Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 30

Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Umdeilt skáld finnst látið London. Reuters. EITT af umdeildustu leikritaskáld- um Breta, Sarah Kane, fannst látin á heimili sínu í London á þriðjudag. Verksummerki þóttu benda til að Kane, sem var 28 ára gömul og hafði hrist rækilega upp í bresku leikhús- iífi með opinskáum lýsingum sínum á bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi, hefði hengt sig. Haft var eftir vinum Kane að nöt- urleg lífssýn hennar, sem svo mjög skein í gegn í leikritum hennai’, hefði oft á tíðum hrint skáldinu út í mikið þunglyndi og líklega orðið til þess að hún ákvað að fremja sjálfsvíg. Kane kom fyrst fram á sjónarsvið- ið er hún var aðeins 23 ára gömul með leikriti sínu „Blasted", sem Royal Court-leikhúsið í London setti upp. Skiptust gagnrýnendur nokkuð í tvö horn í afstöðu sinni til þess sjónarhoms á kynlíf og ofbeldi sem einkenndi leiki-itið. Meðal viðfangs- efna þess voru ekki aðeins grófar nauðganir heldur setti mannát eig- inn svip sinn á leikritið. Kane hélt áfram á sömu braut með leikriti sínu „Cleansed" en þar var t.d. fjallað um sjálfsmorð, aflim- anir og heróínneyslu. Margir gagnrýnendur höfðu lítið álit á verkum Kane og sögðu þau „sannkallaða veislu sorans". Aðrir komu henni til vamar og sögðu Kane skrifa á tungumáli sem væri á mörk- um sannleikans og þess ljóðræna, í leikritum hennar væri lýst veröld þar sem ást og ofbeldi væri sam- tvinnað á órjúfanlegan hátt. Reuters SARAH Kane fannst látin á heimili sínu. Sýrubull KVIKMYJVPIR Sambfóin FEAR AND LOATHING IN LAS VEGAS ★ Leikstjóri: Terry Gilliam. Handrit: T. Gilliam, Tod Davies, Tony Grisoni og Alex Cox eftir skáldsögu Hunters S. Thompson. Aðalhlutverk: Johnny Depp og Benicio del Toro. Universal Pictures 1998. NÚ skil ég hvorki upp né niður í neinu. A þessi mynd að fjalla um eitthvað? Þannig er að blaðamað- urinn Raoul Duke og samóski lög- fræðingurinn hans, dr. Gonzo, segjast vera í leit að ameríska draumnum. Vopnaðir tösku með úrvali eiturlyfja halda þeir til Las Vegas og eru í vímu allan tímann og þeir gera ekki neitt nema eyða peningum og eyðileggja hótelher- bergi. Ekkert meira gerist í tveggja klukkustunda langri kvik- mynd. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Hunter S. Thompson sem kom út 1971. Hún virðist vera barn síns tíma, og átti kannski að vera ádeila á bandarískt samfélag í þann tíma, eða átti kannski ekki að vera neitt, það kemst að minnsta kosti ekki til skila. Flestum þykir heillavænlegra og áhrifaríkara þegar gerð er kvikmynd að áhorfendurnir fái að vera með, en hér virðist sem þeir hafí gleymst. Við vitum ekkert um þessa moðhausa og hvað þeir eru að vilja upp á dekk yfír höfuð. Þeir eru í vímu allan tímann og ekki eitt meðvitað orð kemur upp úr þeim. Það hefði verið ótrúlega skemmtilegt og vel þegin tilbreyt- ing ef runnið hefði af þeim, þó ekki væri nema í eina mínútu svo maður gæti gægst eitt lítið augna- blik inn í sálartetrið þeirra til að skilja hvað þeir eru að gera í þess- ari bíómynd. Fátt er svo með öllu illt, að ekki standi leikararnir sig ágætlega. Johnny Depp leikur blaðamanninn Duke og Benicio del Toro er dr. Gonzo. Samleikur þeirra er í raun- inni með miklum ágætum, og lítið eitt dempaður hefði hann sómað sér ágætlega í almennilegri kvik- mynd. Del Toro er eiginlega betri en Depp, meira sannfærandi, og hann lítur út fyrir að hafa fetað í fótspor De Niro og bætt á sig að minnsta kosti um 30 kílóum fyrir þessa mynd. Synd að myndin skuli ekki hafa verið betri. Nokkrir frægir leikarar koma einnig fram í örsmáum aukahlutverkum, en það er alltaf rosa gaman. Leitið og þér munuð finna Tobey Maguire, Ca- meron Diaz og Katherine Helmond. Kvikmyndatakan og hljóð- vinnslan eru myndinni til fram- dráttar og túlka vel heiminn með augum manna í eiturlyfjavímu. Þessari endalausu eiturlyfjavímu sem gerir mann vitlausan eftir hálftíma, hvað þá eftir tvo klukku- tíma. Hildur Loftsdóttir Morgunblaðið/Þorkell IVAR Valgarðsson skreytir veggi Ingólfsstrætis 8. Veggir Ing- ólfsstrætis 8 skreyttir með vaxlitum SÝNING á verkum fvars Valgarðs- sonar verður opnuð í dag, fimmtu- dag kl. 17, í Galleríi Ingólfsstræti 8. Verk ívars á sýningunni eru gerð með Crayola-vaxlitum beint á veggi gallerísins. Um er að ræða þijá Iit- fleti hvern á sínum vegg auk þess er eitt verk gert með sömu aðferð á A-4 teikniblöð. Verkin draga dám að eðli þess efnis sem notað er og taka mið af nöfnum litanna sem notaðir eru, „springgreen", „skyblue" og „orange". ívar Valgarðsson stundaði fram- haldsnám í HoIIandi í lok sjöunda áratugarins og verk hans hafa skýra tengingu í conseptlistina og minimalisma, segir í fréttatilkynn- ingu. Ennfremur segir að í verkum hans, bæði tvívíðum og þrívíðum, sé sterk vísun í hversdagslegt dag- legt umhverfi okkar, menningu og náttúru. Þetta er þrettánda einkasýning Ivars, en áður hefur hann sýnt og tekið þátt í fjölda sýninga hér heima og víða erlendis. Galleruð er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Sýningin stendur til sunnudagsins 21. mars. Síðustu sýningar FELIX Bergsson í hlut- verki sínu. Hinn full- komni jafningi SÝNINGUM á einleiknum Hinn fullkomni jafningi fer senn að ljúka og verður síðasta sýning laugardagskvöldið 6. mars kl. 20. Aukasýning verð- ur mánudagskvöldið 1. mars kl. 21. Verkið fjallar um líf fimm samkynhneigðra karlmanna í Reykjavík samtímans. Þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir en eiga það eitt sameiginlegt að vera allir að reyna að lifa líf- inu á sínum forsendum og reyna að brjótast út úr þögn- inni. Merkar ritgerðir í þnátíu ár BÆKUR Mttúrufræðirit EYJAFJÖLL - Drög að jarðfræði eftir Jón Jónsson jarðfræðing. 112 bls. Útgefandi: Rannsóknastofnunin Neðri Ás, Hveragerði 1998. RANNSÓKNASTOFNUNIN Neðri Ás hefur gefið út hvorki meira né minna en 53 veglegar fræðiritgerðir um íslenzk efni á síð- astliðnum þrjátíu árum. Nú kunna margir að spyrja, hver er þessi stofnun, sem hefur staðið myndar- lega að útgáfu á slíkri ritaröð. Því er til að svara, að Gísli Sigurbjörns- son, sem var forstjóri Elliheimilis- ins Grundar, á heiðurinn af stofnun- inni, sem undrahljótt hefur verið um. Gísli var þekktur fyrir mikla eljusemi að hverju, sem hann gekk, og sparaði hvorki fé né fyrirhöfn, ef því var að skipta. Hann var þegn- skaparmaður og ógleymanlegur öll- um, sem honum kynntust, fyrir fjöl- þættan áhuga á öllu því, sem gat orðið þjóðinni til heilla. Vert er að minnast hans fyrir það, að vera einn hinna fyrstu, sem beittu sér fyrir því, að hveraörverur voru rannsak- aðar í því augnamiði að hafa mætti af þeim gagn. I þá daga tóku ekki margir undir hugmyndir hans, enda var hann á mörgum stöðum langt á undan samtímamönnum sínum. Það yrði langt mál að greina frá öllum ritum stofnunarinnar, sem eru flest á sviði náttúrufræða. I stórum dráttum skiptast ritin þannig: 20 fjalla um grasa- og vist- fræði, 13 um landa- og jarðfræði, 10 um búfræði, 4 um veðurfræði, 3 um læknisfræði og 3 ritgerðir eru um dýrafræði, gerlafræði og hagfræði. Flestir höfundanna, sem hér skrifa, eru erlendir fræðimenn og engir aukvisar á sínu sviði. Tiixen, Ellen- berg og Böttcher eru til dæmis Gísli Sigurbjörnsson meðal virtustu gróðurfræðinga í Evrópu. Þá hafa nokkrir íslending- ar lagt til efni og má í þeim hópi nefna Steindór Steindórsson, Pál Bergþórsson, Þór Jakobsson, Ólaf Dýrmundsson og nú að síðustu Jón Jónsson. Margar þessara fræðiritgerða eru nokkurs konar skýrslur um ákveðið efni eða athugun, sem er- lendir fræðimenn hafa tekið saman að lokinni ferð um landið. I mörgum þeirra sannast hið fornkveðna, að glöggt er gests augað, þó að á stundum vilji brenna við, að erlend- um mönnum sjáist yfir augljós at- riði, sem okkur eru töm. Nýjasta ritið í röðinni (nr. 53), sem kom út fyrir skömmu, fjallar um jarðfræði Eyjafjalla. Höfundur- inn er Jón Jónsson (f. 1910), nestor íslenzkra jarðfræðinga, sem hefur unnið drjúgt starf eftir að venju- bundnum störfum lauk fyrir hart- nær tveimur áratugum og er enn að. Rit Jóns er - í fáum orðum sagt - jarðfræðilýsing á myndun og gerð Eyjafjalla; og í raun er það heldur meira, því að víða er leiðum og landslagi lýst. Fyrst er yfirlit yfir berggrunninn og síð- an er fjallinu skipt í afmörkuð svæði, sem lýst er á grein- argóðan hátt, eins og Drangshlíðarfjalli, Fimmvörðuhálsi og Goðalandi, svo fátt eitt sé nefnt; þá er einnig sagt frá ein- stökum fyrirbrigð- um náttúrunnar, svo sem eldvarparústum í Skollahausum, jarðhita og eisubergi í Skógaheiði. Frá- sögn Jóns er skýr og fer honum vel úr hendi að rekja landa- og jarðfræði svæðisins, svo að hverjum manni er auðskilið, og að auki fylgir með lítið en greinilegt jarðfræðikort. A stöku stað skýtur Jón inn meitluðum um- mælum, sem hafa víðtæka skírskot- un; má hafa af því nokkurt gaman. Ritið er í handhægu broti og prýtt fjölda ljósmynda. Því miður er lit- greiningu mynda talsvert áfátt og helzt má telja ritinu til áfellis, að prófarkalestur er slakur. Víst er, að fæstir þeirra, sem aka austur undir Eyjafjöll, geri sér fylli- lega grein fyrir umfangi og fjöl- breytileika fjallaklasans. Sumt má þó auðveldlega sjá frá þjóðvegi, ef menn hafa vakandi auga með lands- lagi, en myndunin er þó margþætt- ari en svo, að slík skoðun nægi. Þessi leiðarvísir Jóns Jónssonar mun því án efa veita mörgum enn meiri ánægju af ferð undir Fjöllin en áður, ef menn gefa sér tíma til þess að staldra við og skyggnast inn í heim jarðfræðinnar. Verður mér þá fyrst hugsað til Eyfellinga sjálfra, leiðsögumanna og reyndar allra, sem unna íslenzkri náttúru. Enginn þreytist á leiðsögn Jóns. Ágúst H. Bjarnason Jón Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.