Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 48

Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda- faöir, afi, sonur og tengdasonur, SÆVAR FRÍMANN SIGURGEIRSSON, Vesturbergi 12, Reykjavík, er látinn. Marsý Dröfn Jónsdóttir, Ingi Hlynur Sævarsson, Guðbjörg Helga Birgisdóttir, Kristín Valborg Sævarsdóttir, Jón Einarsson, Jón Geir Sævarsson, Kristbjörg Harðardóttir, Sigurgeir Magnússon, Helga Ágústsdóttir og aðrir ástvinir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir og afi, GUNNAR SVANUR BENEDIKTSSON, Álfheimum, Miðdölum, Dalasýslu, lést að morgni mánudagsins 22. febrúar á Sjúkrahúsi Akraness. Útför hans fer fram frá Kvennabrekkukirkju laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00. Fjóla Benediktsdóttir, Bryndís Gunnarsdóttir, Gunnar Ásgrímsson, Benedikt Guðni Gunnarsson, Rannveig Heimisdóttir, Þórarinn Gunnarsson, Ingileif Gunnlaugsdóttir, Hlynur Þór Benediktsson og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR, Safamýri 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grensáskirkju föstu- daginn 26. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarsjóð Guðjóns B. Ólafssonar hjá Krabbameinsfélagi íslands. Össur Aðalsteinsson, Helga Sigurgeirsdóttir, Tryggvi Eyfjörð Þorsteinsson, Kristján Orri Sigurleifsson, Heiðar Örn Tryggvason. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir og afi, BJARNI JÚLÍUSSON rafvi rkja meistarí, Dvergholti 8, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Landakotskirkju föstu- daginn 26. febrúar kl. 13.30. Rita Abbing Júlíusson, Hendricus E. Bjarnason, Inga Jóhannsdóttir, Bjarni B. Bjarnason, Þórunn Guðmundsdóttir, Jón J. Bjarnason, Emilía Helga Þórðardóttir, Guðfinna Júlíusdóttir og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVEINBJÖRG KRISTINSDÓTTIR, Aðalgötu 5, Keflavík, sem lést miðvikudaginn 17. febrúar, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 26. febrúar nk. kl. 14.00. Birgir Sveinsson, Sigríður Sveinsdóttir, Guðleif Sveinsdóttir, Sigurbjörg Sveinsdóttir, Júlía Vincenti Grétar Grétarsson, Haildóra Grétarsdóttir, Gísli Grétarsson, Sigurður Bjarnason, Ragnar R. Magnússon, Heimir Jóhannsson, Joseph Vincenti, Guðný Björnsdóttir, Elís Kristjánsson, Sigríður J. Jóhannesdóttir og barnabörn. BRYNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR + Brynhildur Magnúsdóttir feddist að Görðum í Onundarfirði hinn 1. nóvember 1929. Hún lést í Reykja- vík hinn 12. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Magnús Reinalds- son útvegsbóndi, f. 14.4. 1897, d. 4.3. 1952, og eiginkona hans, Guðmunda Sigurðardóttir, f. 9.5. 1902, d. 28.3. 1993. Börn þeirra: Anika, f. 27.1. 1926, Ólöf, f. 9.1. 1927, Unnur, f. 16.10. 1928, Brynhildur, sem hér er minnst, Haukur, f. 5.2. 1932 og Önund- ur, f. 4.3. 1939. Brynhildur giftist árið 1959, Braga Sigurbergs- syni, f. 31.10. 1929, húsasmíðameist- ara. Þau skildu að borði og sæng árið 1984 en Bragi Iést árið 1985. Bryn- hildur og Bragi eignuðust eina dóttur, Bylgju, f. 23.9. 1958. Hún er gift Guðmundi Stefánssyni, f. 4.6. 1951. Börn: Brynj- ar Bragi, f. 13.7. 1975, Ásdís Elva, f. 12.9. 1984 og Ásta Lára, f. 8.7. 1994. Brynjar Bragi ólst að miklu leyti upp hjá Brynhildi og Braga og síð- ar Brynhildi til 14 ára aldurs. títför Brynhildar fór fram hinn 23. febrúar. Elsku amma, núna er komið að kveðjustund. Margs er að minnast okkar á milli, við sem vorum alltaf svo náin. Við áttum margar góðar stundir saman, allt frá því ég var smásnáði þegar þið afi tókuð mig að ykkur. Sú hlýja og ást sem ég fékk frá ykkur mun ávallt fylgja mér í minningunni um ykkur. Eg á þér þó sérstaklega margt að þakka, elsku amma, og þá sérstaklega hversu vel þú studdir alltaf við bakið á mér í lærdómi mínum sem og á öðrum sviðum. Þar má sannarlega segja að veganestið hafi verið gott. Þú varst samviskusöm fyrir mína hönd, og allt skyldi maður takast á við þang- að til það gengi upp. Síðasta áratuginn fór að halla undan fæti með heymina hjá þér, amma mín. Þar kom að ekkert heymartæki gat hjálpað lengur, en það vita bara þeir sem misst hafa heym hversu mikil fötlun það er. Því er nánast ekki hægt að lýsa. Samskipti okkar voru allsérstök á síðustu ámm, því við skildum hvort annað í þögninni. Voru orð oftar en ekki óþörf. Nú þegar komið er að ferðalokum og sól til viðar hnigin kveð ég þig, elsku amma, með þakklæti í huga. Blessuð sé minning þín. Brynjar Bragi Stefánsson. Mig langar í fáeinum orðum að minnast móðursystur minnar Bryn- hildar Magnúsdóttur sem er látin. Hidda eins og hún var alltaf kölluð er nú horfin úr hópi sex systkina ættaðra frá Görðum í Önundarfirði. Hún var yngst fjögurra systra sem alla tíð hafa verið mjög nánar. Vora samskipti okkar barnanna þeirra mikil, sérstaklega þegar við vorum yngi-i. Var þá oft farið í fjölskyldu- ferðir í sumarleyfum. Hidda var gift Braga Sigurbergs- syni sem lést árið 1985. Eg á marg- ar góðar minningar frá samvera- stundum með þeim og Bylgju dótt- ur þeirra á Þingvöllum en þar áttu þau sumarbústað í Miðfellslandi og foreldrar mínir einnig. Hidda hafði mjög gaman af því að veiða og þeg- ar rigndi fór hún í regnstakkinn sinn, tók veiðistöng og veiðikassa og hélt niður að vatni. Stóð hún þar á „tanganum" og veiddi oftast eitt- hvað þótt enginn annar veiddi neitt, því hún var mjög fiskin. Það var oft glatt á hjalla í bústaðnum hjá Hiddu og Braga. Einnig er mér minnis- stætt að við Bylgja biðum alltaf spenntar eftir ferð niður að Ljósa- fossi með Braga að kaupa olíu, því alltaf keypti hann eitthvert góðgæti handa okkur. Hidda var ákaflega traust og ábyggileg manneskja og sérlega snyrtileg. Á heimili hennar var alltaf allt í röð og reglu. Ef henni var gerður greiði borgaði hún alltaf ríkulega fyrir sig. Hún var einnig rausnarleg og góður vinur vina sinna, það vita þeir sem hana þekktu. Hidda og Bragi slitu samvistum árið 1984. Var það Hiddu erfitt en systur hennar studdu hana á þess- um erfiðu tímum. Samband þeirra systra hefur alla tíð verið einstakt og þær stutt hver aðra. Margar gleðistundir hafa þær systurnar átt saman í gegnum árin. Styrkleiki sambands þeirra kom vel í ljós á síðustu mánuðum í veikindum henn- ar. Hidda mín, að lokum vil ég þakka þér samíylgdina, hlýhug og vin- semd sem þú sýndir mér og dætr- + Eiginkona mín, SIGURRÓS SIGMUNDSDÓTTIR, lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðju- daginn 23. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Hólm Dýrfjörð. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför MÖRTUJÓNSDÓTTUR frá Patreksfirði, Dalbraut 27, Reykjavík. Fyrir hönd ættingja, Sigurður Trausti Sigurðsson. um mínum, Unni og Margi'éti, alla tíð. Sigríður (Sigga). Látin er í Reykjavík kær móður- systir mín Brynhildur Magnúsdótt- ir. Hún greindist með ólæknandi mein í byrjun sumars og voru síð- ustu mánuðir því bið eftir lausn. I þeirri bið sýndi hún mikið æðru- leysi, sem og í lífi sínu öllu. Það fylgir hækkandi aldri að þurfa að kveðja þá sem era manni kærir. Brynhildur frænka mín hef- ur verið hluti af lífi mínu allt frá barnæsku. Hún var fjórða í hópi sex barna móðurforeldra minna, fjög- urra dætra og tveggja sona. Systk- inin voru ákaflega samheldin og samgangur mikill á milli þeirra. I minningunni finnst mér að þau hafi ekkert tækifæri látið ónotað til að koma saman og njóta samvista hvert við annað. Mikil og náin tengsl mín við móðurömmu mína leiddu án eíá til þess að samskipti mín við þau systkinin, þ.á m. Bryn- hildi, urðu meiri en ella hefði orðið. Og öll þau samskipti vora góð. Það er barni ómetanlegt að vita að það eigi vísa væntumþykju þeirra sem næstii' því standa og í því efni efað- ist ég aldrei varðandi þau móður- systkini mín, svo vel tókst þeim að koma því til skila að ég skipti þau máli. Og vitneskja mín um hug þeirra til mín mildaði án efa áfallið sem það var mér að missa fóður minn ung að áram. Brynhildur frænka mín var ekki kona margra orða og flíkað ekki til- finningum sínum, hún lét fremur verkin tala. Hún og látinn eiginmað- ur hennar, Bragi Sigurbergsson, sem ég minnist ætíð með hlýju, létu mig oft njóta góðra verka sinna og hún síðar eftir að leiðir þehra skildu. Þannig mun aldrei gleymast farareyririnn sem þau leystu mig út með þegar ég fór í fyrsta sinn til út- landa, sextán ára gömul. Hann var sannarlega rausnarlegur. En þannig var frænka mín, hún var rausnarleg í öllum sínum verkum. Hún minnti mig oft á kvenhetjur ís- lendingasagna, hún var stór í skapi og ekki allra en hún var höfðingi. Þó að aldur færðist yfir okkur báðar og aðstæður breyttust hélst alltaf gott samband á milli okkar og við fylgdusmt hvor með annarri. Það setti hins vegar samskiptum við hana skorður mörg undanfarandi ár að hún átti við heymarbilun að etja. Þótt það væri henni þungbært og gerði það að verkum að hún eiangr- aðist nokkuð tók hún þessu áfalli af sama æðruleysinu og öðram og bjó sér að nokkru leyti til sinn eigin heim. Hún hafði þó alltaf gott sam- band við systkini sín, einkum syst- ur, og létti það henni án efa lífið. Þannig fóra hún og móðir mín í nokkrar utanlandsferðir saman, báðum til ánægju. Og það gladdi mig, þegar hún kom sl. verslunar- mannahelgi með systram sínum og heimsótti mig til Hólmavíkur, þar sem ég var þá og dvaldi í nokkra daga. Okkur leið vel þá daga. Við vonuðum að hún myndi geta heim- sótt mig í Neskaupstað en af því varð ekki vegna veikinda hennar og við kvöddumst þegar ég var stödd í Reykjavík um jólin vitandi það að við myndum ekki sjást aftur. Þegar ljóst varð í byrjun sumars að frænka mín ætti ekki langt eftir ólifað vildi hún ganga frá öllum sín- um málum. Ég aðstoðaði hana líti- lega í tengslum við það og enn sem fyrr vakti aðdáun mína æðruleysið sem hún sýndi. Við þennan frágang á málum sínum kom skýrlega í ljós það einkenni persónuleika hennar að vilja gera alla hluti vel. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hend- ur, allt var vel og fallega af hendi leyst. Engir lausir endar. Með sama hætti og af sömu kostgaefni og hún leysti önnur verk af hendi undirbjó hún brottför sína og tók því síðan sem að höndum bar. Og nú er hún farin. Ég þakka henni langa og góða samfylgd. Minningin um hana mun ávallt lifa með okkur sem hún var kær. Dóttur hennar, Bylgju, dóttursyni, Bi-ynjari Barga, og fjölskyldu sendi ég sam- úðarkveðjur. Áslaug Þórarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.