Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 46

Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 46
>16 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JOHANNA SIGURÐARDÓTTIR + Jóhanna Sig- urðardóttir fæddist á Vífilsstöð- um 27. mars 1922. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 17. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sig- urður Magnússon, yfirlæknir á Vífils- stöðum, f. 24. nóv- ember 1869, d. 20. júlí 1945 og Sigríð- ur J. Magnússon, f. 5. júní 1892, d. 21. nóvember 1977. Systkini Jóhönnu voru: Magnús, f. 1916, d. 1979; Páll, f. 1917, d. 1966 og Margrét, f. 1920. Jó- hanna giftist Sigurði Elíassyni 1956. Þau slitu samvistir. Utför Jóhönnu fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. ri Á Vífilsstöðum hefur margt breyst á liðnum áratugum, þótt löngunin sé þar enn ríkjandi til þess að láta gott af sér leiða. Sam- göngur voru miklu stopulli og 1 starfsmenn og sjúklingar voru eins og í litlum heimi út af fyrir sig. Um helgar og á hátíðum var stundum fjölmennt, farið var í gönguferðir, stundum út f hraun eða niður að vatni og siglt á bátunum. Börn læknanna og annarra starfsmanna sáust daglega og urðu nánir leikfé- lagar. Börn hjónanna, Sigríðar J. Magnússon og Sigurð- ar yfirlæknis, urðu mínir æskuvinir, eink- anlega yngsta dóttirin, Jóhanna, jafnaldra mín, oftast kölluð Lissa. Minningar æskuár- anna eru oft tengdar Lissu minni. Við fórum milli húsa og höfðum þann sið að skiijast hvor frá annarri í humátt frá líkhúsinu. Væri þar ljós, boðaði það dauðsfall á hælinu og tókum við þá sprettinn hvor heim tO sín. Við Lissa mín urðum eins konar sam- lokur í litlu samfélagi og mátti vart hvor af hinni sjá. Við vorum báðar grannar, ekki mjög heilsugóðar og máttum leika okkur að vild, en æskuár okkar voru viðburðarík. Lissa mín veiktist alvarlega níu ára gömul. Hún lá marga mánuði og nærðist lítið. Mamma hennar saumaði grænan sOkipoka, vafði snúrunni um úlnlið hennar, launaði henni með smápeningi fyrir hverja matarörðu og gaf henni tuttuguog- fimmeyring fyrir hvert ,joðmjólk- urglas", sem hún kom niður. Sjald- an hef ég séð móður fóma sér meira fyrir barn sitt. Meðan Lissa mín hvíldist og svaf, beið ég stund- um úti á tröppum þar til hún vakn- aði. Dagurinn var langur fengi ég ekki að leika við Lissu mína. Við Lissa vorum aldar upp við mikið frjálsræði, fengum að gramsa í alls konar dóti, leika leikrit og halda sýningar. Við gáfum út hand- skrifað blað, sem við nefndum Sól- 111IIII1111III ^ H H H H H H H H H H H 1 H H H Eifisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 Diiuiimiiiiiir Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Altan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN KRISTINN GUÐMUNDSSON, Greniteig 20, Kefiavík, lést á Landspítalanum aðfaranótt miðvikudagsins 24. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Auður Jónsdóttir, Bjargey Sigrún Jónsdóttir, Guðmundur Sigmar Jónsson, Rúnar Ágúst Jónsson, Pétur Tryggvi Jónsson, Birgir Ingólfsson, Margrét Linda Ásgrfmsdóttir, Ólöf Hildur Egilsdóttir og barnabörn. + Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HELGA JÓNINA MAGNÚSDÓTTIR frá Blikastöðum, til heimilis á Hlaðhömrum, Mosfellsbæ, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 24. febrúar. Sigsteinn Pálsson, Magnús Sigsteinsson, Marta Sigurðardóttir, Kristín Sigsteinsdóttir, Grétar Hansson, barnabörn og barnabarnabörn. skin, þar sem við komum á fram- færi ýmsum áhugamálum. I upp- hafi leikja okkar var oft byrjað á því að skipta leikfóngum, og vorum við eitt sinn eitthvað að þrátta, þeg- ar mamma hennar, Sigríður, skarst í leikinn. Hún stakk upp á því, að önnur okkar ætti að skipta, en hin að velja á milli helminganna. þannig væri auðvelt að ná sáttum. Lissa var mikill dýravinur, og það olli okkur miklum áhyggjum, að hún átti kött en ég hund. Hvern- ig sem við reyndum að láta þá ving- ast gekk það ekki. Okkur datt ráð í hug, við skyldum halda fast utan um þá og láta þá horfast í augu, en þá hlytu kisa og hvutti að verða vin- ir. Svo illa vildi til, að dýrin brutust úr fangi okkar og upp hófst gelt, hvæs og hávaði. Eftir mikil áflog skellti kisi sér upp í símastaur, sá sér þar borgið, og fá varð mann með stiga til að ná honum niður aft- ur. Eftir þetta var hætt við allar sáttatilraunir. I gestabók löngu síð- ar teiknaði Lissa mín okkur stelp- urnar akandi barnavögnum. I öðr- um þeirra var hundur en hinum köttur, en hún hafði mikið og gott skopskyn eins og kom fram í ýms- um verkum hennar. Við Lissa vorum svo nánar vin- konur, að okkur fannst afleitt að geta ekki talað saman, án þess að allir skildu okkur. Okkur fannst rétt að búa til okkar eigið tungu- mál, rituðum upp alls konar orð og settum saman bók yfir nýja málið okkar. Ungur piltur var þá í skóla með okkur, og við biðum þess með óþreyju, að hann færi út. þegar hann hafði skellt hm'ðinni rækilega á eftir sér, tókum við til við verk okkar. En viti menn, hann hafði þá aldrei farið út, falið sig og birtist þegar minnst varði. Eftir rifrildi og orðaskak var hann hrakinn burt. Við strikuðum út orðin, sero hann hafði heyrt og héldum áfram að smíða orðabókina okkar. Lissa var sautján ára, þegar hún fluttist með fjölskyldu sinni í bæinn og bjuggu þau við Laugaveginn. Eftir menntaskólanám vann hún á skrifstofu, sigldi síðan út til Hafnar, lærði að mála á postulín og margs konar handavinnu. Síðan vann hún um skeið á auglýsingastofu Ut- varpsins, en lengst af hjá Trygg- ingastofnun ríkisins, þar sem hún starfaði fram að eftirlaunaaldri. Hún giftist Sigurði Elíassyni garð- yrkjumanni, en þau slitu samvistir, og Lissa fluttist aftur til móður sinnar á gamla heimilið. Aldrei gleymdi Lissa afmælisdög- um ættingja og vina. Hún mætti síðast til mín í nýjum, rauðum kjól, vel tii höfð eins og vanalega, gætin í orðavali, og öllum leið vel í návist hennar. Hún var fríð sýnum, grann- vaxin, og úr brúnum augum hennar skein væntumþykja og hlýja. Lissa var barngóð, og aldrei heyrði ég hana tala illa um nokkum mann. Hún lagði oftast nær eitthvað já- kvætt til málanna. Þegar eitthvað amaði að, kenndi hún engum um nema sjálfri sér og byrgði allan sársaukann innra með sér. Lissa mín var listræn, viðkvæm í lund og tók oft hlutina nærri sér. Hún reif sig upp, mætti til vinnu og allt virtist ætla að ganga vel, en sárindin gléymdust seint. Hún byggði upp sjálfsvirðingu sína með fallegum munum, ferðalögum og fatakaupum, sem freistuðu hennar og áttu vel við hennar fegurðar- skyn, en allt vildi sækja í sama farið aftur. Hún missti foreldra sína, báða bræður sína og búið var að segja upp húsnæðinu á Laugaveginum. Eftir var Margrét, oftast kölluð Getta, sem reyndist systur sinni mikil hjálparhella. Lissa fluttist árið 1980 að Hátúni 10, og þar undi hún vel hag sínum um skeið. Við drukkum þar stundum kaffi, fengum léttvínsglas á undan og skemmtum okkur vel. Lissa naut þess að hafa ættingja og vini í kringum sig, var góður gestgjafi, og þannig er gott að minnast hennar. Nú er Lissa mín öll, en eftir stendur mynd hennar, mynd ein- lægrar vinkonu, sem öllum vildi gott gera. Ég samhryggist Gettu og öðrum vandamönnum og blessuð sé minning Lissu minnar. Guðrún P. Helgadóttir. GUÐMUNDUR KRISTINN GUNNARSSON Guðmundur Kristinn Gunn- arsson fæddist 12. júlí 1912 í Miðdal í Laugardal. Hann lést á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund 16. febrúar siðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Guðrún Guð- mundsdóttir frá Sandlæk, Gnúp- verjahreppi og Gunnar Þorsteins- son frá Reykjum á Skeiðum. Guð- mundur var elstur systkina sinna. Bræður hans voru Sig- hvatur, f. 31.8. 1915, Iátinn og Þorsteinn, f. 27.6. 1917, látinn. Eftirlifandi systir hans er Guð- rún Steinunn, f. 13.5. 1921 til heimilis í Reykjavík. Guðmundur var ókvæntur og barnlaus. Útför Guðmundar fer fram frá Fossvogskirkju og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hann Guðmundur frændi minn, hæglátur sómamaður, fékk hægt andlát þriðjudaginn 16. febrúar sl. Hann var elstur fjögurra systkina og við fráfall íoður þeirra, sem lést þá er þau voru öll á ungum aldri, kom það í hlut Guðmundar að vera fyrirvinna fjölskyldunnar. Hann stóð sig í því með prýði en hugsaði minna um eigin hag og gerði bræðr- um sínum tveimur kleift að fara í iðnnám. Hann kvæntist aldrei en hélt heimili með móður sinni og systkinum. Systkini hans fluttu að heiman og stofnuðu eigin heimili og þau mæðgin fluttu til Guð- rúnar systur hans og hennar manns og bjó hann lengst af ævi sinn- ar hjá þeim og börnum þeirra. Guðmundur var greiðvikinn og hjálp- samur. Ég minnist þess alltaf með þakklæti þegar ég, ung og aura- lítil skólastúlka, ætlaði í skólaferðalag til útlanda með félög- um mínum en vantaði nokkuð upp á að eiga fyrir ferðinni. Ég leitaði þá til Guðmundar frænda og hann brást vel við bón minni og lánaði mér það sem upp á vantaði. Ég minnist margra heimsókna hans til okkar á Hverfisgötuna. Hann leit gjarnan inn þegar hann var á ferðinni í grenndinni, þáði kaffísopa og spjallaði. Guðmundur stundaði almenna verkamannavinnu í Reykjavík, lengi hjá Eimskip en síðan hjá Reykjavík- urborg eða allt til þess að heilsan gaf sig og hann varð að draga sig í hlé. Hann var vel verki farinn og vann störf sín af alúð og dugnaði. Síðustu árin voru erfið fyrir Guð- mund. Hann var farinn að heilsu en hélt þó andlegu þreki sínu. Hann var vel minnugur og hafði gaman af að tala um æskustöðvarnar í Laugardal og rifja upp ferðalög með bræðrum sínum um landið þegar vegir voru vegleysur og flestar ár óbrúaðar. í dag þegar við kveðjum Lissu frænku langar mig að minnast hennar í nokkrum orðum. Það er hætt við að slík ummæli hljómi fá- tæklega miðað við hversu stór hluti hún hefur verið af fjölskyldunni í gegnum árin. Lissa átti við erfíðan sjúkdóm að stríða og auðvitað hef- ur hann sett mark sitt á flest henn- ar samskipti. Núna, þegar ég sest niður til að skrifa þessar línur, hugsa ég þó tU þess með aðdáun að ég man varla til þess að hún hafi ekki komið færandi hendi til okkar systkinanna þegar hún átti leið á Nesbalann. Sama hversu veik hún var, þá virtist henni alltaf vera of- arlega í huga að gleðja okkur krakkana. Ég á henni margt að þakka og bið Guð að vera með henni. Eva. Mig langar tU að minnast Lissu minnar með nokkrum orðum. Allt frá því að ég man eftir mér hefur Lissa verið uppáhalds frænka mín. Hún sem var svo falleg og svo góð. Hún var bæði mjög listræn að eði- isfari, einstaklega smekkleg, gjaf- mild og svo ljúf að öllum féll vel við hana. Líf hennar var oft á tíðum erfitt vegna sjúkdóms sem hún þurfti að beijast við áratugum sam- an. Ég hef stundum sagt að það hljóti að bíða hennar eithvert sér- stakt hlutskipti á himnum þar sem hin mikla þjáning sem hún hefur þurft að þola í gegn um árin muni koma henni að gagni. Það er því mikill léttir að hún skuli nú loks hafa fengið hvfldina. Við, fjölskylda mín, vorum svo lánsöm að fá að hafa hana reglu- bundið sem gest í fjölda ára og eig- um við henni margt að þakka. Börn mín eru mun ríkari eftir að hafa fengið að njóta hennar elsku í upp- vextinum og hún hefur kennt okkur öllum samkennd og umburðai'lyndi einungis með veru sinni. Ég minnist hennar með miklum söknuði og þakklæti í huga og ég bið Guð að blessa hana á hennar leið. Sigríður (Sigga). Guð blessi minningu Guðmundar Gunnarssonar. Sigrún Sighvatsdóttir. í dag kveðjum við frænda okkar og vin, Guðmund K. Gunnarsson, eða Mumma eins og við kölluðum hann. Hann lést 16. febrúar sl. á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Um 16 ára aldur flutti Mummi með foreldrum sínum og systkinum til Reykjavíkur. Eftir nokkurra ára dvöl þar misstu þau föður sinn og kom þá í hlut Mumma að sjá fyrir heimilinu ásamt móður sinni. Mummi giftist aldrei en hélt heimili með móður sinni og við frá- fall hennar bjó hann hjá fjölskyldu systur sinnar í Heiðargerðinu, það- an sem við eigum margar af okkar bestu minningum um hann frá upp- vaxtarárunum. Það var nánast sama hvað kom uppá hjá okkur, ef við fór- um upp á loft til Mumma gátum við verið viss um vináttu hans og trún- að. Aldrei heyrðum við hann hall- mæla nokkrum manni og aldrei heyi’ðum við nokkurn hallmæla hon- um. Mummi lærði aldrei á bíl, heldur fór hann allra sinna ferða á reiðhjóli, og oft horfðum við á eftir honum full aðdáunar þegar hann hélt á stað í öllum veðrum. Hann vann alla sína ævi erfiða verkamannavinnu og var trúr sínu verkalýðsfélagi. Þegar fjölskyldan fluttist í Búland kom Mummi með okkur. Um það leyti hætti hann að vinna og fljót- lega upp úr því fór að bera á veik- indum hans sem flýttu fyrir því að hann fluttist á Grund. Hann dvaldist þar í góðu yfirlæti þar til hann fékk hægt andlát, sem var í fullu sam- ræmi við persónu hans. Við biðjum Guð að blessa minn- ingu hans og þökkum fyrir að hafa fengið að vera honum samferða. Hvíldu í friði. Systkinin, Gunnar, Birgir, Steinunn og Guðnín.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.