Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 2

Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Afrek ungs björgunarsveitarmanns á Þórshöfn á Langanesi Þórshöfn - Ungur björgnnar- sveitarmaður á Þórshöfn, Guð- mundur S. Sigurðsson, sýndi áræði og dugnað er hann stakk sér til sunds og tókst, að koma taug í flotbryggjuna sem slitn- aði frá landi í smábátahöfninni á Þórshöfn í aftakaveðri um helgina. Guðmundur synti í flot- galla með línu með útsoginu að bryggjunni og var flotbryggjan síðan dregin að landi. Björgunarsveitin Ilaíliði var í viðbragðsstöðu alla helgina og var vakt í Hafliðabúð, einkum vegna hafnarinnar. „Við ætluðum upphaflega að reyna að komast út að bryggj- unni á gúmmíbát en kerran sem bar bátinn brotnaði í veður- hamnum svo ekki var hægt að koma bátnum í sjó. Þá var ekki um annað að ræða en að drífa sig í sjóinn,“ sagði Guðmundur. Hann var um 10-15 mínútur í sjónum og sagði að sundið hefði verið erfitt og honum var mjög kalt. Verst var þó að komast upp á flotbryggjuna því hún er nokkuð há og öldugangur var mikill. „Flotgallinn lekur svo ég var gegnblautur og kaldur,“ sagði Guðmundur. Þegar hann komst upp á flot- bryggjuna dró hann kaðal úr GUÐMUNDUR S. Sigurðsson við flotbryggjuna í smábáta- höfninni á Þórshöfn í gær. flotgöllunum og kom reynslan af þeim æfingum sér vel fyrir Guðmund. Það var í nógu að snúast við höfnina en björgunarsveitin að- stoðaði eingöngu við að færa báta til í höfninni og berja ís- ingu af bátum. Þeir björgunar- sveitarmenn sem ekki voru á óveðursvaktinni notuðu tímann til viðhalds innandyra á Haf- liðabúð og máluðu salarkynnin, svo vistlegt var um að litast fyr- ir þreytta vaktmenn. landi og festi í bryggjuna. Trilla var við bryggjuna og var hún færð með dráttarvél. Bryggja og maður voru síðan dregin giftusamlega í land. Björgunarsveitarmenn sögðu þetta talsvert afrek hjá Guð- mundi því veður var mjög slæmt. Engar skemmdir urðu á bryggju né bátum. Æfðu sjóbjörgun í flotgöllum Björgunarsveitin eignaðist Zodiac-giímmíbát síðastliðið vor og æfðu Guðmundur og fé- lagar sig í sumar í sjóbjörgun í Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir FANNFERGI er á Þórshöfn en stórhríð var þar alla helgina. Stakk sér til sunds eftir flotbryggjunni Nígeríumaður, grunaður um ávísanafals, segist hafa verið blekktur Bankinn fær tjónið ekki að fullu bætt KÆRÐUR hefur verið til Hæsta- réttar úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yf- ir Nígeríumanni, sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli síðastlið- inn mánudag, vegna gruns um ávís- anafals og peningaþvætti. Var mað- urinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. mars. Jón Þórisson, fram- kvæmdastjóri hjá Islandsbanka, segir bankann tryggðan fyrir áföll- um af þessum toga en tjón bankans sé eigi að síður nokkurt þar sem það verði ekki að fullu bætt. Helgi Magnús Gunnarsson, full- trúi í efnahagsbrotadeild Ríkislög- reglustjóra, segir unnið að rann- sókn málsins. Verið sé að yfírheyra vitni og reyna að rekja hvað orðið hafi um þá peninga sem manninum tókst að ná út eftir að hann hafí lagt erlendar ávísanir inn á reikn- inga í íslenskum. bönkum. Hann hafði lagt inn á reikning hjá ís- landsbanka sem svarar 11,2 millj- ónum króna í erlendum ávísunum. Ljóst sé að um falsaðar ávísanir sé að ræða en maðurinn heldur því fram að hann hafi verið blekktur og kannast hann ekki við að hafa sjálf- ur falsað ávísanir. Helgi sagði mæli- kvarða í málum sem þessum vera allar óvenjulegar færslur, til dæmis þegar menn væru að færa milljónir króna á einkareikninga og því hefði grunur vaknað í bankanum við sHk- ar færslur Nígeríumannsins. Nígeríumaðurinn hefur verið bú- settur hérlendis í tvö ár og starfað við útflutning á hertum þorskhaus- um í samstarfi við Islending. Helgi tók fram að ekkert benti til þess að Islendingurinn væri við málið rið- inn og að fyrirtækið hefði stundað lögleg viðskipti. Kaupa ekki erlendar ávísanir Jón Þórisson segir bankann hafa það fyrir reglu að kaupa ekki er- lendar ávísanir og því hafi starfs- reglur bankans verið brotnar í þessu máli. „Við erum með mjög skýrar reglur um hvernig á að meðhöndla svona mál, en eftir því var ekki far- ið í þessu tilviki. Við munum fara yfir málið eins og alltaf er gert þegar eitthvað fer úrskeiðis og leit- ast við að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur,“ sagði Jón. Hann segir bankann gera þá einu undantekningu að kaupa er- lendar ávísanir af traustum við- skiptamönnum, sem þeir þá fram- selji og beri ábyrgð á, meðan kann- að er hvort innstæða reynist vera fyrir hendi. Þriðjungur utanþings- viðskipta ekki til- kynntur ÞRIÐJUNGUR utanþings- viðskipta á síðasta ári var ekki tilkynntur með eðlilegum hætti á réttum tíma. í gær voru um 27 milljarða viðskipti skráð inn í viðskiptakerfi Verðbréfaþingsins. Þetta voru viðskipti frá Búnaðarbanka Islands sem ekki höfðu verið tilkynnt til þingsins á réttum tíma. I síðustu viku kom í ljós að rúmlega 30 milljarða utan- þingsviðskipti Kaupþings og Landsbankans voru ekki til- kynnt með eðlilegum hætti. Astæðan var sögð tæknileg mistök. I yfirlýsingu frá Búnaðar- bankanum segir að nokkrar ástæður séu fyi-ir því að við- skipti bankans voru ekki til- kynnt til Verðbréfaþings með eðlilegum hætti. I yfirlýsingu frá Verðbréfaþinginu segir að málið sé litið alvarlegum aug- um. ■ 27 milljarða/C2 5,6 milljónir króna til Akureyrar AKUREYRINGUR vann rúmlega 5,6 milljónir króna í Happdrætti Háskóla Íslands í gær. Akureyringurinn átti trompmiða með númeri 15555, en það kom upp er hæsti vinn- ingur í síðari útdrætti febrú- armánaðar var dreginn út. Einfaldur miði með sama númeri var seldur í Kópavogi og fékk eigandi hans rúma 1,1 m.ki'. Að auki hlutu 10 manns eina milljón króna í vinning. Fimm þeirra eru búsettir í Reykjavík en hinir á Akur- eyri, Hellu, Siglufirði, í Hafn- arfirði og Kópavogi. Heiðraður fyrir 125 blóðgjafir BLÓÐBANKINN heiðraði í gær blóðgjafa sem hafa reglu- lega gefið blóð. í þeim hópi vai’ Þórður Bergmann Þórðarson sem hefur gefið 125 sinnum. Þeir sem komu næst honum og voru einnig heiðraðii' í gær voru Sölvi Þór Þorvaldsson, Ögmundur Kristinsson og Há- varður Emilsson, en þeir hafa allir gefið blóð 100 sinnum hver. VIÐSKlPTIAIVINNUÍiF KAUPÞING 46% arðsemi ATVINNUHÚSNÆÐI Fasteigna- rekstur Feðgarnir Atli og Egill frá KR til Tottenham/B1 Hagnaður jókst um 74%/C1 Vaxandi atvinnugrein/C6 Hrafnhildur og Helga undir smásjá Sola í Noregi/B5 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.