Morgunblaðið - 29.11.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.11.1998, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ , Morgunblaðið/Árni Sæberg GUÐRUN Vigfúsdóttir við vefstólinn sem fylgt hefur henni í meira en hálfa öld og var útskriftargjöf frá föður hennar. Draumar hafa orðið mér til góðs Guðrún J. Vigfúsdóttir hefur lagt fram stóran skerf til íslenskrar veflistar 1 meira en hálfa öld. Hún lætur ekki þar við sitja heldur er að gefa út bók, Við vefstólinn í hálfa öld. „Mér var ætlað það hlutverk og ég hlýddi kallinu,“ sagði þessi jákvæða og bjartsýna kona og trúði Hildi Friðriksdótt- ur ennfremur fyrir því að hún væri ber- dreymin og fínndi hluti á sér. Það hefði alltaf verið sér til góðs að fara eftir því, eins og berlega kemur fram í bókinni. AF ÞVÍ að þú þekkir kannski ekki mikið til íbúða aldraðra, þá ætla ég að sýna þér heimili mitt á meðan ég hita kleinurnar,“ segir Guðrún J. Vigfúsdóttir er blaðamaður heimsótti hana í Kópavoginn einn morguninn þeg- ar enn var ekki farið að birta af degi. Heimili Guðrúnar ber það með sér að henni er margt til lista lagt, því mörg af listaverkum hennar prýða heimilið. Þarna eru ofin verk af ýmsu tagi; veggmyndir, ábreiður, borðreflar, púðar, en einnig útskorin hilla, blýantsteikn- ingar og vatnslitamyndir. A vegg í ganginum eru fjölskyldumyndir, meðal annars brúðarmynd af einkadótturinni, Eyrúnu ísfold, að sjálfsögðu í brúðarkjól ofnum af Guðrúnu. Þarna er einnig mynd af látnum eiginmanni Guðrúnar, Gísla S. Kristjánssyni. Listhneigð fjölskylda Guðrún er fædd á Grund í Þor- valdsdal á Árskógsströnd, dóttir Vigfúsar Kristjánssonar og Elísa- betar Jóhannsdóttur. Systkinin urðu níu, sex bræður og þrjár stúlkur, en tveir yngstu bræðurnir, sem fæddust á Litla-Árskógi létust ungir. Mikið listfengi er í fjölskyldunni. Faðirinn var húsasmiður og mikill hagleiksmaður, sem smíðaði báta og einstaka hús. Bræður Guðrún- ar, þeir Kristján, Hannes og Jón, fóru snemma að skera út og síðar búa til lágmyndir og höggmyndir úr gifsi, einkum Kristján. Þegar Kristján og Hannes voru komnir á fullorðinsár hönnuðu þeir og skáru út skímarfonta, sem þeir urðu landsfrægir fyrir. „Ég er svo jákvæð“ Guðrún mundar sig til við að kveikja á kertum þegar við komum aftur inn í stofuna og segir um leið, að hún kvíði ekki vetrinum, öfugt við marga aðra. „Af hverju ekki? Ég held að það sé vegna þess að ég er svo jákvæð. Mér finnst allar árs- tíðir hafa sinn sjarma og þegar vet- urinn kemur og myrkrið, þá er svo yndislegt að geta kveikt á kertum," segir hún og hlær eins og svo oft í viðtalinu, enda kemur í ljós að hún hefur ákaflega gaman af lífinu og sér lítið af neikvæðum hliðum þess. Guðrún, sem er nýlega orðin 77 ára, ber aldurinn ótrúlega vel, er kvik í hreyfingum og heilsan hefur alla tíð verið góð, enda eru aðeins tvö ár síðan hún hætti að leiðbeina öldruðum Kópavogsbúum við vefn- að. Ástæðan fyrir því var ekki sú að hún væri búin að fá nóg, heldur var kominn tími til að sinna öðrum verkefnum, það er að segja að gefa út bók. Guðrún er spurð hvað hún eigi við þegar hún segir í formála bók- arinnar: „Það kom mér sannarlega á óvart að ég ætti að gefa út bók - satt að segja fannst mér nóg komið með afskiptasemina, en mér var ekki stætt á öðru en hlýða kallinu." „Já, þú spyrð um það,“ segir Guðrún og verður í senn dularfull og sposk á svip. „Já, elskan mín, ég er berdreymin og finn hluti á mér. Þetta á fólk erfitt með að skilja sem verður ekki fyrir þessu," segir hún svo eins og pínulítið afsakandi með sínum norðlenska framburði. „Þegar ég var eitt sinn að koma gangandi frá því að leiðbeina öldruðum í prestshúsinu hér fyrir ofan lýstm- niður í mig, að nú fari ævi mín hreinlega senn að styttast. Ég er nú orðin gömul svo það er ekki nema eðlilegt. En nú átti ég að gefa út bók,“ segir hún og hlær sínum smitandi hlátri og breiðir út hendurnar, því henni er tamt að nota hendurnar til að leggja áherslu á orð sín. Leiðbeina þjóðinni Þetta var árið 1996 og Guðrún segist hafa skynjað, að hún væri komin svo langt í þessu starfi, að nú væri kominn tími til að taka nýtt starf að sér og hreinlega yið leiðbeina þjóðinni með vefnað. „Áð- ur fyrr var ofið á nærri öllum heim- Uum, en nú átti ég að segja frá því sem ég hef unnið við í meira en hálfa öld. Með þessari bók er ég að reyna að lyfta handvefnaði á dálítið hærra stig í landinu en hann er núna. Ég held að sú sé meiningin með bókinni." Henni fannst þetta í fyrstu af- skaplega fjarlægt og ekkert starf fyrir hana. „Svo líður tíminn og þetta var yfir mér. Ég hugsaði með mér að ég þyrfti að minnsta kosti að ljúka við námskeiðið hjá eldri borgurum, því ég sá að ég gat ekki gert hvoru tveggja. Einn daginn, þegar ég sit í stól eftir að hafa verið að taka til, rýk ég upp úr stólnum og hugsa með mér: Æ, það er þessi bók. Geng síðan um gólf eins og ég geri stundum þegar mikið liggur við og velti fyrir mér hvernig maður byrji á því að skrifa bók. Ég hafði ekki hugmynd um það. Mér fannst þó að ég yrði að byrja á bókinni, sérstaklega ef ég ætti nú bara fá- einar vikur eða mánuði á lífi,“ seg- ir hún og hlær mikið. Séra Jakob birtist óvænt Þar sem hún var í þessum vand- ræðum sínum hringir dyrabjallan og fyrir utan stendur séra Jakob Á. Hjálmarsson, gamall vinur frá ísa- firði. Hann ætlaði að hitta mann í Kópavogi en sá var ekki heima, svo honum datt í hug að líta til Guði-ún- ar. Þegar þau voru búin að spjalla saman segist hún hafa sagt við séra Jakob: „Ja, það eru mikil vandræði hjá mér. Ég á að gefa út bók og ég veit ekkert hvemig ég á að fara að því. Getur þú ráðlagt mér?“ Jú, honum datt í hug Elísabet Þorgeirsdóttir blaðamaður og rit- höfundur. „Hún er ísfirðingur og bjó í sama húsi og ég þegar hún var lítil. Þetta fannst mér góð hug- mynd og Elísabet sló til. Ég vildi sjálf skrifa kaflana og hafa þá eftir mínu höfði, en Elísabet ritstýrði síðan bókinni. Margrét Rósa Sig- urðardóttir, sem er einnig ættuð frá ísafirði, hefur borið hita og þunga af hönnun og umbroti bók- arinnar með miklum ágætum. Hún reyndist mér afskaplega vel við valið á myndunum og að koma þeim á réttu staðina. Ég var þó nokkuð marga mánuði að skrif'a bókina. Það er svo merki- legt að þegar ég fór að rifja upp æskuárin blöstu þau við mér eins og á filmu. Meira að segja mundi ég hvað fólk sagði. Ég varð að skrifa af eldmóði til að koma mynd- inni frá mér áður en næsta mynd hófst. - Það var eins og ekkert mál væri að skrifa þessa bók,“ segir hún. Spyr síðan: „Er svona farið að þessu?“ Til að gefa út bókina hlaut hún styrk frá Menningarsjóði, sem hún segir að hafi gert gæfumuninn. Hún varð jafnframt að taka jafn- stórt lán og nam styrkupphæðinni, en auk þess hlaut hún smæiri styrki frá Framleiðnisjóði landbún- aðarins, Kópavogsbæ, Visa-ísland, Kristnisjóði og Héraðssjóði ísa- fjarðarprófastsdæmis. Állt eru þetta sjóðir sem tengjast ævistai-fi Guðrúnar með einhverjum hætti. Hún segir að strax og fréttist að hún ætlaði að gefa út bók hafí pantanir streymt að. „Það er frá- bært að gefa út bók á ári aldraðra og halda þannig uppi heiðri aldr- aðra í Kópavogi,“ segir hún. Draumurinn breytti stefnunni Upphaflega fór hún í vefnaðar- nám í Húsmæðraskólanum á Hall- ormsstað vegna draums sem hana dreymdi. „Draumurinn sagði mér að ég ætti að fara í vefnað. Hann var svo skýr að ég hugsaði með mér, að þetta væri einn þeirra, sem ég yrði að fara eftir. Daginn eftir ákvað ég að fara í vefnaðarkenn- aradeildina. Ég ætlaði alls ekkert að fara í vefnað heldur vildi ég fara til Reykjavíkur og sauma fína kjóla,“ segir hún og dregur seim- inn í síðasta orðinu. „Þannig að ég játaðist ekki undir þetta fyrr en á síðustu stundu og hélt reyndar að umsóknarfresturinn væri útrann- inn.“ Hún segist alltaf hafa verið hrif- in af fallegum fötum og litum. Hún safnaði því ekki servíettum eins og margar aðrar stúlkur heldur höfð- uðu spottar í öllum litum mjög til hennar og þá geymdi hún í litlum kistli. „Það er skrýtið hvað áhuginn fyrir litum, garni og efni kom fljótt til. Þessu gat ég endalaust raðað saman. Það er eins og forlögin hafi komið þarna við sögu.“ Hún segii' að allt sem henni sé sagt að gera eða hún finnur á sér sé henni til góðs. „Ef ég hefði farið öf- ugt að og gert það sem ég ætlaði, þá er bara ekkert víst að ég væri ánægð. En það hefur verið mín lífs- hamingja að læra vefnað, því þama hef ég haft svo gríðarlega mörg tækifæri til þess að fá aðra til að tjá sig, til dæmis nemendur mína. Þetta viðhorf mitt hefur fengið þá til þess að fá miklu meira sjálfs- traust og það finnst mér mikilvægt. Mér fannst sérstaklega gaman að leiðbeina öldraðum. Þeim fannst vefnaðurinn svo spennandi og hann örvaði hjá þeim sjálfstraustið. Og heilsan,“ segir hún og bandar hendinni út í loftið, „hún rýkur upp ef fólk er ánægt við það sem það er að gera. Heilsan er eitt af því sem gefur lífinu fullt gildi. Ef fólk er hamingjusamt þá rennur þessi hamingja til líkamans og fólk heil- ast,“ segir hún þar sem hún situr grafkyn- í stólnum með báðar hendurnar teygðar upp í loftið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.