Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞESSA mynd tók Ólafur K. Magnússon af veggskreytingu Kjarvals 1977 áður en liún hvarf undir
veggklæðningu iðnaðannanns á nýjan leik.
Veggskreyting Kjarvals
aftur fram í dagsljósið
VEGGSKREYTING eftir Kjarval
er undir veggklæðningu á gafli
hússins, sem stendur austan Isa-
foldarhússins við Austurstræti 8,
sem nú verður flutt í Aðalstræti.
Þorsteinn Bergsson, fram-
kvæmdastjóri Minjavemdar, sem
annast flutninginn fyrir Reykja-
víkurborg, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að tengi-
byggingin milli húsanna yrði rif-
in og þá yrði kannað, hvort og þá
með hvaða hætti Kjarvalsverkið
gæti geymzt. Spurningin væri
hvort Kjarval hefði málað á
vegginn sjálfan eða einhveijar
plötur, sem þá væri hægt að taka
af.
Morgunblaðið sagði frá þessari
skreytingu Kjarvals 15. febrúar
1977 með fyrirsögninni: „Ókunn-
ur „Kjarval" undir veggklæðn-
ingu“.
„Verið er að gera breytingar á
Isafoldarhúsunum í Austurstræti
og er fyrirhugað að bókaverzlun
ísafoldar flytji í húsnæði það,
sem verzlunin Ríma var áður í.
Er það eins konar tengibygging
mjlli ísafoldarhússins og húss
SÍS, sem stendur næst fyrir aust-
an. Þegar veggklæðning var rifin
niður af gafli SÍS-hússins kom í
Ijós stórt málverk, sem málað
hefur verið á gafi SÍS-hússins, og
segja listfróðir menn að þar sé
um að ræða ósvikinn Kjarval.
Aðeins hluti þessa listaverks er
enn óskemmdur. Upphaflega hef-
ur þessi tengibygging verið með
risi, en siðan hefur nýtt þak verið
sett á hana. Við þessa breytingu
á þaki hússins hefur allur efri
hluti listaverksins orðið utan
hússins og er hann mjög svo
veðraður orðinn. Hafi menn jafn-
vel ekki tekið eftir listaverkinu
eða þeim hluta þess, sem er upp
fyrir núverandi þak, en þegar
grannt er skoðað og hinn heillegi
hluti er þekktur má greinilega
sjá útlínur efri hluta verksins.
Þegar listaverkið hefur verið
málað hefur það náð upp í mæni
hússins, sem áður var með lágu
risi eins og áður er getið. Ekki er
fyllilega ljóst, hve myndin er
gömul, en gizkað hefur verið á
að hún hafí verið máluð einhvern
túna um 1940. í gær var unnið að
því að klæða vegginn að nýju og
var því myndin að hverfa aftur
svo sem hún hefur geymzt til
þessa dags.
Litirnir í myndinni eru svart
og hvítt. Niður undan þakinu sést
á fætur kvenna, sem standa á
blómum skrýddum grunni. Er sú
kona, sem greinilegast sést, á
köflóttum kjól eða pilsi.
Ef einhveijir kynnu að kunna
sögu þessa listaverks væri Morg-
unblaðið þakklátt, létu þeir blað-
ið heyra.“
Greiddi fyrir matinn
með málverki
Daginn eftir segir í Morgun-
blaðinu: „Nokkrir hafa haft sam-
band við Morgunblaðið út af frétt
blaðsins í gær um veggskreyt-
ingu sem kom í ljós í húsum Isa-
foldar í Austurstræti. Eins og
segir í fréttinni var verið að
breyta til þar og kom þá fram
undan veggklæðningu skreyting,
sem talin er vera eftir Kjarval. I
viðtali við Mbl. í gær staðfesti
Axel Magnússon, að þetta væri
eftir Kjarval, en bróðir hans,
Einar Karl Magnússon, rak
þarna kaffihús, Café Royal, um
nokkurra ára skeið, kringum
1934.
- Það var bróðir minn, Einar
Karl Magnússon, sem rak þarna
um tíma vetiingahús undir nafn-
inu Café Royal og er þessi mynd
máluð á vegg næsta húss. Þetta
er í liúsinu nr. 10 og þar hafði
bróðir minn breytt og látið gera
eins konar innri veitingastofu,
svipaða því sem nú er í Hress-
ingaskálanum.
- Kjarval var góður kunningi
bróður míns, og hann kom þarna
oft til að borða og fá sér kaffi-
sopa, enda var vinnustofa hans
þarna í næsta húsi, uppi á loftinu
nr. 14. Kjarval bauðst til að launa
bróður mínum greiðan á þennan
hátt. Einar Karl var búinn að
reka þennan veitingastað í um
tvö ár þegar liann veiktist og sá
ég uin reksturinn á meðan, en
hann sá sér ekki fært að taka aft-
ur við honum og var hún ekki
starfrækt nema stuttan tíma eftir
þetta, en það var sem sagt í
kringum 1934-35 sem Kjarval
málaði þessar skreytingar.
- Þarna unnu einar sex stúlk-
ur, þijár á hvorri vakt, og var
þetta eins konar „konditorí", sem
kallað er, og var Kjarval þarna
fastagestur ásamt fleirum, t.d.
man ég eftir Indriða Einarssyni,
sem kom þarna alltaf í kaffí, og
hann tók alltaf einhvern með sér.
Axel sagði einnig um samskipti
bróður síns og Kjarvals að þar
sem þeir hefðu nú verið góðir
vinir hefði ekki verið hirt um að
skrifa niður neitt af viðskiptum
þeirra og því hafi það kannski
verið meðal annars þess vegna
að Kjarval greiddi fyrir sig á
þennan hátt.
- Það var frekar aurat líf hjá
Kjarval á þessum árum, sagði
Axel, og ég tók eftir því að þegar
hann seldi mynd þá held ég að
hann hafi næstum því gefíð þær
- yfirleitt að minnsta kosti - en
þegar hann átti peninga gaf
hann oft frá sér eða lánaði því
hann þekkti alltaf einhverja sem
voru enn verr staddir en hann.
- Því má líka bæta við að hann
var oft að yrkja, kom þá stundum
í kaffi og las upp fyrir stúlkurn-
ar, en það voru oftast þær sem
afgreiddu hann, ég var aðeins
þarna til að líta eftir í veikinda-
forföllum bróður míns, sagði Ax-
el Magnússon að lokum.“
Samið um svæðaskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið
Samræmd
stefna í þróun
byggðar og
landnotkun
SAMNINGUR um skipulagsráð-
gjöf vegna svæðaskipulags fyrir
höfuðborgarsvæðið hefur verið
undirritaður. Skipulagsráðgjafar
munu annast undirbúning og til-
lögugerð að svæðaskipulaginu með
það að markmiði að samræma
stefnu sveitarstjórna um þróun
byggðar og landnotkun á svæðum.
Með þessu samstarfi sveitarfé-
laganna er náð þeim áfanga að
hafin er gerð svæðaskipulags fyrir
allt höfuðborgarsvæðið en þörf
fyrir það hefur verið mjög brýn,
segir í frétt frá undirrituninni.
Samvinnunefnd skipuð tveimur
fulltrúum frá hverju sveitarfélagi
mun bera ábyrgð á framkvæmd-
inni og er markmiðið að samræma
stefnu sveitarstjórna um þróun
byggðar og landnotkun á svæðinu.
Aðilar samningsins eru annars
vegar samvinnunefndin um svæða-
skipulag, fyrir hönd sveitarfélaga á
svæðinu og hins vegar starfshópur
ráðgjafa sem eru Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen hf., Vinnu-
stofa arkitekta ehf., Anders Nyvig
A/S, Danmörku og Skaarup og
Jesspersen, Danmörku. Ráðgjafa-
hópurinn var valinn að undan-
gengnu forvali á öllu evrópska
efnahagssvæðinu og útboði meðal
þriggja hæfustu ráðgjafahópanna.
Þeir voru allir skipaðir bæði ís-
lenskum og erlendum ráðgjöfum.
Við mat á bjóðendum gilti hæfni
þeirra 70% og verðtilboð 30%.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STEFÁN Hermannsson borgarverkfræðingur, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri, Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, voru við
undirritun samnings um skipulagsráögjöf vegna svæðaskipulags fyr-
ir höfuðborgarsvæðið.
Allt svæðið
Fram kemur að með þessu sam-
starfi sveitarfélaganna er þeim
áfanga náð að hafin er gerð svæða-
skipulags fyrir allt höfuðborgar-
svæðið. Byggðin á höfuðborgar-
svæðinu var áður aðgreind eftir
sveitarfélögum en er nú víða sam-
vaxin. Vöxtur byggðarinnar hefur
verið mjög ör undanfarin ár og
íbúafjölgun mikil. Með svæða-
skipulagi er ætlunun að taka heil-
rænt á skipulagi meginsamgöngu-
kerfis, landnotkunar, umhverfis og
ýmissa samfélagslegra og hag-
rænna þátta fyrir sveitarfélögin
átta sem eru á höfuðborgarsvæð-
inu.
Hótunarbréf
um líflát
Hafnar-
fjarðar-
lögreglan
tekur við
rannsókn
RANNSÓKNARDEILD lög-
reglunnar í Hafnarfirði hefur
tekið við rannsókn á líflátshót-
unarbréfi, sem Pétri Þór Gunn-
arssyni, eiganda Gallerís Borg-
ar og sakborningi í fölsunarmáli
því, sem rekið er fyrir Héraðs-
dómi, barst á mánudag. Tækni-
rannsóknarstofa ríkislögreglu-
stjóra hóf rannsókn málsins, en
framhald hennar verður í hönd-
um lögreglunnar í Hafnarfirði.
Bréfritari kallar sig „Kjar-
val“ og í bréfinu er því hótað
berum orðum að viðtakandinn
verði „drepinn og settur í salt.“
I 233. grein almennra hegn-
ingarlaga frá 1940 segir að
hver, sem hefur í frammi hótun
um að fremja refsiverðan
verknað, og hótunin er fallin til
þess að vekja hjá öðrum manni
ótta um líf, heilbrigði eða vel-
ferð sína eða annarra, þá varðar
það sektum, varðhaldi eða fang-
elsi allt að 2 árum.
Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði segir að rannsókn máls-
ins muni fara í hefðbundinn far-
veg.
Engin ný spor
eftir Tínu
LEIT stendur enn áfram að tík-
inni Tínu, sem sagt var frá í
Morgunblaðinu í gær. Kristín
Erla Karlsdóttir, sem fóstrar
Tínu, sagði að greinilegt væri
að tíkin hefði látið sig hverfa í
nokkra daga og engin ný spor
hefðu sést í snjónum í gær. Ket-
ið, sem sett var í minka- og
kattagildrurnar í Reykjalund-
arskógi var enn á sínum stað og
var því ljóst að ekki einu sinni
aðrar skepnur höfðu látið freist-
ast. Við leitina verður samt að
sýna staka þolinmæði og láta
ekki hugfallast þótt Tína litla
hafi ekki bitið á agnið í fyrstu
atrennu. „Búrin verða að verða
hluti af umhvei-finu fyrir öll dýr
áður en þau byrja að treysta
þeim,“ sagði Kristín Erla.
Tína, sem hefur verið týnd
síðan 5. janúar hefur gert sér að
minnsta kosti þrjú bæli og hef-
ur aðgang að drykkjarvatni og
fæði úr safnhaugum úr hús-
garði svo allt bendir til að hún
sé lifandi.
Selurinn
á batavegi
HRINGANÓRINN, sem
gekkst undir aðgerð í Húsdýra-
garðinum í gær, þar sem hleypt
var út um hálfum lítra af vilsu
úr slæmu kýli á dýrinu, líður nú
mun betur og hefur það gott, að
sögn Margrétar Daggar Hall-
dórsdóttur rekstrarstjóra Hús-
dýragarðsins. Katrín Harðar-
dóttir dýralæknir kemur að
skoða selinn í dag, en drenið
sem sett var í kýlið til að hleypa
frekari vilsu út verður hugsan-
lega fjarlægt á laugardaginn og
þá verður hægt að sauma sárið
saman. Selurinn smávaxni, sem
er brimill, er ekki til sýnis þar
sem hann er í aðhlynningu og
hefur ekki verið ákveðið
hvenær eða hvort almenningi
gefst kostur á að sjá hann.