths Starrs heyrir
rtMIVIVDUMVMn- ekkj undirciórnsmá|aráðuneytjð
FERLIÐ en þrír kjörnir dómarar fylgjast
með gangi hennar
Sendir
þinginu
skýrslu
Tilnefnir Janet Reno í
dómsmálaráðuneytið
Andrew Johnson hélt velli árið 1868 þegar aðelns
eitt atkvæði vantaði til að hann yrði dæmdur
sekur um embættisbrol i öldungadeildinni. Hann j
ákvað að sækjast ekki eltir endurkjöri sama ár
Richard Nixon sagði af sér ettir að dóms■
mála-efnd þingsins hóf formiega rannsókn á
ásökunum um að hann hefðí gerst sekur
um að leggja stein í götu réttvisinnar
og misnota vald sitt 1974. Málið var
því ekki leitt til lykta á þinginu.
Fulltrúadeild og öldungadeild
Bandaríkjaþings hafa vald til að
höfða mál gegn forsetanum til
embættismissis
LEIÐIN AÐ AKÆRU TIL EMBÆTTISMISSIS
%
FULLTRUADEILDIN
Málinu er vísað til
dómsmálanefndardeildarinnar.
Eftir að hafa rannsakað málsgögnin
greiðir nefndin atkvæði um hvort
óska eigi eftir heimild til formlegrar
rannsóknar.
Þingdeildin greiöir atkvæöi um
hvort heimila eigi frekari rannsókn.
©
ODómsmálanefndin
rannsakar ásakanirnar.
*n
imar.
©
Nefndin greiðir atkvæði um hvort
leggja eigi til ákæru og sendir
þingdeildinni greinargerö.
Þingdeildin greiðir atkvæði um
niðurstöðu nefndarinnar og ákveður
hvort vtsa eigi málinu til
öldungadeildar.
OLDUNGADEILDIN
Dómsmálanefndin flytur málið
gegn forsetanum.
Öldungadeildin starfar sen,
kviðdómur, lögfræðingar forsetann
verja hann og forseti hæstaréttar
stjómar réttarhaldinu.
Öldungadeildin greiðir atkvæði um
hvert ákæruatriði. Styðji tveir þriðju
deildarinnar ákæruna missir
forsetinn embættið.
Verði forsetinn dæmdur sekur
verður hann að láta af embætti.
Varaforsetinn tekur þá við
forsetaembættinu
' ‘i
■
þátt í „samsæri" um að leggja stein í
götu réttvísinnar ásamt Vemon Jor-
dan, lögfræðingi og vini Clintons, og
Betty Currie, ritara forsetans.
Heimili fulltrúadeildin rannsókn-
ina mun Schippers í raun gegna
hlutvex-ki aðalsaksóknara í -------
málinu. Að áliti hans snýst
málið fyrst og fremst um
það að forseti landsins
hafi grafið undan dóms-
kei-fi landsins. „Sú regla ________
að öll vitni í öllum málum
verði að segja sannleikann, allan
sannleikann og ekkert nema sann-
leikann, er meginstoð bandaríska
dómskerfisins sem allar siðmenntað-
ar þjóðir líta öfundaraugum.“
„Ósæmilegt samband" eða
alvarlegur glæpur?
Abbe Lowell, lögfræðilegur
ráðgjafi demókrata, sagði hins veg-
ar að samkvæmt stjórnarskránni
væri aðeins hægt að ákæra forset-
ann til embættismissis fyi-ir alvar-
lega glæpi gegn ríkinu og Schipp-
ers hefði ekki sýnt fram á að meint
lögbrot Clintons væru nógu alvar-
legs eðlis.
Lowell færði rök fyrir því að
málið snerist fyrst og fremst um það
að forsetinn hefði gerst sekur um
„ósæmilegt samband sem hann vildi
Alls óvíst
hvort öldunga-
deildin dæmir
Clinton sekan
ekki að yi-ði afhjúpað". Hann
vefengdi einnig lagalegt mikilvægi
eiðsvarins vitnisburðar Clintons þar
sem hann neitaði því að hafa átt í
kynferðislegu sambandi við Lewin-
sky. Hann sakaði einnig Starr um að
hafa færst of mikið í fang
og sýnt hlutdrægni þegar
hann sakaði Clinton um
að hafa misnotað vald sitt
með því að óska eftir því
_________ að aðstoðarmenn sínir
yrðu undanþegnir vitna-
skyldu.
Demókratar og repúblikanar í
nefndinni deildu einkum um hvort
málið snerist fyrst og fremst um
kynmök og einkalíf forsetans eða
alvarleg lögbrot líkt og Watergate-
hneykslið. „Forsetinn hélt framhjá
konu sinni,“ hrópaði einn þing-
manna demókrata, Robert Wexler,
fyrir lokaatkvæðagreiðslu dóms-
málanefndarinnar. „Hann laug um
það. Hann vildi ekki að neinn vissi
um það. Trúir nokkur að það jafn-
gildi því að hann hafi grafið undan
ríkinu?"
Repúblikaninn Bill McCollum
benti hins vegar á að 115 Band-
aríkjamenn afplána nú fangelsis-
dóma fyrir meinsæri. „Það nægir
okkur til að ákæra og það nægir til
að hann verði sviptur embættinu."