Morgunblaðið - 24.12.1998, Side 1
294. TBL. 86. ÁRG.
Mútumálin í Belgíu
Claes
dæmdur
sekur
Brussel. Reuters.
ÆÐSTI dómstóll Belgíu dæmdi í
gær Willy Claes, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, sekan um að hafa þegið
mútur í lok síðasta áratugar þegar
hann var efnahagsmálaráðherra
Belgíu.
Franski kaupsýslumaðurinn
Serge Dassault var einnig sakfelld-
ur fyrir að greiða belgískum stjórn-
málamönnum mútur til að tryggja
sér samning um að setja ný raf-
eindatæki í belgískar herþotur.
Báðir fengu þeir skilorðsbundinn
fangelsisdóm, Claes þriggja ára og
Dassault tveggja ára. Þeim var
einnig gert að greiða andvirði
125.000 króna í sekt hvor.
Guy Coeme, fyrrverandi varnar-
málaráðherra Belgíu, og Guy Spita-
els, fyrrverandi forseti Vallóníu,
voru einnig fundnir sekir um að
hafa þegið mútur af Dassault.
Mútufé þeirra rann til sósíalista-
flokks frönskumælandi Belga en
féð sem Claes þáði til flæmska sósí-
alistaflokksins.
Fyrr um daginn var Claes einnig
fundinn sekur um spillingu í tengsl-
um við samninga Belga við ítalska
þyrlufyrirtækið Agusta.
Kúbumenn
varaðir við
jólasvein-
inum
Havana. Reuters.
ÞÓTT stjórnvöld á Kúbu hafi
ákveðið að gefa landsmönnum
frí til að halda jólin hátíðleg
þýðir það ekki að jólasveinninn
sé velkominn til eyjunnar.
Málgagn verkalýðshreyfing-
arinnar á Kúbu, Trabajadores,
hefur varað við jólasveininum
sem tákni bandarískrar
„neysluhyggju", „menningar-
legrar foræðishyggju" og
„andlegrar nýlendustefnu".
Ríkisreknar verslanir í Hav-
ana voru einnig ávítaðar fyrir
að nota hefðbundin jólatákn
norðlægari landa í skreyting-
ar. Blaðið sagði að jólatré og
gervisnjór væru ekki viðeig-
andi í sósíah'sku hitabeltislandi
eins og Kúbu og mæltist til
þess að Kúbumenn notuðu
ekki ensku jólakveðjuna
„Merry Christmas".
Greinarhöfundurinn lýsti
jólasveininum sem „helsta
helgisagnatákni bandarískrar
kaupskaparstefnu“ og sagði að
verslanir sem notuðu það í
skreytingar stuðluðu að út-
breiðslu bandarískrar menn-
ingar og hugmyndafræði.
Hann mæltist til þess að
landsmenn héldu upp á ára-
mótin að kúbverskum hætti
með fjölskylduveislum „tónlist,
gríni, svínakjötinu hjartkæra,
rommi og bjór“.
Tveir breskir ráðherrar segja af sér vegna umdeilds láns
Afsögn Mandelsons
mikið áfall fyrir Blair
London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, varð
fyrir miklu áfalli í gær þegar Peter Mandelson,
einn af nánustu samstarfsmönnum hans í stjórn-
inni, sagði af sér sem viðskipta- og iðnaðarráð-
herra vegna umdeilds láns sem hann fékk frá
Geoffrey Robinson, aðstoðarráðherra í fjármála-
ráðuneytinu. Robinson sagði einnig af sér vegna
málsins. Blair skipaði Stephen Byers, ráðherra í
fjármálaráðuneytinu, sem eftirmann Mandelsons.
Forsætisráðuneytið sagði að þótt Mandelson
hefði ákveðið að segja af sér teldi hann enn að lán-
takan hefði ekki verið óviðeigandi. „Forsætisráð-
herrann féllst á afsögnina með trega,“ sagði í yfir-
lýsingu frá ráðuneytinu. Daginn áður hafði Blair
lýst yfir fullum stuðningi við Mandelson, sem er
talinn hafa átt stóran þátt í stórsigri Verkamanna-
flokksins í kosningunum í maí á síðasta ári.
Mandelson sagði á mánudag að lánið frá Robin-
son væri ekki brot á siðareglum stjómarinnar en
viðurkenndi að hann hefði átt að skýra frá því.
Hann hélt því jafnvel leyndu þegar ráðuneyti hans
hóf rannsókn á hugsanlegum árekstrum milli póli-
tískra og viðskiptalegra hagsmuna Robinsons.
Lánið nam 373.000 pundum, andvirði um 45 millj-
óna króna, og Mandelson notaði féð til að kaupa
hús í Notting Hill, vinsælu hverfi í London.
„Hefði átt að fara fyrr“
Mandelson sagði í bréfi til Blairs að áður en
Verkamannaflokkurinn komst til valda hefðu for-
ystumenn hans lofað að fylgja eins háleitum siða-
reglum og mögulegt væri. Ekki væri nóg að þeir
stæðu við það, heldur þyrfti þjóðin að vera viss
um að þeir gerðu það.
Afsögn Mandelsons olli miklu uppnámi í bresk-
um stjórnmálum. Peter Lilley, einn af forystu-
mönnum Ihaldsflokksins, sagði að afsögnin hefði
verið óhjákvæmileg þar sem mál Mandelsons
hefði vakið efasemdir um heiðarleika stjórnarinn-
ar. „Hann hefði átt að fara fyrr.“
Fréttaskýrendur sögðu að afsagnir ráðherr-
anna myndu ekki hafa áhrif á efnahagsstefnu
stjómarinnar. Gengi pundsins lækkaði lítið.
Stephen Byers er 45 ára og hefur náð skjótum
frama frá því hann var kjörinn á þing fyrir sex ár-
um. Hann fór með skólamál sem aðstoðarráð-
herra í menntamálaráðuneytinu þar til hann var
gerður að ráðherra í fjármálaráðuneytinu í upp-
stokkun Blairs á stjórninni í júlí.
■ „Myrkrahöfðinginn“/33