Morgunblaðið - 31.01.1999, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 31.01.1999, Qupperneq 20
20 B SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Ofbeldis- verk í Úganda s / I Afríkuríkinu Uganda hefur í fjöldamörg , ár geisað blóðug borgarastyrjöld. Bardag- ar uppreisnarmanna og stjórnarhersins bitna verst á íbúum landsins og fátækt er þar mikil. Þau Pálmi Steingrímsson og Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir dvöldu fyrir tveimur árum um 7 mánaða skeið við GREINARHÖFUNDAR afhenda verðlaun í myndlistasamkeppni við skóiann. s hjálparstarf í Uganda. Þar urðu þau vitni að hroðalegum ofbeldisverkum uppreisnar- manna og lentu m.a. í vélbyssuskothríð og loftárás. Þau segja hér ferðasögu sína. Hryllileg voðaverk uppreisnarmanna AÐ HEFUR lengi verið gamall draumur okkar beggja að fara til Afríku til sjálfboðaliðastarfa og reyna þannig láta eitthvað gott af okkur leiða. Við höfðum samt svo sem aldrei rætt þetta okkar á milli af neinni alvöru fyrr en eitt sumarið við þegar við unnum við sumarbúð- irnar við Vestmannsvatn. Það var að mestu leyti fyrir skelegg hvatn- , ingarorð sumarbúðastýrunnar Lenu Matthíasdóttur sem ráðlagði okkur eindregið að láta slag standa á meðan við værum ung og ekkert héldi í okkur. Við tókum hana á orðinu og hófum leitina. En þá kom nokkuð furðulegt upp á. Það var al- veg sama hvert við leituðum, alltaf var svarið það sama: „Nei, við send- um aðeins fólk út sem hefur verið í svona störfum áður.“ Hvernig mátti það vera? Var virkilega ekki hægt að gefa vinnu sína í hjálpar- starf? Hvernig komst fyrsta fólkið eiginlega þangað út í fyrstu ef aldrei var sent óvant fólk? Við gáfum samt sem áður ekki upp alla von og héldum áfram að ^ leita. Eftir tæpar sex vikur mund- um við skyndilega eftir samtökun- um sem kallast ABC-hjálparstarf. Við ræddum þar við Guðrúnu Mar- gréti Pálsdóttur og fengum þau svör að hún vissi um fólk í Uganda sem gæti kannski tekið á móti okk- ur. Við sendum nokkui- símbréf til Úganda með öllum helstu upplýs- ingum og biðum eftir viðbrögðum. Eftir tvær vikur var þolinmæðin á þrotum. Við tókum af skarið og hringdum til Úganda og náðum loksins tali af Odida-hjónunum, en þau eru stjórnendur þess starfs sem ABC styrkir þar í landi. Við náðum tali af Francis Odida sem bauð okkur hjartanlega velkomin ■ hvenær sem okkur hentaði. Snyrtivörur nauðsynlegar Þá var það afráðið, við vorum á leiðinni til Afríku. Það er meira en að segja það að flytja til svo fjar- lægrar heimsálfu og krefst mikils skipulags og yfirlegu. Sem betur fer fengum símanúmer hjá Islend- ingum sem þá bjuggu í Úganda fengum hjá þeim nauðsynlegustu upplýsingar. Engin hlý föt, nóg af snyrtivörum og þesslags fyrir konum voru helstu heilræðin sem ' við fengum í farteskið. Svo var að- eins að fá vegabréfsáritun, réttar sprautur, nóg af malaríulyfjum og halda af stað til hinnar leyndar- dómsfullu Afríku, á vit hins óþekkta. Hvað við áttum þar í vændum hefði okkur aldrei grun- að. í Úganda hefur geisað borgara- styrjöld í fjöldamörg ár sem hefur nánast dregið allan mátt úr íbúum landsins. Leiðtogi uppreisnar- manna, Joseph Kony, hefur barist við stjórnarherinn af mikilli grimmd en hann vill ná vöidum í Uganda svo hann geti stýrt landi og þjóð í nafni Jesú Krists. Kony þessi er mikill ógnvaldur og það sem við urðum vitni að og okkur var sagt á enga samleið með nokkru sem gæti kallast kærleikur eða friður. Skömmu áður en við komum til Úganda höfðu Kony og menn hans ráðist inn í skóla í hér- aðinu Kitgum og tekið á braut með sér 120 stúlkur á aldrinum 9 til 12 ára. Aströlsk nunna, sem stjórnar skólanum, elti mannræningjana fótgangandi í nokkra daga. Að lok- um fann hún búðir þeirra og bauð þeim líf sitt í stað stúlknanna. Við þessa bón varð Kony nokkuð um og ákvað því að sleppa 100 stelpum en vildi halda þeim 20 sem eftir voru handa sér. Stúlkurnar sögðu farir sínar ekki sléttar af ferðalaginu. Ein sagði til dæmis að hermaður hafi komið til hennar, rétt henni jakka af sér og sagt við hana að það væri best fyrir hana að fara í hann því þegar dimma tæki myndi henni verða kalt. Hún varð að vonum mjög glöð yfir góðvild mannsins en vissi ekki að annað og meira bjó að baki. Þeg- ar myrkrið skall á kom þessi sami maður í leit að jakkanum sínum og nauðgaði stúlkunni. Hann hafði lát- ið hana hafa jakkann sem nokkurs konar merki til að hinir hermenn- irnar vissu að stúlkan væri „pönt- uð“ og leituðu annað. Margar stúlk- urnar höfðu sömu sögu að segja. Kony notar áþekkar aðferðir við að afla sér hermanna til þess að berjast við stjórnarherinn. Hann ræðst inn í þorp og tekur alla karl- menn til fanga, jafnvel börn því hann notar einkum unga drengi í her sinn. Kony kemur drengjunum síðan í skilning um að ef þeir reyni að stijúka fari hann ásamt mönnum sínum aftur í þorpið þeirra og drepi fjölskyldur þeirra. Skiljanlega eru ekki margir sem þora að strjúka en við kynntumst einum huguðum sem hafði lent í þessari aðstöðu. Hann sagði okkur að Kony hefði tekið alla nautgripi föður síns ásamt sér og bræðrum sínum. En þessum vini okkar hafði tekist að flýja ásamt öðrum bróður sínum og þá hafði Kony ekki ennþá komið með menn sína og staðið við hótunina. A leið okkar um héruðin Kitgum, Apach og Lira keyrðum við eitt FORSETAFRÚ tíganda, frú Museveni, varð á vegi Pálma og Sylgju á ferð þeirra um norðurhluta landsins. Á JÓLUNUM. Börnin syngja jólalög. BÖRNIN í fötuin og með jólagjafir sem þau fengu send frá Isiandi. Þau senda sínar bestu þakkir. sinn í gegnum þorp þar sem enginn karlmaður var eftir. Flestir höfðu verið drepnir af Kony og mönnum hans en hinir höfðu flúið og ekki þorað að koma aftur. I þessu sama þorpi hafði Kony merkt allar kon- urnar þannig að ekki færi á milli mála að þær tilheyrðu honum. Hann skar af þeim varir, nef eða eyru til að tryggja að þær yrðu látnar í friði á meðan hann var í burtu. I Kitetika kynntumst við börnum sem höfðu lent í klónum á Kony en hann beitir gjarnan íyrir sig börnum í skotbardögum við stjómarherinn. Einn drengur sagði okkur frá því að hans starf sem uppreisnarmaður hafi verið að elta þau börn uppi sem reyndu að strjúka og koma þeim aftur til baka, annars yrði hann drepinn. I einni slíkri fór hafði hann safnað nógu miklum kjarki til að strjúka. Eftir 10 daga í skóginum komst hann loksins til fjölskyldunnar aft- ur. Önnur stúlkan sagði okkur grát- andi sína sögu. Hennar starf var að refsa þeim börnum sem reyndu að strjúka með því að höggva af þeim hendurnar með sveðju. Sofíð undir vélbyssuskothríð Fyrsta daginn sem við dvöldum í Úganda fóram við til norðurhluta landsins en þar eru íbúarnir mjög stríðshrjáðir. Þarna hittum við meðal annars svæðisstjóra héraðs- ins og sjálfa forsetafrú Úganda, frú Museveni. Við gistum meðal annars í þorpinu Rachkoko, sem útleggst á íslensku „þar sem fólkið grætur", en þar átu ljón flesta íbúa fyrir nokkrum árum. Og þar sem við lág- um í strákofanum undir moskítónetinu og ró var að færast yfir dundi allt einu yfir vélbyssu- skothríð. Uppreisnarmennii’nir voru þá að skjóta á stjórnarherinn aðeins örfáum metrum frá kofunum sem við sváfum í. Loftárás frá guði? Frá Rachkoko héldum við til Kit- gum og þaðan fórum við í herbíla- lest með 14 bílum með sprengjuleit- arbfl í fararbroddi, ásamt forseta- frúarbflnum og biskupi landsins. Aður en lagt var af stað sungu inn- fæddir hástöfum trúarsöngva og bænir til að biðja um vernd guðs á þessari hættulegu leið þar sem uppreisnarmennirnir sátu um okk- ur. Við höfðum sloppið um morgun- inn en það var ekkert eins víst að við yrðum svo heppin aftur. Fólkið bað guð um að senda sér tákn um að hann væri að fylgjast með okk- ur. Eftir klukkutíma akstur í niða- myrkri og troðningi aftur í bílnum lýsist himinninn upp með appel- sínugulum loga. Innfæddir sögðu okkur að þarna væri komin orð- sending frá guði. Og aftur lýstist himinninn upp og þá nær okkur en fyrr. En þessi tákn frá guði voru ekki lík eldingum, heldur var súd- anski flugherinn að sprengja í loft

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.