Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
ANDLITSMÁLUN er næsta hefðbundinn liður á óhefðbundinni hausthátíð.
Hausthátíð í
Breiðholtsskóla
FORELDRA- og kennarafélag
Breiðholtsskóla stóð fyrir árlegri
hausthátíð í skólanum síðastliðinn
laugardag.
Margt var á dagskrá til skemmt-
unar auk þess sem aflað var fjár til
starfseminnar. Ymsar nefndir
starfa á vegum félagsins og er m.a.
boðið upp á margs konar námskeið
utan hins hefðbundna skólastarfs
fyrir foreldra, böm og unglinga.
Skátar komu í heimsókn á hausthá-
tíðina, enda þeir öflugir í hverfinu.
Einnig komu fulltrúar lögreglunn-
ar og minntu meðal annars á gildi NEMENDUR, foreldrar og kennarar undu glaðir við dans og leiki á
hjálmanotkunar. hausthátíð Breiðholtsskóla síðastliðinn laugardag.
Landssíminn um skilyrta sölu símtækja
Getur skapað
óeðlilega mismun-
un milli seljenda
HREFNA Ingólfsdóttir, upplýs-
ingafulltnii Landssímans, segir
Landssimann ekki hafa í hyggju að
veita sérstakan afslátt af GSM-sím-
um gegn því að kaupendur gerist
áskrifendur að GSM-þjónustu fyrir-
tækisins en Tal hf. hefur auglýst
slík kjör.
Við teljum það ekki í samræmi
við samkeppnislög að nota tekjur af
leysisbundinni starfsemi til þess að
binda viðskiptavini við eitt símaíyr-
irtæki í heilt ár,“ segir hún. „Enda
getur svona niðurgreiðsla á sím-
tækjum skapað óeðlilega mismunun
á milli seljenda notendabúnaðar.“
Þrenns konar ákrift
Hjá Landsímanum er stofngjald í
GSM-farsímaþjónustu 2.200 kr. og
geta áskrifendur valið um fri-
stundaáskrift, almenna áskrift og
stórnotendaáskrift. Mánaðargjald
frístundaáskriftar er 450 kr., mán-
aðaráskrift almennrar áskriftar 550
kr. og mánaðaráskrift stórnotenda-
áskriftar 1.250 kr. í frístundaáskrift
kostar mínútan í almenna kerfinú
24 kr. og mínútan í GSM-kerfinu 22
kr. I almennri áskrift kostar mínút-
an í almenna kerfinu 20 kr. og mín-
útan í GSM-kerfínu 18 kr. I stórnot-
endaáskrift kostar mínútan í al-
menna keifinu 15 kr. og mínútan í
GSM-kerfinu 13 kr.
Stofngjald farsímaþjónustu Tals
hf. er hins vegar 2.000 kr. og geta
áskrifendur valið um að greiða
1.700 kr. mánaðargjald fyrir 60 mín-
útna notkun, 3.800 kr. fyrir 180
mínútna notkun, 7.500 kr. fyrir 420
mínútna notkun eða 12.500 kr. fyrir
800 mínútna notkun. Hver umfram
mínúta innan tímatalskerfisins
kostar síðan 10 krónur en dagtaxti
umfram mínútna í aimenna kerfinu
er 20,50 kr. og kvöld- og helgartaxti
13,50 kr.
Eldur
í hlöðu
TILKYNNT var um eld í
hiöðu á bænum Efri-Gegnis-
hólum í Gaulverjahreppi í gær-
morgun kl. 8.34. Þegar
slökkviliðið á Selfossi kom á
vettvang logaði í dráttarvél og
einnig hafði kviknað í nokkrum
heyrúllum í hlöðunni. Slökkvi-
starf gekk greiðlega og þótt
ekki hafi verið um mikinn
bruna að ræða hafi sú hætta
verið yfirvofandi að eldurinn
læstist í mjólkurhús og fjós,
sem eru samliggjandi við hlöð-
una. Ekki ei’u eldsupptök íylli-
lega ljós en talið er að kviknað
hafi í út frá rafkerfi dráttarvél-
arinnar.
Hitaveita Reykjavíkur og Rafmagnsveita Reykjavíkur sameinuð
Orkuveita Reykjavíkur
stofnuð um áramót
Auglýst verður eftir forstjóra
. ^ Morgunblaðið/Golli
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri, og Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi, kynntu til-
lögu um sameiningu Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Reykja
víkur.
TILLAGA um að sameina Hitaveitu
Reykjavíkur og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í nýtt fyrirtæki undir
vinnuheitinu Orkuveita Reykjavíkur
hefur verið lögð fram í borgarráði og
er gert ráð fyrir að borgarstjóm
muni afgreiða tillöguna á fundi sín-
um 15. október nk. Að sögn Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg-
arstjóra er gert ráð fyrir að íyrir-
tækið taki til starfa undir nýju nafni
um næstu áramót og að þá hefjist hið
eiginlega sameiningarferli. Akveðið
hefur verið að auglýsa eftir forstjóra
að fyrirtækinu á næstunni.
Ný sóknarfæri
Borgarstjóri sagði að við stofnun
íyrirtækisins yrði núverandi starfs-
mönnum beggja veitna tryggður
sambærilegur réttur og þeir njóta
núna og að engum starfsmanni yrði
sagt upp. „Tilgangur með samein-
ingunni er að auka möguleika nýja
íyrirtækisins á sviði rannsóknar,
þróunar og markaðssóknar," sagði
Ingibjörg Sólrún. „Við teljum að
þarna skapist ný sóknarfæri á því
sviði bæði innanlands og erlendis og
að fyrirtækið verði betur í stakk búið
til að mæta fyrirsjáanlegri orku-
framleiðslu og jafnvel orkudreifingu
á næstu öld.“
Rúmt ár er síðan undirbúnings-
vinna hófst að sameiningu fyrirtækj-
anna undir yfirstjóm borgarstjóra
og borgarfulltrúanna Alfreðs Þor-
steinssonar og Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar auk þess sem starfshóp-
ur skipaður þeim Skúla Bjarnasyni
hrl., Sveini Andra Sveinssyni hdl. og
dr. Valdimar K. Jónssyni prófessor
hefur unnið að úttekt og að verkinu í
heild í umboði nefndarinnar.
í samstarfi við starfsmenn
Sagði borgarstjóri að kappkostað
hafi verið að hafa sem best samstarf
við starfsmenn fyrirtækjanna og að
tillagan hafi verið kynnt þeim bréf-
lega auk þess sem ráðgert er að
halda fund með þeim þegar borgar-
stjóm hefur tekið endanlega ákvörð-
un um sameininguna og framtíðar-
sýn. „Það er mikil vinna framundan
og við gerum ráð fyrir að sameining-
arferlið taki að minnsta kosti allt
næsta ár,“ sagði borgarstjóri. í
greinargerð með tillögunni segir að
meginforsendur sameiningar séu
aukin hagkvæmni og hagræðing til
hagsbóta fyrir borgarbúa, möguleik-
ar á sviði rannsókna, þróunar og
markaðssóknar innanlands og er-
lendis og er lögð áhersla á að stofnuð
verði ný deild innan fyrirtækisins til
að annast þau verkefni. Fram kemur
að nýja fyrirtækið yrði fjárhagslega
sterkt auk þess sem þar væri að
finna víðtæka fagþekkingu. Bent er
á að horfur væm á vaxandi sam-
keppni í orkuframleiðslu og jafnvel
orkudreifingu innan tíðar og að öfl-
ugt orkufyrirtæki yrði betur í stakk
búið til að takast á við samkeppni en
núverandi orkuveitur.
Alfreð Þorsteinsson benti á að
nýja fyrirtækið myndi annast orku-
öflun og orkudreifingu til 57% þjóð-
arinnar. Heildarvelta íyrirtældsins
yrði á bilinu 7-8 milljarðar á ári og
nefndi hann til samanburðar að velta
Landsvirkjunar væri 8 milljarðar.
Fastráðnir starfsmenn verða um 390
en hjá Landsvirkjun em þeir 250.
Eiginfjárstaða nýja fyrirtækisins er
um 34 milljarðar en eiginfjárstaða
Landsvirkjunar er 30 milljarðar.
Sagði hann að árleg arðgreiðsla hita-
og rafmagnsveitna í borgarsjóð hefði
á undanfórnum árum verið um 1,4
milljarðar en arðgreiðslur Lands-
virkjunar til borgarinnar hefðu verið
204 milljónir.
Vatnsveitan ekki með
Borgarstjóri sagði að horfið hefði
verið frá því að Vatnsveita Reykja-
víkur yrði einnig með í sameining-
unni en lítillega hafi verið kannað
hvort ekki ætti að sameina að- og
fráveitu borgarinnar eins og víða
væri gert erlendis. Spurningunni
um hvort ekki hafi komið til greina
að stofna hlutafélag um nýja veitu-
fyrirtækið, svaraði borgarstjóri á þá
leið að það hefði ekki þótt fýsilegt.
„Það skiptir auðvitað ekki miklu
máli fyrir ríkið þegar það gerir sín
fyrirtækið að hlutafélögum, þar sem
þeir fá ýmist arð eða tekjuskatt af
sínum fyi-irtækjum í ríkissjóð,“
sagði borgarstjóri. „Fyrirtæki okk-
ar eru undanþegin tekjuskatti sem
borgarfyrirtæki en við fáum af þeim
arð.“
Gagnrýnir
vinnubrögð
fjárlaga-
nefndar
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær ekki skilja
hversu illa þingmennirnir Árni
Mathiesen og Árni Johnsen hefðu
tekið bréfi sínu til fjárlaganefndar
en þingmennirnir gagnrýndu bréf
hennar harðlega í umræðum um
fjárlagafrumvarpið á Alþingi á
mánudag. í bréfinu segir borgar-
stjóri m.a. að sjónarmið forystu-
manna borgarinnar hafi mætt tak-
mörkuðum skilningi á fundum
þeirra með nefndinni og að í ljósi
fyrri reynslu þyki sér rétt að nefnd-
in ákveði hvort ástæða sé til þess að
forsvarsmenn borgarinnar komi á
hennar fund.
„í fyrsta lagi var þetta bréf mitt
afskaplega kurteislegt," segir borg-
arstjóri, „og engin stóryrði þar á
ferðinni, ólíkt því sem var í við-
brögðum þessara ágætu manna.“
Ingibjörg segir að með bréfinu
hafi hún viljað koma á framfæri
ákveðinni gagnrýni á vinnubrögð
nefndarinnar sem sér fmnist dálítið
gamaldags. Nefndin boði fólk til
fundar við sig 21. til 24. september,
áður en fjárlagafrumvarp sé komið
fram og að því sé ekki hægt að nota
þessa fundi til að ræða neitt það
sem þar standi. Þessir fundir verði
því lítið annað en almennir málfund-
ir sem oftar en ekki vilji detta í póli-
tískt karp.
Þjónar takmörkuðum tilgangi
„Mér finnst þetta þjóna takmörk-
uðum tilgangi og því valdi ég þá leið
að senda nefndinni nokkuð ítarlegt
yfirlit yfir ýmislegt sem varðar fjár-
hagsleg samskipti ríkis og borgar,"
segir hún. „Mér hefði síðan þótt
nær að nefndin læsi þessi gögn yfir
og kæmi á fundi með okkur eftir að
fjárlagafrumvarpið er komið fram.“