Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 69

Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 69 FRÉTTIR HUGVEKJA Morgunblaoio/Arni bæberg FASTAGESTIR sem aðrir sundlaugargestir kunna vel að meta heitu pottana og nú hefur einum þeirra verið breytt í nuddpott. Nuddpottur við Laugardalslaug VEGNA margítrekaðra óska frá gestum Laugardalslaugar um nuddpott hefur einum heitum potti verið breytt í nuddpott. í pottinum eru 12 stillanlegir stútar í mismunandi hæð, til þess að gestir geti beint vatnsrennsl- inu að þeim stöðum sem þeir kjósa. Vatni og lofti er dælt í gegnum hringrásarkerfi og hreinsitæki sjá um að vatnið verði ætíð hreint, eins og ævin- lega í Laugardalslauginni, segir í fréttatilkynningu. Borið hefur á þeim misskiln- ingi hjá mönnum, að eftir því sem kraftur dælingar sé meiri, því betra sé nuddið. Þetta er ekki á rökum reist og meðalhófið best eins og oftast. Morgunblaðið/Jón Svavarsson FRÁ afliendingu styrksins f.v.: Guðrún Sóley Guðnadóttir, Helgi Harð- arson, Anikka Helgadóttir, Róbert de Bont og Ólöf de Bont. Styrkur til foreldra langveikra barna ÓLÖF og Róbert de Bont, eig- endur Fjölprents ehf., afhentu nýlega í fyrsta sinn árlegan styrk að upphæð 100.000 kr. til for- eldra Iangveikra barna. Þetta ár- ið er styrkurinn veittur foreldr- um langveikrar stúlku. Styrkurinn er í minningu dótt- ur þeirra hjóna, Selmu Rúnar, sem fæddist löngu fyrir tímann og fatlaðist af völdum heilablæð- ingar. Selma Rún lést eftir langvarandi veikindi í maí 1995, þriggja og hálfs árs gömul. Nú í desember kom út hjá Avon Books forlaginu í London bókin „You are mine Selma Rún' eftir móður hennar, Ólöfu de Bont Ólafs. Bókin fjallar um ást milli fatlaðs barns og foreldra hennar, um baráttuna í heimi fötlunar og veikinda. Bókin var áður gefin út á íslensku af höf- undi í desember 1995. LEIÐRÉTT Ekki mínútur heldur sekúndur í MORGUNBLAÐINU í gær segir að fyrstu dagana eftir vetrarsólsöð- ur lengi daginn um eina til tvær mínútur á dag. Þetta er ekki alls kostar rétt, þótt vitnað sé í upplýs- ingar úr Almanaki Háskóla Islands um það hvenær sól rísi og setjist vegna þess að þar eru tölur gefnar upp á heila minútu en ekki sekúnd- ur. í Reykjavík lengist sólargangur- inn aðeins um níu sekúndur fyrsta daginn eftir vetrarsólstöður, 27 sek- úndur annan daginn og 44 þann þriðja. Á Akureyri lengist dagurinn hins vegar um 12 sekúndur fyi'sta daginn eftir vetrarsólstöður, 37 sek- úndur þann næsta og 62 sekúndur þann þriðja. Þessar upplýsingar er að finna í greininni „Hve stórt er hænufetið?" sem birt er á heimasíðu Almanaks Háskólans, almanak.hi.is, og segh að tilefni greinarinnar sé sá þráláti misskilningur, sem orðið hafi vegna talnanna í sólargangstöflum almanaksins. Rangt heiti Rangt var farið með nafn á Sam- starfsnefnd um íslenska þjóðbúninga í blaðinu í gær og leiðréttist það hér með. Áramótaveisla til styrktar SKB ÁRAMÓTAVEISLA til styrktar krabbameinssjúkum börnum verður haldin í Háskólabíói miðvikudaginn 30. desember nk. Fram koma: Skítamórall, Sálin hans Jóns míns, Helgi Björnsson, Land og synir, Buttercup, Páll Ósk- ar & Casino, Radíusbræður, Tvíhöfði og Sveinn Waage. Styrktaraðilar tónleikanna eru Víf- ilfell, íslenska Útvarpsfélagið, DV og Háskólabíó. Miðasala er hafm á Vis- ir.is og hefst í Háskólabíói 29. desem- ber. Allir sem að þessu standa gefa vinnu, þannig að allur aðgangseyrir rennur óskertur til styrktar SKB. Miðaverð á áramótaveisluna er 1.500 kr. og hefst skemmtunin kl. 20. Ræða samfylk- ingarmál KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðubanda- lagsfélaganna í Reykjavík kemur saman til fundar mánudaginn 28. desember nk. í sal Trésmíðafélags Reykjavíkur á Suðurlandsbraut 30, 2. hæð, kl. 20. Til umræðu er staðan í samfylk- ingarmálum í Reykjavik og það sam- komulag sem viðræðunefnd flokk- anna í kjördæminu hefur komist að. Annríki eða undir- búningur í myrkrum Ijómar lífsins sól, segir Ólafur Skúlason, og sezt ekki aftur, þótt hátíðin sjálf sé liðin. ANNRÍKIÐ vex eftir því sem dögum fækkar þar til stóra stundin rennur upp. Það er í samræmi við þau lögmál, sem við þekkjum. Eigi mikið að gerast þykir okkur sjaldnast tími hrökkva til að sinna öllu. Bíði próflestur ungmenna fallast þeim títt hendur þegar búið er að stafla öll- um bókunum saman og þau gera sér grein fyrir því, hversu mikið verk bíður þeitTa við að tileinka sér efni ffá liðnum skóladög- um, svo að unnt sé að standa sig þokkalega eða jafnvel vel á prófum. Og þó vitum við um fólk, sem lætur ekki þessi lög- mál óðagotsins vegna þess sem bíður raska þannig ró sinni, að verr gangi en annars væri unnt. Ég þekki ungan menntaskóla- nemanda, sem tók prófun- um nýafstöðnu með mestu ró. Hún var ekki í frekari tímaskorti en venjulega og datt ekki annað í hug en mæta með fiðluna sína í tónlistarskólann og spila í kirkju á tónleikum. Og öll þessi ró og allt það annað, sem hún var kölluð til að sinna og gerði með gleði, kom ekki niður á einkunn- um. Þar var hver glæsital- an við hlið annarrar, svo að stolt fylgdi lestri hjá ætt- ingjum. Og hver var gald- urinn? Auðvitað góð greind, en fyrst og fremst góð skipulagning, áður en prófin bönkuðu. Hún las fyrir hvern dag og fyrir hvern tíma. Hún gerði ekki neinn greinarmun á því, hvort aðeins var verið að fara í venjubundinn tíma, eða hvort það var próf, sem gerði sérstakar kröf- ur. Og einmitt fyrir þær sakir, að tíminn var nýttur á hverjum degi en ekki að- eins horft á kröfutindana, varð ekki vart neins æðruleysis á próftíma hvað þá að óðagot spillti fyrir. Ég hef tekið dæmi af þvi, sem okkur er flestum kunnugt. Og ég bendi á muninn á þvi, að ætla ævin- lega að geyma allt þangað til seinna og hinu að taka hverju verki, þegar eftir er leitað, og reyna að leysa það með þeim hætti, að það skili sér vel. Og hef þá ekki í huga skólanám einvörðungu og þau próf, sem fylgja lestri, og eru þá þeim erfiðust, sem ætluðu sér að geyma allt þai- til síðai-. Ég er vit- anlega með þessu að höfða til þess, sem í upphafi stóð, að annríki ykist með fækkun daga og er þá auðvitað með jólin og lok aðventu í huga. Og ég spyr því, hvort um órjúfanlegt lögmál sé að ræða, eða hvort einnig megi finna tengsl við það, sem ég reifaði um próf og lestur, þá horft er til jólanna, já, sérstaklega vegna jóla og undirbúnings þeirra? Auð- vitað er meira að gera, þegar hátíð er undirbúin. Það segir sig sjálft, að það er ekki sama, hvort heimil- isfólk sest að kvöldverði á venju- legum degi, eða þá gestum er boðið og tilefni er slíkt, að því besta skal tjaldað. En ég hef engu að síður neitað að viðurkenna það, að svo margt þurfi að geyma til síðustu daga, að fylgi svefntruflun og jafn- vel taugaólga. Mæli þó ekki með því, sem kaupmenn tóku upp á í mikilli óþökk minni, að færa jóla- undirbúning fram fyrir upphaf að- ventu með jólaskreytingum og óhjákvæmilegum auglýsingum. Það þótti mér og þykir enn frekar til þess fallið að deyfa svo tilfinn- ingu fyrir því, að eitthvað stórt og mikið sé í nánd og geti þá komið í veg fyrir að þess sé notið sem skyldi, þegar hátíðin rennur upp. Hugsum í því sambandi til fólks- ins, sem var á ferð að fyrirmælum keisara langt í burtu. Það hélt frá gi-óðursælum hæðum, þar sem Nasaret stendur og býður vegfar- endum enn í dag að njóta þess besta, sem líta má í landinu helga. Og hver gleymir, sem nálgast brunninn - sem nú er byggt yfir - á þorpstorginu, þar sem sagan grein- ir, að hún hafi sinnt þeim störfum kvenna að ausa upp vatni í skjólu sína, sem var á leiðinni frá heima- slóð til miklu hrjóstugri svæða, þar sem stendur bærinn Betlehem. Vart hefur Maríu grunað og enn síður rætt við fylgdarmann sinn, sem gekk við hlið asnans, Jósef festai-mann hennar, að þessi för þeirra hefði þær afleiðingar, að heimur yrði aldrei samur eftii'. Fyrir því hafði hún þó loforð himna, að barnið sem hún bar undir brjósti væri svar við ákalli, bænum og vonum kynslóðanna. Og Jósef hafði líka fengið vitjan engils í draumi og nægði til staðfestingar þess, að María væri útvalin, og bai’nið sem hún var að því komin að fæða fengi það hlutverk, sem eng- um öðrum var ætlað. En eitt er að trúa slíkum opinberunum og vænta uppfyllingar þeirra, annað að ímynda sér umstangið, sem hvar- vetna í kristnum heimi fylgir því, að fæðingar bai-nsins er minnst, og þarf þá hver og einn að gera jafnvel meir en hann megnar, að því er virðist. __ Læðist þó sú spurning óhjá- kvæmilega í huga, hvort ekki hefði þurft meira en einn og einn engil til að sannfæra Maríu, sem þó þekkti stolt móðurinnar og þá líka tilvonandi móðm-, að ekki sé talað um Jósef, sem vafalaust hefur stig- ið býsna þungt til jarðar á leiðinni til Betlehem, um allt það, sem í dag fylgir þessari hátíð og tengist barninu, sem var að því komið að brosa mót veröld. Gætu þau hafa ímyndað sér pakkafjöld og bökun- arlykt, asa á verzlunarstöðum og umbyltingu fjölmiðlaefnis, að ekki sé talað um allan matinn, sem er talinn nauðsynlegur til þess að gera hátíð að veruleika allra til- finninga af svo ríkulegu tilefni? Það þarf reyndar ekki að orða spurninguna og jafnvel ekki að láta það eftir sér að láta hana líða í gegnum huga, svo augljóst er svarið. Og þó held ég, að hver og einn þurfi að láta hana vekja sig til vitundar um þann raunveruleika, sem má ekki vera langt undan, þótt stórt sé tilefni - eða einmitt þess vegna. Annríki fylgir því oft, þegar að stóru er hugað. En annríkið eitt tryggir varia þann árangur, sem eftir er leitað. Þar kemur annað til og kallast undirbúningur. Má vera, að lesendum þyki hugtök svo lík að óþarfi sé að greina í milli. En hugs- um aðeins um það samt. María hefur vafalaust und- irbúið sig fyrir feðalagið og vissi sig vera að fylgja fyrir- mælum himna, þótt keisari væri látinn framkvæma. Hún gerði hvað hún gat, en ekki var hægt fyrir þau að tryggja sér gistingu, þar sem þau voru ekki ein á ferð að fyrirmælum þjóðhöfð- ingja Rómaveldis. Én annan undirbúning hefur hún rækt og með góðum stuðningi Jósefs. Klæði hafa þau tekið fyi’ii’ barnið, teppi til að vefja það í og hvað það ann- að, sem hennar tími taldi nauðsynlegt að tengja fæð- ingu barns, svo að vel mætti fara. En ég veit, að undir- búningur hennar hefur ekki á nokkurn hátt líkst því annríki, sem setm- svip sinn á allt hjá okkur á þessum tíma. Hygg reyndar að heppilegra væri, að taka frekar mið af hægfara göngu asnans, sem bar móður frelsarans tilvon- andi, heldur en umferðar- truflunum, bílflauti og illu augnatilliti, sem sorglega víða er mest áberandi, þeg- ar fólk hættir sér að heim- an. Undirbúnings krefst þessi hátíð, eigi hún að rísa undir nafni. Annríki getur á stundum verið eðlilegt, en þó er það oftar komið til fyrir þær sakir, að þess hefur ekki verið gætt nógu tímanlega, sem krafist verður eða ti! er ætlast. Og ef við eigum að rísa undir nafni kristinn- ar þjóðar ber okkur frekar að taka tillit til þess friðar, sem við tengj- um himni, en æðibunugangsins, þar sem hver er í hættu með eigin tær. Og ég er sannfærður um það, að við viljum langflest - má ég jafnvel vera svo djarfur að stað- hæfa að við viljum öll - að ró í sálu myndi hagkvæma vöggu barnsins blíða og helgi leggi til klæðin, sem það er hjúpað í lífi okkar. Undirbúum jólin. Forðumst að kasta höndum til þess. En gætum þess þó fyrst og fremst að eiga heilög jól, er þau eru upp runnin, svo ekkert spilli. Og þegar undir- búningur er í samræmi við háar vonir fer ekki hjá því, að bros ýti ygglibrún brott og útrétt hönd rétti úr krepptum hnefa. Og séum við bænarinnar fólk, þá ber okkur að bera það fram, að allt okkar æði og öll okkar viðleitni á þessari hæstu hátíð beri vitni um lotningu í barnslegri aðdáun. Slíkt er mögulegt, þegar við viðurkennum, að við erum á flestum sviðum og þá sérstaklega frammi fyrir Guði algjörir þiggjendur og þá helst, er við þráum að dýrð himna skíni í lífi okkar. Keisari áleit sig sýna snilli í því að heimta talningu þegna. Það fölnar andspænis þeirri vissu trú- aðra, að hann var ekki annað en verkfæri í hendi Guðs, sem kaus að láta vonir og spádóma kynslóð- anna rætast, þegar barn var borið í Betlehem. Við tökum í móti því barni og sjáum þar frelsara okkar, þann sem gefur líf, sem dauðinn fær alls ekki slökkt. Að vera verk- færi kærleika og vonar, sem léð er Guði, er hvatning hvers manns á fæðingarhátíð Jesú Krists. Og sjá, þá víkur annríki fyi’ir undhbún- ingi, svo að í myrkrum ljómar lífs- ins sól og sest ekki aftur, þótt há- tíðin sjálf sé liðin. Gleðilegjól.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.