Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR fslenska ríkið semur við Microsoft um að íslenska stýrikerfíð Windows 98 fyrir árslok Rfldð ræðst gegn ólög- legum hug- búnaði MICROSOFT-fyrirtækið hefur ákveðið að gera samkomulag við ís- lenska ríkið um að framleiða íslenska útgáfu af nýjasta stýrikerfí fyrirtæk- isins, Windows 98. Microsoft gerir ráð fyrir að um níu mánuði taki að þýða hugbúnaðinn á íslensku og mun menntamálaráðuneytið hafa faglegt eftirlit með þýðingunni. Mennta- málaráðherra kveðst telja að með samkomuiaginu sé staða íslenskrar tungu treyst í upplýsingasamfélag- inu. Hann vænti áframhaldandi sam- starfs við Microsoft. I samningi ríkisins og fyrirtækis- ins er kveðið á um að íslensk stjórn- völd beiti sér fyrir sérstöku og markvissu átaki til að uppræta þjófnað á hugbúnaði á íslenskum markaði. Skuldbinda stjómvöld sig til að útrýma ólögmætum hugbún- aði úr ríkisfyrirtækjum fyrir lok þessa árs. Þörf fyrir átak staðreynd „Ég hef rætt við Sigurð Þórðar- son ríkisendurskoðanda um að Rík- isendurskoðun kanni með skipuleg- um hætti hve mikið er um að ríkis- stofnanir noti ólögmætan hugbún- að. Telur hann stofnun sína vel í stakk búna til að sinna þessu verk- efni. Raunar hlýtur að koma mörg- um á óvart, að þörf sé á sérstöku átaki í þessu efni hjá ríkisstofnun- um. En það er engu að síður stað- reynd,“ sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra þegar samn- ingur ríkisins við Microsoft var kynntur í gær. Akveðið hefur verið að ráðgjafarnefnd forsætisráðu- neytisins um upplýsinga- og tölvu- mál hafi umsjón með þessu átaki gegn hugbúnaðarþjófnaði. „Islendingar eru aðilar að al- þjóðasamningum, sem vernda höf- undarrétt vegna hugbúnaðar. Verður leitað allra ráða til að fram- fylgja þessum samningum hér á landi. Þetta er ekki aðeins nauð- synlegt vegna þessa tímamóta- samnings við Microsoft heldur til að við stöndum við skuldbindingar okkar og fáum ekki illt orð á okkur fyrir ólögmæta meðferð og þjófnað á þessum verðmætum. Ég er auk þess sannfærður um að útgjöld vegna þessa verða þegar til lengd- ar lætur arðbær fjárfesting í öfl- ugri innlendri hugbúnaðargerð fyr- ir íslenskan og alþjóðlegan mark- að,“ sagði Björn. Hann segir eftir að koma í ljós hversu hár kostnaður íslenska ríkis- ins verði við að framfylgja sínum hluta samningsins og velti það alfar- ið á hversu útbreiddur ólögmætur hugbúnaður er í stofnunum hérlend- Morgunblaðið/Kristinn MATS Wennberg, umdæmisstjtiri Microsoft á Norðurlöndunum, og Björn Bjarnason menntamálaráðherra undirrituðu 1 gær samning um íslenskun hugbdnaðar fyrirtækisins. Með þeim á myndinni eru Pétur As- geirsson frá menntamálaráðuneytinu og Júlíus Sæberg Olafsson, forstjóri Ríkiskaupa. is. Þó séu vísbendingar um að meira sé um slíkan hugbúnað í notkun hér- lendis en í nágrannalöndum. „Það er óeðlilegt og ólöglegt að nota slíkan hugbúnað og ef hann finnst í ríkum mæli verðum við væntanlega að kaupa lögmætan hugbúnað á ís- lensku. Síðan er ég einnig sannfærð- ur um að menn fjárfesti almennt í þessum hugbúnaði eftir að búið er að íslenska hann. Kostnaður veltm- á þessu og á hvaða verði búnaðurinn verður seldur. Grunnþankinn í mál- inu öllu hefur verið sá að markaður- inn standi undir þessum kostnaði, því ef um niðurgreiðslur eða stuðn- ingsaðgerðir væri að ræða væru þær frekar tímabundnar en varanlegar. Við erum búnir að opna dymar og það er undir okkur komið hversu langt við fórum,“ segir hann. Mats Wennberg, umdæmisstjóri Microsoft á Norðurlöndum, sagði öra útbreiðslu PC-tölva hérlendis og tenginga við Netið vera athygl- isverða og því hefði fyrirtækinu þótt augljóst að ákvörðun um ís- lenskun stýrikerfisins væri skyn- samleg í viðskiptalegu tilliti. Microsoft mun annast og greiða fyrir þýðingu á Windows 98-hug- búnaðinum ásamt Internet Explor- er-vafranum og setja hann á mark- að í haust. Kostnaður við verkið er ekki ljós ’ að sögn Wennberg. Um er að ræða fyrsta hugbúnað frá Microsoft sem þýddur er á íslensku, en íslenska er 31. tungumálið sem Windows er þýtt á. Wennberg kvaðst gera ráð fyrir að fyrirtækið mun leita fyrir sér um frekara samstarf við ís- lenska aðila í kjölfar samkomulags- ins. Menntamálaráðuneytið hefur um nokkurra ára skeið haft að mark- miði að tölvuumhverfí það sem not- ast er við í íslensku menntakerfi sé á íslensku. I júní 1998 ritaði ráðu- neytið bréf til Microsoft í Dan- mörku þar sem þess var óskað að fulltrúar fyrirtækisins og ráðuneyt- isins funduðu um málið. í júlí barst menntamálaráðuneytinu erindi frá höfuðstöðvum Microsoft í Banda- ríkjunum, þar sem lýst var yfír ein- dregnum vilja fyrirtækisins til að koma til móts við óskir Islendinga að þessu leyti. í lok ágúst sl. hófust síðan samningaviðræður við fyrir- tækið, og hafa fulltrúar Ríkiskaupa tekið þátt í viðræðunum auk full- trúa ráðuneytisins. Iceland Seafood eykur sölu um 22% HEILDARSALA Iceland Seafood Ltd., dótturfélags Islenskra sjávaraf- urða í Bretlandi, jókst um 22% á síð- asta ári en verðmæti sölunnar nam þá um 5,3 milljörðum króna. Að sögn Jóns Þórs Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra félagsins, er um að ræða aukningu á sölu á flestum teg- undum. Hann segir félagið hafa náð góðri markaðsstöðu í Bretlandi sem sjáist best á því að félagið auki sölu sína á meðan neysla bolfísks hafí dregist saman. Rækja er um helming- ur af sölu skrifstofunnar og segir Jón að sala á pakkaðri rækju inn í verslun- arkeðjur í Bretlandi hafí gengið vel á síðasta ári. Hann segist bjartsýnn á að félagið haldi markaðsstöðu sinni þó útlit sé fyrir minna framboð af rækju frá Islandi á þessu ári. ■ 22% aukning/22 Morgunblaðið/Golli Eldur í ruslageymslu Stjórn íbúðalánasjóðs á fyrsta fundi í gær 870 viðbótarlán samþykkt STJÓRN hins nýstofnaða íbúða- lánasjóðs samþykkti að veita sveit- arfélögum heimildir til veitingar 870 viðbótarlána á fyrsta fundi sínum í gær. Akvörðun um vexti viðbótarlána var einnig tekin á fundinum en að sögn Gunnars S. Björnssonar, for- manns sjóðsstjórnarinnar, ber að leita samþykkis Seðlabanka Islands fyrir tillögum stjói’narinnar og verða þær ekki gerðar opinberar fyrr en að fenginni umsögn Seðla- bankans. Gunnar vildi ekki heldur upplýsa hve mörg viðbótarlán hvert sveitar- félag hefði fengið samþykkt á fund- inum. Það verður gefíð upp á fóstu- dag eða mánudag, eftir að viðkom- andhini sveitarfélögum hefur verið kynnt niðurstaðan. Fimmtán sveit- arfélög stóðu að umsóknunum 940 og sagði Gunnar að öll hefðu fengið einhver lán samþykkt. ELDUR kom upp í öskutunnu í ruslageymslu við Hallveigarstaði í Reykjavík á fjórða tímanum í gær. Skamma stund tók að slökkva eldinn og ekki er talið að skemmdir hafi verið miklar. Eldsupptök eru ókunn en grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Um 200 aldraðir bíða hjúkr- unarrýmis 235 aldraðir bíða eftir dvalarrými í Reykjavík og 203 aldraðir bíða eftir að komast í hjúkrunarrými. Biðtím- inn getur verið allt að tvö ár. Astand- ið er verst á höfuðborgarsvæðinu en skárra úti á landi. Heilbrigðisráðuneytið og Reykja- víkurborg hafa unnið saman að ft-amtíðarskipulagi þar sem gengið er út frá því að innan tveggja ára verði staðan sú að þeir sem eru í brýnni þörf fái hjúkrunarvistun inn- an þriggja mánaða. í þessu skyni verður komið upp 60 nýjum hjúkr- unarrýmum á þessu ári, 30 voru tekin í notkun í desember sl. og ráð- gert er að bjóða í vor út rekstur 60 manna hjúkrunarheimilis í Reykja- vík sem taki til starfa snemma á næsta ári. ■ Bið/36 Sérblöð í dag ItSM VlÐSIflPn ATVINNULÍF KAFFI Maður ársins Kennir fólki að drekka/B2 SAMRUNI Síma- risi Telia og Telenor/B2 Skípu- lagsdagar í IKEA Blaðinu í dag fylgir auglýsinga- blað frá IKEA. Blað- inu er dreift á höfuð- borgarsvæð- inu og á Akureyri. Nýir útlendingar til ÍA og Þórs í körfuknattleik / C1 Afturelding og Stjarnan halda sínu striki / C2 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.