Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 35

Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 35 ✓ im vaxtahækkun Seðlabanka Islands iOg úu „Ég hef hinsvegar miklar efasemd- ir um þá ákvörðun Seðlabankans að endurvekja lausafjárskyldu á lána- stofnanir. Lausafjárskyldan var bam síns tíma og hafði þýðingu við allt aðrar aðstæður en nú er. Smám sam- an komu fram verulegir ágallar á lausafjárskyldunni. Meðal annars var ljóst að hún hafði truflandi áhrif á eðlilega vaxtaþróun í landinu og hún hafði áhrif á samkeppnisstöðu ís- lenskra banka og sparisjóða. Ég sé ekki þau rök nú sem mæla með því að endurvekja þessa lausafjárskyldu og ég vona að Seðlabankinn leiti betri og nútímalegri leiða til þess að ná mark- miðum sínum.“ Valur bendir á að útlánastefna banka og sparisjóða hafi verið með misjöfnum hætti undanfarið ár. „Seðlabankinn hefur lýst yfir áhyggj- um sínum vegna aukinna útlána banka og sparisjóða síðustu misseri en nauðsynlegt er að hafa í huga að þróunin hefur verið mismunandi eftir bönkum. Við hjá íslandsbanka höfum rekið mun varfærnari stefnu í útlána- málum síðastliðna 18 mánuði en aðr- ir. Á síðasta ári var útlánsaukning ís- landsbanka tæplega 18%. Á sama tíma var hún 25% í Landsbanka og Fjárfestingarbanka. 33% í Búnaðar- banka og 36% í sparisjóð- unum. Að hluta á útlánaaukn- ingin á síðasta ári rætur að rekja til þeirrar stefnu stjórnvalda að gefa ríkis- bönkunum sérstakt svigrúm til að auka útlánin. Hlutafjáraukningin í Búnaðarbanka og Landsbanka hafði þann tilgang að auðvelda þeim að auka umsvif sín og FBA hefur frá ársbyrjun 1998 haft þá stefnu að stórauka sín útlán. Útlánaaukningin á síðasta ári er því að hluta til innan- húsmál ríkisins sem óþarfi er að blanda öðrum í,“ segir Valur. Að háns sögn er ástæða til að vekja athygli á að efnahagslífið hafi gjör- breyst á tiltölulega skömmum tíma og engar hindranir séu á fjármagns- flutningi eða lántökum. „Vilji fólk eða fyi-irtæki taka lán til framkvæmda eða eyðslu eru margar leiðir til þess. Einungis ein þeirra er að fá lán í banka eða sparisjóði. Þegar reynt er að setja hindrun íyrir lánveitingar banka og sparisjóða flæðir lánsfé þeim mun hraðar um aðrar lánaleiðir og að öðru jöfnu er eftirspurn og þenslan sú sama,“ segir Valur Vals- son. Viðvarandi þenslueinkenni Viðskiptastofa Islandsbanka telur hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum ekki óeðlilega þar sem ýmis einkenni ofþenslu séu viðvarandi og gengi krónunnar hafí verið nokkuð veikt. Markmiðið sé að draga úr útlánum, en gera megi ráð fyrir að vextir til styttri tíma hækki almennt í kjölfarið og það hægi á útlánaeftirspurn, og þetta ætti að öllu jöfnu að auka áhuga á erlendri lántöku sem styrkja ætti krónuna. Hins vegar séu með fyrir- huguðum lausafjárreglum Seðla- bankans sett höft á fjármagnsflæði til landsins sem í fyrstu ætti að veikja krónuna, en þegar tilætluð áhrif verði og það hægist á efnahagsstarfsem- inni gæti sú þróun snúist við. Þá hafí þessar reglur aðeins áhrif á íslenska banka en aðrir markaðsaðilar og þá sérstaklega erlendir bankar verði ekki fyrir áhrifum. Bendir Viðskiptastofan á að með breytingum á lögum síðustu ár hafi fjármagnsflæði til landsins verið gef- ið algerlega frjálst og engin höft séu á starfsemi erlendra banka hér á landi. Þessar reglur veiki því sam- keppnisstöðu íslenskra banka. Loks er á það bent að reglur þessar séu byggðar á hugmyndum sem aflagðar voru fyrir ári og þær séu ekki í anda þess hlutverks Seðlabankans að stuðla að nútímalegri reglum um bankastarfsemi á Islandi. Onauðsynleg áhrif á verðmyndun í Morgunkoi-ni Fjái-festingarbanka atvinnulífsins í gær segir að það komi á óvart að gripið sé til tveggja svo róttækra aðgerða á sama tíma i stað þess að athuga fyrst hvaða áhrif önn- ur hvor hafí ein og sér. Einnig orki það tvímælis að þegar tilkynning um setningu lausafjárkvaða sé send inn á markaðinn liggi ekki fyrir hvemig þær reglur muni líta út. Meðan sú óvissa ríki séu líkur á að hún hafi ónauðsynleg áhrif á verðmyndun á mörkuðum, og fyrr í vikunni hefði sú óvissa sem fyrirliggjandi drög að reglum skapaði haft áhrif á verð- myndun og viðskipti á gjaldeyris- og peningamörkuðum sem og á skulda- bréfamarkaði. Jafnframt segir í Morgunkorni að ef endanlegar lausafjárreglur verði ekki talsvert frábrugðnar fyrirliggj- andi drögum sé ljóst að þær muni hafa neikvæð áhrif á framþróun pen- ingamarkaðar á Islandi. Tilfærslur í ijármögnun á næstu misserum Kaupþing hf. telur að lausafjár- kvöðin muni ekki kalla á stórfelldar breytingar á stöðu fjármálastofnana eins og hún sé í dag, en hún muni hins vegar takmarka sveigjanleika þeima í framtíðinni. Þess vegna muni vafalaust sjást einhverjar tilfærslur í fjármögnun fjármálastofnana á næstu misserum, þ.e. frekari upp- greiðslu skammtímaskulda og aukin langtímafjármögnun. Helstu áhrifin sem Kaupþing sér fyrir sér í kjölfar aðgerða Seðlabankans er að vaxtahækkunin hafi að öðru jöfnu jákvæð áhrif á íslensku krónuna. Skammtímaviðskipti markaðarins með ríkisvíxla ættu að aukast í takt við hækkun Seðlabanka og gera megi ráð fyrir hækkunum á kröfu á ríkisbréfum í takt við hækk- unina. Til skamms tíma megi gera ráð fyrir nokkrum hækkunum á ávöxtunarkröfu lengri skuldabréfa og sú hækkun hafi þegar komið fram að hluta, en eftirspurn endakaupenda muni ráða miklu um hve mikil hækk- unin verði. Þá telur Kaupþing að ekki sé ólíklegt að hlutabréf í Búnaðar- banka, íslandsbanka, Landsbanka og FBA geti lækkað eitthvað vegna þess kostnaðar sem lausafjárkvöð hefur í fór með sér fyrir bankana. Hlutabréfí bönkunum gætu lækkað f verði Fullveldisáform landstjórnar Færeyja SÖGULEGT FÆRI TIL SJÁLFSTÆÐIS Högni Hoydal VIÐ FÆREYINGAR stönd- um núna frammi fyrir sögulegu tækifæri til að slíta okkur lausa frá því að vera fjárhagslega háðir Dönum og standa á eigin fótum,“ segir Högni Hoydal, sem fer með málefni er varða undirbúning að sjálfstæði Færeyja í færeysku landstjórninni. Hann flytur í dag fyrirlestur í Hátíð- arsal Háskóla íslands um sjálfs- stjórnarstefnu landstjórnarinnar. Stjórnin, sem undir forsæti An- finns Kallsbergs tók við landsstjórn- artaumunum í Færeyjum eftir kosn- ingai’ 1997, fylgir þeirri yfirlýstu stefnu að koma sambandinu við Dan- mörku í nýjan farveg. Högni Hoydal, sem er langyngstur færeysku land- stjórnarmannanna, hefur yfirumsjón með sjálfstjórnaráformum hennar, en þær hafa verið mótaðar að miklu leyti með sambandslagasamning Is- lands og Danmerkur frá 1918 að fyr- irmynd. í samtali við Morgunblaðið segir Högni undirbúning að foimlegum viðræðum við dönsk stjórnvöld um breytt fyrirkomulag sambands Færeyja við Danmörku vera í fullum gangi. „Takmarkið er að Færeyjar verði fullvalda ríki með sérstök tengsl við Danmörku, með sameigin- legan þjóðhöfðingja og gjaldmiðil, svo dæmi sé nefnt. Um þann samn- ing sem út úr þessum viðræðum kemur verður síðan efnt til þjóðarat- kvæðagreiðslu í Færeyjum,“ segir Högni. Stefnt sé að því að þessi þjóð- aratkvæðagreiðsla geti farið fram á árinu 2000. Stjómskipaðar sérfræðinganefnd- ir eru að vinna að úttektum á þeim afleiðingum sem gera megi ráð fyrir að hljótist af sjálfstæði Færeyja, svo sem hvaða efnahagslegar afleiðingar það hefur að skrúfað verði í áfongum fyrir efnahagsaðstoð frá Danmörku og hvernig Færeyingar geti mótað sjálfstæða stefnu í menntamálum, fé- lagsmálum og svo framvegis. „Þessi vinna er í fullum gangi núna,“ segir Högni. Þá vinnur önnur sérfræðinganefnd að því að semja drög að færeyskri stjórnarskrá, og hefur Sigurður Lín- dal lögfræðiprófessor við Háskóla Is- lands verið Færeyingum til ráðgjaf- ar í því sambandi. Breiða samstöðu skortir Aðspurður hvort sú staðreynd hafi ekki áhrif á sjálfstæðisáform lands- stjórnarinnar að ekki ríkir samstaða meðal allra stjórnmálaafla í Færeyj- um um markmiðið, segir Högni þennan skort á samstöðu vissulega vera vandamál. „Hér í Færeyjum höfum við síðustu aldirnar verið skipt í ámóta jafn stórar fylkingar [með og á móti lausari tengslum við Danmörku].“ Tveir atkvæðamiklir stjórnmálaflokkar - hinn borgaralegi Sambandsflokkur og færeyski jafn- aðarmannaflokkurinn - segir Högni að séu andsnúnir fullu sjálfstæði, en meirihluti þingmanna á Lögþinginu segir hina almennu umræðu um sjálfstæðismálið vera mjög mót- aða af viðhorfum stjómarandstöð- unnar, þ.e. sam- bandsflokks- og j afnaðarmanna. „Þeir segja fólki: „Ef við verðum sjálfstæð mun það kosta þig svo og svo mikla peninga, þú missir velferðarstuðn- ing, það verður ekki lengur hægt að reka sjúkrahús og skóla héma,“„ segir hann. Með svona hræðsluá- róðri reyni stjórnarandstaðan sem sagt að spilla því sögulega tækifæri sem Færeyingum gefist núna til að verða óháðir Dönum. Vegna þessa séu úttektir sérfræðinganefndanna mjög mikilvægar, þar sem á grund- velli þeirra megi byggja upplýsta umræðu, sem „snúist um raunveru- leikann en ekki þjóðsögur". „Það er búið að ræða þessi mál í hundrað ár í Færeyjum en sú um- ræða hefur að mestu leyti snúist um þjóð- sögur; annars vegar er sagt að allt verði gott slítum við okk- ur lausa frá Dönum og hins vegar að það myndi enda með ósköpum hlytum við sjálfstæði,“ segir Högni. Þess vegna segir hann afar mikilvægt að ýtarleg og al- menn umræða fari fram um kosti og galla sjálfstæðisins áður en gengið verði til þjóðarat- kvæðis um málið. „Það er tilgangs- laust að gera Færeyjar sjálfstæðar óski þjóðin ekki eftir því.“ Högni segir sérfræðinganefndirn- ar eiga að skila af sér skýrslum sem teknar verði saman í „hvítbók“ sem lögð verði fram sem grundvöllur alls- herjarumræðu um málið í Lögþing- inu. Gert er ráð fyrir að þessi hvít- bók liggi fyrir hinn 10. júní nk. „Þá vonumst við til að breiðari samstaða náist á þinginu um sjálfstæðisáform- in.“ Reikna ekki með olíugróða Högni segir aðspurður að mögu- leikinn á því að olía fmnist við strendur Færeyja hafi vissulega mikil áhrif á afstöðu margra. „En í okkar áformum reiknum við ekki með því að fjármagna sjálfstæði okk- ar með olíugróða," segir Högni. I út- reikningum landstjómarinnar sé gert ráð fyrir að efnahagur Færeyja geti staðið undir sér á sömu atvinnu- gi-einum og þegar eru fyrir hendi. „Komi olían, væri það gott, en það er engin forsenda fyrir sjálfstæði," seg- ir hann og bætir við að olían gæti skapað alveg jafn mikil vandamál eins og sumir vonuðust til að hún muni leysa. „Verði komið upp olíu- iðnaði í Færeyjum höfum við áhyggjur af því hvernig færeyskri menningu, byggðamynstri og hinum hefðbundnu atvinnugi-einum mun reiða af. Munu til dæmis öll færeysk ungmenni vilja fara að vinna í olíu- iðnaðinum og þar með ekki lengur fara til sjós, svo dæmi sé nefnt?“ segir Högni. Hins vegar sé það alveg ljóst, að vonin um olíuna hleypi bjartsýni í marga og skapi hugsan- lega víðtækari meirihluta fyrir sjálfstæðisá- formunum. „Mín niðurstaða er sú að við stönd- um frammi fyrir sögulegu tækifæri til að slíta okkur lausa frá dönskum efnahagsstuðningi. Það er vegna þess að við gengum í gegn um mikla efnahagskreppu á fyrri hluta þessa áratugar sem hefur valdið því að við erum núna að greiða háar upphæðir í vexti og af- borganir af erlendum lánum sem við neyddumst til að taka. Þessar af- borganir eru jafnháar og við erum að fá í efnahagsaðstoð frá Dan- mörku. Hugmyndin er því sú að semja við Dani um að greiðslurnar frá þeim fari framvegis í að greiða þessar afborganir en við Færeyingar sjáum sjálfir um að reka okkar efna- hag. Þetta er í fyrsta sinn frá því við hlutum heimastjórn að efnahagsá- standið er þannig að við sjáum fram á að geta staðið efnahagslega undir eigin þjóðfélagi, burtséð frá skulda- byrðinni. Þetta er hið sögulega tæki- færi sem við í landstjórninni viljum að við Færeyingar nýtum okkur,“ segir Högni Hoydal að lokum. Fyrirlesturinn sem Högni flytur í dag ber færeysku yfirskriftina „Full- veldisætlan landstýrisins“ en verður fluttur á dönsku. Sigurður Líndal prófessor stýrir fundinum, sem hefst kl. 16:15 í Hátíðarsal HÍ í aðalbygg- ingu við Suðurgötu. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Færeyski landstjórnarmaðurinn Högni Hoydal hefur yfírumsjón með undirbúningi þess að Færeyjar hljóti sjálfstæði. I tilefni af því að hann heldur í dag erindi um þessi áform í Háskóla Islands fékk Auðunn Arnórsson hann til að útskýra í stuttu máli rökin að baki þeim. standi að áform- um landstjórnar- innar. Högni Annars vegar er sagt að allt verði gott slítum við okk- ur lausa frá Dönum og hins vegar að það myndi enda með ósköpum hlyt- um við sjálfstæði,“ segir Högni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.