Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Taktu þátt í spennandi leik á mbl.is og þá getur þú átt von á að
vinna glæsilega Kodak DC 200 stafræna myndavél, Epson
litaprentara, Tal-12 Nokia 6110 GSM-síma eða MS Force Feedback
Stýripinna og Half-life tölvuleik frá BT, EOTS-skilaboðaskjóðu.
Auk þess fá 100 fyrstu sem svara rétt í leiknum miða fyrir tvo
á sérstaka tvöfalda forsýningu á Enemy of the State og A Bugs
Life 30. desember.
Um þessar mundir er spennumyndin Óvinur ríkisins, Enemy
of the State, frumsýnd. Myndin, sem skartar fjölda frægra
leikara s.s. Will Smith, Gene Hackman, Jon Voight og
Lisu Bonet, hefur hlotið góðar viðtökur vestanhafs.
Taktu þátt í skemmtilegum leik og hver veit
nema heppnin verði með þér!
Kodak
DC200 Stafræn myndavél
STYLUS
NOKIA
6110
■m
MS FORCE FEEDBACK
Stýripinni og tölvuleikur ársins!
SAMMÉ
vg'mbl.is
—ALCJyKF^ eiTTH\SA.Ð A/ÝT7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór
NÝSTÚDENTAR frá Fjölbraulaskólanum í Breiðholti setja upp hvíta
kolla við skólaslit á laugardag.
117 nemendur
brautskráðir frá FB
SKÓLASLIT Fjölbrautaskólans í
Breiðholti fóru fram laugardag-
inn 19. desember sl. og fengu 117
nemendur afhent lokaprófsskír-
teini, þar af luku 59 nemendur
stúdentsprófi. Þetta var í 45.
skipti sem nemendur eru braut-
skráðir frá þessum stærsta fram-
haldsskóla landsins, segir í
fréttatilkynningu. Við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti starfa
um 140 starfsmenn. 1.457 nem-
endur innrituðust í dagskólann í
haust og um 850 í kvöldskóla;
samtals 2307 nemendur.
Athöfnin fór fram í Fella- og
Hólakirkju og hófst með því að
Daníel Jónasson, kennari við
skólann, lék jólalög á orgel kirkj-
unnar. Aðstoðarskólameistari,
Stefán Benediktsson, flutti ávarp
og kór skólans söng undir stjórn
Emu Guðmundsdóttir.
Kristín Arnalds skólameistari
flutti yfirlitsræðu og gerði grein
fyrir starfi og prófum á
haustönn. I ræðu sinni talaði
skólameistari um sjálfstæðis-
baráttu íslendinga og gildi full-
veldis fyrir þjóðina. Sagði hún að
það væri athyglisvert að sjá
hvernig arfleifð okkar, tunga og
menning hefðu ávallt verið und-
irstaða og bakhjarl í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Loks brýndi
skólameistari fyrir nemendum að
allt skólanám væri starf og sagði
það hlutverk kennara og
sljórnenda að krefjast þess af
nemendum að þeir ræki skyldur
sínar við skólann og sjálfa sig í
námi, allri framkomu og Iján-
ingu.
Skólameistari afhenti þeim
nemendum sem skömðu fram úr
verðlaun, sem m.a. vom gefin af
Rotaryklúbbi Breiðholts og
Soroptimistaklúbbi Hóla og
Fella. Bestum árangri á
stúdentsprófí náði Sigurður
Björn Reynisson, rafvirkjabraut
og Iauk hann auk þess 230 ein-
ingum. Að lokum óskaði skóla-
meistari útskriftarnemum til
hamingju og alls velfarnaðar á
komandi árum og að cndingu
sungu allir viðstaddir Heims um
ból.
Athugasemd frá Lyfju
varðandi rautt ginseng
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Inga
Guðjónssyni, framkvæmdastjóra
Lyfju:
„Oðru sinni hefur Sigurður Þórð-
arson hjá Eðalvörum ehf. hafið
rógsherferð gegn rauðu ginsengi
frá Gintec og Lyfju.
Að beiðni Eðalvara fóru Samtök
verslunarinnar þess á leit við Sam-
keppnisstofnun að taka til athugun-
ar auglýsingar og kynningar Lyfju
á umræddu ginsengi. Að sögn sam-
takanna eru í erindi þeirra til Sam-
keppnisstofnunar settar fram full-
yrðingar sem eru í samræmi við
upplýsingar sem veittar voru af
Eðalvörum. Eftir á kom hins vegar
í ljós að Eðalvörur létu vera að
greina Samtökunum frá lykilupp-
lýsingum sem varða málið, svo sem
niðurstöðu og túlkun Hollustu-
verndar á mælingu varnarefna þar
sem magn ákveðinna varnarefna
reyndist langt undir hættumörkum
í rauðu ginsengi frá Gintec.
Samkvæmt mælingum Háskóla
íslands og Addipharma inniheldur
rautt ginseng frá Gintec 230-300%
meira af ginsenósíðum en rautt
eðalginseng frá Kóreu. I stað þess
að afhenda Samtökum verslunar-
innar ofangreindar upplýsingar
hefur Sigurður túlkað mælingarnar
á eigin forsendum þvert á túlkanir
viðkomandi vísindastofnana. I stað
þess að fjalla um það sem skiptir
máli, svo sem ginsenósíða sem eru
hin virku efni ginsengs, er athygl-
inni beint að léttvægari þáttum
þessa máls, það er hvort endar eða
meginhlutar (rótarbolir) róta séu
betra hráefni í vinnslu gin-
sengafurða. I því sambandi er at-
hyglisvert að benda á að í bæklingi
frá Eðalvörum sem var í dreifingu
hérlendis um árabil er sérstaklega
tekið fram að við tínslu ginsengrót-
arinnar skuli gæta sérstakrar
varúðar svo að hárfínir rótarend-
arnir skaðist ekki. Ástæða þess er
vitanlega sú að rótarendarnir inn-
halda meira magn af virkum gin-
senósíðum en rótarbolurinn.
Um áraraðir hafa Eðalvörur ver-
ið nánast einráðar í sölu á rauðu
ginsengi hérlendis. Það er því mjög
slæmt þegar brugðist er við sam-
keppni með þeim hætti sem hér
hefur verið gert. í stað þess að
kynna sína vöru á faglegan hátt er
gripið til þess að ófrægja vöru ann-
arra innflytjenda með öllum tiltæk-
um ráðum, Það er ljóst að markmið
Eðalvara er að koma í veg fyrir
samkeppni frá öðrum með óvönd-
uðum meðulum og öðlast einokun á
ný. Neytendur sjá hins vegar í
gegnum slíkt og því mun Eðalvör-
um ekki haldast uppi að beita þess-
um bolabrögðum í samfélagi þar
sem eðlileg samkeppni á að fá að
þrífast.
Hanaslagur á ritvellinum er ekki
vænlegur til árangurs í samkeppni
um hylli neytenda og því lýsi ég yf-
ir því hér og nú að Lyfja mun
hætta þátttöku í þeim slag og ein-
beita sér að heilbrigðri samkeppni
þar sem vörugæði og verð ráða úr-
slitum en ekki blekkingar og mold-
viðri rangtúlkana. Ég hvet Sigurð
Þórðarson hjá Eðalvörum til þess
að ganga á hólm við þá sem etja
kappi við hann á markaðnum með
þeim meðulum sem eru í takt við
nútíma markaðskerfi og viðskipta-
hætti og láta af að ófrægja aðra en
leyfa sinni vöru að tala máli sínu á
markaðnum."