Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 70
70 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Ljóska
að ffier Sfy'áplabisó mtb
iðria -fjónz c/apcvo röri. rió/'g
íanqar (*'< -iil að b/ðja ytáh
v—\ a/sðhurcar ,—
Og p&sóaalt-ga. Langar m/t)
tfi að Uvðja konuna, rn/acc
op/nber/ega, a&otMruzraöU-
’ i'sí'Óustu
bes&ó VeÖÚr pa. t UcxUck
■frátbinQurer\ a.yn ■<■ <ZLL<r\'
ömurtegur I sarrjuð rrteo
7iUernig'?)t/clur\ honurru
hann starf/nu'?)
-FOR 5ALE -
JOE GARA6I0LA
AUT06RAPHED 6A5EBALL
MA«E ME
an offer.
Áfram nú, spurðu hann ...
Er þetta strætóstoppistöðin?
- Til sölu - hornabolti - Ég á bara 10 Áttu Bille
áritaður af Joe Garagiola krónur... fæ Jean King?
- Gerðu mér tilboð ég skipt?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Þakkarkvæði
Frá Rósu B. Blöndals:
Þeim er veislu gáfu góða
gefa vil ég þökk og hrós.
Ollum þeim er orð mér sendu
óska ég að skíni ljós.
Þegar sumars brosti blíða
blessuð komuð öll til mín.
Minna vina fylking fríða
fögur mér í huga skín.
Vináttan er vorsins ljómi,
vináttan er lífið manns,
jafnt í æsku og aldurdómi
er hún faðmur kærleikans.
Þakka fógru björtu blómin
blika þau í minni skær,
ilmi til mín öll þau stráðu
allra vina fjær og nær.
fögur þakka ykkur orðin.
Orð í íyrstu kveikti ljós,
án þess væri engin orðin
okkar jörð né líf né rós.
ykkar hrós af elsku gefið,
aðeins gott þið vilduð sjá,
mínar þakkir ekki efið,
er þið vikuð skuggum frá.
Flúra, lúra, lýra - fagurt,
lag mér Þorkell tónskáld gaf.
Tónskáld stórt og stórsöngvari,
strengjum hrynja létuð af.
Lesurum ég líka þakka
ljúfa rödd og fógur blóm,
er þið léðuð ljóðum mínum
líf í raddar unaðs hljóm.
Þakka ykkur gjafir góðar
gleði allar vöktu þær,
meira væri efni óðar,
en minn hugur bundið fær.
Jesús ykkur jólaljós
og jötuna sína færi,
þar sem ómar
englasöngurinn skæri.
RÓSA B. BLÖNDALS,
Grænumörk 1, Selfossi.
Vetrarfegurð
Frá Steingrími St.Th. Sigurðssyni:
KOMIÐ að jólum 1998. ísafjörður
skartar vetrarfegurð. Skötuveizlan
er haldin. Fáir gestir eru í bænum.
Hótelið á Isafirði hefur breytzt svo
um munar. Sá, sem þetta skrifar,
ætlaði ekki að þekkja innanhúss-
svip hússins eftir stórtækar breyt-
ingar og listræn umskipti. Erfitt
var að fá fullnaðarsvar við því,
hvaða manneskja hefði átt hlut að
máli í að gera þetta lífsnauðsynlega
hótel Isfirðinganna að töfrahöll, en
svo er nú komið. Satt að segja
finnst þeim, sem þetta skrifar, vet-
urinn klæða Vestfirði bezt og mest.
Þá koma allar andstæður betur í
ljós í þessu listaverki þess, sem öllu
ræður - Hans sem virðist hafa
ákveðið að sköpunaiverk hans nyti
sín best og fegurst á Vestfjörðum,
hvert sem augum er litið. Fyrir
tveimur árum rakst ég á útlending
á ísafirði, sem hefur víða farið um
veröldina. Hann sagði að Djúpið,
þetta endalausa Djúp, þetta sjávar-
seltuumhverfi, sem hefur sérstak-
an karakter, gæfi slíkt lífsmark að
hann væri ákveðinn í að koma á
hverju einasta ári sem eftir væri
ævinnar til að gista og vera um
kyrrt á ísafirði, miðpunkti Vest-
fjarðakjálkans. Og nú eru jólin að
ganga í garð. Það verður gaman að
njóta þeirra í litlu kapellunni hinn-
ar almennu heilögu kirkju sem er
snertispöl frá hinu alþekkta fi’ysti-
húsi ísfirðinga. Ekki er að efa, að
þar ríkir sálarfriður dýpri en víða
annars staðar en jafnframt þetta
orkustreymi - þetta gífurlega
orkustreymi, sem aldrei dvín þarna
fyrir vestan.
STEINGRÍMUR ST.TH.
SIGURÐSSON
listamaður.
Að gefa betri
framtíð
Frá Jóni Ögmundi Pormóðssyni:
ER ÞAÐ nú unnt, að gefa betri
framtíð? Er það ekki að bera í
bakkafullan jólagjafalækinn að
bæta enn einni gjafahugmyndinni
við? Þeir sem hafa sótt námskeið í
hraðlestrarskólanum mundu svara
fyrri spumingunni með jái og
þeirri síðari með neii. Með því að
sækja námskeið í skólanum um sex
vikna skeið, 1 1/2 tíma í viku, og
nota samtals um 50 tíma í verkið
getur byrjandi aukið lestrarhraða
sinn um helming. Hafi einhver efni
á að gefa hátt í 20 þúsund króna
gjöf þarf ekki að sjá eftir slíkri
fjárfestingu í framtíð barns síns
eða annars. Og skólastjórinn end-
urgreiðir gjöfina ef viðkomandi
tvöfaldaz- ekki hraðann! Svo viss er
hann um árangurinn, að fenginni
reynslu. Því fleiri Islendingar sem
taka framförum í þessu því betra
fyrir þjóðina, í námi og starfi hér
og einkum eriendis þar sem sam-
keppni er oft meiri. Og sextán ára
unglingur getur búist við að njóta
góðs af gjöfmni næstu 60-70 árin
samkvæmt almennum lífslíkum.
Hvað endast hinar gjafirnar lengi
þótt góðar séu?
JÓN ÖGMUNDUR ÞORMÓÐSSON,
Laugarásvegi 29, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Peir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.