Morgunblaðið - 24.12.1998, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.12.1998, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda- faöir og afi, BIRGIR BREIÐFJÖRÐ PÉTURSSON, Egilsgötu 18, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Háteigskirkju þriðju- daginn 29. desember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Erla Gísladóttir Lovísa Birgisdóttir, Hanna Ingibjörg Birgisdóttir, Guðmundur Jónasson, Pétur Birgisson, María Aðalbjarnardóttir, Gísli Kristján Birgisson, Anna Kristín Kristinsdóttir, Ágústa Hera Birgisdóttir, Haukur Sigurðsson, Hlynur Freyr Birgisson, Stefanía Arnardóttir og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, STEFÁN INGVAR GUÐJÓNSSON fyrrum bóndi í Dölum, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju þriðju- daginn 29. desember, kl. 13.30. Kjartan Ingvarsson, Bergdís Helgadóttir, Gísli Ingvarsson, Erna Gestsdóttir, Yngvi Ingvarsson, Hildigunnur Sigþórsdóttir, Daldís Ingvarsdóttir, Einar Kr. Einarsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Hlíðarenda, fsafirði, verður jarðsungin frá ísafjarðarkirkju þriðju- daginn 29. desember kl. 14.00. Garðar Sævar Einarsson, Þorgerður Sigrún Einarsdóttir, Guðmundur Marinósson, Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir, Guðmundur Sigurbjörn Einarsson, Ingibjörg Daníelsdóttir, Tryggvi Sæberg Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. v + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, INGÍMAR INGIMARSSON, Tjaldanesi 1, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju, Garða- bæ, þriðjudaginn 29. desember kl. 13.30. Sólveig Geirsdóttir, ingimar Örn Ingimarsson, Ella K. Karlsdóttir, Geir Ingimarsson, Una Hannesdóttir, Auður Ingimarsdóttir, Ómar Hafsteinsson og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdasonur, SIGURÐUR HAFÞÓR SIGURÐSSON, Grænabakka 4, Bfldudal, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 29. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Guðrún Sigurðardóttir, Eva Björg Sigurðardóttir, Þröstur Þór Sigurðsson, Sigurður Ingibergur Bergsson, Þorbjörg Ólafsdóttir. GUÐNÝ SIGFÚSDÓTTIR + Guðný Sigfús- dóttir fæddist í Skarði, Landsveit, Rangárval lasýslu, 16. janúar 1919. Hún lést á heimili sínu 10. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 18. desember. Það er komin að- venta. Jólaljósin tendrast fleiri og fleiri. I hugum okkar býr eftirvænting og von um gleðileg jól með samverustundum í faðmi fjölskyldunnar sem hefur æ færri stundir til samfunda vegna anna, já eða vegna hvers? Kannski vegna þess að við ætlumst alltaf til, að alltaf sé nægur tími til að koma saman og styrkja fjölskyldu og vina- böndin, en lífið er hverfult, og skjótt skipast veður í lofti. I kyrrð næturinnar berst sú harmafregn að Guðný tengdamóðir mín sé látin. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu. Því er vart hægt að trúa, Guðný, þessi kona, ávallt svo hress, dugleg og bjartsýn eftir alla þá erfíð- leika sem hún hefur gengið í gegnum vegna veikinda tengda- föður míns, nýlátins, og með þeim krafti sem hún var að öðlast á ný og bjarta trú á góða daga framundan. Þá kemur kallið. Af hverju? Af hverju þú? Af hverju þetta mikla álag á eina íjölskyldu, börnin, barnabömin og tengdabörnin, mamma, pabbi og amma öll burt kölluð á tæpu ári. Elsku Guðný, ég á þér svo margt að þakka, alla hjálpina í gegnum tíð- ina, óteljandi atvik hrannast upp í huganum, sem ég naut að vera með þér. Minningar hrífa hugann, okkar fyi'stu kynni er ég bjó um stundar- sakir á heimili ykkai', hve þú varst mér góð, tókst mér sem þinni eigin dóttur. Hve garrian var að spjalla saman. Þú hafðii' svo gaman af að segja frá æskuárum þínum heima í Skai'ði, kynnum ykkai' Júlla, og hvernig það var að vera alin upp hjá afa og ömmu í sveitinni og margt fleira. Það var alltaf svo gaman að heyra þig segja frá, frásagnargleði þín var svo mikil, og allar frásagnfr þínar einkenndust af vfrðingu og ást á fólkinu og landinu og eftirtektar- vert var hve þú tókst alltaf upp hanskann fyrir þá sem á var hallað. Sást alltaf eitthvað gott í öllu. Nú hin síðari ár hafa heimsóknir okkar á Grenimelinn verið sem betur fer svo margar til ykkar afa, börnin okkar fengið að njóta þess að dvelja hjá ykkur um lengri eða skemmri tíma og samgangur verið mikill, það ber að þakka. Þið áttuð svo fallegt og hlý- legt heimiii, þangað var alltaf svo gott að koma. Elsku Guðný, erfitt er að trúa því, að þú skulir ekki vera lengur á meðal okkar. Þú svo ungleg, að enginn vildi trúa um aldur þinn, alltaf svo snagg- araleg í hreyfingum, stundaðir sund- laugar nánast upp á hvem dag ef veð- ur leyfði, varst alltaf svo vh'k í kvenfé- lagi kii'kjunnar og hafðfr hug á að byija aftur í kómum í Neskirkju. Hvemig á manni annað að detta í hug, en að æðri máttarvöld stjórni ákveðn- um áfóngum í lífi okkar þegar dánar- dag Guðnýjar ber upp á dánardag föð- ur hennar, og það að útför hennar fer fram á brúðkaupsdegi hennar. Það eitt lætur okkur staldi'a við. Elsku Guðný, far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Elsku systkin, börn og barnaböm. Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg og leiði ykkur um lífsins veg. Minningin um Guðnýju ömmu, sem nú er komin til afa og það að þau eru saman á ný, getur gefið okkur styrk í sorginni. Guð blessi þig. Þín Rosemarie. HELGI HANNESSON + Helgi Hannesson fæddist á Dynjanda í Jökulfjörðum 18. aprfl 1907. Hann lést á Sólvangi í Hafnarfirði 30. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 10. desember. Það er með söknuði og þakklæti sem ég kveð föðurbróður minn Helga Hannesson. Helgi var fædd- ur 18. apríl árið 1907 en lést 30. nóv- ember sl. og spannaði líf hans því hátt í heila öld. Helgi frændi eins og hann var ávallt kallaður af okkur systkinun- um var órjúfanlega tengdur upp- vexti okkar. Þrátt fyi'ir fjarlægðina á milli landshluta hélst samband þeirra bræðra, föður míns, Sigurð- ar, og hans, náið og kærleiksríkt og hann fylgdist vel með okkur bræðrabörnum sínum, ávallt reiðu- búinn að rétta hjálparhönd eða styðja á hvem þann hátt sem hann mátti. Seinna þegar pabbi flutti suð- ur höfðu þeir Helgi tækifæri til að hittast reglulega og var oft gaman að fylgjast með þeim rifja upp liðna tíma. Eg get ekki ímyndað mér nokkra þá bón, sem þeir bræður hefðu neit- að hvor öðrum um, svo kært var með þeim. Ein sú bón sem hann veitti föður mínum var að fylgja einkadótturinni íyrstu skrefin í stór- borginni London, þegar ég fór þang- að til náms, ung að aldri og fákunn- andi í málinu. Ekki var hægt að hugsa sér betri eða glæsilegri íylgd- armann og var ekki amalegt að hafa hann sér við hlið til aðstoðar fyrstu vikuna í framandi stórborg. Fyrir þetta og svo margt annað verð ég frænda mínum ævinlega þakklát. A langi'i ævi sinni kom Helgi ótrúlega miklu í verk. Jafnframt kennslustörfum sem hann stundaði alla ævi vann hann ötullega að mörgum framfaramálum innan þeirra samtaka sem hann starfaði með og átti m.a. frumkvæði að stofnun Samtaka sykursjúkra. Eg tel ekki vafa á því að hörð og erfið kjör í æsku og uppvexti og barátta móður hans, Jakobínu ömmu, fyrir betri kjörum verkafólks, hafi haft sterk mótandi áhrif á lífssýn Helga og kveikt þann eldmóð og baráttu- hug sem beindi honum á þá braut að vinna verkalýðshreyfingunni sem mest gagn hann mætti til að bæta kjör almennings. Þrátt fyrir miklar annir bæði í daglegum störfum og félagsmálum lét Helgi sér ákaflega annt um fjöl- skyldu sína og frændfólk og var ég ein þeirra sem nutu örlætis hans og umhyggjusemi ríkulega. Þau hjónin Helgi og Þórunn voru bæði höfð- ingjar heim að sækja og vil ég þakka fyrir ailar þær góðu og skemmtilegu stundir sem ég hef notið á heimili þeirra í Stigahlíð- inni. Síðustu mánuðina þurfti Helgi að þola erfið veikindi og naut hann þá ríkrar umhyggju og aðstoðar fjöl- skyldu sinnar. Um stund skilja leið- ir. Eg vil kveðja frænda minn með innilegri þökk. Stórbrotinn baráttu- maður er til hvíldar genginn. Öllum ástvinum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hafmn til hæða horfir nú þinn andi heimslífs á öldur i hvíld og kyrrð. Stormum og stríði stendur þú yfir með æðri sjón í himins hirð. (Einar Ben.) Anna Málfríður Sigurðardóttir. + Ástkær eiginmaður minn, SVEINN PÉTUR BJÖRNSSON, Skálarhlíð, Siglufirði, áður til heimilis á Hverfisgötu 29, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hansína Jónatansdóttir. + BOGI ÞORSTEINSSON fyrrv. yfirflugumferðarstjóri, Hjallavegi 7, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 14.00.1 Aðstandendur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, WILLY BLUMENSTEIN, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriöju- daginn 29. desember kl. 14.00. Edda Elíasdóttir, Hildur Blumenstein, Grímur Halldórsson, Ellen Blumenstein, Valdimar Geirsson, Brynja Blumenstein og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.