Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 27
LISTIR
Keisari ein-
leikskon-
sertanna
JEFFREY Siegel á æfingu með Sinfóníuhljómsveitinni.
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í kvöld hefjast kl.
20 og er efnisskráin helguð Lud-
wig van Beethoven. Einleikari
með hljómsveitinni er píanóleik-
arinn Jeffrey Siegel og hljóm-
sveitarstjóri er Rico Saccani.
Fluttur verður Leonora-forleikur-
inn nr. 3, Píanókonsert nr. 5 og
Sinfónía nr. 4.
Ricco Saccani tók við starfi að-
alhljómsveitarstjóra SÍ í upphafi
þessa starfsárs og hefur þegar
stjórnað fjórum tónleikum hér
sem slíkur. Auk starfa sinna hjá
SÍ er hann aðalhljómsveitarstjóri
Fílharmoníusveitarinnar í Búda-
pest, aðalgestastjórnandi Ung-
versku ríkisóperunnar auk þess
sem hann kemur fram sem gesta-
stjórnandi bæði austan hafs og
vestan. Næstu tónleikar Ricos
Saccani hér á landi eru í mars en
þá stjórnar hann tvennum tón-
leikum, þeim fyrri 3. mars og hinn
6. mars mun hann stjórna upp-
færslu á óperunni Turandot eftir
Giacomo Puccini í Laugardalshöll.
Bandaríski píanóleikarinn Jef-
frey Siegel nam píanóleik við
Julliard-tónlistarháskólann í New
York og hjá Ilona Kabos í
London. Hann hefur komið fram
sem einleikari með fremstu
hljómsveitum Bandaríkjanna og í
Evrópu undir stjórn hljómsveitar-
stjóra á borð við Abbado, Boulez
Metha, Slatkin o.fl. Jeffrey Siegel
ver stórum hluta starfs síns sem
listrænn stjórnandi Mainly Moz-
art-listahátíðarinnar í Phoenix í
Ai'izona. Siegel gerir mikið af því
að kynna börnum og unglingum
tónlist á sérstökum tónleikum.
Föstudagsmorguninn 22. janúar
mun hann koma fram á tónleikum
SI fyrir framhaldsskóla en þá
leikur hann fyrir og spjallar við
nemendur Menntaskólans í
Reykjavík.
Efnisskráin
Píanókonsert nr. 5, Keisara-
konsertinn, eins og hann oft er
nefndur, var saminn árið 1809.
Konsertinn var frumfluttur í
Leipzig árið 1811 þar sem honum
var forkunnarvel tekið og var
verkinu lýst sem frumlegasta,
skáldlegasta, áhrifamesta og erf-
iðasta píanókonsert sem skrifaður
hefur verið. Nokkrum mánuðum
síðar var konsertinn fluttur í Vín-
arborg af nemanda Beethovens,
Carl Czeny. Þar hlaut hann dauf-
ar undirtekir. Engu að síður er
sögð sú saga að þessa tónleika
sótti ungur liðsforingi, franskur
að þjóðerni, sem hreifst svo af
verkinu að hann lét þau orð falla
að hér væri fæddur „keisari ein-
leikskonsertanna". Hvort þetta er
upphafið af nafngiftinni er hins
vegar ekki vitað.
Lokaverk tónleikanna er 4. sin-
fónía Beethovens, en hún var
samin fyrir einn af velgjörðar-
mönnum Beethovens, Oppersdorf
greifa. Kvittun fyrir launum tón-
skáldsins, 500 flórínum, er dag-
sett 13. febrúar 1807, en sinfónían
var frumflutt í Vín í mars árið
1807.
AFSLATTUR
farnakuldagalli rauður
Barnalambhúsetta
Ungbarnadress
Dömuhettubolur
Herrapeysa
Drykkjarkanna
Verð áður
989 kr. 4 9S3"kr.
99 kr. L3951fr.
299 kr. L695lfr.
499 kr. 923kr.
989 kr. L895lfr.
50 kr.
Fyrstir koma fyrstir fá
af barnafatnaði.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
Lesið í
Gerðarsafni
GERÐUR Kristný les úr smá-
sagnasafni sínu Eitruð epli í
dag, fimmtudag, kl. 17 í Lista-
safni Kópavogs, Gerðarsafni.
Lesturinn er á vegum Ritlist-
arhóps Kópavogs og stendur
dagskráin í klukkutíma. Að-
gangur er ókeypis.