Morgunblaðið - 24.12.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.12.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 35 KVIKMYNDAHUSANNA Stj örnu- strákurinn UR jólamynd Regnbogans, Stjörnustráknum eða „Starkid“. JÓLAMYNDIR Regnbogans eru þrjár, gamanhasar- myndin „Rush Hour“, ijölskyldumyndin Stjörnu- strákurinn eða „Starkid" og loks mun Óvinur rík- isins eða „The Enemy of the State“ með Will Smith vera nýársmynd í Regnboganum. Geimbúningur Stjörnustrákur segir af tólf ára gömlum strák, sem Jos- eph Mazello úr Júragarðinum leikur. Hann er skot- inn í stelpu í skólanum sinum en er of feim- inn til þess að tala við hana, á flótta undan strák- um sem ætla að berja hann, faðir hans hefur eng- an tíma fyrir hann og systir hans er óþolandi. Svo ger- ist það einn daginn að loftsteinn feilur til jarð- ar skammt frá heimili hans. I ljós kemur reynd- ar að það er alls enginn loftsteinn heldur fyrir- bæri sem kallast Cy og er einskonar sjálfstætt hugs- andi geimbúningur er læsir sig um strákinn svo hann lok- ast innan í honum. Því fylgja nokkrir kostir. I búningn- um getur stráksi stokk- ið tugi metra í loft upp og beygt stálbita og sjálfs- traust hans eykst að nokkrum mun. Ungur og efnilegur Leikstjóri myndarinnar er Manny Coto en framleið- andi er Jennie Lew Tugend, sem áður hefur unn- ið m.a. við Frelsum Willy-myndirnar. „Við vild- um helst af öllu fá Joseph í aðalhlutverk myndarinn- ar,“ er haft eftir henni. „Þótt hann sé ungur að ár- um er hann mjög efnilegur og fagmennskan er mik- il, jafnvel svo að einstakt þykir í kvikmyndaheimin- um hér vestra. Hann hafði tvö önnur kvikmyndatil- boð að velja úr og við vorum svo hepp- in að hann valdi að leika í myndinni okkar.“ Þótt hann sé ungur að árum hefur Joseph Mazello leik- ið í nokkrum mjög áberandi myndum og stað- ið sig með prýði. Hann lék í Júragarði Stevens Spiel- bergs en eftir það hefur hann komið fram í mynd- um á borð við „The River Wild“ með Meryl Streep, Þrem- ur óskum með Patrick Swayze og Mary Eliza- beth Mastranton- io, „Shadowlands" þar sem hann lék á móti Anthony Hop- kins og lagatryllinum Uns sekt er sönnuð með Harri- son Ford. Svo þótt hann sé ekki nema 12 ára gam- all er hann orðinn ansi sjóaður leikari. „Handritið var fyndið," er haft eftir leikaran- um unga, „og það var sorglegt líka og spenn- andi, en fyrst og fremst skemmtilegt. Þegar ég hafði les- ið það sagði ég við sjálfan mig: Þetta er mynd fyrir mig.“ Leikstjórinn Manny Coto skrifaði áður handrit- ið að og leikstýrði hrollvekjunni „Dr. Giggles". Framleið- andinn, Tugend, hefur verið lengur við kvikmynda- gerð og lauk nýlega við þriðju myndina um háhyrning- inn Willy. einnig sýnd í Nýja bíói á Akureyri og Nýja bíói í Keflavík. Hún verður frumsýnd 1. janúar nk. og heitir Óvinur ríkisins eða „Enemy of the State“ og er með sumarmyndakónginum Will Smith í aðalhlutverki, en aðrir leikarar með honum eru Gene Hackman og Jon Voight. Leikstjóri er Tony Scott, en framleiðandi sá afkastamikli Jen-y Bruckheimer („ConAir“, „Armageddon"). Will Smith leikur lögfræðing sem bendlaður er við morð á þingmanni og skyndilega er hann hvergi óhultur og fylgst er með hverju hans fótspori, meðal annars í gegnum gervi- hnetti. Lögfræðingurinn leitar ráða hjá gömlum njósnahundi sem Hackman leikur og reynir að snúa vörn í sókn. Disneyfyrirtækið fékk Smith til þess að leika í myndinni nokkni áður en hann sló eftirminnilega í gegn í Mönnum í svörtu og varð einn af dýrustu leikurum heimsins. „Disney sparaði sér svolitla peninga á því,“ er haft eftir Bruckheimer. Erfiðara var að fá Hackman til þess að leika í myndinni. „Hann hélt að um gamanmynd væri að ræða fyrst Smith fór með aðalhlutverkið,“ segir leikstjórinn Scott. Þegar honum var gerð grein fyrir því að myndin væri samsæristryllir sló hann til. Hand- ritshöfundurinn David Marconi kynnti sér til hlítar eftlrlitsaðferðir sem njósnastofnanir nota við störf sín og mun vera hálf ragur við að tala í síma síðan. Það fór vel á með þeim Will Smith og Gene Hackman við gerð myndarinnar. Leikarinn ungi kveið þvi að leika á móti hinum ; reynda Hackman, en eftir að fyrstu i stóru senunni þeirra lauk varð hann afslappaðri. „Þetta var ágætt hjá þér,“ sagði Haekman : við Smith. „Mér leið eins og ég hefði hitt holu í höggi,“ sagði Sr^iith síðar. Aðrar myndir Sambíóanna yfir hátíðarnar eru m.a. Hermaður með Kurt Russell, gamanmyndin Ég kem heim um jólin og Disneyteiknimyndin Mulan sþm sýnd er bæði með íslensku og ensku tali. ÚR norsku leikbrúðumyndinni Álfhóli: Kappakstrinum mikla, sem er jólamynd Stjörnubfós. JÓLAMYNDIR Stjörnubíós eru þrjár. Fyrsta skal nefna norsku leikbrúðumyndina Álfhól: Kappaksturinn mikla, sem sýnd verður með íslensku tali og er einnig í Laugar- ásbíói, þá „Rush Hour“, sem einnig er í Laugarásbíói og Regnboganum og loks unglingahrollvekjan Sögusagnir eða „Urban Legends“. Álfhóll Norska leikbrúðumyndin Álfhóll: Kappaksturinn mikli er frá miðjum áttunda áratugnum eða 1975 og er endursýnd í Stjörnubíói 22 árum eftir frumsýningu hennar á íslandi. Myndin, sem heitir á frummálinu „Fláklypa: Grand Prix“, naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma og samkvæmt upplýsingum frá kvikmyndahúsinu sáu hana ekki færri en 30.000 manns hér á landi. Stjömubíó hefur látið talsetja myndina á íslensku svos- em orðið er venjan með erlendar teikni- og brúðumyndir. Þeir íslensku leikarar sem fara með helstu hlutverk eru: Sigurður Skúlason, Örn Árnason, Erla Ruth Hai-ðardóttir, Þórhallur Sigurðsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Edda Björg Eyjólfsdótt- ir, Gunnar Hansson og Sigurður Sigurjónsson. Leikstjóri tal- setningarinnar er Jóhann Sigurðarson. Álfhóll fjallar um reiðhjólaviðgerðar- og uppfinningamann- inn Theodór Felgan sem býr í mikilli einangrun lengst uppi í fjalli ásamt tveimur aðstoðarmönn- um sínum, Loðvíki og Sæla. Rúdólf Smeðjan, sem eitt sinn var í læri hjá Theodór, er nú einn fremsti kappakstursmaður heimsins, kokhraustur vel, enda kominn á hraðskreiðasta bíl heimssögunnar. Theodór grunar að Rúdolf hafi stolið frá sér einni uppfinningu sinni og reynist grunur hans réttur. Áðstoðarmaðurinn Sæli fær afbragðs- hugmynd. Hann fær olíufurstann Abdul Ben Dé Skodanz til þess að styrkja Theodór til að smíða aflmeiri kappakstursbfl en þann sem Rúdolf ekur og til verður ofurbifreiðin, „II tempo gigante". Framundan er síðan æsispennandi kappakstur þar sem allt get- ur gerst. Fjögurra ára vinna Álfhóll: Kappaksturinn mikli naut gríðarlegra vinsælda í heimalandi sínu, Noregi, þegar hún var frumsýnd á áttunda áratugnum; fyrstu sex mánuðina sá hálf þjóðin myndina. Höfundur hennar er Ivo Caprino og það tók hann og listamennina sem með honum unnu fjögur ár að ljúka myndinni. Handritið gerðu Caprino, Kjell Aukrust, sem einnig sá um sviðsmyndir og brúðugerð, Remo Caprino og Kjell Syversen. Smíðuð var nákvæm eftirlíking kappakstursbíls Theodórs í myndinni í fullri stærð og var hún notuð til þess að kynna myndina erlendis en einnig var leikfangaútgáfa hennar send á markað. Myndin var gerð að öllu leyti í Noregi og fór víða um heim og vakti athygli. Jólamyndin Sögusagnir er enn einn vitnisburður þess að unglingahrollvekjur hafa gengið í endurnýjun lífdaga eftir nokkurt hlé frá dögum Fredda kutakrumlu og kumpána, en hún segir af hópi ungs fólks sem lendir í bragðvondu. EDDIE Murphy í ganianmyndinni „Holy Man“. STJORNUBIO Alfhóll: Kappakstur- inn mikli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.