Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 7

Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 B 7 FJÖLSKYLDUMYND upp úr 1950. Gísli Kristjánsson, Eyrún ísfold og Guðrún. FÉLAGAR úr Módelsamtökununi sýndu ýmsa kjdla í Laugardalshöllinni á sýningunni „Islenskt föt 1976“, sem haldin var í LaugardalshöIIinni. Myndin er tekin úr bókinni, eins og ailar hinar myndirnir hér á síðunni. GUÐRÚN hefur ofið fjölda hökla, meðal annars fyr- ir Svalbarðskirkju. „Þá datt mér í hug að taka Fað- ir vorið utan af brúna höklinum og setja utan á grænan hökul. Síðan óf ég önnur tákn bæði að framan og aftan,“ segir hún. GUÐRÚN leiðbeindi til skamms tíma öldruðum við vefnað. Hér mynd- vefur Þuríður Þorsteinsdóttir Snæfellsjökul. Hún er þess fullviss að engin handavinna hafí eins skapandi áhrif á sálina og vefnaður. Oft seg- ist henni hafa dottið í hug að kynna ætti afbrotaunglingum listsköpun í hvers konar mynd og láta þá vinna við hana með hæfum leiðbeinend- um. „Það þarf að beisla hugann og ímyndunaraflið og það er einmitt það sem listsköpun gerir. Hún róar hugann og ýtir því sem inni fyrir býr út í verkefni. Þannig losnar andlegt álag og spenna.“ Tók ísafjörð franiyfir Þegar Guðrún hafði lokið námi var hún svo gott sem búin að ráða sig hjá Húsmæðraskólanum á Akureyri. Einungis vantaði um- sögn frá menntamálai-áðuneytinu um þær tvær sem sóttu um. Guð- rún var með próf en hin stúlkan ekki, svo Guðrún var viss um að fá stöðuna. „Eg var í heyskap með pabba þegar forstöðukonan í Húsmæðra- skólanum á Isafirði kom í slægjuna til mín og vildi fá mig vestur. Fyrst fannst mér það ómögulegt, en þeg- ar ég fór að íhuga það nánar fann ég út að þetta var hið eina rétta, því þá gat hinn umsækjandinn komist að á Akureyri. Hún hafði þar íbúð og var ekki ein síns liðs. Eg var laus og liðug og því þá ekki að leyfa henni að komast að á Akureyri? Þannig er ég, að ég met alltaf aðstæður. Eg skynjaði að ég átti að fara til Isafjarðar og gerði það. Eg var þar í 43 ár við hús- mæðraskólann." - Þama kynntist þú manninum þínum? „Já, eða hann mér. Hann var 14 árum eldri en ég og var pipar- sveinn, sem aldrei ætlaði að giftast. Það er ekki spuming að ég átti að hitta hann þar. Við eignuðumst síð- ar yndislega dóttur, Eyrúnu Isfold. Gísli mátti ráða nafninu af því þetta var stúlka. Hann sagði sem svo, að ég væri úr Eyjafirði og hann frá Isafirði og því væri þetta nafn okkar beggja. Það var nú svolítið merkilegt við það að ég fór í rælni til spákonu á Akureyri áður en ég fór vestur. Hún sagði að ég yrði í fjarlægð, umlukin háum fjöllum og þarna átti ég að festa ráð mitt. Þetta reyndist alveg rétt.“ Við fáum bendingar - Trúir þú því að lífíð sé nokkwn veginn ákveðið fyiir okk- w? „Ég held að við fáum ýmsar bendingar í tilveru okkar en við ráðum sjálf hvað við gerum. Sumir taka ekki eftir þessum bendingum í lífi sínu eða fara ekki eftir ábend- ingunum. Ef maður getur glöggvað sig nógu vel og reynt að fara eftir þessum ábendingum virðist það alltaf vera til góðs, eins og hjá mér. Einnig er mai’gt hulið okkur manna börnum. Við sjáum það ekki en fáum tilfinningu fyrir því. Ég finn til dæmis ef einhver hugsar mjög sterkt til mín,“ segir hún. Þannig fann Guðrún eitt sinn að séra Gunnar Ki-istjánsson, formað- ur kirkjulistanefndar, var mikið að hugsa til hennar, svo hún hafði samband við hann og spurði hvort það væri rétt, sem það reyndist vera. Astæðan var sú að hann hafði séð brúnan hökul, sem hún hafði gert fyrir kirkjulistarsýningu á Kjai-valsstöðum. Hökullinn var sérstakur að því leyti, að Faðir vor- ið var spjaldofið í kringum hökul- inn, upprisan að aftan og þrír nagl- ar að framan. Séra Gunnar kvaðst hafa leitað í fjölda kirkjulistabóka en hvergi fundið að notaður væri brúnn hökull. Nú langaði hann að vita hvort hún gæti ofið einn græn- an með Faðir vorinu á. „Ég hafði ekki tíma til að vefa annan hökul á þessum tíma, svo að hann keypti gi-ænan hökul með helgisetningum, sem hafði einnig verið á sýning- unni,“ segir Guðrún. Hún segist alltaf hafa undrast hvaðan hún fékk hugmyndina að Faðir vorinu í bryddingu á hökli. „Þetta kom bara til mín. Ég hélt að ég hefði heyrt um slíka bi’yddingu á hökli þegar ég var að skoða uÞegar ég var eitt sinn að koma gang- andi frá því að ieið- beina öldruðum í prestshúsinu hér fyr- ir ofan lýstur niður í mig, að nú fari ævi mín hreinlega senn að styttast. Ég er nú orðin gömul svo það er ekki nema eðli- legt. En nú átti ég að gefa út bók.“ Skarðskirkju, en það reyndist ekki vera rétt.“ A eftir að læra mikið Guðnín hefur alltaf verið fram- sýn og gerði sér snemma grein fyr- ir að menntun væri mikilvæg. Hún sótti til dæmis um styrk og fór til Svíþjóðar í skamman tíma í einu af fyrstu sumarfríum sínum. „Þótt ég hafi átt góða möguleika á að trú- lofast og giftast og fá sætan strák vildi ég læra. Það er nógur tími, mér dettur ekki í hug að setjast í helgan stein, ég á eftir að læra svo mikið,“ segist hún hafa hugsað með sér. Þegar hún hafði kennt í 13 ár sótti hún um orlof til endurmennt- unar og fékk það námsárið 1958- 1959. Aður hafði hún skrifað sendi- herrum allra Norðurlandanna og beðið um upplýsingar um vefnað- arkennaraskóla, námskeið og heimilisiðnaðarstofnanir. „Ég hafði engan skóla hérlendis til að endur- mennta mig og víkka sjóndeildar- hringinn hvað myndvefnað snerti, né þær greinar sem honum tengd- ust eins og teikningu fyrir vefnað og mismunandi veftækni, sem þró- ast í ýmsar áttir meðal stórþjóða. Mér var nauðsynlegt að leita mér frekari þekkingar og nýjunga." Gísli fór með Guðrúnu í náms- ferð hennar, en Eyrún Isfold varð eftir hjá systur Guðrúnar og mági. Gísli var lærður íþróttakennari og kynnti sér sundþjálfun og leikfimi- aðstöðu í skólum. Guðrún lét ekki eitt Norðurlandanna duga heldur sótti nám í Noregi, Svíþjóð, Finn- landi og Danmörku. Hún bætti við þekkingu sína í vefnaði, handvefn- aði og hvers konar listvefnaði, kynnti sér verkstæði, lítil sem stór, lærði knipl, litafræði með mismun- andi útfærslu á teikningum í vef- inn, svo eitthvað sé nefnt. Orlofsár- ið var henni því mikilvægt. Að sjá um heimili er menntun Guðrún segir að eftir því sem ár- in liðu hafi sér verið nauðsynlegt að sinna öðru starfi en kennslunni til þess að staðna ekki. Árið 1961 tók hún því herbergi á leigu á Isa- firði til þess að koma hugmyndum sínum frá sér, eins og hún segir, og stofnaði síðar Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur hf. Fljótlega var hún komin með nokkrar konur í vinnu. „Fólkið óf hugmyndir mínar og ég kom miklu í verk, meiru heldur en ef ég hefði verið ein. Ég sá líka geysilega mikla þörf hjá konum, sem voru búnar að koma börnunum upp og voru einar heima, að komast frá heimilinu, en þær treystu sér ekki í rækjuvinnslu. Þetta vom frábærir starfskraftar,“ segir Guðrún. „Mér dettur bara í hug núna þegar fimmtugar konur fá ekki vinnu,“ heldur hún áfram með áherslu á hvert orð. „Þetta er svo öfugt, því þessar konur hafa lífs- reynslu. Það að sjá um heimili er menntun og vel er hægt að fá leikni í heimilisstörfum eins og annarri vinnu. Þegar þetta fólk kemur út á vinnumarkað færist leikni þess yfir á vinnuna,“ segir hún. Nú hallar hún sér aftur í stóln- um og segir rólega: „Mér þykir vænt um fólk“ og endurtekur setninguna með áhersluna á „vænt um“ og norðlenski hreimurinn verður sérlega áberandi. „Þegar konur komu til mín og þurftu á vinnu að halda tók ég við þeim. Eitt sinn bað kona mig að taka systur sína í vinnu, því hún sat stöðugt yfir veikum manni sínum og þurfti á því að halda að komast í burtu hluta úr degi. Konan var þá um sextugt og reyndist afskap- lega vel. Meira að segja var hjá okkur kona þar til hún var orðin áttræð. Hún var góður starfs- kraftur.“ Seldi fötin utan af sér Spurð um framtíð vefnaðar á ís- landi kveðst Guðrún telja að hann eigi mikla framtíð fyrir sér. „Ég á að gefa út bók til þess að hífa upp þessa þjóðaríþrótt sem fólk lifði á öldum saman. Það eru örugglega margir sem vefa ennþá, en það fer bara svo lítið fyrir þeim. Að mínu áliti er fólk eitthvað að gutla í þessu og það vantar herslumuninn á að fara almennilega af stað. Til dæmis voru útlendingar veikir að fá handofinn fatnað, þegar ég framleiddi hann. Ég varð oftar en einu sinni að selja utan af mér flík- urnar. Það kórónaði verslun okkar þeg- ar skemmtiferðaskip komu til Isa- fjarðar. Þá seldum við mjög mikið. Ég var alltaf í einhverju ofnu þeg- ar hóparnir komu. Eitt sinn kom þýsk kona, sem sá ekkert annað en kjólinn sem ég var í. Hún vildi láta sauma nákvæmlega eins kjól og fékk að máta minn. Kjóllinn fór henni svo vel að það endaði með, að hún gekk með hann út en ég varð að fara í einhverjar flíkur sem ég fann á vefstofunni. Síðar fékk ég bréf frá henni þar sem hún sagði frá því að vinkona hennar vildi fá nákvæmlega eins kjól. Oðru sinni kom finnskur hópur til okkar. Þá var ég að undirbúa mig fyrir norræna kirkjuskrúða- sýningu í Danmörku. Frammi við hékk tilbúinn kjóll sem ég hafði ofið til að vera í á sýningunni. Kona í hópnum var ákveðin í því að þennan kjól vildi hún eignast, svo ég sagði henni að ég myndi nota kjólinn tvisvar, fyrst í Dan- mörku og síðan við hátíð í Finn- landi. Ef hún vildi gæti hún keypt hann eftir það. Hún varð himinlif- andi og okkur samdist um þetta,“ segir Guðrún. Islenskir fuglar höfða til útlendinga „Þú varst að tala um hvort ofið væri í landinu,“ heldur hún áfram. „Ég veit að víða er ofið, en það væri hægt að gera svo miklu meira. Það þarf að skipuleggja starfsemina og gera hana þannig úr garði að hægt verði að selja hlutina og þá ekki síst til útlendinga. Fólk á að geta haft eitthvað upp úr vefnaðinum og fá fyrir hann gjaldeyri. Það á hreinlega að setjast niður og vefa íslenska fugla, fiska, lands- lag og ýmislegt annað. Svo á að koma þessu í verslun með öðrum munum. Ef vefnaðurinn verður söluvara nær hann að þróast. En það er annað,“ segir hún svo. „Fólki finnst hrikalega erfitt að setja upp vef, en það er bara vit- leysa. Ég segi frá því í bókinni, að vefarar eigi ekki alltaf að fara eftir gömlu formúlunni að setja upp vef. Þegar verið er að kenna byrjendum þá er það í lagi, en þegar fólk fer að vefa fyrir sjálft sig, þá getur það notað fljótlegri aðferð. Það þarf til dæmis ekki að leysa niður öll snæri. Þegar ég var með vefstofuna varð ég að flýta framleiðslunni og lagði því heilann í bleyti. Ég flýtti þannig fyrir rakningunni og uppsetningu vefs, að vefirnir runnu eins og á færibandi. Fólk veit ekki nógu mik- ið um þetta og þess vegna eru pistl- ar í bókinni um hvernig fólk getur flýtt fyrir sér. Núna er bókin komin út og ég er afslöppuð og sátt við Guð og menn,“ segir Guðrún, og andlitið ljómar af gleði þegar hún hallar sér aftur í gráa leðurstólinn og strýkur hann um stund.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.