Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 53

Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 53 FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn HVER veit nema eitthvert þessara barna eigi í framtíðinni eftir að leggja fyrir sig blaðamennsku eða ljós- myndun eða vinna við blaðaútgáfu á annan hátt? Alyktun Þingflokks óháðra Skammsýni að undirrita ekki Kyoto-bókunina ÞINGFLOKKUR óháðra hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinn- ar um að undirrita ekki Kyoto-bók- unina: „Þingflokkur óháðra fordæmir þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að und- irrita ekki Kyoto-bókunina við lofts- lagssamning Sameinuðu þjóðanna fyrir tilskilinn frest 15. mars nk. Með því er ríkisstjórnin að skerast úr leik í alþjóðlegri viðleitni ríkja heims að koma í veg fyrir háskaleg- ar loftslagsbreytingar af manna- völdum. I Kyoto var Islendingum úthlutað hæstu losunarmörkum meðal iðn- ríkja. í stað þess að draga úr meng- un er Islandi í bókuninni heimiluð 10% aukning frá viðmiðunarmörk- um. Sjálf hefur ríkisstjórnin óskað eftir langtum rýmri losunarheimild- um með vísun til stóriðjustefnu sinnar. Aðilar að samningnum frest- uðu því á ársþingi sínu í Buenos Aires í nóvember 1998 að taka af- stöðu til þeirrar málaleitunar. Þingflokkur óháðra telur ákvörð- un ríkisstjórnarinnar að skerast úr leik í þessu afdrifaríka máli bera vott um fádæma skammsýni og ganga gegn hagsmunum Islendinga í bráð og lengd. Með því sendir rík- isstjórnin þau skilaboð til umheims- ins að hún meti meira þrönga eigin- hagsmuni en að sýna samstöðu með öðrum þjóðum í glímunni við sam- eiginlegan vanda. Enn óskiljanlegri er þessi ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar í ljósi kröfu hennar um enn frek- ari losunarheimildir. Þessi ákvörð- un mun einnig óhjákvæmilega hafa neikvæð áhrif á möguleika Islands til áhrifa í samningum á alþjóða- vettvangi um umhverfismál, til dæmis í yfirstandandi viðræðum um að draga úr mengun heimshafanna með þrávirkum lífrænum efnum.“ s Heimsókn úr Alftanesskóla Morgunblaðið/Asdís FIMM börn úr Reykjavík fengu í liðinni viku afhent verðlaun í Slökkvi- stöðinni í Reykjavík fyrir þátttöku í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðsmanna. Verðlaun fyrir þátttöku í eldvarnagetraun ÁHUGASAMUR höpur 6-12 ára nemenda úr Álftanesskóla, ásamt þremur kennurum, heimsótti Morgunblaðið í vikunni vegna þemaviku skólans. Nemendurnir höfðu valið sér viðfangsefni eftir áhugasviðum og langaði Morgunblaðshópinn að fræðast um blaðamennsku og ljós- myndun vegna fyrirhugaðrar út- Ráðherra ræðir menntamálin BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra heldur erindi á opnum fundi um skóla- og fræðslunefnd Sjálfstæðisflokksins í Valhöll við Háaleitisbraut kl. 17.15 í dag. Yfir- skrift fundarins er Nýjar námskrár - betri skóli. Erindi menntamálaráðherra nefnist Menning og menntun - for- senda framtíðar og mun hann þar ræða endurskoðun námskráa á öll- um skólastigum og önnur for- gangsverkefni ríkisstjórnar í menntamálum. Einnig munu þau Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður þingflokks^ sjálfstæðis- manna, og Helgi Arnason skóla- stjóri flytja framsöguerindi. Fund- arstjóri verður Þorvarður Elías- son, rektor Verzlunarskóla Islands. Að loknum framsöguerindum gerfst tími til umræðna og fyrir- spurna. Ráðstefna um starfsmennta- áætlun Evrópu- sambandsins RÁÐSTEFNA á vegum Leonardo da Vinci, staifsmenntaáætlunar Evrópusambandsins, verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 26.-27. febráar en Leonardo er ætlað að koma á framfæri nýjungum í starfsmenntun, bæði innan skóla- kerfisins og í atvinnulífinu. Yfir- skrift ráðstefnunnar er „Develop- ing Self-esteem and Entreprene- urial Spirit". Skipuleggjendur ráð- stefnunnar eru Landsskrifstofa Leonardo á íslandi og stjórnar- deild menntamála hjá Evrópusam- bandinu. Ráðstefnuna sækja 40 verkefnis- stjórar evrópskra tilraunaverkefna um gerð kennslugagna og náms- efnis sem ætlað er að stuðla að efl- ingu sjálfstrausts og frumkvæðis, sérstaklega meðal ungs fólks. Taka verkefnin einnig til þeirra er standa höllum fæti námslega eða á gáfu skólablaðs. f skólablaðinu má finna viðtöl við nemendur og kenn- ara og grein um heimsókn á Morg- unblaðið ásamt myndum. Nemendurnir voru allir með blaðamannapassa um háisinn þar sem fram kom nafn nemanda og starfsheiti sem þeir höfðu valið sér sem var annaðhvorí blaðamaður eða ljósmyndari. vinnumarkaði. Valinkunnir evr- ópskir sérfræðingar um þetta mál- efni verða meðal þátttakenda, auk fulltráa frá um 20 landsskrifstofum Leonardo_ í Evrópusambandslönd- unum og Islendinga sem tekið hafa þátt í Leonardo-verkefnum á þessu sviði. Heildarfjöldi þátttakenda verður um 90 frá 28 löndum. Ráðstefnan hefst föstudaginn 26. febráar kl. 9 og henni lýkur laugar- daginn 27. febrúar kl. 18. Á meðan á ráðstefnunni stendur verður sýn- ing á verkefnum sem unnin hafa verið með styrk frá Leonardo da Vinci-starfsmenntaáætluninni í fundarsal Hótel Loftleiða. Bakskóli Gigtar- fólags Islands BAKSKÓLI Gigtarfélags íslands hefst 1. mars nk. kl. 17-19. Ragn- heiður Ýr Grétarsdóttir sjúkra- þjálfari kennir að nota og styrkja bakið á réttan hátt. Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu baksins og helstu mein og vamir þeirra, líkamsbeit- ingu og vinnuvernd. Hver tími er byggður upp af bæði bóklegum og verklegum þáttum. Námskeiðið er einu sinni í viku í þrjár vikur en einnig er gert ráð fyrir að hópurinn geti hist eftir 4-6 vikur til að ræða hvernig gagni að rifja upp það sem lærst hefur. Námskeiðið kostar 3.950 kr. fyr- ir félagsmenn en 5.650 kr. fyrir aðra. Tekið er við skráningu^ á skrifstofu Gigtaifélags íslands, Ár- múla 5. Allir sem vilja sty.ðja og styrkja bakið sitt eru velkomnir. Fyrirlestur um lífræna ræktun ÓLAFUR Dýrmundsson, lands- ráðunautur Bændasamtaka Is- lands í lífrænum búskap og land- nýtingu, heldur fyrirlestu r á veg- um Líffræðifélagsins fimmtudag- inn 25. febráar sem hann nefnir: Lífræn ræktun - búskapur í sátt við umhverfið. Ólafur fjallai' m.a. um undir- stöðuatriði lífrænnar ræktunar, skilyrði hér á landi til lífræns bú- skapar, reglur, eftirlit og vottun. Hópurinn skoðaði prentsmiðju Morgunblaðsins, horfði á mynd- band um starfsemina og fór í skoð- unarferð um húsið. Þeir nemendur sem voru í hlutverki ljósmyndara voru með myndavélar og voru duglegir að taka myndir af því sem fyrir augu bar. Þeir sem voru í hlutverki blaðamanna voru áhugasamir og spurðu margs. Fyrirlesturinn verður haldinn í Lögbergi, stofu 101, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Námskeið kirkj- unnar fyrir starfsfólk leik- skóla NÁMSKEIÐ fyrir starfsfólk leik- skóla verður haldið á vegum kirkj- unnar í safnaðarheimili Háteigs- kirkju 2. hæð, laugardaginn 27. febráar kl. 10-14. Námskeiðið ber yfirskriftina „Hlúum að börnunum" og er efni þess tvíþætt. Annars vegar flytur Benedikt Jóhannsson sálfræðingur fyrirlestur um böm og skilnaði og hins vegar mun Halla Jónsdóttir kennari fjalla um siðgæðisþroska barna á leikskólaaldri og hlut starfsfólks í leikskóla í að efla hana. Þá verður til sýnis og kynn- ingar efni frá fræðsludeild kirkj- unnar til notkunar með leikskóla- bömum, m.a. í tengslum við páska ogjól. Borin verður fram léttur hádeg- isverður í boði Reykjavíkurpró- fastsdæmis vestra. Námskeiðið er opið fyrir starfsfólk leikskóla og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Þátttakan tilkynnist til Biskups- stofu. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: „Stjórn Lögreglufélags Reykja- víkur, LR, fagnai- framkominni kröfu um opinbera rannsókn vegna atburðar á brunavettvangi þegar málningarverksmiðjan Harpa brann þann 31. janúar sl. Slík rannsókn leiðir vonandi hið sanna í ljós í málinu og leiðréttir rangfærslur sem komið hafa fram í fjölmiðlum um þennan atburð. Það er oft á tíðum fjölmiðlum til LANDSSAMBAND slökkviliðs- manna afhenti í Iiðinni viku verð- laun vinningshöfum í eldvarnaget- raun, sem lögð var fyrir grunn- skólanemendur í tilefni af eld- varnaviku um mánaðamótin nóv- ember og desember þegar slökkvi- liðsmenn heimsóttu nær alla grunnskóla landsins. Um 2.500 svör bárust til lands- sambandsins og voru nöfn 20 barna dregin úr innsendum lausn- um. Fimm vinningshafar voru dregnir út í Reykjavík, Viktor Lekve, Viktoría Halldórsdóttir, Óskar Hallgrímsson, Kári Sæ- mundsson og Þorgils Helgason. Þeim voru afhent verðlaunin á fimmtudag og fylgdi sérstakt við- urkenningarskjal Landssambands slökkviliðsmanna með árituðu vansa hvernig þeir fjalla um störf lögreglunnai' í skjóli þess að lög- reglumenn geta ekki borið hönd fyr- ir höfuð sér vegna þagnarskylduá- kvæða sem um þá gilda. Samskipti lögreglu og fjölmiðla- manna er sem betur fer oftast með miklum ágætum en því miður eru innan raða fjölmiðlamanna aðilar sem líta þannig á að í skjóli starfs síns séu þeii' yfii’ það hafnir að hlýta boðum og bönnum sem lögreglan þarf að fram- fylgja vegna starfa sinna.“ nafni. Alls átti að veita verðlaun í 16 slökkviliðsstöðvum um land allt. Aðrir vinningshafar voru Ólafur Dór Baldursson, Akranesi, Guðrún Eyja Erlingsdóttir, Hvammstanga, Kristfinnur Ólafsson, Ólafsvík, María Berg Hannesdóttir, Tálkna- firði, Hulda. Rún Ingvadóttir, Akureyri, Ólafur Örn Sigurðarson, Húsavík, Heiðrún Sara Omarsdótt- ir, Vopnafirði, Orri Snævar Stef- ánsson, Höfn, Erla Rán Eiríksdótt- ir, Neskaupstað, Ingibjörg Guð- mundsdóttir, Vestmannaeyjum, Kári tilfsson, Selfossi, Kristrós Dögg Einarsdóttir, Hvolsvelli, Hel- ena Rós Þórólfsdóttir, Keflavík, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, Grinda- vík, og Hörður Páll Guðmundsson, Hafnarfirði. LEIÐRÉTTING Rangt föðurnafn Á MENNTASÍÐU s.l. þriðjudag misritaðist föðurnafn Guðrúnar Öldu Harðardóttur. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. Sjómannaskólinn 1 Úr verinu í gær var fjallað um skrúfudag Vélskóla Islands. Þar var sagt að skrúfudagurinn yrði haldinn hátíðlegur í húsakynnum Stýri- mannaskólans. Það er ekki alls kostar rétt. Vélskóli Islands og Stýrimannaskólinn í Reykjavík eru báðir til húsa í Sjómannaskólanum í Reykjavík og deila því húsnæði sín á milli. Skrúfudagurinn verður því haldinn hátíðlegur í húsakynnum Vélskóla íslands, sem eru hluti af Sjómannaskólanum í Reykjavík. Lögreglufélag Reykjavíkur Fagnar kröfu um opinbera rannsókn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.