Morgunblaðið - 25.02.1999, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Deilt um trúverðugleika í frá-
sögn Bretans í E-töflumálinu
SAKAMAL Bretans Kiu Briggs
var flutt í gær í Héraðsdómi
Reykjavíkur og tókust Ragnheiður
Harðardóttir saksóknari og verj-
andi Kiu, Helgi Jóhannesson
hæstaréttarlögmaður, á með rök-
um er varða m.a. trúverðugleika í
framburði Bretans og ástæðu hans
fyrir komu hans til landsins.
Málflutningur saksóknara bygg-
ist á því að frásögn ákærða af
hingaðkomu sinni fái ekki staðist.
Þar kom fram að Kiu hefði verið
með litla sem enga peninga við
komuna til landsins og hefði hann
lýst því við fyrstu skýrslutöku hjá
lögreglu að hann hefði verið með
greiðslukort í tösku sinni, en taldi
síðan að hann hefði gleymt því
heima. Síðar hefði komið í ljós að
Hund-
blautur
HANN var rennandi blautur og
heldur vonleysislegur á svip-
inn, hundurinn sem varð á vegi
ljósmyndarans í miðborginni í
gær.
Árekstur í Kópavogi
Tveir menn
á slysadeild
ÖKUMENN tveggja bifreiða voru
fluttir á slysadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur eftir harðan árekstur
bílanna á mótum Hlíðarhjalla og
Digranesvegar í Kópavogi
skömmu eftir hádegi í gær.
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi, voru meiðsli mannanna ekki
talin alvarleg. Bílamir skemmdust
nokkuð en eru ekki taldir ónýtir.
hann átti ekkert greiðslukort. Sú
saga ákærða að hann hefði ætlað
sér að koma til landsins í leit að
plássi á fiskibáti fannst sækjanda
ennfremur ótrúverðug í ljósi þess
að hann hefur enga reynslu af sjó-
mennsku og hafði engan búnað til
þess konar starfa.
Verjandi Kiu sagði á móti að
þrjú vitni hefðu talað við Kiu um
sjómennskuáformin áður en hann
kom til landsins og því væri hann
ekki einn um þann framburð. Hafi
sjómennskuáhugi Kiu því verið
ljós áður en hann kom til landsins.
Saksóknari sagði að Kiu hefði
engar ráðstafanir gert til að kom-
ast frá Keflavíkurflugvelli til
Reykjavíkur enda hefði hann ekki
átt fyrir rútufargjaldi eða hót-
elgistingu. Þá hefði hann verið
með uppdrátt af komusal á Kefla-
víkurflugvelli þar sem staðsetning
lögreglu og tollvarða hefði verið
merkt inn á með skýringum á
ensku.
Samningur vitnis við lögregluna
Veigamestu rök verjanda hnigu
að framburði eins vitnis, sem sagð-
ist hafa gert samning við lögreglu,
sem fól það í sér að vitnið hefði
haft verulega hagsmuni af því að
búa til fíkniefnamálið og líklegt að
vitnið hefði komið e-töflunum fyrir
í farangri ákærða. Verjandi sagði
ennfremur að ákæruvaldið hefði
ekki sannað ásetning ákærða um
að hafa flutt eiturlyfin inn í landið.
Lægju ekki fyrir trúverðugar upp-
lýsingar sem tengdu ákærða við
efnin.
Verjandi sagði að taska Kiu
hefði legið eftirlitslaus í íbúð fram-
angreinds vitnis í tvo sólarhringa
áður en Kiu kom til Islands og því
hefði hver sem er getað sett e-töfl-
urnar í töskuna. Ein vísbending
um að ákærði hafi ekki vitað um e-
töflurnar í farangi-i sínum sé sú að
hann tékkaði tösku sína inn í stað
þess að vera með hana í handfar-
angri, sem sé harla ótrúlegt hafi
Kiu vitað um fíkniefnin í töskunni.
Pétur Guðgeirsson héraðsdóm-
ari dæmir í málinu í næsta mánuði.
Verði Kiu sakfelldur getur hann
átt yfir höfði sér allt að 10 ára
fangelsi samkvæmt hégningarlög-
um.
Morgunblaðið/Ásdís
Fleiri málverk
björguðust en
talið var fyrst
Morgunblaðið/Golli
MYNDVERKIN sem náðust mismikið skemmd úr brunanum í Gallerí
iBorg eru nú í vörslu tryggingafélags fyrirtækisins, VÍS. Þessi mynd er
eftir Kjarval og er hún nokkuð skemmd af sóti.
KOMIÐ hefur í ljós að mun fleiri
málverk björguðust úr brunan-
um í Galleríi Borg í Reykjavík
aðfaranótt laugardags eða 130 til
150 af milli 300 og 400 málverk-
um sem þar voru, að mati Péturs
Þórs Gunnarssonar, eiganda
Gallerís Borgar. Þeirra á meðal
eru stórt málverk frá Þingvöllum
eftir Kjarval og abstraksjónir
eftir Svavar Guðnason.
Pétur segir margar myndanna
sótugar og skemmdar og því
unnt að gera við þær, sömuleiðis
megi gera við þær myndir sem
hafi verið Ijærst brunastaðnum
og undir gleri, jafnvel sé ekki
annað en ramminn skemmdur.
Aðrar myndir séu trúlega ónýt-
ar. Hann segir að alls sé þarna
um 130 til 150 myndir að ræða
en milli 300 og 400 niyndir voru í
galleríinu þegar eldurinn kom
upp. Hann telur verðmæti Kjar-
valsmyndarinnar vera um 800
þúsund krónur og segir að mynd
Svavars sé 500 til 600 þúsund
króna virði.
Þeir sem áttu verk hjá Galleru
Borg hafa verið beðnir að skila
inn afriti af kvittunum til að
finna megi nákvæmlega hversu
mörg verk hafi verið þar og
hvert verðmæti þeirra hafi verið.
Þegar menn koma með málverk
til uppboðs er það verðmetið og
tryggt samkvæmt því. Sagði Pét-
ur endanlegan lista ekki verða
ljósan fyrr en að liðnum
nokkrum dögum.
Unnið er nú að því að moka út
brunarústum innréttinganna og
segir Pétur allt ónýtt í 500 fer-
metra húsnæði gallerísins, þ.e.
milliveggir, málverkarekkar, raf-
og pípulagnir, húsgögn, innrétt-
ingar og tæki. Þegar hreinsun er
lokið verður nýjum milliveggjum
og Iögnum komið fyrir og hús-
næðið búið tækjum á ný og segist
Pétur stefna að því að hefja
rekstur Gallerís Borgar með eðli-
legum hætti eftir þrjár til fjórar
vikur.
Eigandi húsnæðisins er Þyrp-
ing en tryggingafélag þess er
Sjóvá-AImennar og sagði Pétur
það standa fyrir endurbyggingu
veggja og annars sem naglfast
var. Tryggingafélag sitt, VIS,
muni hins vegar bæta tjón á bún-
aði og tækjum í eigu Gallerísins.
Pétur sagðist hafa tryggt það
fyrir um eina milljón króna sem
hann sagði að væri of lágt, hann
hefði ekki hugsað um að uppfæra
verðmæti innbúsins. Taldi hann
tryggingarupphæðina ekki duga
fyrir mikið meitu en nýrri lýs-
ingu en þá væri eftir að fá hús-
gögn, tölvur og önnur tæki.
Ekki enn vitað
um orsök
Lögreglan í Reykjavík vinnur
enn að rannsókn á upptökum
eldsins. Ómar Smári Armanns-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn
tjáði Morgunblaðinu að ekkert
væri enn hægt að segja um hugs-
anlegar orsakir. Hann sagði
gang mála í brunarannsóknum
yfirleitt þann að þegar ljóst væri
hvar upptökin hefðu orðið gætu
menn farið að bollaleggja um or-
sakir. Ef þær ættu sér eðlilegar
skýringar næði málið ekki
lengra. Ef grunur vaknaði um
annað þyrfti að kanna hvaðeina
er varðaði hugsanlegar manna-
ferðir.
Ómar sagði ekkert hægt að
segja um það ennþá hvetjar or-
sakir brunans kynnu að vera.
Boðkerfí
Símans
ílag
BOÐKERFI Landssímans komst
í lag í gær.
Alvarleg hugbúnaðarvilla virð-
ist hafa orsakað bilunina í kerfinu
sem kom upp um fimmleytið að
morgni síðastliðins sunnudags
segir í fréttatilkynningu. Sérfræð-
ingur frá bandarískum framleið-
anda boðkerfisbúnaðarins kom til
landsins snemma í gærmorgun
með nýjan stýrihugbúnað fyrir
kerfið.
í tilkynningunni segir: „Lands-
síminn biður viðskiptavini sína
enn á ný velvirðingar á þeim
óþægindum sem hlotizt hafa af bil-
uninni í boðkerfinu. Fyrirtækið
mun gera allt sem í valdi þess
stendur til að tryggja að svipuð
bilun komi ekki upp í framtíðinni.
Áður en tekin verður ákvörðun
um endurnýjun eða áframhaldandi
uppbyggingu boðkerfisins mun
Landssíminn efna til samráðs og
viðræðna við yfirvöld almanna-
varna um stefnuna við framtíðar-
uppbyggingu boðkerfis í landinu.“
------------------
Kosningastj óri
Samfylkingar-
innar
HÁKON Gunnarsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri kosn-
ingastjórnar Samfylkingarinnar
frá og með 1. mars 1999.
Hákon Gunnarsson er 39 ára
gamalþ viðskiptafræðingur frá Há-
skóla íslands og rekstrarhagfræð-
ingur frá Handelshojskolen í
Kaupmannahöfn. Hákon hefur
starfað á fjárfestingasviði Aflvaka
hf. og verið framkvæmdastjóri hjá
íslenskum getraunum, fram-
kvæmdanefnd HM 95 og Samsölu-
bakaríi hf. Síðastliðið ár hefur
hann starfað sem fjármálastjóri
hjá íslenska járnblendifélaginu hf.
Hákon hefur störf hinn 1. mars
nk. og mun á sama tíma draga úr
störfum sínum hjá Járnblendifé-
laginu. í kosningastjórn Samfylk-
ingarinnar eru: Ari Skúlason for-
maður, Þröstur Ólafsson, Hulda
Ólafsdóttir og Reynir Ólafsson.
Maki Hákonar er Bryndís
Hlöðversdóttir alþingismaður og
eiga þau 2 syni. Hann á auk þess 2
dætur frá fyrra hjónabandi.
------------------
Starfrækslu-
nefnd gagna-
grunnsins
skipuð
SAMKVÆMT lögum um gagna-
grunn á heilbrigðissviði skipar
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra þriggja manna nefnd til að
hafa umsjón með gerð og starf-
rækslu gagnagrunns á heilbrigðis-
sviði. Ráðherra hefur skipað eftir-
talda til setu í starfrækslunefnd-
inni til fjögurra ára:
Davíð Þór Björgvinsson, pró-
fessor í almennri lögfræði við HI,
formaður, Jóhann Agúst Sigurðs-
son, prófessor í heimilislækningum
við læknadeild HÍ, og Ebba Þór
Hvannberg, lektor í tölvunarfræði
við raunvísindadeild HI.
Varamenn eru: Gestur Jónsson
hæstaréttarlögmaður, varafor-
maður, Torfi Magnússon, forstöðu-
læknir á endurhæfingar- og tauga-
sviði SR, og Anna Soffía Hauks-
dóttir, prófessor í verkfræði við
verkfræðideild HÍ.