Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 76
76 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
3
FÓLK í FRÉTTUM
Annasöm ]ól hjá Ómari Ragnarssyni
Einn með öllu
ALLIR landsmenn þekkja Ómar
Ragnarsson - fréttamanninn óða-
mála sem hendist um í loftköstum,
oftar en ekki á lítilli rellu, lætur sig
ekki muna um að brotlenda á Esj-
unni og flytur fréttir af eldgosum,
- helst áður en þau gerast.
Og það er engu líkara en blaða-
maður hafi hitt á eldgos þegar
fundum hans ber saman við frétta-
manninn, skemmtikraftinn og rit-
höfundinn. Ómar gefur nefnilega
út unglingabókina YJct eðlilegt fyr-
ir jólin og auk þess kemur út
safndiskurinn Þegar Ómar hafði
hár.
Furðuleg jól
„Þetta er ein af þessum tilviljun-
um,“ segir Ómar. „Eg samdi ung-
lingasögu sem átti að gefa út fyrir
síðustu jól en útgáfunni var frestað
um ár. Síðan kom upp úr dúmum
að ég á 40 ára skemmtikraftsaf-
mæli og var ákveðið að gefa út
geisladisk með úrvali laga frá férl-
inum. Menn lentu fljótlega í vand-
ræðum með að velja út og var
ákveðið að á safnplötunni yrðu ein-
ungis lög frá fyrstu tíu árum ferils-
ins, enda af nógu að taka.“
Ómar treður upp ásamt söng-
konunni Kristínu Ósk Kjartans-
dóttur í þætti á jóladagskvöld í
Sjónvarpinu í tilefni að því að þau
sungu saman inn á geisladisk. Og
sá diskur fylgir unglingabókinni
Ýkt eðlilegt.
Auk þess stendur til að gefa út
tónlistarmyndband með úrvali laga
úr þáttum Ómars. Þegar menn
fóru að leita kom nefnilega í ljós að
gerð höfðu venð 50 tónlistarmynd-
bönd við lög Ómars „svona óvart“
og flytjendur vom tónlistarmenn á
borð við Bubba Morthens, Kristján
Jóhannsson, Bjarna Arason, Sig-
ríði Beinteinsdóctur, Garðar
Cortes, Tjamarkvartettinn, Helgu
Möller og Björgvin Halldórsson.
„Þetta era ein furðulegustu jól
sem ég hef upplifað," segir Ómar.
„Reyndar er ekki allt upptalið, því
ég er einnig með söngleik í bígerð
sem hefði getað orðið fjórða verk-
efnið, en eitthvað varð undan að
láta.“
Unglingapæling á þúfubarði
Blaðamaður skilur ekkert í
þessari framkvæmdagleði og verð-
ur eins og lítið bam með stór augu
sem spyr í sífellu af hverju. Af
hverju fylgir geisladiskur ung-
lingabók? „Tónlist er svo sterkt afl
í nútímanum," svarar Ómar, „að
ekki sé talað um hjá unga fólkinu.
Bókinni lýkur á því að unga stúlk-
an Hulda Rós stendur á þúfubarði
og syngur unglingapælingu um til-
verana sem er ýkt eðlileg.“ Ómar
heldur áfram eftir stutta þögn:
„Vesenið sem ég hef líka lent í um
dagana er líka ýkt eðlilegt." Svo
tekur hann sín frægu bakföll af
hlátri.
Af hverju skrifaðirðu unglinga-
bók?
„Af því ég er orðinn afi; elsta
barnabarnið er komið yfir ferm-
ingu. Ég hugsaði með mér að nú
væri gaman fyrir afa gamla að
skrifa bók og reyna að keppa við
tölvurnar og myndböndin. Það
skilaði sér í spennu- og sakamála-
sögu fyrir unglinga. Geisladiskur-
inn er svona til að hrista upp í
stemmningunni og er hugsaður
þannig að hann opni og loki sög-
unni; maður hlusti á hann í upphafi
tO að fá tilfinningu fyrir söguefn-
inu og aftur í lokin þegar Hulda
Rós tekur lagið.“
Ýkt
eðlilegt
Af hverju heitir bókin Ykt eðli-
legt?
„Ég vildi nota orðfæri unglinga.
Ómar Þór, elsta barnabarnið, las
söguna í gegn og gaf mér nokkrar
ábendingar. Ég var með nokkrar
tillögur að nöfnum og þetta varð
ofan á. Bókin fjallar um unglinga
sem kryfja íslenskt samfélag og
spyrja: „Er það sem á að vera
normalt líf ýkt eðlilegt?“„
En aftur að geisladisknum Þeg-
ar Ómar hafði hár. „Lögin era tek-
in af gömlum vínylplötum, einkum
Hryggjarstykkinu. Þar flutti ég
tólf lög að viðstöddum áhorfend-
um, sem hafði aldrei verið gert áð-
ur. Það var líka fyrsta einskæra
gamanplatan. Einnig gi-ófum við
upp lög hjá Ríkisútvarpinu og fann
ég til dæmist framhald af laginu
ÓMAR Ragnarsson og Kristín árita bókina með disknum.
Morgunblaðið/Golli
KRISTÍN Ósk Kjartansdóttur
tekur lagið í Kringlunni.
Botníu sem hafði verið fyrir löngu
gleymt og er að koma í fyrsta
skipti út á geisladiski."
Að lokum, - af hverju er lagið
Sveitaball tvisvar á disknum?
„Ég framflutti það fyrir áhorf-
endur og er sú upptaka fremst á
plötunni. Svo er það líka síðast á
plötunni í flutningi KK-sextetts-
ins,“ svarar Ómar og heldur
áfram: „Þetta er lag seny ég hef
aldrei getað losnað við. Ég datt
einu sinni fram af háu leiksviði á
balli í miðjum flutningi, brákaði
sjöunda hryggjarlið og er með
klemmda afltaug eftir það. A
sveitaballi löngu síðar fór ég öfug-
an kollhnís þegar ég flutti lagið og
hnykkti á meiðslunum. Ef eitthvað
gerist í þriðja sinn þá er þessu lok-
ið,“ segir Ómar með áherslu.
Þetta var bara gott viðtal, segir
blaðamaður að lokum.
„Ykt eðlilegt," svarar Ómar.
Qj K J K-7ö(fiTnv7^^
f m. Var Lag
í — flve Maria ruve" af X-Maa 98) i.vfa
2 1 Never there Cake
3 5 Would You...? TouchSfio
4 l 8 És drukkna hér Botnleðja
5 4 Fly Away Lenny Kravrtz
B 11 Erase/Rewind The Cardigans
7 13 Malibu Hote
e 2 Turn the page Metafflca
9 3 The Everlasting Manic Street Preachers
| 10 16 Ahracadabra SugarRay
11 7 Remote control Seasde Boys
12 6 Pretty tly (tor a white guy) Oflsprhig
13 23 Cowboy '78 Wiseguys
14 10 Tropicalía Beck
15 - 12 dagar jóla (Heimilisofbeldi) SpB’ahræðiB’
16 9 Sehnsucht Rammsteín
17 - Praise You Fatboy SBm
18 22 Pusherman B8Í, Ben & Baggio
19 19 Got you (where 1 want you) TheRys
29 - One Creed
21 24 Brjótum það sem brotnar 200.000 ItlagitHtar
22 mm Private helicopter Harvay Oanger
23 26 Arpeggiator Ensímí
24 10 Come to me DMXKrew
25 12 Wildsurf Ash
28 30 Warning Freestyters
27 27 Spanish fly U2
28 35 NewSkin hicubus
29 14 God is a DJ (Meltdown mix) FaíUUess
80 17 Very important People Gus Gus
HRAFN með yngstu dóttur sinni Örk.
PÁLMI Gestsson og Unnur Steinsson fylgjast með af áhuga.
9\[ceturfiaíinn
Smiðjuvejji 14, ‘Kópavofli, sími 587 6080
Laugardagskvöld, annan í jólum,
leikur hin frábæra hljómsveit
Hjördísar Geirs
Opió frá kl. 22—3
Sunnudagskvöld 27. des. leikur
Hljómsveit Hjördísar Geirs gömlu-
og nýju dagnsana frá kl. 21—1.
Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla!
...........■■■-.-
Fjölmenni á
forsýningu
FJÖLMENNI var heima hjá
Hrafni Gunnlaugssyni kvik-
myndaleikstjóra í Laugarnesinu
þegar sjónvarpsmynd hans Þeg-
ar það gerist var forsýnd fyrir
aðstandendur myndarinnar og
vini og vandamenn. Myndin verð-
ur frumsýnd í Sjónvarpinu
sunnudaginn 27. desember, og er
hún byggð á smásögu eftir
Hrafn. Aðalleikarar myndarinn-
ar eru þau Unnur Steinsson og
Pálmi Gestsson og einnig fer son-
ur Unnar, Steinar Már Vilhjálms-
son, með stórt hlutverk. Hrafn
nýtur aðstoðar systur sinnar
Tinnu við leikstjórn myndarinnar
sem að mestu leyti var tekin upp
síðasta sumar.
Listrænar jólagjafir
gallerí
Listakot