Morgunblaðið - 29.11.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.11.1998, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ frá Langanesi vestur á Hvammstanga og út í Grímsey. Best þykir henni að halda jurtalitunamámskeiðin heima í Engidal. „Það er svo sniðugt hvað fólk úti á landi er duglegt við að fara á námskeið í öllu mögulegu," segir Kristlaug. Hingað til hafa einungis konur komið að læra jurtalitun, en auk fjölda kvenna hafa nokkrir karlar lært hjá henni taumálun. „Ætli ég hafi ekki byrjað að mála á tau fyrir 20 til 25 árum,“ segir Krist- laug. „Eg er sjálfmenntuð og hef aldrei málað á annað.“ Hún málar helst nytjahluti svo sem dúka, vöggu- sett, koddaver, tehettur, punthand- klæði, gardínur og gjafavöru, til dæm- is ilmpoka sem fylltir eru ilmreyr. Fuglar himinsins Á heiðinni ofan við Engidal skipt- ist á mólendi og votlendi þar sem margar fuglategundir verpa. Þau hjón þakka fjölskrúðugt fuglalífíð meðal annars því hve skipulega er unnið að því að halda mink og ref í skefjum í sveitarfélaginu. „Eg er mikið úti á sumrin og skrifa niður hvert einasta hreiður sem ég finn,“ segir Kristlaug. Hún hefur safnað eggjum margra fuglategunda. Enn vantar þó hrafnsegg. Kiistlaug hóf að merkja fugla 1982 og er búin að merkja 600-700 fugla það sem af er þessu ári. Á sumrin merkir hún aðallega unga og tegund- irnar eru margar. Stelkur, hrossa- gaukur, heiðlóa, spói, jaðrakan, lóu- þræll, grátittlingur, sólskríkja, mar- íuerla og steinklappa, endur, gæsir, álftir og kríur. Yfir veturinn merkir hún snjótittlinga. Auk þessara teg- unda verpa bæði himbrimi og lómur á heiðinni. Kristlaug fær alltaf kort þegar fugl sem hún hefur merkt er endurheimtur og kortin fylla nú heila möppu. „Þeir hafa fundist í Frakkiandi, bæði lóuþræll og heiðlóur sem skotn- ar voru til matar. í fyira merkti ég fjóra stelksunga í einu hreiðri. Um haustið var einn þeirra skotinn í Frakklandi, eflaust til að éta hann.“ Mikið af rjúpu verpir á heiðinni og merkir Kristlaug þær fullorðnu sem hún nær á hreiðrum. „Enginn fugl er eins duglegur við að verja ungana sína og rjúpan," segir Kristlaug. „Einu sinni gekk ég óvart inn í unga- hóp og móðirin bókstaflega stökk á bringuna á mér og læsti sig fasta.“ Kristlaug hefur merkt allt upp í 2.300 snjótittlinga á einu ári. Það var á Húsavík. Fuglarnir eru hændir að með matargjöfum og síðan veiddir í felligildrur. „Það er orðið svo miklu erfiðara að veiða þá í kaupstöðum, því fólk er farið að gefa þeim svo mikið,“ segir Kristlaug. Elías sonur hennar telur að það hafi þó fyrst og fremst verið í nágrenni heimilis þeirra sem matargjafimar jukust til muna. „Konurnar í næstu húsum héldu að mamma væri að veiða þá í matinn. Hún fór alltaf með fuglana inn í kjallara og enginn sá þegar hún sleppti þeim út um eldhúsgluggann!" Kristlaug hefur tekið að sér unga margra fugla og komið þeim á legg. „Eftir kuldaköst á vorin finn ég oft dauða eða hálfdauða unga með Engi- læk. Það deyr oft hellingur af ungum í þessum kuldaköstum," segir Krist- laug. Hún hefur alið upp andarunga, bæði rauðhöfða- og stokkönd, heiða- gæsar- og grágæsarunga og álftar- unga. Þau hjónin eru sammála um að betri bamapíur fáist ekki. Þegar krakkar komi í heimsókn fari þau sjaldnast langt frá ungunum. Guðmundur og Kristlaug em með nokkrar varpendur. Þau segja að ungar alianda verði aldrei jafn mann- elskir og ungar villtra gæsa eða álfta. Einu sinni vom þau með tvo álftar- unga sem eltu þau eins og hundar. Þegar hjónin fóra í gönguferð kjög- uðu álftirnar með en drógust fljótt aftur úr. Þá flugu þær framfyrir hjónin og kjöguðu þar til þær vom orðnar langt á eftir og þá var aftur tekið flugið og svo koll af kolli. „Við vomm með þrjár gæsir í fyrra, tvær grágæsir og eina heiða- gæs,“ segir Guðmundur. „I vor er ég hér úti við og sé að það kemur stök gæs. Ég heyrði á garginu að það var „í handverkshópnum sem ég er í má segja að sé listamaður af hverjum bæ hér í Bárðardal. Er- lendir ferðamenn vilja einmitt kaupa eitthvað ekta íslenskt og það sem við framieiðum rýkur út." Kristlaug hefur alið upp andarunga, bæði rauð- höfða- og stokkönd, heiðagæsar- og grágæsar- unga og álftarunga. Þau hjónin eru sammála um að betri barnapíur fáist ekki. Þegar krakkar komi í heimsókn fari þau sjaldnast langt frá ungunum. KRISTLAUG, Guðmundur og Elías í stofunni í Engidal. FJÖLSKYLDAN útí í frostinu. Fyrir aftan þau, til vinstri, má sjá gamla íbúi heiðagæs. Um leið og hún flaug yfir kallaði ég. Gæsin snarbremsaði í loft- inu, skellti sér hér niður á hlaðið og fékk sér brauð.“ Einu sinni gáfu þau manni sem bjó einn í Bárðardal fjóra merkta gæsar- unga. Þegar haustaði tóku gæsimar flugið. Ein flaug á raflínu og drapst, önnur var skotin við Víðiker og sú þriðja austur á Héraði. Fjórða gæsin komst til Bretlandseyja og sneri aftur að vori með stegg. Þessi gæs kunni að leysa hnúta og var glysgjöm líkt og algengt er með fugla af þessu kyni. Gæsin var mjög hænd að fólki og gekk inn og út úr húsi hjá fóstra sín- um. Meira að segja dró hún villtan bónda sinn með. Ef fóstrinn fór í sól- bað þá kúrði gæsin gjarnan í handar- krikanum á honum. Gæsin kom aftur árið eftir með nýjan stegg en endaði svo ævina í Skotlandi á þriðja ári. Árið 1985 merkti Kristlaug rauð- höfðaönd og fann hana síðan dauða við lækinn árið 1996, eftir ellefu ár. Hafði sú orðið fálka að bráð. Krist- laug telur víst að öndin hafi komið á hverju ári á þennan sama stað. Skorinn þrisvnr ó einu óri Fyrir réttum fjórum ámm veiktist Guðmundur alvarlega. „Maður er ekkert alinn upp við að vera að kveinka sér,“ segir Guðmundur. „En ég fór að leggja af og var alltaf með kvef. Maður bara bætti á sig lopa- peysum og hélt áfram að róa. En frænda mínum, sem er læknir á Húsavík, leist ekki á þetta og gekk í það að senda mig til Akureyrar í rannsókn." Guðmundur greindist með krabbamein og segir að líklega eigi frændinn mestan heiður af að hann skuli ekki vera dauður. Um haustið var tekið úr honum annað nýrað. Vorið eftir kom í Ijós meinvarp og ákveðið að taka þyrfti hálft lungað. Ári eftir að Guðmundur veiktist fyrst leyndi sér ekki að enn var eitthvað í ólagi, því nú fór hann að ganga út á hlið eins og krabbi. „Ég hafði samband við lækninn og hann sagði mér að koma eins og skot. Ég rétt komst inn á gólf hjá honum og þá steinlá ég. Það var þá komið æxli í höfuðið. Ég var sendur suður og Bjarni Hannesson taugaskurð- læknir átti að skera. Hann skoðaði mig og sagði: - Það er gott að æxlið er þarna, því þar er ekkert fyrir inn- an. Ég svaraði honum því að það hefði nú samt nægt mér hingað til!“ Kristlaug segir að strax eftir að- gerðina á Akureyri hafi Guðmundur farið að drekka lúpínuseyði frá Ævari Jóhannessyni. Taldi hún ábyggilegt að það hefði hjálpað. Þeg- ar fyrsti skammturinn af lúpínuseyð- inu var opnaður þótti ilmurinn kunn- uglegur. „Eg fann það á lyktinni að það er einmitt litunarmosi í þessu seyði. Ég hef líka tekið hákarlalýsi og borðað hákarlabrjósk. Þess vegna varð ég fyrir vonþrigðum að heyra nýlega í útvarpinu að það virkaði alls ekki gegn krabba. En það er eitthvað sem virkar, því ég tóri enn. Mér fannst læknamfr dauftrúaðir á að þetta gæti gengið. Ég léttist um 24 kíló meðan á veikindunum stóð. En það var bara sett í framdrifið og allt á fullt! Ég sagði raunar við læknana að ef ég tryði því að tannkremið mitt hjálpaði þá myndi ég éta það með glöðu geði!“ Auk lúpínuseyðis og hákarlaafurða hefur Guðmundur gengið í gegnum stranga lyfjakúra og er undir stöð- ugu eftirliti lækna. Hann telur lækn- ana og alla aðra sem önnuðust hann hafa unnið kraftaverk á sér. Enn þarf hann að fá lyfjasprautur þrisvar í viku og ef Kristlaug er ekki heima til að sprauta verður hann að gera það sjálfur, en þykir það ekki sérlega eft- irsóknarvert. Guðmundur segir það grandvallar- atriðið að missa ekki móðinn í veik- indum sem þessum. „Það hjálpar að vera jákvæður. En maður er ekki eins grimmur og maður var. Það var nú tekið til þess!“ Kristlaug segir að Guðmundur hafi sagt að ef hann dæi, þá væri hann bara búinn með kvót- ann. „Maður kann betur að meta lífið eftir að hafa lent í svona lífsreynslu,“ segir hún. Fékk sjónina oftur Guðmundur var settur á steralyf sem ollu því að hann varð mjög sjón- dapur í marga mánuði. Loks komst hann í aðgerð og var skorinn á báð- um augum. „Það er furðulegt að það skuli vera margra mánaða bið í þess- ar aðgerðir," segir Guðmundur. „Hvor aðgerð tók ekki nema svona tuttugu mínútur. Ég spurði lækninn hvers vegna þeir brettu bara ekki upp ermar og skófluðu biðlistanum af.“ Guðmundur segist hafa orðið að beita ýmsum klækjum til að komast að hjá lækninum sem skar hann. Konurnar í afgreiðslunni undraðust það að hann skyldi komast að, og það utan af landi! „Ein var langforvitn- ust,“ segir Guðmundur. „Eg sagði henni að ég hefði komist að vegna þess að læknirinn hefði verið að elt- ast við frænku mína fyrir löngu! Svo sagði ég lækninum söguna og honum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.