Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 38

Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sómi Islands allur BÆKUR Sagnfræði ÁRNI MAGNÚSSON ÆVISAGA eftir Má Jónsson, Mál og menning, 1998 - 424 síður. PAÐ er mikil list að skrifa ævi- sögu manns þegar persónulegar heimildir eru af skornum skammti án þess að frásögnin verði þurr. Þeim mun erfiðara er að draga fram persónuleika manns án þess að falla fyrir þeiiri freistingu að rjúfa mörk sagnfræðinnar og geta í eyðurnar. Már Jónsson sagnfræðingur hefur tekist þetta erfíða verk á hendur í bók sinni um Ama Magnússon og tekst að mörgu leyti vel. Hann hef- ur unnið gríðarlega heimildavinnu, sem oft og tíðum má líkja við flókið púsluspil, og að leiðarlokum er les- andinn margs vísari um manninn, sem nefndur hefur verið sómi ís- lands. Framan af bókinni - og ævi Árna - hefur höfundurinn ekki úr svo miklu að moða og verður mynd- in af viðfangsefninu fremur flöt, en eftir því sem á líður verða heimild- irnar yfírgripsmeiri og myndin af Ama um leið heilsteyptari. Þegar farið er eftir Suðurgötunni má sjá bláan fána með innsigli Árna Magnússonar biakta fyrir utan stofnunina, sem við hann er kennd. Már segir í lokakaflanum að Árni hafí fljótlega eftir andlát sitt verið „settur á stall sem fomfræðileg hetja, umvafínn táknum lærdóms og þekkingar". Síðan bætir Már við: „Þessi bók sýnir vonandi að engin ástæða er til að taka Árna Magnús- son ofan af þeim stalli.“ Það er ekki alveg sýnt að Má hafi þar orðið að ósk sinni. Bækurnar em sú hlið Árna, sem sennilega réttlæta helst stöðu hans. Már vísar til þess að HJALTI Þorsteinsson málaði eftir minni þegar hann dró þessa mynd af Árna Magnús- syni árið 1745, 15 árum eftir andlát hans. tveir danskir fræðimenn, Carl S. Petersen og Svend Dahl, hafi farið um hann fögmm orðum, annar kall- að hann snjallasta bókasafnara, sem uppi hafi verið á Norðurlöndum, og hinn safnara af guðs náð. Á öðram sviðum tekst meistaran- um ekki jafnvel upp. Már fínnur fá- ar heimildir um glæstan fræði- mannsferil. Árni var við Kaup- mannahafnarháskóla og bjó við góð kjör, en hann skrifaði lítið og hafði samkvæmt heimildum orðið ímug- ust á bókum, eins undarlegt og það kann að virðast - lýsti yfir því að veröldin væri full af hégómabókum, þótt ekki bætti hann við og flestar bækur væru ónauðsynlegar, en skástar þær, sem bættu við ein- hverri þekkingu. Aldrei var lokið við jarðabókina, sem hann og Páll Vídalín söfnuðu í gögnum svo ámm skipti. Hins veg- ar kom starf þeirra af stað miklum deilum og snerist konungur gegn Árna. Eins og Már bendir á var manntalið ekki gefíð út fyrr en mörgum áratugum síðar og kvikfén- aðartalið hefur ekki komið út enn. Már heldur sig við sagnfræðina og varast að geta í eyðurnar. Stund- um gengur hann reyndar ívið langt í þeirri tilhneigingu að nýta heimild- irnar - lætur þær um of ráða ferð- inni í stað atburða. Hann rekur til dæmis útgjöld Árna fyrir hinum ýmsu nauðsynjum og neysluvömm í löngu máli, telur upp kaupmenn og tilgreinir hvaða daga hann hafí keypt moselvín og rúsínur. Þessar staðreyndir gefa ákveðna mynd af þeim munaði, sem Árni naut miðað við aðra Islendinga, og sýna í raun að hann yfirgaf heim uppvaxtar síns og gekk inn í aðra veröld. Það er hins vegar ástæða til að velta því fyrir sér hvers vegna þess- ir hlutir fái svona mikið pláss í bók- inni að jafnist nánast á við lýsing- una á eldinum í Kaupmannahöfn þar sem hluti af bókasafni Ama brann. Már er lipur penni og bókin læsi- leg. Fjöldi mynda prýðir bókina og er þar meðal annars að finna sýnis- horn af handritum og rithönd Árna. Hann slær á nokkrar goðsagnir, sýnir til dæmis fram á að Árni hafí haft þokkalegar tekjur og hafí því ekki þurft að giftast Mette Fischer til fjár. Már fer rækilega ofan í ævi Árna Magnússonar og tekst í bók sinni það ætlunarverk að setja skilin milli skáldskaparhetjunnar í íslands- klukku Laxness og hins raunvem- lega handritasafnara. Karl Blöndal Framúrskar- andi túlkun TONLIST III j <í iii tl i s k a r SONATA Eva Mjöll Ingólfsdóttir, fiðla. Svetl- ana Gorokhovich, píanó. Cesar Franck: Sonata í A-dúr. J.S. Bach: Partita nr. 2 í D-moll. D. Shosta- kovich: Fjórar prelúdíur op. 34. Hljdðritun: Tæknideild Rikisútvarps- ins. Upptökur fóru fram í Víðistaða- kirkju í mars og apríl 1998, Fella- og Hólakirkju í mars og ágúst 1998. Tónmeistari: Bjarni Rúnar Bjarna- son. Tæknimaður: Sverrir Gíslason. JAPIS JAP 9862-2. HÉR fara saman verk í hæsta gæðaflokki og framúrskarandi túlk- un Evu Mjallar Ingólfs- dóttur fíðluleikara og rússneska píanóleikar- ans Svetlönu Gorok- hovich. Hæst rís tónlist- in í einleik Evu Mjallar í Partitu nr. 2 eftir Bach - með hinni frægu og feiknakröfuhörðu Ci- acconnu sem lokaþátt. Leikur Evu Mjallar er í alla staði aðdáanlegur - ekki síst í „sjakonn- unni“, agaður og tónn- inn „örlátur" og fínn. Eva Mjöll er í samfloti með þremur öðram snillingum ís- lenskum á þetta fallega og full- komna hljóðfæri, m.ö.o. „á þakinu". Píanóleikur Svetlönu Gorokhovich er ákaflega vandaður og geðríkur - og hæfílega rómantískur (að rúss- neskum hætti), einsog glöggt kem- ur fram (og er einkar viðeigandi) í sónötu Sesars Franck, sem er með þekktari verkum á efnisskrám fíðlu- leikara og er oft jafnað við sónötur Beethovens og Brahms hvað snertir form og innihaldsríka fegurð, eins og segir í bæklingi. Yndislegar era stuttu prelúdíurn- ar fjórar hans Shostakovich, sem diskurinn endar á, þar sem tón- skáldið leitast við að tefla saman „á vandaðan og agaðan hátt andstæð- um öflum hefða og framsækinna hugmynda". Þarna er ekkert of eða van, samt rúma þessar stuttu tón- smíðar bæði sjarma og kímni. Eva Mjöll hefir langt og merki- legt tónlistarnám að baki hjá fær- ustu kennuram, m.a. í Brassel, Genf og í Amsterdam, þar sem hún sótti á sumrin meistaraklassa hjá Ti- bor Varga o.fl. („Þar af leiðir að fiðluleikur hennar ber keim af hinum austur-evr- ópska skóla með slíp- uðum, fíngerðum en jafnframt tilfinninga- þrangnum tóni.“) Hún var um tíma búsett í Japan, þar sem hún efndi til tónleika við góðan orðstír. Síðan settist hún að í New York, eftir nám í tón- smíðum, hljómsveitar- ritun og -stjórn við Harvard háskólann í Boston. Þessi hljómdiskur stendur undir öllu því sem hér hefur verið þulið upp. Hinir frábæru tæknimenn Ríkis- útvarpsins hafa séð um fyrsta flokks hljóðritun, þar sem hljómur- inn fær að hljóma! Oddur Björnsson Eva Mjöll Ingólfsdóttir Sterk saga um táninginn Sossu Nýjar bækur • SAGAN af Aðalheiði og borðinu blfða er eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur. I kynningu segir m.a.: „Eitt hjartaslag? Aðal- heiður fer laumu- lega um og enginn veit hver hún er, fólk heldur að hún búi í skúrum á bak- lóðum í bænum en enginn veit það fyrir víst. En eitt er víst að Aðal- heiður bankar upp á. Og hún á alltaf ákveðið erindi. Það er laumuspil. Og engjnn veit heldur hvert hún fer.“ Útgefandi bókarinnar er Viti menn. Bókin er 24 bls. að stærð, saumuð kilja, skreytt gullramma á hverri síðu ogmynd. Bókin er prent- uð hjá Prentberg hf. og innbundin hjá Bókavirkinu. A Porláksmessu kom út bæklingur með þremur sög- um til viðbótar af Aðalheiði. • Ritgerðir I. Greinar. Mannaminni. Ástarsaga er eftir Sigurð Sigur- mundsson frá Hvít- árholti. Bókin sem höfundur kýs að kalla Ritgerðir I, hefur að geyma greinar um marg- vísleg málefni; þar má m.a. nefna rit- gerðir um skáldin Sgurður Guðmund Magnús- Sigurmundsson son (Jón Trausta), Guðmund Friðjónsson á Sandi og Guðmund skólaskáld Guðmundsson. Þá eríbókinni athugasemd við bók- ina Smiður Andrésson eftir Benedikt Gíslason, grein um stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsen og athugasemd við ritdóm um bók höfundar, Spænsk-íslenska orðabók. Ennfrem- ur eru í bókinni eftirmæli um sautján samferðamenn höfundar. Bókinni lýkur með sögunni L. Arrabiata eftir Paul Heyse íþýðingu höfundar. Utgefandi er höfundur. Bókin er 155 síður, prentunnin í Prentsmiðju Suðurlands á Selfossi. BÆKUR Barnabækur SOSSA SÖNN HETJA eftir Magneu frá Kleifum. Kápumynd: Þóra Sigurðardóttir. Mál og menning, 1998 - 156 s. FJÓRÐA og síðasta bókin um Sossu er komin út. Nú er Sossa komin á táningsár og sögunni lýkur þegar Sossa siglir út úr litlu víkinni sinni í leit að nýrri framtíð. Hver bók er sjálfstæð frásögn úr lífi þess- arar litlu stúlku sem fædd er um aldamót norður á Ströndum í hópi sextán systkina. Þó verður ekki hjá því komist að vísað er í atburði úr öðrum bókum þar sem fjallað er um það sem snert hefur líf Sossu á áhrifamikinn hátt, bæði til góðs og ills. Hugsanlegt er að sá sem les þessa bók átti sig t.d ekki á árásinni sem Sossa varð fyrir sem barn og var nærri búin að eyðileggja fram- tíð hennar. En það ætti að hvetja lesanda til að kynna sér fyrri sög- urnar. Þar sem Sossa er nú fermd fer ekki hjá því að hún og systur henn- ar velti fyrir sér framtíðinni og þær eru sammála um að geta ekki hugs- að sér að halda áfram þessum skelfilega þrældómi sem bundinn er við sveitalíf á Islandi. Inn í um- ræðuefni sögunnar koma því þær leiðir sem ung kona getur farið í leit að betri heimi, allt frá því að vera vinnukona hjá kaupmanninum, geta unnið fyrir peningum með því að verka físk og selja, eða fara til Reykjavíkur, Kaupmannahafnar eða Ameríku. Á öilum þessum möguleikum er tekið í bókinni og Sossu standa þeir allir tii boða. Eitt er hún viss um, og það er að hún ætlar ekki að verða bóndakona og hlaða niður börnum. Hún er líka skelfílega hrædd við karlmenn og fínnst þeir ógeðslegir. Hún berst gegn ástinni vegna þessa niður- bælda ótta en tekst þó að sigrast á honum. Það sem gerir þessa sögu svo sérstaklega sterka er hvernig tekið er á miklum tilfinninga- málum. Fyrst sjáum við sorgina utanfrá, þegar Ásgerður kemur inn á heimilið. Pabbi Sossu tekur ekkjuna með tvö börn án með- gjalds þar sem hann sér aumur á henni en yfirvöld vilja sundra litlu fjölskyldunni eins og alsiða var á þessum tíma. í sam- tölum heyrir Sossa um þá miklu sorg sem konur verða að þola að verða skiidar frá börnum sínum eft- ir að þær eru orðnar ekkjur. Sossa verður sjálf fyrir svo mikilli sorg að hún kólnar öll upp og fínnst guð hafa brugðist sér. Frásögnin af því hvernig hún nær tökum á því er mjög falleg. Allir eiga einhverjar sárar minningar sem þeir mega ekki láta buga sig. Sossa er alltaf sjálfri sér sam- kvæm. Hún er sífeiit að glíma við gátur lífins, glímir við guð sinn sem hún skilur ekki nema í meðallagi og þær aðstæður sem hún er fædd til. Mest er glíma hennar við sjálfa sig og sínar eigin tilfinningar, við þessa stelpu sem er í raun tvískipt, sú leiðinlega sem gerir allt sem Sossa sjálf vill ekki gera og svo hin, sem er sú sem hún vill vera. Sossa er öðravísi en systur hennar, henni finnst hún vera ljót með sitt mikla rauða hár, og hún kvelst af minni- máttarkennd, t.d. gagnvart fína fólkinu sem tengist kaup- manninum. En höfund- ur sýnir kaupmanns- frúna sem eina bestu manneskju sem Sossa hefur kynnst og jafnvel kaupmaðurinn sem blóðmjólkar bændurna fær sína skýringu. Enginn er svo slæmur að ekki megi skýra hegðun hans á ein- hvem hátt. Sem fyrr era atburð- ir sögunnar nátengdir lífí þjóðarinnar svo að sögurnar um Sossu eru jafnframt sönn lýsing á þjóðfélag- inu, ekki eins og hún er borin fram af sagnfræðingum og hagfræðing- um, heldur snilldarfrásögn sem hef- ur litla stúlku sem sögumann. Þessar sögur af Sossu, ungu stúlkunni sem er sífellt að glíma við sjáifa sig, sínar langanir og óskir, eru meðal þess sem á eftir að standa óbrotgjarnt í bókmennta- sögu þjóðarinnar. Sögurnar eru skrifaðar af mikilli mannþekkingu, hvergi er ýkt né ofsagt, þær eru fyndnar og skemmtilegar og hitta beint í hjarta lesandans. I mínum huga væru þessar sögur ákaflega vel að íslensku bókmenntaverð- laununum komnar og ég skora á þá sem yfirleitt lesa ekki barnabækur að skoða sögurnar um Sossu. Sigrún Klara Hannesdóttir Tónlist tveggja alda TÖNLIST Geislaplötur EINARJÓHANNESSON OG PHILIP JENKINS Verk fyrir klarínettu og píanó: Carl Nielsen: Fantasistykke. Norbert Burgmiiller Duo op. 15. Robert Schumann: Fantasiestlicke op. 73. Jón Þórarinsson: Klarínettusónata. Þorkell Sigurbjörnsson: Rek; Fjögur íslensk þjóðlög. Hljóðfæraleikur: Einar Jóhannesson (klarínetta), Philip Jenkins (píanó). Utgáfa: Merlin MRFD 98686 1986/1998. Lengd: 57’02. Verð: 1.999. EFNISSKRÁ þessarar nýút- komnu geislaplötu nær yfir tónlist hartnær tveggja alda: frumróman- tíkin á fulltrúa sinn í tónskáldinu Burgmiiller (1810-1836). Tónlist Burgmúllers sver sig í ætt við tón- list manna eins og Webers, Mendelssohns og Schumanns sem dáði hið unga og skammlífa tón- skáld mjög. Burgmúller var undra- barn og var ákaflega starfsamur á skammri ævi sinni. Dúóið op. 15 er mikið virtúósastykki fyi'ir bæði hijóðfærin og er hin áheyrilegasta tónsmíð sem leikur í höndunum á þeim Einari Jóhannessyni og Philip Jenkins. Þótt hinn danski Carl Niel- sen hafi að mörgu leyti verið fram- sækið og frumlegt tónskáld er það ekki sú hlið hans sem við heyram þá félaga spila hér. Fantasistykke í g- moll er auðheyrilega æskuverk, lík- lega samið 1885. Þótt það beri ótví- ræð rómantísk einkenni er það greinilega samið undir áhrifum fyr- iiTnyndarinnar miklu, Mozarts, og Elísabet K. Jökulsdóttir Magnea frá Kleifum wmmmmr--------------------mtmmmmm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.