Morgunblaðið - 07.10.1998, Síða 49

Morgunblaðið - 07.10.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 49 FRÉTTIR Morgunblaðið/Arnar Laxdal Menntamálaráðherra á ráðstefnu UNESCO Fengu hrefnu í netið Stefnt að auknu sjálfstæði og sjálf- stjórn háskóla SKIPVERJAR á Saxhamri SH 50 fengu hrefnu í netið í síðustu viku þegar þeir voru að veiða þorsk á miðjum Breiðafirði. Hrefnan var dauð þegar hún kom upp og drógu þeir hana við síðu bátsins til hafnar. Hrefnan reyndist vega fimm og hálft tonn og vera átta metra löng. Greiðlega gekk að selja kjötið af henni á markað og kostaði kílóið allt frá 180 krónum til 300 króna eftir því hvaðan það var af skepn- unni. Samstarf gegn umferðarslysum Fundaherferð meðal framhaldsskóla- nema um umferðarslysavarnir VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands, Rauði kross Islands og Félag framhaldsskólanema munu í vetur gangast í'yrir fundaherferð meðal framhaldsskólanema um umferðar- slysavarnir og skyndihjálp og hafa fulltrúar félaganna undirritað samning þ.a.l, að því er segir í fréttatilkynningu. Vátryggingafé- lag Islands hefur unnið að foi'vörn- um með þessum hætti á undan- förnum árum en Rauði kross Is- lands tekur nú í fyrsta sinn þátt í átakinu og annast fræðslu um skyndihjálp. Á síðustu árum hefur VÍS lagt mikla áherslu á hvers konar for- varnastarf. Þungamiðjan í því starfi hafa verið umferðarfundir með ungu fólki undir kjörorðunum „Tökum slysin úr umferð“. Haldnir hafa verið fjölmargir fundir í flest- um framhaldsskólum landsins þar sem mætt hafa yfir 8.000 ung- menni á sl. fjórum árum. Umferð- arfundir VIS samanstanda af efni um afleiðingar umferðarslysa fyrir ungt fólk og er að mestu leyti stuðst við_ efni af myndböndum og glærum. I því sambandi hefur VIS látið framleiða eigið efni sem hvergi hefur verið sýnt nema á um- ferðarfundum VÍS og jafnframt sýnt erlent myndefni; efni þar sem fjallað er um þessi viðkvæmu mál á sannferðugan, hreinskilinn og hisp- urslausan hátt, segir í tilkynning- unni. Á þeim tíma sem liðinn er frá því umferðarfundirnir hófust, hefur VIS átt árangursríkt samstarf við ýmsa aðila og má þar nefna lög- regluna og SEM-samtökin en full- trúar frá þeim hafa mætt sem gest- ir og rætt um persónulega reynslu sína af skelfilegum afleiðingum umferðarslysanna, að því er kemur fram í fréttatilkynningunni. Fulltrúar frá Rauða krossi ís- lands munu mæta á fundina í vetui’ og vekja athygli á mikilvægi skyndi- hjálpar og sýna nýja mynd um fyrstu hjálp á slysstað. Rauði kross Islands og deildir hans um land allt hafa um áratugaskeið staðið að öfl- ugri fræðslu um skyndihjálp og slysavarnir með námskeiðum og út- gáfu kennsluefnis. Hver umferðarfundur stendur í 50-60 mínútur og fá allir þátttak- endur blað, þar sem fjallað er um af- leiðingar umferðarslysa fyrir ungt fólk, penna, endurskinsmerkisspjald og vandaðan bækling_ um skyndi- hjálp. Auk þess mun VIS styrkja út- gáfustarfsemi skólafélaganna skv. ákveðnum reglum auk þess sem þeir nemendur skólanna, sem mæta á fundina, fá umtalsverðan afslátt af ábyrgðartryggingu eigin bfls. BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra flutti í gær, þriðjudag, ræðu á ráðstefnu UNESCO um æðri menntun sem haldin er í París. Rúmlega eitt hundrað menntamálaráðherrar sækja ráð- stefnuna auk fulltrúa háskóla, nem- enda og kennara. I hópi rektora á ráðstefnunni eru Páll Skúlason frá Háskóla íslands og Þorsteinn Gunnarsson frá Háskólanum á Akureyri. Alls sækja á þriðja þús- und manns ráðstefnuna. Menntamálaráðherra gerði í ræðu sinni nokkra grein fyrir nýj- um lögum um háskóla hér á landi, segir í fréttatilkynningu. Hann lagði áherslu á nauðsyn þess að með réttum hætti yrði brugðist við þeirri þróun að sífellt fleiri sækjast eftú háskólamenntun. Stjórnmálamenn yrðu að finna bestu leiðirnar til að gera hverri háskólastofnun kleift að vaxa og þróast á eigin forsendum. Með nýjum háskólalögum stefndu íslensk stjórnvöld að því að auka Fyrirlestur um lungna- krabbamein sjálfstæði og sjálfstjórn háskóla. Hann minnti á, að öll mannaforráð í háskólum yrðu nú flutt í hendur rektors. Brýnt væri að gera strang- ar kröfur til háskólastarfsmanna, þvi að þróun skólanna væri undir þeim komin. Ráðherrann lagði áherslu á, að í framhaldsskólum yrðu nemendur búnir sem best undir sjálfstætt há- skólanám. Hver einstaklingur yrði að fá góða grunnmenntun, sem auð- veldaði honum að takast á við sí- breytilegar kröfur og leggja stund á símenntun að lokinni hefðbundinni skólagöngu. Ný upplýsingatækni opnaði nýjar víddir í menntamálum. Hún auð- veldaði öllum að tileinka sér æðri menntun, hvar sem þeir væru og á hvaða aldri sem þeir væru. Ríki, sem stæðu ekki vel að æðri mennt- un, drægjust aftur úr í alþjóðlegri samkeppni. Hátt þekkingarstig þjóða væri forsenda velgengni þeiri-a. N orðurlandamót framhaldsskólasveita MR vann 3 skápar '«90x80 S Mi»r samse({ Verö inlöeíit viö snmsoit húsgöon VoikIik) ski iísloliihiist'jiRn l\'i ii lyrii Lvki ()!>, hi'imili l'G Ski'ifsiofuhiinaöur ehl FÉLAGSFUNDUR verður haldinn hjá Samtökum lungnasjúklinga fimmtudaginn 8. október í Safnaðar- heimili Hallgrímskirkju í Reykjavík og þefst fundurinn kl. 20. Á fundinum kemur Óskai’ Einars- son, sérfræðingur í lungnasjúkdóm- um og gjörgæslulækningum. Óskai’ vinnur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, hjá Landhelgisgæslu íslands og einnig á Reykjalundi, en einmitt það- an kannast margir lungnasjúklingar vel við hann. Um þessar mundir er Evi’ópuvika og er hún að þessu sinni tileinkuð umfjöllun um krabbamein í körlum. Óskar ætlar í fyrirlestri sínum nú að fjalla um lungnakrabbamein sem ekki er vandamál karlmannanna einna heldur einnig kvenna. Óskar mun ræða um þennan sjúkdóm, áhrif hans á aðstandendur og umhvei’fi hinna sjúku. Einnig mun hann koma inn á orsakir og ýmsa meðferðar- möguleika. Félagsfundurinn er öllum opinn, hvort sem þeir eru í samtökunum eða ekki. öruggan sigur N ORÐURL ANDAMÓT fram- haldsskólasveita í skák var haldið um helgina í félags- heimili Skákfélags Hafnar- fjarðar. Fulltrúi íslands að þessu sinni var Menntaskól- inn í Reykjavík sem sigraði í íslandsmóti framhaldsskóla- sveita sl. vor. Menntaskólinn í Reykjavík vann öruggan sig- ur, hlaut 9'Æ vinning í 12 skák- um. Danska sveitin varð í 2. sæti með 7V6 vinning. Eftirtaldir skipuðu sveit MR: 1. Bragi Þorfinnsson 2/3v. 2. Bergsteinn Einarsson U/ý3v. 3. Matthías Kjeld 3/3v. 4. Björn Þorfinnsson 3/3v. Liðsstjóri sveitarinnar er Bragi Halldórsson. Sjónarhóll Hafnarfjörður Sjónarhóll Glæsibær Hlýlegar og ódýrar gleraugnaverslanir Þú kaupir ein gleraugu og færð önnur með GLERAUGNAVERSLUN j Hafnarfjörður S. 565-5970 Glæsibær S. 588-5970 Tilboð á við gleraugu sem kosta 19.000,- kr. og yfir. Gildir ekki með öðrum tilboðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.