Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 21
ERLENT
Hart er nú tekist á um forystuna í röðum kristilegra demókrata, CDU, í Þýskalandi
Bonn. Reuters.
MIKIL deila er risin innan Kristi-
lega demókrataflokksins, CDU, í
Þýskalandi um það hvernig best sé
að standa að endurreisn hans og
endurnýjun innan forystunnar eftir
mesta kosningaósigur hans frá ár-
inu 1949. Bodo Hombach, einn
helsti ráðgjafí Gerhards Schröders,
verðandi kanslara, segir í grein,
sem birtist í gær, að rausnarlegar
atvinnuleysisbætur hafí orðið til að
lengja þann tíma, sem fólk er at-
vinnulaust, en ekki stytta hann.
Helmut Kohl, fráfarandi kansl-
ari, brást við kosningaósigrinum
meðal annars með því að segja af
sér leiðtogaembættinu í CDU en
hann hefur gegnt því í 25 ár. Afleið-
ingin er sú, að nú logar flokkurinn í
átökum milli gömlu forystunnar,
„Hvalaþjóð-
garður“ við
Bretland
London. Daily Telegraph.
MIKIÐ er um hval í sjónum norð-
vestur af Bretlandi og þess vegna
ber að koma þar upp nokkurs konar
„hvalaþjóðgarði" og banna þar
ýmsa starfsemi eins og olíuleit.
Þetta hafa grænfriðungar farið
fram á við bresk stjórnvöld.
í fimm vikna leiðangri grænfrið-
unga og Hvala- og höfrungavemd-
arfélagsins í Bretlandi á þessum
slóðum sást til 11 hvalategunda, þar
á meðal búrhvals, langreyðar, sand-
reyðar, hrefnu, steypireyðar, hnúfu-
baks, háhyrnings og ýmissa smá-
hvala, og í framhaldi af því hefur
Melchett lávarður, stjórnarformað-
ur samtaka grænfriðunga, skrifað
Chris Smith, ráðherra menningar-
ai-fleifðar, og hvatt til 18 mánaða
banns við olíuleit á svæðinu.
Grænfriðungar halda því fram, að
þær aðferðir, sem notaðar séu við
olíuleit, fæli burt hvalinn og það sé
brjálæði að fórna honum á altari
nýrra olíulinda.
Le Pen sviptur
þinghelgi
Strassborg. Reuters.
EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær
með yfirgnæfandi meirihluta að
svipta Jean-Marie Le Pen, leiðtoga
frönsku Þjóðfylk-
ingarinnar, þing-
helgi, í því skyni
að greiða fyrir
því að hægt verði
að draga hann
fyrir rétt í Þýzka-
landi fyrir meint
andgyðingleg
ummæli.
420 þingmenn
greiddu atkvæði
með tillögunni um þinghelgissvipt-
ingu Le Pens, 20 á móti og 6 sátu
hjá. Að atkvæðagreiðslunni lokinni
sagði Le Pen í viðtali við frönsku
sjónvarpsstöðina TV2, að hann væri
reiðubúinn að mæta fyrir rétti í
Múnchen að því tilskildu að hann
„verði ekki sendur til Dachau eða
Buchenwald".
Saksóknari í Bæjaralandi hafði
farið fram á þinghelgissviptinguna
til að fá Le Pen til að svara til saka
fyrir meint ummæli sín þess efnis,
að útrýming nazista á sex milljónum
gyðinga væri „hreint smáatriði“ í
mannkynssögunni.
Flokksmenn vilja segja
skilið við Kohl-tímann
hirðmanna Kohls, og yngri manna,
sem krefjast róttækrar endurnýj-
unar í framvarðarsveitinni. Saka
þeir síðai-nefndu, aðallega fólk á
fertugs- og fimmtugsaldri, Kohl um
að vilja ráða því sjálfur hverjir taki
við.
Ekki tilskipun að ofan
„Fyrst og síðast verður flokkur-
inn að segja skilið við Kohl-tímann
og það án tafar,“ sagði Kajo
Schommer, efnahagsráðherra í
Saxlandi, í viðtali við dagblaðið
Bild. Volker Rúhe, fráfarandi varn-
armálaráðherra, sem nefndur hefur
verið sem hugsanlegur varaformað-
ur CDU, sagði í viðtali við sama
blað, að forystan þyrfti á algerri
uppstokkun að halda. Lagði hann
áherslu á, að það mætti ekki gera
með tilskipunum að ofan og var þá
augljóslega að víkja að þeirri yfir-
lýsingu Kohls eftir að hann sagði af
sér í síðustu viku, að Wolfgang
Schauble, leiðtogi þingflokks CDU,
ætti að taka við af sér.
Það, sem fór fyrir brjóstið á
mönnum, var, að Kohl skyldi kveða
strax upp úr með það, að Schauble
yrði næsti leiðtogi án þess að láta
svo lítið að ráðfæra sig við flokks-
menn. Schauble nýtur nefnilega
mikils stuðnings innan flokksins og
framkvæmdastjóm flokksins hefur
nú lagt til, að hann taki formlega
við af Kohl á flokksþingi CDU 7.
nóvember.
Bodo Hombach, sem var einn
þeiiTa sem stýrðu kosningabaráttu
jafnaðarmanna fyrir kosningamar
27. september sl. og verður líklega
ráðherra í stjórn Schröders, segir í
grein í tímaritinu Spiegel, að rausn-
arlegar atvinnuleysisbætur letji
menn fremur en hvetji til að fá sér
vinnu. Lofar hann einnig þær breyt-
ingar, sem gerðar hafa verið á vel-
ferðarmálum í Bandaríkjunum en
þar voru bætur lækkaðar. Bótaþeg-
ar hafa því orðið að leita út á vinnu-
markaðinn og oft í láglaunastörf.
Margir telja Hombaeh óopinber-
an talsmann Schröders, að hann lýsi
þeim skoðunum, sem Schröder vilji
ekki verða fyrstur til að flíka.
WhatCar, 1998:
„Besti
smábíll
ársins!“
Útlit bíls skiptir konur máli en þær vita að það er lítils
virði efannað vantar. Og það vantar ekkert í Ford
Fiesta því hann sameinar kraft, þægindi ogfínt verð.
Tímaritið What Car, 1998, kernst að kjama málsins:
„Besti smábtll ársins! Nú verða gæði smábíla miðuð
við yfirburði Ford Fiesta."
Þrenns konar tilboð!
Komdu strax og kannaðu málið.
Ford Fiesta
-fyrir konur sem vilja komast áfram
Staðalbúnaður meðal annars:
Vökvastýri, samlæsing, upphituð framrúða,
16 ventla, 1,25 lítra vél, rafdrifnir og upphitaðir speglar.
Verð (á götuna): 3ja dyra kr. 1.098 þúsund, 5 dyra kr. 1.158 þúsund.
Brimborg-Þórshamar Bíley Betri bílasalan
Tryggvabraut 5, Búðareyri 33, Hrísmýri 2a,
Akureyri Reyðarfirði Selfossi
sími 462 2700 sími 474 1453 sími 482 3100
Bílasala Keflavíkur
Hafhargötu 90,
Keflavík
sími 421 4444
Tvisturinn
Faxastíg 36,
Vestmannaeyjum
sími 481 3141
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010