Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
EITT af því sem yljar okk-
ur um hjartarætur eru
sögur af frægð og frama
íslendinga á erlendri
grund. I þeim efnum gerum við hik-
laust tilkall til allra sem teljast af ís-
lenskum ættum, eða eru fæddir af
íslensku foreldri, þó sjálfir hafi þeir
hvorki stigið fæti á íslenska jörð né
séu mælandi á íslenska tungu. Það
er ekki ofmælt þó í vissum skilningi
sé því haldið fram að áhrifamestur
„Islendinga" á þessari öld hafí verið
Vestur-íslendingui-inn Charles
Thorson, höfundur teiknimynda-
fígúrunnar Kalla kanínu (Bugs
Bunny) og fjölda annarra teikni-
fígúra sem lagt hafa ómældan skerf
til útbreiðslu bandarískrar fjölda-
menningar um gjörvalla heims-
byggðina.
Frá Asakoti í Biskupstungum
Kalli kanína og
Mjallhvít af
íslenskum ættum
í lok síðasta árs kom út í Kanada bókin Cartoon Charlie eftir rit-
höfundinn og kvikmyndafræðinginn Gene Walsh þar sem hann
rekur litríkt lífshlaup Vestur-íslendingsins Charles Thorson
og dregur fram með óyggjandi hætti hversu stóran þátt Charlie
Af einhverjum ástæðum hefur
hlutur Charles Thorsons verið íyrir
borð borinn af skrásetjurum kvik-
myndaiðnaðarins til þessa, og hans
merkustu sköpunarverk jafnvel
verið eignuð öðrum eða látið hjá líða
að geta hins rétta höfundar. Walsh
nefnir nokkrar skýringar sem á
þessu gætu verið en annars er höf-
undarsaga Charlie næsta óljós og
hefur lítið verið hirt um
að halda henni til haga.
Með bók sinni um
Charles Thorson hefur
Walsh vafalaust bjargað
ýmsum fróðleik frá glöt-
un um leið og hann vek-
ui' athygli á merkum
listamanni og litríkum
persónuleika sem að
sögn lifir enn í minningu
þeirra sem kynntust
honum og umgengust í
Winnipeg fyrir og uppúr
miðri öldinni.
Charles Thorson hét
réttu nafni Karl Gústaf
Stefánsson og var þriðji
sonur hjónanna Sigríðar
Stefánsdóttur og Stefáns
Þórðarsonar sem flutt-
ust til Winnipeg í
Kanada frá íslandi árið 1887. Sig-
ríður og Stefán voru frá Ásakoti í
Biskupstungum og höfðu átt fjórar
dætur sem allar dóu stuttu eftir
fæðingu. Elsti sonurinn Jón (John)
var fæddur á íslandi (1886) en Jós-
ep (1889), Karl Gústaf (1890) og
Stefán Helgi (1892) voru fæddir í
Kanada. Eftir að til Winnipeg kom
tóku þau upp eftimafnið Thorson og
næstu tuttugu árin starfaði Stefán
sem gæslumaður húseigna í
Winnipeg en fluttist síðar til Gimli
þar sem hann varð bæjarstjóri og
lögreglustjóri.
Karl Gústaf fékk fljótt það orð á
sig að vera svarti sauðurinn í fjöl-
skyldunni; hann lauk ekki skóla-
námi og fór fljótlega að vinna íyrir
sér sem teiknari skopmynda í ís-
lenskættuð bæjarblöð í Winnipeg.
Eldri bróðir hans Jósep vann aftur
á móti hvern námsstyrkinn af öðr-
um, m.a. hinn eftirsótta Rhodes-
styrk til háskólanáms í Oxford í
Englandi, og varð mikilsmetinn lög-
átti í uppbyggingu teiknimyndaiðnaðarins í Hollywood á mótunar-
______ skeiði hans, á fjórða og fímmta áratug aldarinnar.____
Hávar Sigurjónsson fletti bókinni.
CHARLIE Thorson
árið 1933, árið áður
en hann hélt til
Hollywood.
fræðingur og stjómmálamaður í
Manitoba-fylki. Samtímis því sem
orðstír Karls Gústafs, eða Charlie
Thorsons eins og hann
kallaði sig ætíð, sem
teiknara óx hröðum
skrefum varð honum
ekki minna ágengt í að
skapa um sig yfír-
bragð glaumgosans
sem lifði hátt og var
gefínn fyrir vín, fagrar
konur og blautlegan
kveðskap þegar sá
gállinn var á honum.
Ekki er ólíklegt að
þetta lífemi hans hafi
beint eða óbeint orðið
til þess að hann var sí-
fellt á faraldsfæti og
hélst ekki lengi við á
hverjum stað en slíkar
umsagnir um „gleði-
mennsku" fá gjaman á
sig rómantískan blæ í
minningunni. A hinn bóginn var
Charlie Thorson orðlagður vinnu-
þjarkur og nákvæmari og vandvirk-
ari en flestir; jafnvel svo að vinnu-
brögð hans og frágangur voro
mörgum eins konar fyrirmynd að
réttum vinnubrögðum við gerð
teiknimynda. Það gerir einnig
manninn sjálfan forvitnilegri að á
aðra hliðina var hann orðlagður
drykkju-, spila- og kvennamaður en
á hina hliðina var hann höfundur og
hugmyndasmiður að fleiri loðnum,
sakleysislegum og krúttlegum
teiknimyndafígúram en hægt er að
telja upp í fljótu bragði. Þekktastar
þeirra era þó eflaust Kalli kanína
(Bugs Bunny), Litli indíáninn
(Little Hiawatha), fíllinn Elmer
Fudd og Punkinhead, en tvær þær
síðastnefndu era löngu orðnar eins
konar þjóðartákn Kanada.
Uppsigað við Disney
I byrjun desember 1934 axlaði
Charles Thorson sín skinn og hélt
frá Winnipeg til v<!.
Hollywood í von um starf
við gerð teiknimynda. St- !\
arf sem marga unga pilta ,í
dreymir um, en munur-
inn var sá að Charlie var
ekki beinlínis ungur,
heldur 44 ára að aidri, tíu
áram eldri en Walt Disn-
ey sjálfur, og allt að
helmingi eldri en flestir
starfsbræður hans næstu
árin. Charlie yfirgaf ör-
uggt starf hjá Brig
SJALFSMYND.
STJÁNI blái
rekur ættir
sínar til teikni-
borðs Charlie
Thorsons.
den, einu stærsta auglýs-
ingafyrirtæki í Winnipeg, og skildi
eftir son sinn ungan, Stephen, en
Charlie hafði skilið við móður hans
nokkram árum fyrr eftir storma-
samt hjónaband.
Með þessu hófst hinn eiginlegi
ferill Teiknimynda-Charlies og var
hann markaður ferðalögum, von-
brigðum, lítilli frægð, mikilli vinnu
og á endanum sorglega litlum
fjárhagslegum ábata, eða
annars konar viður-
kenningu. Gene
Walsh segir þó að
Charlie hafi verið
þeirrar náttúra að
honum hélst aldrei á
peningum og hógværð hans hafi
verið slík að hann hafi aldrei viljað
vekja athygli á sjálfum sér, þó
hann hafí um leið verið mjög
ósáttur við að vinna undir stjóm
stórfyrirtækja sem hirtu höf-
undarrétt af starfsmönnum sínum.
Var það aðalástæða þess að hann
yfirgaf Walt Disney eftir tveggja
ára starf, hann þoldi ekki að vinna
nafnlaus undir hatti Walt Disneys.
Annars konar viðurkenningu hafn-
aði hann síðar á ævinni þegar ræð-
ismaður Islands í Kanada vildi
sæma hann íslensku fálkaorðunni;
höfundur háðkvæðisins Lieeland
hafði engan áhuga á upphefð úr
þeirri átt. Charlie var þekktur fyrir
háðkvæði sín sem oftar en ekki vora
blautleg og ekkert þeirra birtist
nokkum tíma á prenti. Gene Walsh
hefur þó lagt sig fram um að hafa
upp á Liceland, því kvæði Charlies
sem fleygast varð um Islendinga-
byggðir Kanada á fyrrihluta aldar-
innar og olli nokkurri hneykslan,
sérstaklega meðal þeirra sem sáu
gamla landið í eilífum dýrðarljóma.
Persónuhönnuður
Starf Charlies við gerð teikni-
mynda hét persónuhönnuður, upp á
ensku „character designer“. Stai-fið
fólst í því að skapa útlit teikni-
myndafígúranna og Gene Walsh lík-
ir mikilvægi starfsins við „casting
directori* leikinna kvikmynda; sá
sem velur leikarana í hiutverkin.
Vald leikstjórans er í báðum tilfell-
um ótvírætt, allar hugmyndir og til-
lögur verða að fara í gegnum hend-
ur hans, en engu að síður hefur per-
sónuhönnuðurinn talsverð áhrif, lík-
lega meiri við gerð teiknimynda en
hliðstæðan í leiknu kvikmyndunum.
A fjórða áratug aldarinnar mótaðist
sá stíll við gerð teiknimynda sem
kenndur er við Disney og mætti lík-
lega kalla „raunveralegan“ (life-
like) og var fólginn í að hreyfingar
og útlit teiknimyndapersónanna
urðu þrívíðar og eðlilegar en höfðu
áður verið tvívíðari og á vissan hátt
stílfærðari. Charlie Thorson var
ókrýndur snillingur þessa Disney-
stíls og éf marka má mat Gene
Walsh lagði Charlie líklega meira til
málanna 'við þróun teiknimynda á
fjórða áratugnum en honum á
nokkurn tíma eftir að hlotnast opin-
ber viðurkenning fyrir. Ein ástæða
þess að mati Walsh er að Charlie
staldraði stutt við á hverjum stað;
þegar Hollywood-tima hans lauk
um 1941 hafði hann unnið hjá öllum
stærstu framleiðendunum, hann var
eldri en flestir, naut virðingar sem
einn besti teiknarinn í bransanum
og hafði því meiri áhrif en flestir
aðrir á þessum tíma. Hann fór frá
Disney til Harman Ising Studios,
þaðan til Metro Goldwyn Mayer,
svo til Wamer Brothers, frá þeim
til Fleischer-bræðra, síðan til
Terrytoons Studio, þaðan til Col-
umbia Screen Gems Studio og loks
Georg Pal Puppetoons Studio. Hjá
hverjum og einum hafði Charlie
mikil áhrif en hjá Warner Bros
skapaði hann sína þekktustu fígúru,
nefnilega Kalla kanínu og þar átti
hann einnig stóran þátt í koma
kornungum leikstjóra á kortið,
Chuck Jones, sem næst á eftir Walt
Disney er líklega þekktastur manna
í veröld bandarískra teiknimynda.
Walsh leiðir gild rök að hvern þátt
Charlie átti í að móta Disney-stíl-
inn, hann hafí verið heilinn á bakvið
að gera dýrin í Disney-teiknimynd-
unum mannlegri, eða öllu heldur
barnslegri, sakleysislegri, einlæg-
ari, meira spyrjandi, opnari, í einu
orði: krúttlegri. Þessu til staðfest-
ingar bendir Walsh á að Charlie
hafí átt stóran þátt í gerð slíkra
tímamótamynda í sögu Disney sem
400 Intel Pentium II Celeron (128 KB flýtiminni)
6.4 GB Seagate diskur
64 MB vinnsluminni
8 MB Riva skjákort
40x geisladrif
17" MAG skjár 0.26 dpi
SoundBlaster 64 PCI
240 w hátalarar s k í m a
56 K mötald hjáSkímu
4 mánaða Internetáskrift hjá Skímu
Windows 98 stýrikerfi
lyklaborð og mús
350 Intel Pentium II (512 KB flýtiminni)
8,6 GB Seagate diskur
64 MB vinnsluminni
8 MB Riva skjákort
DVD 5x geisladrif með sjónvarpstengi
17" MAG skjár 0,26 dpi .xgnSx.
SoundBlaster 128 PCI
240 w hátalarar s k í'm a
56 K motaia hjáskimu
4 mánaða Internetáskrift hjá Skímu
Windows 98 stýrikerfi
Lyklaborð og mús
266 Intel Pentium II (512 KB flýtiminni)
6.4 GB diskur
64 MB vinnsluminni, mest 192 MB
2.5 MB Skjákort
24x geisladrif
14,1" TFT skjár
16 bita hljóðkort
Hátalarar
Windows 98 stýrikerfi
Li-ion rafhlaða