Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR GLEÐILEIKAR TOJVLIST I ðnú KAMMERTÓNLEIKAR Þóra Einarsdóttir sópran, Hallfríður Ólafsdóttir flauta, Eydís Franzdóttir óbó, Árraann Helgason klarinetta, Anna Sigurbjörnsdóttir horn, Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagott, Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó, Bryn- hildur Ásgeirsdóttir pianó, Unnur Vilhelmsdóttir pianó og Sólveig Anna Jónsdóttir pianó. Tónlist eftir Franc- is Poulenc. Þriðjudagskvöld kl. 20.30. EKKERT lát er á hátíðahöldum í tónlistinni; þriðju tónleikar Pou- lenc-hátíðar, þar sem aldarafmælis tónskáldsins er minnst, voru haldn- ir í Iðnó í fyrrakvöld: Verkin sem leikin voru, Sónata fyrir óbó og pí- anó, Sónata fyrir fjórhentan leik á píanó, Tríó fyrir óbó, fagott og pí- anó, sönglagaflokkurinn Fiangailles pour rire og Sextett fyrir píanó, flautu, óbó, klarinettu, horn og fagott. Það skyggði á flutning Sónötu fyrir óbó og píanó sem þær Eydís Franzdóttir og Brynhildur Asgeirs- dóttir léku, hvað hljóðfærin voru illa samstillt í upphafí; óbóið nálægt kvarttóni of hátt. Þessi ómstríða skar enn meir í eyru fyrir það hvað verkið er í eðli sínu ljúft og leikandi. Sónatan var samin 1962 og helguð minningu Prokofíjevs. Fyrsti þátt- urinn er Elegía, eða hannljóð, sem nær þó aldrei að lýsa djúpri sorg, tilfinningin er miklu nær angur- værð og nostalgískum trega. Loka- þátturinn, Déploration, er harm- rænni og heillandi fagur. Það er styrkur Poulenc-hátíðar- innar hvað margir góðir tónlistar- menn sem tiltölulega sjaldan heyr- ist í, taka þátt í henni. Þetta á ekki síst við um alla píanóleikarana; þeir eru að minnsta kosti átta. Þær Brynhildur Ásgeirsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir léku fjórhent Sónötu frá 1918. Verkið er í þremur þáttum byggt á andstæðum í hraða, styrk og hrynjandi. Upphafíð er grípandi rytmískt og léku þær Brynhildur og Sólveig Anna mjög vel og dýnamískt. í miðkaflanum dró Sólveig Anna fallega fram lýriska laglínu bassans undir brotn- um hljómum í efri röddum og undir- strikaði þar andstæðuna við fjörið og súrrandi rytma í upphafi og lok- um verksins. Tríó fyiár óbó, fagott og píanó er eitt skemmtilegasta verk Poulencs. Hér kom Unnur Vilhelmsdóttir pí- anóleikari til liðs við þær Eydísi og Kristínu Mjöll fagottleikara. Enn byggir Poulenc á þrískiptu formi og andstæðum í hraða, og hver kafli fyrir sig er ennfremur brotinn upp í andstæðar einingar í hraða, styrk og hrynjandi. Verkið var vel leikið og umræddar formandstæður skarpar og skýrt mótaðar; snerpa og kraftur í rytmísku köflunum og syngjandi ljóðræna í þeim hægu. Pí- anóleikur Unnar í miðþætti verks- ins var ástríðufullur og sérstaklega fallegur. Þóra Einarsdóttir söng sex lög við ljóð eftir Louise de Vilmorin í lagaflokknum Fiangailles pour rire eða Spaugilegri trúlofun, eins og hann heitir í þýðingu Reynis Axels- sonar. Með henni lék Helga Bryndís Magnúsdóttir á píanó. Betri söngv- arar en Þóra eru vandfundnir; þeg- ar hún syngur stafar frá henni hlýju og útgeislun sem alltof fáir söngvar- ar hafa til að bera. Hún syngur ekki bara fyrir fólk, hún syngur við það og inní það, sest þar að í sálinni, meðan maður nýtur þessa mús- íkalska augnabliks. Og ekki er Helga Bryndís minni músíkant; ætti að spila miklu oftar hér í höfuðborg- inni. Samspil þeirra var nákvæmt og fallegt, og gerði augnablikið að mikilli upplifun. Ljóðið Mon cada- vre est doux var gríðarlega fallega flutt; minning manns á líkbörunum um sjálfan sig, mettuð hrollvekjandi og kaldri dulúð dauðans. Lokaverkið var sextett fyrir flautu, óbó, klarinettu, fagott, horn og píanó. Hér er Poulenc enn sjálf- um sér líkur í iðandi lífsgleði og fjöri, sem teflt er gegn syngjandi sætleika ljúfsárra laglína. Hópurinn sem hér lék, Hallfríður, Eydís, Ár- mann, Kristín Mjöll, Anna og Helga Bi-yndís sýndi af sér fína samspils- leikni og mjög músíkalskan leik. Nokkur lítil sóló voru fallega spiluð; þar má nefna inngang Kristínar Mjallar á fagottið og svo Helgu Bryndísar á píanóið að hæga kafla fyrsta þáttarins. Eydís og Armann fengu svo að njóta sín á óbóið og klarinettuna í upphafi annars þátt- arins í unaðslegum melódíum Pou- lencs. Heildarsvipurinn á flutningi þessa verks var mjög góður, og vís- bending um að þessi kammerhópur eigi eftir að gera enn betri hluti með enn meira samspili og rejmslu. Pou- lenc-hátíðin er hin hollasta lýsispilla í skammdeginu; sannkallaðir gleði- leikar. Bergþóra Jónsdóttir Nýtt Netgallerí NÝLEGA var opnað á Netinu listgallerí með nútímalist sem nefnist ArtNetGallery. Stofn- endur eru Ýrr Jónasdóttir list- fræðingur og Sæmundur Guð- mundsson yfirlæknir, bæði bú- sett á Skáni í Svíþjóð. Eins og stendur eru verk eftir níu listamenn til sýnis og sölu. Frá Islandi eru verk eftir Gunnar Öm, Tryggva Ólafsson og Steinunni Þórarinsdóttur, sem jafnframt er listamaður mánaðarins. ArtNetGallery kynnir einnig verk eftir Karel Appel, Elfí Chester, Corneille, Bo Hultén, Matta og Theo Tobiasse. Slóðin er http://www.artnet- galleiy.com. AUGLÝSINGAOEILO Simi: 569 1111, Bréfsími: 569 1110 Netfang: augl@mbl.is mbl.is __/\LLTa/= e/TTH\#\£> tJÝTT W ■ óskast! Er góð hugmynd í skúffunni þinni? N^«tTöpun99 f SAMKEPPNI UM VIÐSKIPTAÁÆTLANIR 1.000.000 kr. Fyrstu verðlaun eru 1 milljón króna ásamt leiðsögn sérfræðinga KPMG og Viðskiptaháskólans í eitt ár. Önnur verðlaun eru 500 þúsund krónur og þriðju til sjöundu verðlaun eru 100 þúsund krónur. Nýttu einstakt tækifæri - þér býðst án endurgjalds: ♦ vandað leiðbeiningarhefti ásamt tölvudisklingi ♦ síma- og tölvupóstþjónusta ♦ spjallfundir ♦ þrjú námskeið í Viðskiptaháskólanum: Virkjun hugvits - miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17.15-20.00 Gerð viðskiptaáætlana - mánudaginn 15. febrúar kl. 17.15-20.00 þriðja námskeiðið verður sniðið að óskum þátttakenda Vertu með-komdu hugmyndinni úr skúffunni í framkvæmd! Fyllsta trúnaðar verður gætt í meðferð gagna. Hafðu samband í síma 510 1800, símbréf 510 1809 eða netfang metta@nsa.is og pantaðu gögn. Skilafrestur er til 25. mars nk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.