Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 33 Peter Mandelson, einn af valdamestu mönnum í breskum stjórnmálum, segir af sér ráðherraembætti „Myrkra- höfðinginn“ fallinn Aísögn Peters Mandelsons þykir mikið áfall fyrir bresku ríkisstjórnina og ekki síst forsætisráðherrann Tony Blair. Davíð Logi Sigurðsson segir Mandelson ávallt hafa verið umdeildan stjórnmálamann. AFSÖGN Peters Mandel- sons viðskipta- og iðnaðar- ráðherra þykir mikið áfall fyrii- ríkisstjórn breska Verkamannaflokksins og ekki síður fyrir forsætisráðherrann Tony Blah- sjálfan, enda hefur Mandelson verið meðal helstu ráðgjafa hans á bak við tjöldin og saman eru þeir taldh- bera mesta ábyrgð á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á stefnu og yf- irbragði Verkamannaflokksins. Mandelson hefur hins vegar alltaf verið umdeildur í eigin flokki og ljóst þykir að ekki gráta allir brotthvarf mannsins sem kallaður hefur verið „myi'krahöfðinginn" í breski-i stjórn- málaumræðu. Afsögnin kom eftir að Mandelson hafði mistekist að standa af sér þann storm sem skall á honum á þriðjudag þegai- bresku dagblöðin greindu frá því að Mandelson hefði fyrir tveimur árum fengið 373.000 pund, um 45 milljónir ísl. króna, að láni frá millj- ónamæringnum Geoffrey Robinson, sem gegnir aðstoðarráðherrastöðu í fjármálaráðuneytinu, svo hann gæti keypt sér hús á dýrasta stað í London. Hugsanlegir árekstrar milli við- skiptahagsmuna Robinsons og af- skipta hans af stjórnmálum voru ný- lega teknir til rannsóknar í við- skiptaráðuneytinu, ráðuneyti Mand- elsons, og það er ekki síst þessi þátt- ur sem var harðlega gagnrýndur af bresku stjórnarandstöðunni og fjöl- miðlum þai’ í landi. Töldu margir að um augljósan hagsmunaárekstur hefði verið að ræða þegai’ málið kom inn á borð viðskiptaráðuneytisins og Mandelson hefði því átt að greina frá fjárhagslegum tengslum sínum við Robinson. Mandelson viðurkenndi reyndai’ á þriðjudag að eftir á að hyggja hefði sennilega verið betra ef hann hefði greint Michael Scholar, ráðuneytis- stjóra sínum, frá láninu. Segjast nánir samstarfsmenn Mandelsons og Blairs „furðu lostnir" á því „hræði- lega“ dómgreindarleysi sem Mandel- son hafí sýnt, en Mandelson hefur einmitt hingað til verið þekktur fyrir að vera afar séður í pólitík. Blair boðaði breytt og betra sið- ferði í stjórnmálum Tony Blair reyndi á þriðjudag að bera blak af Mandelson en var samt sem áður sagður reiður yfir þessu vandræðamáli öllu saman. Það mun vera skoðun Blairs að Mandelson hefði getað komist hjá þessari uppá- komu hefði hann upplýst miklu fyi-r að hann hefði fengið umrædd 373.000 pund að láni hjá Robinson. Fullyi’t er að Blair hafí ekki haft vit- neskju um málið fyiT en á fímmtu- dag í síðustu viku, þegar Mandelson varð ljóst að dagblöðin voru í þann mund að afhjúpa það. Þetta mál er ekki síst vandræða- legt fyrir Verkamannaflokkinn í ljósi þess að flokkurinn komst til valda í maí 1997 með fögrum fyrirheitum um betra stjórnmálasiðferði, en stjórnartíð íhaldsmanna hafði undir lokin einmitt einkennst mjög af hneykslismálum tengdum kynlífi og íhaldsmenn vísuðu í þessi fyrir- heit í gagnrýni sinni á Mandelson og Blair og flokksbróðir Mandelsons, Mark Seddon, sem situr í miðstjórn Verkamannaflokksins, sagði í gær, áður en Mandelson tilkynnti afsögn sína, að Mandelson hefði valdið flokki sínum mikilli niðurlægingu. „Eg tel að líklega væri rétt af honum að segja af sér. Eg held að ef menn setja háleitar kröfur um hegðun manna í stjórnmálum [...] þá verði menn að hlíta þessum kröfum.“ Var það rifjað upp í gær og fyrra- dag að þremur mánuðum eftir að hann komst til valda gaf Tony Blair út endurskoðaða útgáfu af reglum sem varða hegðun ráðhen’a í emb- ætti. Sagði Blair þá að hann ætlaðist ekki aðeins til þess að ráðherrar störfuðu innan ramma reglnanna heldur einnig í anda þeirra þannig að byggja mætti upp að nýju traust al- mennings á stjórnvöldum sínum eftir stormasöm ár undir stjórn Ihalds- fiokksins. Ekki er aiveg víst að Peter Mandelson hafí beinlínis farið út fyr- ir þann ramma sem reglurnar setja ráðherrum en gagnrýnisraddir segja að hann hafí örugglega ekki hagað sínum málum í „anda laganna". Samkvæmt reglunum á enginn ráðhen’anna að þiggja gjafii’ eða gi’eiða frá fólki sem gætu virst setja ráðherrann í óþarflega mikla „þakk- arskuld" við viðkomandi. Vissulega verði ráðherrar að meta hvenær hætta sé á hagsmunaárekstrum en tekið er fram að séu þeir í vafa ætti að leita ráða hjá forsætisráðherra. Sagði William Hague, leiðtogi íhalds- manna, í bréfi til Blairs í gær að í öllu falli væri ljóst að Mandelson braut ákvæði um tilkynningaskyldu ráðherra þegar hann tilkynnti ekki Michael Scholar, ráðuneytisstjóra viðskiptai’áðuneytisins, um lán það sem hann fékk hjá Geoffrey Robin- son þegar Scholar greindi Mandel- son frá því að hefja ætti rannsókn á Robinson. Guðmundur Rafn Geirdal skólastjóri og félagsfræðingur Joshwa eða Yeshi eftir því á hvaða heimildir er litið. Ekki er sannað að hann hafl nokkurn tíma verið til. Hátíð ljóssins, jólin, var upphaflega heiðin hátíð. Reuters Peter Mandelson sagði af sér embætti í gær eftir að hafa mis- tekist að standa af sér storni sem fylgdi uppljóstrunum fjölmiðla um lán hans til húsakaupa. Skipti í þessu tilliti engu máli að Mandelson sá til þess að mál Robin- sons myndi aldrei koma inn á sitt borð. Sú staðreynd ein og sér að málið var til rannsóknar í ráðuneyti Mandelsons, sem fengið hafði fé að láni hjá Robinson, veki spurningar um hagsmunaárekstui’. „Eiga reglur um hegðun ráðherra ekki að gilda um einkavini forsætisráðherrans heldur aðeins um alla aðra?“ spyr Hague í bréfi sínu til Blairs. Spurðu menn í gær og fyrradag t.d. hvernig í ósköpunum Mandelson sem viðskiptaráðherra hefði átt að geta tekið hlutlaust á málum Robin- sons þegar hann skuldaði honum hundruð þúsunda punda. Var einnig bent á að í sumar, þegar stokkað var upp í ríkisstjórninni, þótti líklegt að Robinson yrði rekinn. Spyrja menn í þessu sambandi hvaða ráð Mandel- son hafí gefið Blair þessu lútandi. Berst á í samkvæmislífinu Það er engin furða þótt þetta mál allt saman veki andúð, ekki aðeins íhaldsmanna sem vitaskuld reyndu að nýta sér vandræðaganginn sem mest þeh’ máttu, heldur einnig með- ai þingmanna Verkamannaflokksins sem fæstir hafa efni á að taka sér lán upp á fjörutíu milljónir króna, hvað þá að fjárfesta í húsi í einu dýrasta hverfi í London. Notting Hill-hverfið þar í borg hefur notið gífurlegra vinsælda meðal fræga og ríka fólksins og hef- ur íbúðaverð rokið upp á síðustu misserum. Mandelson gi’eiddi 465.000 pund, um 55 milljónir ísl. kr., fyrir húsið í október 1996 en gæti að öllum líkindum fengið 700.000 pund, tæplega 85 milljónir ísl. kr., fyrir það núna. Vakti nokkra athygli á sínum tíma að maður á þingmannslaunum skyldi hafa efni á slíku húsi og The Evening Standard sakaði Mandel- son í fyrradag um yfirhylmingar, en dagblaðið segist hafa spurt hann um vorið 1997 hversu mikið hann hafi greitt fyrir húsið. Hafi Mandelson þá sagt að hann hafi keypt húsið fyr- ir þá peninga sem hann fékk fyrir sölu á íbúð sinni og fyrir arf sem hann fékk frá venslafólki móður sinnar. Minntist hann ekkert þá á að hafa fengið lán frá Geoffrey Robin- son. Mandelson hefur þótt berast á í samkvæmislífi Lundúnaborgar og húsið í Notting Hill er talið vísbend- ing um hégómagh’nd hans. Hann mun hafa fengið Seth Stein, einn af frægustu innanhússarkitektum á Bretlandi um þessar mundir, til að hanna innbúið og segja kunnugir að þar sé allt samkvæmt svokölluðum „mínímalisma“-stíl, húsgögn í lág- marki og auða hvíta veggi skreyti einungis stöku málverk, öll í nútíma- stíl. Einkavinur Mandelsons, Robert Harris, sem ritaði bókina Föður- land, segir hins vegar að húsið beri vott um óaðfinnanlegan smekk Mandelsons. Mandelson mun einungis hafa greitt um 40 þúsund pund, eða rúm- lega fjórar milljónir ísl. króna, af láninu og á því enn eftir að greiða meira en 330.000 pund, næstum fjörutíu milljónir ísl. króna, en The Times sagðist í gær hafa heimildir fyrir því að Mandelson myndi greiða lánið að fullu innan fáira vikna, með aðstoð móður sinnar og bróður. Angi af hatursfullri samkeppni Mandelsons og Browns? Mandelson hefur alla tíð verið umdeildur, ekki síst innan Verka- mannaflokksins, og kom það berlega í ljós á síðasta ári þegar honum mistókst að hljóta kosningu i mið- stjórn flokksins þótt hann væri með- al allra valdamestu manna ríkis- stjórnarinnar og persónulegur vinur Blairs. Mandelson tók við embætti viðskipta- og iðnaðarráðherra í sum- ar en hafði áður verið ráðherra án ráðuneytis í ríkisstjórninni sem varð ekki síst til þess að viðurnefnið „myrkrahöfðinginn" festist við Mandelson, sem þar til í sumar var ekki beinlínis í framlínu flokksins þótt hann væri valdamikill bak við tjöldin. Atburðir síðustu daga hafa síðan enn á ný dregið fram í dagsljósið togstreitu milli leiðtoga tveggja fylkinga innan bresku ríkisstjórnar- innar, enda er alkunna að Mandel- son og Gordon Brown fjármálaráð- herra eru allt annað en perluvinir, og báðir börðust hart í sumar sem leið við að halda áhrifum sínum þeg- ar stokkað var upp í ríkisstjórninni. Þótti Brown þai’ bera lakari hlut en Mandelson. Ails kyns samsæriskenningar voru á lofti í gær, áður en Mandel- son tilkynnti afsögn sína. Engum blandast hugur um að Brown, og helstu vinum hans, svíður ekki að sjá á bak Mandelson, enda hafa samskipti ráðherranna tveggja þótt erfið. Mandelson var á sínum tíma góður vinur Browns og bandamaður í Verkamannaflokknum en eftir frá- fall Johns Smiths, þáverandi leið- toga Verkamannaflokksins, árið 1994 ákvað Mandelson að styðja Tony Blair, í stað Browns, í leiðtoga- embættið. Hefur Brown alla tíð síð- an átt erfitt með að fyrirgefa Mand- elson þessi svik. Vinir Mandelsons voru á þriðju- dag fljótir að saka Charlie Whelan, blaðafulltrúa Browns, um að standa á bak við þessa árás á Mandelson. The Guardian, sem fyrst flutti fregnir af Robinson-málinu á þriðju- dag, sá meira að segja ástæðu til að taka sérstaklega fram að Whelan væri ekki heimild blaðsins fyrir fréttinni. Enn ótrúlegri var sú samsæris- kenning, sem stuðningsmenn Browns höfðu á lofti, að Mandelson væri ljóst að sagan væri u.þ.b. að verða opinber í ævisögu um Mandel- son, sem blaðamaðurinn Paul Routledge er að skrifa, og því hefðu þeir ákveðið að leka henni sjálfir í blöðin núna, þegai’ breska þingið er í jólafríi, svo þingmönnum íhalds- manna gæfist ekki kostur á að blása það enn meira upp en von var á. Að síðustu héldu einhverjir því fram að ónefndur blaðamaður, mikill hatursmaður áðurnefnds Pauls Routledge, hefði komist yfir uppkast að bókinni og ákveðið að leka efninu í fjölmiðla til að skaða útgáfu bókar- innar. Tímaritið The Economist fjallaði í jólahefti sínu um tilraunir Mandel- sons til að skapa sér betri ímynd meðal flokksbræðra sinna og ann- arra síðan hann tók við völdum í við- skipta- og iðnaðarráðuneytinu og var blaðið fremur jákvætt í umfjöll- un sinni um frammistöðu Mandel- sons frá því hann tók við ráðherra- embætti. Hafði enginn átt von á öðru en að Mandelson yrði meðal helstu frammámanna í breskum stjórnmálum næsta áratuginn í það minnsta. Þessi sannfæring blaða- og frétta- manna þótti meðal annars skýi-a hversu varlega þeir fóru í að fjalla um persónu Mandelsons í haust þegar farið var að fjalla um samkyn- hneigð hans í kjölfar yfirlýsinga blaðamannsins Matthews Parris. Þykir næsta lítið hafa verið fjallað um samkynhneigð Mandelsons mið- að við það sem gengur og gerist í breskum fjölmiðlum. Getur þú axlað ábyrgð á einu barni í neyð? Einhvers staðar bíður barn þess að þú takir þátt í framtíð þess. Fyrir 1.400 krónur á mánuði getur þú tekið þátt í að fæða, klæða og mennta þetta barn. o^aahnaþo* A fSLANDI Hamraborg 1, 200 Kópavogur. Sími: 564 2910. Fax: 564 2907. Netfang: sos@centrum.is. Heimasíða: www.centrum/sos/ = E S ■-*— -== co □ 5 □ ru 'O 1 » 2 □ □ Já, takk, ég vil styrkja bam: □ Dreng □ Stúlku □ í S-Ameríku □ í Asíu □ í Afríku □ i A-Evrópu □ þar sem þörfin er mest
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.