Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 33

Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 33
32 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 3Kw0tniÞlfifeife STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. JAFN RETTUR FORELDRA SAMBAND ungra sjálfstæðismanna samþykkti á mál- efnaþingi sínu um síðustu helgi ályktun um fjölskyldu- mál, þar sem lagt er til að feðrum og mæðrum verði tryggður jafn réttur til fæðingarorlofs. Þessu vilja ungir sjálfstæðismenn haga þannig að hvort foreldri um sig eigi rétt á þriggja mánaða sjálfstæðu fæðingarorlofi, en þar að auki eigi foreldrar sameiginlega rétt á þriggja mánaða orlofi, sem þeir ráði hvernig þeir skipti á milli sín. Þá telja ungir sjálfstæðismenn mikilvægt að foreldrum sé gefið tækifæri til sveigjanlegs fæðingarorlofs, sem t.d. sé hægt að nýta samhliða hlutastarfi. Þessar tillögur eru athyglisverðar og jákvæðar. Eins og Morgunblaðið hefur margoft bent á, er jafnari þátt- taka kynjanna í umönnun ungra barna ein meginforsend- an fyrir jafnrétti á fleiri sviðum og aukið svigrúm foreldra til að vera með börnum sínum er tvímælalaust hagur barnanna og alls samfélagsins. Lofsverð er jafnframt sú hreinskilni ungra sjálfstæðis- manna að þessi tillaga horfi til aukningar ríkisútgjalda. En þótt útgjöld tryggingakerfisins kunni að aukast við það að feður fari í auknum mæli að taka sér fæðingaror- lof, eru tryggingabætur lágar. Þær eru svo lágar að það dregur úr líkunum á að allir, sem eiga rétt á fæðingarorlofi, nýti sér það. Morgunblað- ið hefur áður fjallað um nauðsyn þess að um aukinn rétt foreldra til launagreiðslna í fæðingarorlofi verði samið í kjarasamningum. Slíkt yrði án efa að gerast í áföngum og hugsa mætti sér að fyrsta skrefið gæti verið einhvers konar tilflutningur á orlofsrétti, þannig að fólk gæti tekið sér frí frá vinnu þegar mest við lægi; við fæðingu nýs fjöl- skyldumeðlimar. Það er til langs tíma litið fyrirtækjum í hag að stuðla að því að konur og karlar skipti jafnt með sér ábyrgð á börn- um og heimili, m.a. með töku fæðingarorlofs. Ef konur dragast aftur úr körlum í samkeppni á vinnumarkaðnum vegna meiri fjarveru í þágu barna og heimilis verður það til þess að fyrirtækin njóta ekki menntunar þeirra og hæfileika sem skyldi. Jöfn tækifæri kynjanna á þessu sviði stuðla að því að fyrirtæki fái hæfasta fólkið með beztu menntunina til að gegna ábyrgðarmeiri stöðum. STUÐNINGUR VIÐ HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU ENGAN ÞARF að undra áhuga fólks á heilbrigðisþjón- ustunni. Það er meginhlutverk hennar að lina þján- ingar, lækna mein og endurhæfa fólk til þátttöku í dag- legu lífi. Hátæknisjúkrahús sinna og víðfeðmum rann- sóknum og kennslu. Þjóðhagslegt gildi heilbrigðisþjón- ustunnar felst m.a. í lengri starfsævi fólks og minni fjar- vistum frá störfum. Þar að auki er heilbrigði til líkama og sálar dýrmætasta eign sérhvers einstaklings. Stofn- og rekstrarkostnaður heilbrigðisþjónustu er að stærstum hluta sóttur til almennings og atvinnulífs í formi skatta, sem löggjafinn ráðstafar í fjárlögum. Ein- staklingar, fyrirtæki og félagasamtök hafa séð ástæðu til að bæta um betur með fjárstuðningi til að standa undir viðunandi heilbrigðisþjónustu, eins og dæmin sanna. Um síðustu helgi fór fram almenn fjársöfnum á vegum SÍBS, sem skilaði á fjórða tug milljóna króna til endur- bóta á endurhæfingarstöð að Reykjalundi. Komandi laug- ardag selur Kiwanishreyfingin K-lykil til að fjármagna endurbætur á húsnæði Geðhjálpar. Krabbameinsfélag ís- lands, sem lengi hefur skilað farsælu starfi í heilsugæzlu, stendur þessa dagana fyrir fræðsluátaki um krabbamein hjá körlum í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Hér eru aðeins nefnd þrjú dæmi úr fréttum síðustu daga um framtak félagasamtaka, en fjölmörg önnur mætti til tína. Og vert er að minna á, að drjúgur hluti nauðsynlegs tækjakosts heilbrigðisstofnana eru gjafir fé- lagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga. Aðhald í ríkisútgjöldum er nauðsynlegt. Sitthvað bend- ir þó til þess að um of hafi verið saumað að heilbrigðis- þjónustunni síðustu 10 til 15 árin. Hlutur frjálsra félaga- samtaka hefur á hinn bóginn vaxið jafnt og þétt og gegnt ómetanlegu hlutverki í vörn og sókn þjóðarinnar á heil- brigðissviðinu. Viðbrögð almennings tala sínu máli. Þau eru stuðningsyfirlýsing í fjárframlögum. MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 33. - Tillögur nefndar um breytinffar á kosningalögum og kjördæmaskipan Fjórum núverandi kj ördæmum skipt upp SAMKVÆMT tillögum nefndar forsætisráðherra um breyting- ar á kjördæmaskipan og til- högun kosninga til Alþingis verður landinu skipt upp í sex kjör- dæmi, þrjú þéttbýliskjördæmi og þrjú dreifbýliskjördæmi með 9 til 11 þing- menn hvert. Dreifbýliskjördæmunum fækkar og þau stækka og Reykjavík- ur- og Reykjaneskjördæmi verður skipt. Gert er ráð fyrir að há- marksmisvægi milli kjördæma megi ekki vera meira en 1 á móti 2 og verði ákvæði þar að lútandi sett inn í stjórnarskrá. Þá verður persónukjöri geflð aukið vægi og nefndin hvetur til þess að þingmenn í dreifbýl- iskjördæmunum fái aukna að- stoð, þar sem aðstaða þeirra til að sinna kjósendum verði önn- ur gn áður. I skýrslu nefndarinnar til forsætisráðherra er fjallað um ýmsa möguleika á því að breyta kjördæmaskipaninni, allt frá því að setja á laggirnar einmenningskjördæmi til þess að gera allt landið að einu kjör- dæmi. Þá er fjallað um ýmsa möguleika á að færa til og breyta núverandi kjördæma- mörkum. Meginmarkmiðin, sem nefndin setti sér, voru að gera kosningakerfíð einfalt og auðskiljanlegt; að draga úr misvægi atkvæða þannig að hlutfall kjósenda að baki hverju þingsæti þar sem mun- urinn er mestur á milli þing- sæta yrði sem næst 1:1,5 til 1:1,8; að þingsætafjöldi í hverju kjör- dæmi yrði sem jafnastur; að áfram yrði jöfnuður á milli stjórnmálasam- taka á landsvísu til að fjöldi þingsæta hvers flokks yrði í sem bestu hlutfalli við kjósendatöluna og að þingmenn yrðu áfram 63 eins og nú er. Kosningakerfíð einfaldara Nefndin segir að rökin fyrir því að skipta landinu upp í 6-7 kjördæmi, 3-4 á landsbyggðinni og þrjú á höfuðborg- arsvæðinu með áþekkum fjölda þing- sæta í hverju þeirra, séu einkum þau að kosningakerfið verði einfaldara og ekki þurfí að beita flóknum aðferðum við úthlutun þingsæta eins og nú sé. I öðru lagi að ef fjöldi kjördæmasæta í hverju kjördæmi sé nokkurn veginn sá sami þurfi ekki nema níu jöfnunar- sæti í heild til þess að tryggja jöfnuð milli stjórnmálasamtaka á landsvísu. Ef kjördæmin yrðu fleiri með færri þingsætum eða eitt þeirra miklu fá- mennara en önnur þyrfti að fjölga jöfnunarsætum eða taka upp flóknari úthlutunarreglui’ en d’Hondt til að tryggja jöfnuð milli stjórnmálasam- taka. í þriðja lagi verði nokkurn veg- inn jafnerfítt fyrir ft’amboðslista að ná kjördæmasæti hvar sem er á landinu miðað við hlutfall kjósenda og loks að þingmannahópar kjördæmanna verði tiltölulega jafnir að stærð sem ætti að tryggja jafnræði á milli þeirra. Helstu ókostii’nir séu hins vegar þeir að stækkun kjördæmanna valdi því að erfiðara verði að halda uppi persónu- legum samskiptum milli þingmanna og kjósenda og núverandi kjördæmi séu stjórnsýsluumdæmi sem erfítt sé að hrófla við. Eftir ítarlega umfjöllun um þessar leiðir og hvaða kostir séu fyrir hendi varðandi breytingar á kjördæma- mörkum sem ná ofangreindum mark- miðum gerir nefndin meg- _________ intillögu um að fjórum af núverandi kjördæmum verði skipt, þ.e. Reykjavík- ur-, Reykjanes-, Austur- lands- og Norðurlands- “ kjördæmi vestra og kjördæmin verði sex í stað átta. Nýju kjördæmin verða Norðvesturkjördæmi, sem tekur yfir Vesturland, Vestfirði og Húnavatns- sýslur; Norðausturkjördæmi, sem tek- ur yfir Skagafjarðarsýslu, Sigluíjörð, Norðurland eysti-a og Múlasýslur; Suðurkjördæmi, sem tekur yfir Aust- Róttækar breytingar á mörkum núverandi kjördæmaskipanar líta dagsins ljós ef tillög- ur nefndar forsætisráðherra um kosningalög og kjördæmaskipan verða samþykktar, en í nefndinni áttu sæti fulltrúar allra þingflokka. Morgunblaðið/Golli NEFNDIN kynnti skýrslu um kjördæmamálið á fundi með fréttamönnum í gær. Megintillaga að nýrri skipan kjördæma Kjördæma- mörk sem nú eru í gildi Norðvesturkjördæmi (Vesturland, Vestfirðir og Hjnavatr.ssýslurj Reykjavík-V Reykjavík-A Suðvestur- kjördæmi (Reykjanes án Suðurnesja) Suðurkjördæmi (Suðurnes, Árnessýsla. Rangárvallasýsla og Skattafellssýslur); Kjördæmi Kjósendur Þingsæti (kjördæma- og jöfnunarsæti) Kjósendur að baki hvers þingmanns Norðvesturkjördæmi 18.291 8+1 2.032 Norðausturkjördæmi 30.276 9+2 2.752 Suðurkjördæmi 26.696 9+1 2.670 Suðvesturkjördæmi 40.312 9+2 3.665 Reykjavík vestur 39.517 9+2 3.592 Reykjavík austur 39.516 9+2 3.592 Landið allt 194.608 53+10 3.089 Ókostur að stækka kjördæmin ur-Skaftafellssýslu, Suðurland og Suð- urnes; Suðvesturkjördæmi, sem tekur yftr Reykjanes án Suðurnesja og Reykjavík vestur og Reykjavík austur. 10 uppbótarsæti Kjördæmasæti yrðu 53 og uppbót- arsæti yrðu 10 talsins. Þing- menn í hverju kjördæmi yrðu 9 til 11, fæstir í Norð- vesturkjördæmi 9 og 10 í Suðurkjördæmi, en II í hin- ________ um fjórum kjördæmunum. Þar eru einnig tveir uppbót- arþingmenn samanborið við einn í tveimur fyrstnefndu kjördæmunum. Kjósendur að baki þingmanni yrðu fæstir í Norðvesturkjördæmi 2.032, en flestir í Suðvesturkjördæmi 3.665. Mesta misvægi milli kjördæma yrði 1:1,80. Nefndin segir að það sem mæli einkum með þessari skipan umfram aðra kosti sé að það yrði of stórt skref að steypa þremur af núverandi kjör- dæmum saman í eitt kjördæmi, þ.e. V esturlandskj ördæmi, Vestfj ar ðakj ör- dæmi og Norðurlandskjördæmi vestra. Þá sé æskilegt að Akureyri sem höfuðstaður Norðurlands verði ekki í jaðri kjördæmis ------------------ heldur meira miðsvæðis. Aðstoð við Einnig segir að ekki hafi þingmenn verði aukin verið unnt að færa mörk Vestur- og Norðaustur- kjördæmis meira til vest- urs vegna þess að með því móti yrði annað hvort að fækka þingmönnum í sjö í Vesturkjördæmi eða farið fram úr þeim mörkum sem nefndin taldi viðunandi í misvægi milli atkvæða kjósenda. Þá segir að ef mörk Vestur- og Norðausturkjördæma yrðu færð lengra til vesturs yi’ði Vesturkjör- dæmi áberandi fámennast og það gæti kallað á fjölgun jöfnunarsæta til að tryggja jöfnuð milli stjórnmálasam- taka. Loks segir að ef Norðaustur- kjördæmi næði frá Vatnsskarði til Skeiðarár yi’ði kjördæmið mjög stórt og jafnfram mun fjölmennara en Suð- urkjördæmi og af þeim sökum sé lagt til að A-Skaftafellssýsla tilheyri Suð- urkjördæmi. Eins og fyi’r sagði leggur nefndin til að D’Hondt reikni- reglunni verði beitt. Jöfnunar- sætin verða öll bundin kjör- dæmum og úthlutað á hlutfalls- tölur og horfið er frá þeirri reglu að samtök þurfi að fá kjördæmasæti til að koma til greina við úthlutun jöfnunar- sæta. I þess stað er miðað við að stjórnmálasamtök sem fá 5% atkvæða á landinu öllu geti fengið jöfnunarsæti, hvort sem þau hafa fengið kjördæmasæti eða ekki. Hægt að breyta kjördæma- mörkum í Reykjavík Þá leggur nefndin áherslu á að breytingar á kjördæmaskip- aninni nú geti orðið til nokk- urrar framtíðai’ og lagt er til að stjórnarskrárákvæði um kjör- dæmaskipan verði þannig orð- að að gera megi breytingar á kjördæmamörkum til að bregð- ast við breyttri íbúadreifingu í landinu innan einhverra ákveð- inna marka og að í ákvæðinu sé einnig heimilt að breyta þing- sætatölu kjördæma ef veruleg röskun verði á íbúafjölda. Þá er einnig gerð tillaga um að setja í stjórnarskrá ákvæði um breytingar sem gera skuli á kosningaskipaninni án nýiTa laga og stjórnarskrárbreytinga. Annars vegar er um að ræða heimild til handa lög- gjafanum að gera breytingar á þing- mannatölu í kjördæmum ef mismunur á kjósendafjölda að baki hverju þing- sæti er orðinn meiri en 1:2 og hins vegar heimild til handa landskjör- stjórn að breyta mörkum milli Reykjavíkurkjördæmanna eftir bú- setuþróun í höfuðborginni, þannig að henni verði skipt upp í nokkurn veg- inn jafnstór kjördæmi. Nefndin leggur einnig til að áfram verði heimilt að breyta kjörseðli með því að breyta röð frambjóðenda eða strika þá út og að vægi þessara að- gerða kjósenda verði aukið. Eru gerð- ar ákveðnar tillögur í þeim efnum sem í meginatriðum eru þær sömu og giltu fram til breytinga á kosningalögunum 1959, en nefndin tekur jafnframt fram að henni hafi ekki gefist tækifæri til þess að ræða þennan þátt kosninga- kerfisins jafn rækilega og hún hefði kosið. Loks segir í skýrslu nefndarinnar að verði tillögur hennar að lögum sé ljóst að aðstaða þingmanna til að sinna kjós- endum í hinum landfræðilega stæni kjördæmum verði önnur en áður. Nefndin hvetur því tif þess að aðstoð við þingmenn úr þessum kjördæmum verði aukin, til dæmis þannig að þing- menn fái styrk til að njóta liðsinnis starfsmanns eða til annars konar að- stoðar. Þá tekur nefndin ekki afstöðu til þess hvenær skuli kosið fyrst sam- kvæmt hinni nýju skipan. Ef horfið yrði að því að kjósa sem fyrst eftir nýju kerfi, t.a.m. næsta haust, yrði að taka sjálfstæða ákvörðun um það. ________ í nefndinni áttu sæti Friðrik Sophusson, formað- m-, sem vai’ skipaður án til- nefningar, og fulltrúar þeirra þingflokka sem voru ....... á Alþingi þegar nefndin var skipuð, Geir H. Haarde, Valgerðui’ Svemsdóttir, Guðmundur Árni Stef- ánsson, Svavar Gestsson og Guðný Guðbjörnsdóttir. Skýrslu nefndarinnar í heild með kortum og fylgiskjölum er að fmna á Fréttavef Morgunblaðsins, www,- mbl.is. + Morgunblaðið/Kristinn FRÁ blaðamannafundi nefndarinnar á Litlu-Brekku í gær. Frá vinstri: Stefán Már Stefánsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Árni Kolbeinsson. Frjálsræði takmarkað án lagaheimilda Nefnd á vegum forsætisráðherra segir verulegan misbrest á að lögleiðing EES- reglna hér á landi standist kröfur stjórnar- skrár og íslenzkra laga. Olafur Þ. Stephen- sen sat blaðamannafund nefndarinnar. ERULEGUR misbrestur er á því að lögleiðing reglna hins Evrópska efnahags- svæðis hér á landi samræm- ist reglum íslenzkrar stjórnskipunar. Þetta er meginniðurstaða nefndar, sem Davíð Oddsson forsætisráðherra skipaði í júní í fyiTa til að fjalla um þetta efni. Nefndin skilaði af sér 16. september síðastliðinn og var álit hennar gei’t opinbert í gær á blaða- mannafundi. I nefndinni sátu Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttarlögmaður, sem var formaður, Stefán Már Stefánsson lagaprófessor og Ámi Kolbeinsson. í álitinu, sem þeir kynntu í gær, er bent á að hér á landi sé litið svo á að reglur þjóðaréttar, sem íslenzka ríkið kunni að vera bundið af gagnvart öðrum ríkjum, gildi ekki sjálfkrafa sem landsréttur heldui’ verði að leiða þær í landslög með þeim hætti, sem gildi um lagasetningu innanlands samkvæmt stjómskipun ríkisins. Reglur EES verði ekki að innanlandsrétti nema þær hafi verið teknar þar upp í sam- ræmi við reglur íslenzkrar stjómskip- unar; með lagasetningu á Alþingi eða setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyiTrmæla. Lögmætisreglan mikilvæg Nefndin segir, og vitnar þar í rit Gunnars G. Schram lagaprófessors, að sum fyrirmæli verði aðeins sett með lögum. Þetta eigi t.d. við um þau ákvæði stjómarskrárinnar, sem áskilji berum orðum að eitthvað skuli ákveð- ið með lögum. Þá geti aðeins löggjaf- inn sjálfur breytt lögum, sem hann hafi sett. Þegar þessum tilvikum sleppi, verði að ætla að löggjafar þurfi við þegai’ setja skuli almennar réttar- reglur, hvort sem þær mæli fyrir um háttsemi manna eða leggi viðurlög við ef út af sé brugðið, og hvort sem þær lúti að lögskiptum á sviði einkaréttar eða allsherjarréttar. „Eink- anlega sé það viðurkennd grundvallarregla í íslenzk- um rétti, að skerðing á eignum eða frjálsræði ein- stakra aðila geti aðeins átt sér stað samkvæmt lögum eða heimild í lögum," segir í nefndarálitinu. Að því er snertir heimildir stjórn- valda, þ.e. ráðherra, til að setja al- menn stjórnvaldsfyrii’mæli (yfii’leitt með reglugerð) segir nefndin taiið að slík fyrirmæli, sem geyma almennar réttarreglur sem snúa að borgurun- um, verði yfirleitt að eiga stoð í sett- um lögum. En meginreglan um sér- staka lagaheimild til handa stjórnvöld- um sé einkum óumdeild, þegar um sé að ræða réttarreglur sem á einn eða annan hátt skerði eða takmarki eignú’ eða frjálsræði borgaranna. Þessi regla sé nefnd lögmætisreglan. Nefndin segir að það sé hreint ekki víst að ákvæði settra laga, sem veita ráðherrum formlega heimild tii að setja reglugerðh’ eða önnur almenn stjórnvaldsfyrirmæli, dugi til að heim- ila þeim að festa í slíkar reglur tak- mai’kanir eða skerðingar á frjálsræði. Til þess þurfi jafnframt að vera ljóst að sett lög heimili sjálf hina efnislegu takmörkun. Mannfæð og tímaskortur í ráðuneytum Hér á landi eru árlega lögfestir tug- ir tilskipana EB, sem hlotið hafa sam- þykki í sameiginlegu EES-nefndinni. „Við þessar breytingar á landsrétti er að sjálfsögðu nauðsynlegt að gætt sé þeirra meginreglna um þörf settra laga og heimildh’ stjórnvalda til setn- ingar almennra stjórnvaldsfyrirmæla, sem fyiT var getið,“ segir nefndin. I skýi’slu hennar kemur fram að nefndin hafi óskað efth’ upplýsingum frá öllum fagi’áðuneytum um máls- meðferð þehTa þegar þau meti til hvaða ráðstafana sé gripið vegna ákvarðana sameiginlegu EES-nefnd- arinnar, einkum varðandi það hvort þörf sé talin á að breyta settum lög- um. Einnig var óskað eftir upplýsing- um um hvort og þá hvernig reglur þær, sem felast í þessum ákvörðunum, eru teknar upp í landsrétt í þeim til- vikum að ekki er talin þörf á breyting- um á settum lögum. Nefndin segir að í svörum nokkurra ráðuneyta hafi komið fram að mann- fæð og tímaskortur hái starfi þeiiTa á þessu sviði og valdi því að ekki sé unnt að veita málum þá skoðun sem verð- ugt væri. Hvað það varði hvort breyta þurfi lögum eða ekki vegna ákvarðana EES-nefndarinnar eður ei, segir nefndin: „Virðist mega ráða af svörunum að afstaða um þetta sé að minnsta kosti stundum mótuð í tímaþröng og jafn- vel án þess að sérstök lögfræðileg at- hugun fari fyrst fram. Þetta þarf þó ekki endilega að ieiða til þess að ákvarðanir hafi farið úrskeiðis í þessu efni.“ fþyngjandi ákvæði lögfest án breytingar á settum lögum Nefndin tekur í skýi’slu sinni sex dæmi, sem hún telur sýna atriði sem fai’ið hafi úrskeiðis við_ lögleiðingu reglna EES hér á iandi. í sumum til- vikum telur nefndin að reglurnar séu íþyngjandi fyrir íslenzka borgara, en hafi engu að síður verið lögfestar með reglugerð ráðherra eða auglýsingum í stjórnartíðindum, án efnislegrar heim- ildar í lögum. Jafnframt eru nefndh’ annmarkar á borð við þann að ekki sé grein fyrir því gerð hvernig laga beri tilskipanir EB að íslenzkum aðstæð- um. í skýrslu nefndarinnar segir að að- ildarríki EES hafi oftast nær val um form og aðferð við að taka ákveðna gerð ESB upp í landsrétt. I íslenzkum rétti gildi sú hefð, að settar lagareglur skuli vera skýrar og með ákveðnu efni, þannig að þær henti til að mæla fyrh’ um réttarstöðu þeirra aðila, sem reglunni sé ætlað að ná til. „Margar tilskipanir EB hafa inni að halda texta með efni sem engan veginn getur tal- izt henta í settar lagareglur sam- kvæmt þessari íslenzku hefð. Til dæm- is fer oft fyrir tilskipun inngangur þar sem lýst er almennum markmiðum hennar og kveðið á um viðfangsefni sem samningsríki vilji takast á hend- ur. Oft er orðalag tilskipana með þeim hætti að samningsríki skuli tryggja eitt og annað með löggjöf sinni. Stund- um eru gefnir valkostir um, hvernig haga megi reglum á ákveðnu sviði. Þá koma fyrir tilvik sem gera ráð fyrir að aðildaiTÍki geti sett reglur sem gangi lengra en viðkomandi reglugerð segir til um og ennfremur að ríki geti ákveðið undanþágur frá reglum til- skipunar í lögum sínum. Loks er þar oft að finna ákvæði sem ráðgera að að- ildamkin skuli gera sérstakar ráðstaf- anir til að framfylgja ákvæðum tilskip- unai’ fyi’h’ tilsettan tíma og tilkynna þær síðan til framkvæmdastjórnarinn- ar,“ segir nefndin. Hún bætir síðan við: „Við könnun sína hefur nefndin rekizt á ýmis dæmi um auglýsingar og tilkynningar, þar sem því er lýst, að tilskipanir með þess háttar efni sem að ofan greinir hafi í heild verið teknar í ís- lenzkan rétt, án þess að unnar séu úr þeim réttar- reglur sem geta talizt full- nægjandi sem slíkar miðað við íslenzkar hefðir um settan rétt eða jafnvel þær kröfur sem tilskipun sjálf gerir til setningar slíki’a reglna." „Kaþólskari en páfínn" Nefndin segir jafnvel dæmi um að meiri takmarkanh’ á athafnafrelsi hafi verið lögleiddar hér á landi en gildi á Evrópska efnahagssvæðinu, þótt sjálf- sagt hafi ekki verið stefnt að slíkri nið- urstöðu. Þannig hafi verið lögleidd skylda til að bjóða út opinbera þjón- ustusamninga án þess að lögleiða neinar takmarkanir á skyldunni, væri efni samninganna með tilteknum hætti. „Með því að ákveða í settum lögum á Islandi almenna útboðsskyldu á Evrópska efnahagssvæðinu fyi’ir op- inbera þjónustusamninga sem fai-a yf- ir tiltekin stærðarmöi’k, án þess að undanskilja skyldunni þá samninga sem undan eru skildh’ í þeirri tilskipun sem um þetta fjallar, höfum við orðið „kaþólskari en páfinn“ án þess að séð verði að slíkt hafi vakað fyrir nokkrum manni,“ segir nefndin. Birting EES-reglna ekki í samræmi við réttarreglur Nefnd forsætisráðherra segist sam- þykk því sjónarmiði umboðsmanns Al- þingis, sem kom fram í byrjun ársins, að birting nýrra EES-gerða í EES- viðbætinum við Stjórnartíðindi EB, sem gefinn er út á íslenzku af útgáfu- miðstöð EFTA í Brussel, sé ekki full- nægjandi. Nefndin segir engan vafa leika á að íþyngjandi ákvæðum EES- gerða verði ekki' beitt gagnvart al- menningi þegar þær hafi verið teknar upp í íslenzkan rétt með því einu að vísa til nafns og númers þeirra í lögum eða reglugerð, en ákvæði gerðarinnar að öðru leyti ekki birt í A- eða B-deild stjórnartíðinda. Nefndin telur einsýnt að þessi háttur við birtinguna standist ekki íslenzkar réttarreglur og því hafi ákvæði gerða, sem svona hafa verið birtar, ekki verið leidd réttilega í landsrétt. Þá telur nefndin að skylt sé að birta tilkynningar um gildistöku breytinga á EES-samningnum í C- deild Stjórnartíðinda eða a.m.k. í EES-viðbætinum við Stjórnartíðindi EB. Tillögur til úrbóta Tillögur nefndarinnai’ til úrbóta eru eftirfarandi: „1. Lagt verði fyrir hvert og eitt ráðuneyti að fai’a yfir allar reglur hins evrópska efnahagssvæðis sem lög- leiddar hafa verið á málefnasviði þess allt frá því samningurinn gekk í gildi í því skyni að athuga hvort fylgt hafi verið þeim meginreglum íslenskrar stjórnskipunar um setningarhætti og birtingu sem grein hefur verið gerð fyi’ir í skýrslu þessari. Sett verði ákveðin tímamörk fyrir úrbótum á því sem talið verður að aflaga hafi farið. 2. Ráðuneyti gæti þess framvegis að fylgt verði of- angreindum reglum við It meðferð á viðbótum og breytingum á samningnum um hið evrópska efnahagssvæði. I því efni verði sérstaklega að því hugað, hvern- ig taka megi EB-gerðir upp í íslensk- an rétt, þannig að texti þeirra verði markvissari og skýrari en nú er. 3. Ráðuneytunum verði tímabundið eða varanlega éftir atvikum séð fyrir mannafla og fjármunum til að annast þetta verkefni. 4. Skipaður verði hópur t.d. þriggja lögfræðinga til að vera ráðuneytunum til ráðgjafar og aðstoðar við þetta verkefni meðan verið er að koma í lag því sem aflaga hefm’ farið í fortíðinni, : meðal annars í því skyni að samræmis sé gætt. Að því er framtíðina varðai’ verði hugað að því, hvort koma beri upp stjórnardeild til dæmis í forsætis- ráðuneyti, sem hafi það verkefni að annast um samræmingu á starfi ráðu- neytanna á þessu sviði og eftirlit með því að meginreglum sé fylgt.“ v „Ráðuneytin oft í tímaþröng“ „Komið verði upp samræm- ingardeild“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.