Morgunblaðið - 07.10.1998, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.10.1998, Qupperneq 11
MORGUNB LAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 11 FRÉTTIR Björn Bjarnason menntamálaráðherra afhjúpar afsteypu af styttu Einars Jónssonar Charcots og Pourquoi pas? minnst Björn Bjarnason menntamálaráðherra afhenti um helgina afsteypu af styttu eftir Einar Jónsson til minningar um franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? í borginni Saint-Malo í Frakklandi. Margrét Elísabet Ólafsdóttir iylgdist með afhendingunni. HRAFNHILDUR Schram, forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar, Rut Ingólfsdóttir, eiginkona ráðherr- ans, og Björn Bjarnason menntamálaráðherra, með fána St. Malo borgar í hendinni. Til hægri er sökkull styttunnar eftir Einar Jónsson. Á hann er letrað: í minningu Charcot skipherra og áhafnar Pourquoi pas? sem fórst 16. september 1936. Gjöf frá íslenska lýðveldinu. Saint-Malo. Morgunbladið. BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra afhenti á laugardag bretónsku borginni Saint-Malo í Frakklandi að gjöf, frá ríkisstjóm Islands, afsteypu í bronsi af styttu Einars Jónssonar, til minningar um Chareot skipherra og áhöfnina af rannsóknarskipinu Pourquoi pas? I tilefni af viðtöku gjafarinnar efndi borgarstjóri Saint- Malo og þingmaðurinn René Cou- anau til móttöku íyrir ráðherrann, sendiherra Islands í París, Sverri Hauk Gunnlaugsson, Hrafnhildi Schram, forstöðumann Listasafns Einars Jónssonar, og konsúl Islands í Caen, Steinunni Filippusdóttur Le Breton. Dagski-á dagsins hófst með hátíð- legri messu í kirkju Saint-Croix þar sem sonur skipstjórans á Pourquoi pas?, Alexis Le Conniat prestur í Sa- int-Brieuc, aðstoðaði við messu- gjörðina. Kirkjan er skammt frá lítill vík, í bæjarhlutanum Saint-Severin, þar sem afsteypunni var valinn stað- ur. Dótturdóttir Charcots, frú Vall- in-Charcot, hafði hönd í bagga með að ákveða staðsetninguna. Hún valdi þessa vík inn af Rance-firði, með til- liti til þess að handan hans stendur húsið sem afí hennar bjó í. Styttan vísar í átt til hússins og um leið í norður, til Islands. Eftir messu gengu boðsgestir að staðnum, sem er fyrir neðan veginn að Solidor, varðturni frá 14. öld. Við endann á litlum blómagarði, sem kúrir milli vegarins og víkurinnar, þar sem litlir bátar vagga í sjónum, beið styttan undir fána borgarinnar eftir því að verða afhjúpuð. Nokkur mannfjöldi hafði þegar safnast þar saman og út um glugga í nálægum húsum gægð- ust höfuð forvitinna íbúa. Á heimaslóð Pourquoi pas? Sjálf athöfnin hófst með inngöngu sjóliða, sem stilltu sér upp í heið- ursvörð við enda garðsins. Síðan af- hjúpaði Björn Bjarnason styttuna og tók við fána Saint-Malo frá borgar- stjóranum. Styttan er táknræn og sýnir stóran verndarengil sem gnæf- ir yfír hóp smávaxinna manna. Þeir virðast stefna í átt til himins undir leiðsögn engilsins og rísa upp eins og stafn á skipi. I ávarpi sínu á eftir sagði ráðherrann frá hinu „ljóðræna myndskáldi", myndhöggvaranum Einai'i Jónssyni, sem gerði styttuna skömmu eftir að Pourquoi pas? fórst í Straumfirði 16. september 1936 með nær allri áhöfn; aðeins einn maður komst lífs af. Ráðherrann þakkaði einnig Vallin-Charcot, fyrir að leggja sitt af mörkum til að af- steypan og áletruð steinhellan sem hún stendur á, kæmust til Saint-Ma- lo, þaðan sem Pourquoi pas? lagði úr höfn í rannsóknarferðir sínar. Vallin- Charcot gat sjálf ekki verið viðstödd athöfnina. Fyrir hennar hönd var á staðnum fjölskylduvinurinn doktor Vogel, sonur Vogels skipstjóra, góð- vinar Charcots. Fyrir tilviljun áttu þeir sinn síðasta samfund í Reykja- vík aðeins nokkrum dögum áður en Pourquoi pas? fórst. Eftir ávarp borgarstjórans og þingmannsins René Couanau, fengu viðstaddir tíma til að virða styttuna fyrir sér, þai' sem hún stóð umvafin sólai'geislum, sem brutust fram úr skýjunum á réttu augnabliki. í troðningnum sem þá myndast reynir lágvaxinn og finlegur gamall maður að nálgast Björn Bjarnason. Þetta er Le Conniat prestur. Hann er með í fórum sínum bók, sem hann skrifaði um föður sinn og vill endilega gefa ráðherranum áritað eintak. Annar nákominn ættingi, Henri Juhel, 76 ára sjómaður og frændi Raymond Renault, sjóðliða, sem fórst með Po- urquoi pas? aðeins 25 ára, vill fá mynd af sér með í'áðherranum. „Eg man vel eftir slysinu og frænda mín- um,“ segir hann. „Hann vildi ekki fara með í þessa ferð, af því hann ætlaði að gifta sig. En Charcot kom og sótti hann.“ Áhugi á samskiptum við ísland Að athöfninni lokinni er gestum boðið að drekka vinarskál í ráðhúsi Saint-Malo. Þar færir Couanau borgarstjóri menntamálaráðherra og sendiherra Islands minnispening borgarinnar og bók um Pourquoi pas?, sem Hrafnhildur Schram þigg- ur einnig að gjöf. Gjafii' Islands til borgarstjórans og fulltrúa menning- armála, Louis Pottier, er bók um Einar Jónsson og hljómdiskur með íslenskum þjóðlögum í flutningi Menntaskólans við Hamrahlíð. I há- deginu snæddi sextán manna hópur fjögurra rétta sælkeramáltíð í boði borgarinnar á veitingahúsinu Grand Hotel des Thermes við ströndina. Þar lét borgarstjórinn í ljós áhuga á frekari samskiptum við Island, ekki síst í tengslum við fiskvinnslu; hann sagðist ekki frábitinn þeirri hug- mynd að fá íslensk sjávarútvegsfyr- irtæki til Saint Malo. Björn Bjarna- son sagðist myndu koma þessum vilja á framfæri við samráðherra sína. Eftir málsverðinn var fai'ið í heim- sókn í sögusafn borgarinnar, sem nýlega áskotnaðist málverk af Charcot. Um leið var tækifærið not- að til að skoða sýningu um skipherr- ann, þar sem meðal annars gefur að líta greinar úr íslenskum dagblöðum af slysinu á Pourquoi pas? Þar er einnig hægt að sjá hve oft Charcot kom til íslands. Fyrst 1912 og síðan næstum árlega á Pourquoi pas? á ár- unum 1925 til 1936, á leið í rannsókn- arleiðangra til Grænlands og Jan Mayen. „íslendingar virðast muna vel eftir Charcot og halda nafni hans ekki síður á lofti en Frakkar," segir doktor Vogel undrandi og ánægður. Heimsókninni lauk með sýningu á kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur um strandið, Svo á jörðu, í boði menntamálaráðherra. YTYYYTYTtJtTtTTtJYttT * M0 m Toppstaður og veislugladur 0 M : Tonlisfarveisla * - Bestu tónlistarmenn landsins skemmta hjá okkur í allan vetur » FLOTT SYNING -SEM SLÓ I GEGNl FRANK SINATRA, BING CROSBY, DE, MARTIN, TONY BENNETT, NAT KING COLE, BILLIE HOLIDAY, ELLA FITZGERALD Þ* ^0- Hljómsvpitin Casino Mi ATH: Aðeins tvœr sýningar og Póll Oskar leika fyrir dansi ó eftir. eftir: 10. og 1T. okt. BENNY GOODMAN, GLENN MILLER, COUNT BASIE, LOUIS ARMSTRONG, SAMMI DAVIS JR. O.FL. O.FL. I Föstudaginn 16. október: | Hinir landskunnu, síkátu og frábæru skagfírsku söngvarar. o n \nsssL TSS&**0** I Hljómsveit Geirmundar Vattýssonar^ leikur fyrir dansi EIN BESTA SYNING SEM SETT HEFUR VERIÐ UPP! Frábærir söngvarar JónJósep • Snæbjömsson V* i Kristján b Glslason Hulda ^Gestsdóttir RúnaG. | StefánsdóS Birgitta • Haukds I p Frqmundqn á Broqdways 9. okt. 10. okt. 16. okt. 17. okt. 23. okt. 24. okt. 6. nóv. 14. nóv. 21. nóv. 26. nóv. 27. nóv. 28. nóv. - ABBA - Land&Synir leika fyrir dansi. ................... "Os - New York-New York, Páll Oskar og Casino - Aiftagerðisbræður, Hljómsyeit Geirmundar - New York-New York, Páll Oskar og Casino - Hornfirðingar, Humarveisla - ABBA. Skítamórall leikur fyrir dansi - ABBA, Greifarnir leika fyrir dansi - STORDANSLEIKUR, Skitamórall leijtur fyrir dansi - VILLIBRÁÐARKVÖLD - ABBA, Páll Oskar og Casino - Fegurðarsamkeppni karla - SKAGFIRÐINGAR-HUNVETNINGAR & Geirmundur - ABBA, byrjum á vinsæia jólahlaðborðinu, Sóldögg leikur fyrir dansi 4/5 des. - ABBA og vinsæla jólahlaðborðið 11/12des. - ABBA og vinsæla jóiahlaðborðið 18/19 des. - ABBA og vinsæla jólahlaðborðið Gamlárskvöld - Stórdansleikur Nýárskvöld, Vínardansleikur Islensku óperunnar Hljómsveitin LAISID OG SYMf* leikur föstudag 9. okt. PÁLL ÓSKAR & CA.SINO leika laugardag W. okt. Forsala aðgöngumiða kl. 13-17 alla daga! veisl^- dvlbJÓN^ ; síma fttíB® veisíusalir Fjölbreylt úrval matsedla. Borðbúnaðar- og dúkaleiga. Veitum persónulega ráðgjöf við undirbúning. Leigjum sali fyrir jólatrésskemmtanir, pantið tímaniega! BRQftOyW HÓTEL ÍSLANDI Miða- og borðapantanir í síma 533 1100. Verö 4.900, matur og sýning. 1.950, skemmtun. 950, dansleikur. Skoðaðu vefinn okkar, m.a.veisluþjónustuna, www.broadway.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.