Morgunblaðið - 07.10.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 07.10.1998, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 ERLENT MORGUNB L AÐIÐ Mál Clintons borið undir fulltrúadeild Bandaríkjaþings Líklegt að rannsókn verði samþykkt Búist er við að full- trúadeild Banda- ríkjaþings samþykki tillögu um að hafín verði formleg rann- sókn á máli Bills Clintons forseta, sem gæti leitt til ákæru á hendur honum til embættis- missis. Margir telja að spurningin sé aðeins hversu marg- ir demókratar sam- þykkja rannsóknina og framvindan gæti ráðist að miklu leyti af hollustu þeirra við forsetann í at- kvæðagreiðslunni. DÓMSMÁLANEFND fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings samþykkti í fyrradag að leggja til að hafin yrði formleg rannsókn á máli Bills Clint- ons forseta, sem hefur verið sakað- ur um meinsæri og fleiri lögbrot í tengslum við rannsókn á sambandi hans og Monicu Lewinsky, fyrrver- andi starfsstúlku í Hvíta húsinu. Nefndin sendi fulltrúadeildinni til- lögu að ályktun þess efnis að hún heimili nefndinni að „rannsaka til hlítar hvort nægjanlegur gi-undvöll- ur sé fyrir því að fulltrúadeildin beiti stjómarskrárbundnu valdi sínu til að ákæra William Jefferson Clinton til embættismissis". Gert er ráð fyrir því að fulltrúa- deildin, sem er skipuð 435 þing- mönnum, greiði atkvæði um álykt- unina síðar í vikunni, hugsanlega á morgun, fimmtudag. Ályktunin verður eitt af síðustu málunum sem deildin afgreiðir fyrir kosning- amar 3. nóvember. Rannsókn en ekki ákæra Nefndin ræddi málið í ellefu klukkustundir í fyrradag og áður en umræðan hófst minnti ------ foi-maður hennar, repúblikaninn Henry Hyde, nefndarmennina á að þeir ættu á þessu stigi aðeins að ákveða hvort _____ rannsaka ætti málið frekar, en ekki taka afstöðu til þess hvort ákæra bæri forsetann til embættismissis. „Við erum ekki hér til að fella dóm yfir einum né neinum,“ sagði hann. „Við erum hér til að svara þessari einu spurningu - á grund- velli þess sem við vitum nú - ber okkur skylda til að kafa dýpra eða líta undan?“ Samþykki fulltrúadeildin álykt- unina tekur dómsmálanefndin málið til frekari rannsóknar og svo getur farið að hún yfirheyri Clint- on og Monicu Lewinsky. Nefndin ákveður síðan hvort leggja eigi til að fulltrúadeildin samþykki form- lega ákæru á hendur forsetanum til embættismissis. Hyde kvaðst búast við því að nefndin afgreiddi málið fyrir næstu áramót. Reuters BARNEY Frank, fulltrúi repúblikana í dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hvíslar í eyra nefndarformannsins og flokksbróður síns, Henrys Hydes, á sögulegum fundi nefndarinnar í fyrradag. Meðal síðustu mála sem af- greidd verða fyrir kosningar Samþykki fulltrúadeildin ákæru með meirihluta atkvæða dæmir öldungadeildin í málinu undir stjórn forseta hæstaréttar Band- aríkjanna. Komist tveir þriðju öld- ungadeildarinnar að þeirri niður- stöðu að forsetinn hafi gerst sekur um alvarleg lögbrot verður hann að láta af embætti. Klofnar fulltrúadeildin eftir flokkslínum? Þetta er aðeins í þriðja sinn í sögu Bandaríkjanna sem dómsmálanefndin leggur til form- lega rannsókn á hendur forseta. Andrew Johnson hélt embættinu árið 1868 þegar aðeins eitt atkvæði vantaði til að hann yrði dæmdur sekur um embættisbrot í öldunga- deildinni. Richard Nixon sagði hins vegar af sér eftir að dómsmálanefndin hóf formlega rannsókn á Waterga- te-hneykslinu árið 1974. Þegar dómsmálanefndin óskaði eftir heimild fulltrúadeildarinnar til að rannsaka frekar ásakanirnar á hendur Nixon var hún samþykkt með 410 atkvæðum gegn fjórum. Mjög ólíklegt er að niðurstaðan verði jafn afdráttarlaus í atkvæða- greiðslunni síðar í vikunni í máli Clintons. Stjórnmálamenn í Washington búast flestir við því að fulltrúa- deOdin heimili dómsmálanefndinni að rannsaka mál Clintons frekar, --------- enda eru repúblikanar með meirihluta í deild- inni. Klofni deildin hins vegar eftir flokkslínum eins og dómsmálanefnd- in í fyrradag er líklegt að almenningur í Band- aríkjunum líti aðeins á rannsókn- ina sem þátt í flokkapólitíkinni á þinginu. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í fulltrúadeildinni gæti því gefið mikilvægar vísbendingar um fram- vindu málsins. Snúist aðeins örfáir demókratar á sveif með repúblikönum í málinu er líklegt að margir líti á rannsóknina sem pólitíska atlögu að forsetanum; verði þeir 50-70 veikist staða for- setans verulega. Því fer fjarri að öruggt sé að öld- ungadeildin dæmi Clinton sekan um alvarleg embættisbrot með til- skildum meirihluta atkvæða. Eins og staðan er nú er líklegt að hann fái þau 34 atkvæði sem hann þarf til að halda velli. Það gæti þó breyst eftir kosningarnar í nóvem- ber þar sem repúblikanar gætu verið með 60 þingsæti í öldunga- deildinni þegar hún tæki málið fyr- ir. Fari svo - og klofni repúblikan- ar ekki í málinu - þyrftu aðeins sjö demókratar að snúast á sveif með repúblikönum til að forsetinn missti embættið. Allir repúblikanar dómsmála- nefndarinnar, 21, greiddu atkvæði með ályktuninni og allir 16 nefnd- armenn demókrata á móti. Margir demókratanna gagnrýndu hegðun Clintons harðlega en sögðu að ásakanirnar á hendur honum væru ekki nógu alvarlegs eðlis til að þær réttlættu ákæru til embættismiss- is. Áður en ályktunin var samþykkt lögðu demókratar til að umfang rannsóknarinnar yi-ði takmarkað og að hún færi fram í tveimur áfóngum. Þeir vildu að nefndin skilgi-eindi fyrst hvaða lögbrot teldust réttlæta ákæi-u til embætt- ismissis áður en ákveðið yrði hvort hefja bæri formlega rannsókn. Sú tillaga var felld. Sakaður um 15 lögbrot Fyrir lokaatkvæðagreiðsluna færði David Schippers, lögfræðileg- ur ráðgjafi repúblikana, rök fyrir því að ástæða væri til að ákæra forset- ann. Hann sagði að fyrir lægju „viðamiklar og trúverðugar vísbend- ingar“ um að Clinton hefði hugsan- lega gerst sekur um 15 lögbrot sem réttlættu ákæru til embættismissis. Kenneth Starr, sem var falið að stjóma rannsókn á Clinton-málinu, hafði sakað forsetann um 11 lögbrot sem hann taldi réttlæta ákæru. Niðurstaða Schippers, sem er demókrati og lögfræðingur frá Chicago, er frábrugðin ásökunum Starrs í nokki-um atriðum. Sehipp- ers sleppti tveimur veikustu ásök- unum Starrs, m.a. þeirri að Clinton hefði misnotað vald sitt með því að óska eftir því að aðstoðarmenn sín- ir yrðu undanþegnir vitnaskyldu og neita að bjóðast sjálfur til að bera vitni. Hvað varðar hugsanlega ákæm um meinsæri ákvað Schipp- ers að breyta orðalaginu þannig að Clinton hefði gerst sekur um rang- an vitnisburð, sem nokkrir nefnd- armenn telja auðveldara að sanna. Ráðgjafinn skipti nokkrum ásök- unum Starrs og bætti nokkrum við, sakaði forsetann m.a. um að hafa látið hjá líða að skýra frá því að Lewinsky hefði borið Ijúgvitni í eiðsvarinni yfirlýsingu. Forsetinn er nú einnig sakaður um að hafa tekið RANNSÓKNIN Á MÁLI CLINTONS DÓMSMÁLANEFND fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í fyrradag að leggja til að deildin heimilaði formiega rannsókn, sem gæti leitt til ákæru á hendur Bill Clinton forseta til embættismissis. Þetta er aðeins í þriðja sinn í sögu Bandaríkjanna sem mælt er með slíkri rannsókn. Nefndin óskaði eftir víðtækri heimild til að rannsaka mál Clintons. Hugsanlegt er að hún nái til Whitewater-máisins. Gert er ráð fyrir að fulltrúadeildin greiði atkvæði um tillöguna sfðar í vikunni. Janet Reno felur Kenneth Starr að stjórna rannsókn á máli Clintons RAMMRÓk'MAR Rannsókn Kenneths Starrs heyrir rtMIVIVDUMVMn- ekkj undirciórnsmá|aráðuneytjð FERLIÐ en þrír kjörnir dómarar fylgjast með gangi hennar Sendir þinginu skýrslu Tilnefnir Janet Reno í dómsmálaráðuneytið Andrew Johnson hélt velli árið 1868 þegar aðelns eitt atkvæði vantaði til að hann yrði dæmdur sekur um embættisbrol i öldungadeildinni. Hann j ákvað að sækjast ekki eltir endurkjöri sama ár Richard Nixon sagði af sér ettir að dóms■ mála-efnd þingsins hóf formiega rannsókn á ásökunum um að hann hefðí gerst sekur um að leggja stein í götu réttvisinnar og misnota vald sitt 1974. Málið var því ekki leitt til lykta á þinginu. Fulltrúadeild og öldungadeild Bandaríkjaþings hafa vald til að höfða mál gegn forsetanum til embættismissis LEIÐIN AÐ AKÆRU TIL EMBÆTTISMISSIS % FULLTRUADEILDIN Málinu er vísað til dómsmálanefndardeildarinnar. Eftir að hafa rannsakað málsgögnin greiðir nefndin atkvæði um hvort óska eigi eftir heimild til formlegrar rannsóknar. Þingdeildin greiöir atkvæöi um hvort heimila eigi frekari rannsókn. © ODómsmálanefndin rannsakar ásakanirnar. *n imar. © Nefndin greiðir atkvæði um hvort leggja eigi til ákæru og sendir þingdeildinni greinargerö. Þingdeildin greiðir atkvæði um niðurstöðu nefndarinnar og ákveður hvort vtsa eigi málinu til öldungadeildar. OLDUNGADEILDIN Dómsmálanefndin flytur málið gegn forsetanum. Öldungadeildin starfar sen, kviðdómur, lögfræðingar forsetann verja hann og forseti hæstaréttar stjómar réttarhaldinu. Öldungadeildin greiðir atkvæði um hvert ákæruatriði. Styðji tveir þriðju deildarinnar ákæruna missir forsetinn embættið. Verði forsetinn dæmdur sekur verður hann að láta af embætti. Varaforsetinn tekur þá við forsetaembættinu ' ‘i ■ þátt í „samsæri" um að leggja stein í götu réttvísinnar ásamt Vemon Jor- dan, lögfræðingi og vini Clintons, og Betty Currie, ritara forsetans. Heimili fulltrúadeildin rannsókn- ina mun Schippers í raun gegna hlutvex-ki aðalsaksóknara í ------- málinu. Að áliti hans snýst málið fyrst og fremst um það að forseti landsins hafi grafið undan dóms- kei-fi landsins. „Sú regla ________ að öll vitni í öllum málum verði að segja sannleikann, allan sannleikann og ekkert nema sann- leikann, er meginstoð bandaríska dómskerfisins sem allar siðmenntað- ar þjóðir líta öfundaraugum.“ „Ósæmilegt samband" eða alvarlegur glæpur? Abbe Lowell, lögfræðilegur ráðgjafi demókrata, sagði hins veg- ar að samkvæmt stjórnarskránni væri aðeins hægt að ákæra forset- ann til embættismissis fyi-ir alvar- lega glæpi gegn ríkinu og Schipp- ers hefði ekki sýnt fram á að meint lögbrot Clintons væru nógu alvar- legs eðlis. Lowell færði rök fyrir því að málið snerist fyrst og fremst um það að forsetinn hefði gerst sekur um „ósæmilegt samband sem hann vildi Alls óvíst hvort öldunga- deildin dæmir Clinton sekan ekki að yi-ði afhjúpað". Hann vefengdi einnig lagalegt mikilvægi eiðsvarins vitnisburðar Clintons þar sem hann neitaði því að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Lewin- sky. Hann sakaði einnig Starr um að hafa færst of mikið í fang og sýnt hlutdrægni þegar hann sakaði Clinton um að hafa misnotað vald sitt með því að óska eftir því _________ að aðstoðarmenn sínir yrðu undanþegnir vitna- skyldu. Demókratar og repúblikanar í nefndinni deildu einkum um hvort málið snerist fyrst og fremst um kynmök og einkalíf forsetans eða alvarleg lögbrot líkt og Watergate- hneykslið. „Forsetinn hélt framhjá konu sinni,“ hrópaði einn þing- manna demókrata, Robert Wexler, fyrir lokaatkvæðagreiðslu dóms- málanefndarinnar. „Hann laug um það. Hann vildi ekki að neinn vissi um það. Trúir nokkur að það jafn- gildi því að hann hafi grafið undan ríkinu?" Repúblikaninn Bill McCollum benti hins vegar á að 115 Band- aríkjamenn afplána nú fangelsis- dóma fyrir meinsæri. „Það nægir okkur til að ákæra og það nægir til að hann verði sviptur embættinu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.