Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Grunnskólar Reykjavíkur < % • M.- '1f|^ Bj|| ff í mr&M. ÞÁTTTAKENDUR á námskeiði um mat á skólastarfí sem lauk mánudaginn 15. febrúar. Atak í mati á skólastarfi Vefur um stærðfræði VEFUR um stærðfræði er byggður upp til að þjónusta þá sem vilja ná stei'kari tökum á stærðfræði. Við uppbyggingu á gagnvirku efni var stuðst við hugbúnaðinn „Quiz creator" sem kynntur er á slóð Islenska menntanetsins. Efnið er miðað við unglinga- stig: elstu þrjá bekki grunn- skólans og byrjendur í fram- haldsskólum. Höfundar erum við bræðumir Húgó og Tómas Rasmus, sem hafa um árabil kennt nemendum á unglinga- stiginu stærðfræði. Efni þessa vefjar miðast við þá þætti sem fjallað er um í al- gebru í 10. bekk. grunnskól- ans. Það efni er hins vegar stutt af fyrri þekkingu nem- enda sem þeir hafa öðlast í yngri bekkjum. Vefurinn hent- ar því duglegum nemendum í 8. bekk og flestum 9. og 10. bekkingum. Með þessari nálgun að kennslu í stærðfræði er ábyrgð nemandans á námi sínu virkjuð með formlegum hætti. Nem- andi sem hefur lokið einstaka þætti fær staðfestingu úr gagnvirku prófi um árangur sinn, hver sem er getur því prófað þegar hann/hún vill reikna aftur og aftur þangað til fullnægjandi árangri er náð. Þeir sem ná tökum á því náms- efni sem hér er kynnt ættu að standa mjög vel að vígi á sam- ræmdu prófí í stærðfræði að mati Húgó og Tómasar, en því fieiri sem vilja vera með því betri þjónustu segjast þeir geta veitt. Slóðin er: http://rvik.ismennt.is/— rasm- us/t/ Vefurinn skiptist í 11 megin- þætti: • Veldareikningur. • Röð aðgerða. • Liðastærðir. • Einföldun stærða. • Þáttun liðastærða. • Margföidun og deiling/al- menn brot. • Samlagning og frádrátt- ur/al menn brot • Jöfnur I. • Jöfnur II. • Hnitakerfíð. • Algebra á samræmdum prófum. í hverjum þætti eru þrjú þyngdarstig, á hverju þyngd- arstigi eru ítarlegar leiðbein- ingar og sýnidæmi, hverju þyngdarstigi er fylgt eftir með gagnvirku prófi. Þeim sem óska eftir að prófa þennan stærðfræðivef er bent á að hafa samband með tölvupósti við Tómas Rasmus netfang: rasmus@ismennt.is. MÁNUDAGINN 15. febrúar lauk ái-snámskeiði á vegum Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur um mat á skóla- starfi. Þátttakendur voru skólastjóm- endur í Reykjavík og kennsluráðgjaf- ar á Fræðslumiðstöð, alls um 25 manns. Annað sambærilegt námskeið fyrir skólastjómendur er nýhafíð. Fimmtudaginn 18. febrúai' var mán- aðarlegur fundur fræðslustjóra með skólastjórum í Reykjavík heigaðui’ efninu mat á skólastarfí. Námskeiðið byggðist upp á fyrir- lestmm og verkefnum en lokaverk- efnið fólst í gerð matsverkefnis. 15. febrúar kynntu skólastjórar mörg fróðleg matsverkefni, m.a. um afstöðu foreldra til heimanáms, starfsaðstöðu kennara, boðskipti innanskóla, stærð- fræðikennslu í einum skóla, afstöðu til lengds skóladags og næðisstundar og líðan skólastjóra. Flestum skýrsl- unum fylgdi aðgerðalisti til úrbóta. Mat á skólastarfí er mjög vandasamt og tímaírekt verkefni. Það felst í að afmai-ka viðfangsefni og matsspum- ingu, gera áætlun um matið, útbúa eða aðlaga matstæki, s.s. spuminga- lista, gátlista eða viðtalsform, safna gögnum, lesa úr gögnum, skrifa skýrslu um matið og loks að gera áætlun um nýtingu niðurstaðna. Á síðasta ári unnu starfsmenn kennsludeildar Fræðslumiðstöðvar gátlista til nota við mat á skóla- RÁÐSTEFNA um notkun upplýs- ingatækni í skólastarfi verður haldin í Menntaskólanum í Kópa- vogi dagana 26. og 27. febrúar 1999. Að ráðstefnunni standa menntamálaráðuneytið og Skýrslutæknifélag Islands og verður þar fjallað um hvernig beita megi upplýsingatækni til að efla og auðga skólastarf á öllum skólastigum. Auk fyrirlestra og umræðuhópa verður haldin sýning þar sem skólar, fyrirtæki og ein- staklingar kynna starfsemi sína, vörur eða þjónustu á sviði upplýs- ingatækni. Ráðstefnunni er ætlað að höfða til kennara og skóla- stjórnenda á öllum skólastigum og annarra áhugamanna um notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Ráðstefnugestir geta valið um 44 málstofur á þessum tveimur dögum, þar sem fjallað verður um fjölbreytt efni, svo sem fjar- kennslu, kennsluhugbúnað, kenn- aramenntun og notkun veíjarins. Málstofur verða ýmist með hefð- bundnum fyrirlestrum eða pall- námski'ám undir handleiðslu Ingvars Sigurgeirssonar, dósents í Kennara- háskóla íslands. Gátlistinn er nú kominn í notkun í Reykjavík og hefur einnig verið sendur til annarra sveit- ai-félaga. Síðastliðið haust gerði Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur samning við Steinunni Helgu Lárusdóttur, fyiT- verandi skólastjóra, um að hún sinni mati á skólastarfí á vegum Fræðslu- miðstöðvar. Hún er umsjónarmaður hins nýhafna námskeiðs fyrir skóla- stjómendur um mat á skólastarfi. Einnig mun hún sjá um námskeið um þetta efni ætlað kennurum sem hefst í sumai'. Steinunn Helga veitir einnig skólum leiðsögn um mat á skólastarfi, hefur þýtt matstæki (t.d. spuminga- lista), heldur kynningai-fundi um mat á skólastarfi o.fl. I starfsáætlun Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkui' fyrh' árið 1999 er gerð áætlun um mat á einstökum þáttum, svo sem ítarleg gagnaöflun um sér- kennslu og önnur sérúrræði, auk þjónustukannana. Á næstunni kemui- út handbók á vegum Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur um mat á skóla- starfi. Segja má að mat á skólastarfi í Reykjavík byggist annars vegai' á 40. gi'ein grunnskólalaga nr. 66/1996 og hins vegar átaki Reykjavíkurborgar í árangursmati. borðsumræðum með þátttöku ráð- stefnugesta. Sett verður upp sýning á kennslu með aðferðum upplýsinga- tækninnar sem hlotið hefur heitið „Kennslustofa framtíðar“. Hægt verður að fylgjast með kennurum og nemendum að störfum. Kenn- araháskóli Islands leiðir verkefnið í samvinnu við Námsgagnastofn- un, Árbæjarskóla og Fjölbrauta- skólann við Armúla. Hugbúnaður og kennsluforrit verða til kynningar í sýningarbás- um og gefst gestum kostur á að prófa þar margvíslega möguleika upplýsingatækninnar. Þátttakendur skrái sig á heima- síðu ráðstefnunnar, með tölvupósti til skyÉsky.is eða í síma 553 2460. Einnig verður hægt að skrá sig við innganginn meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir þá sem skrá sig fyrir 20. febrúar. Eft- ir það hækkar gjaldið í 2.000 kr. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar: http://www.ismennt.is/vefir/ut99. Upplýsinga- tækni í skólum _____UMRÆÐAN Frelsi eða fyrirtækja- forsjá í ÁRSBYRJUN 1998 höfðu margir blaðberar samband við skrifstofu Dagsbrúnar og Framsókn- ar - stéttarfélags (nú Efling - stéttarfélag). Erindi þeirra var m.a. að athuga hver væru helstu kjarasamnings- bundin réttindi á vinnu- markaðnum og hvort þeir gætu gerst full- gOdir félagsmenn í D&F. Þeir töldu sig standa höllum fæti í launa-^ og réttindamál- um. I viðræðum við þessa blaðbera kom í ljós að mörg ákvæði kjarasamnings- ins voru þeim mjög framandi. Þessir blaðberai' og svo fleiri sem bættust í hópinn, óskuðu formlega eftir aðild að félaginu og einnig því að D&F - stéttarfélag tæki að sér málefni þeirra gagnvart útgáfufé- lögum dagblaðanna og freistaði þess að gera kjarasamning fyrir þein-a starfssvið. Dagsbrún og Framsókn ákvað að verða við þessum óskum, enda er það álit félagsins að alger- lega óviðunandi sé að þessi starfs- hópur skuli vera án kjarasamnings. Gangur málsins Hinn 9. mars 1998 sendi Dags- brún og Framsókn - stéttarfélag bréf til útgáfufélaga DV, Dags og Morgunblaðsins. I bréfi þessu voru rakin helstu efnisatriði málsins og jafnframt óskað eftir fundi með fulltrúum útgáfufyrirtækjanna sem allra fyrst. Við bréfínu barst aldrei svar. Það næsta sem gerist er að formaður félagsins fréttir það úti í bæ að útgáfufélögin muni hafa vísað málinu til VSÍ. Þegar það lá Blaðburðarfólk Enn í dag, segir Hall- dór Björnsson, erum við með hóp launafólks sem atvinnurekendur neita um kjarasamning. fyrir, 14 sept. 1998, sendi D&F bréf til VSÍ og fór fram á viðræður um gerð kjarasamnings fyrir blað- bera - óskað var eftir því að fund- urinn yrði haldinn 24. sama mánað- ar. Hinn 23. sept. bárust boð frá VSI um frestun á fyrirhuguðum fundi og að ekki væri hægt að setja niður nýja dagsetningu. Á næstu vikum ítrekar D&F margsinnis fyi'ri óskir. Það var svo loks hinn 18. des. s.l. að við fengum fund með fulltrúa VSÍ. Á þessum fundi fóru fulltrúar D&F rækilega yfir málið og óskuðu eftir því að í gang yrði sett vinna sem leitt gæti til kjara- samnings fyrir blaðbera. Svar full- trúa VSI við þessu var: Vinnuveit- endasambandið sér ekki ástæðu til þess að gerður verði kjarasamn- ingur fyrir blaðbera. Hinn 21. des. sl. sendi D&F bréf til framkvæmdastjóra VSI vegna málsins. Enn hefur ekkert form- legt svar borist við þessu bréfí. Um hvað snýst málið? Blaðburðarfólk hefur engan kjarasamning. Atvinnurekendur ákvarða einhliða þeirra kjör og réttindi - og einnig allar þeirra skyldur. Fjölmörg dæmi eru til um það að aukið sé við blaðburðinn, svo sem kynningai'áskriftir, sem engin laun koma fyrir. Þetta er staðan hjá blaðberum á Islandi árið 1999. Það er ekkert til sem heitir lágmarks- laun fyrir blaðburð. L Enginn samningur varðandi þyngdar- mörk blaða; engin B ákvæði um veikinda- rétt né heldur orlofs- rétt; engar reglur um persónuhlífar eða vinnufatnað. Árið 1980 setti Alþingi lög um starfskjör launa- fólks og skyldutrygg- ingu lífeyrisréttinda. || í þeim lögum segir að laun og ij önnur starfskjör skuli vera lág- markskjör. I ljósi þeirrar stað- “ reyndar að ekki hafa verið til kjarasamningar fyrir blaðburðar- fólk má halda því fram að blað- berar hafi verið sviptir fjölmörg- um réttindum sem annað launa- fólk hefur, svo sem aðild að lífeyr- issjóði, sjúkrasjóði og orlofssjóði auk ýmissa annarra réttinda sem aðild að stéttarfélagi tryggir. Það ■ er fyrst núna frá 1. júlí 1998 sem útgáfufyrirtækin eru neydd með lögum til að greiða lífeyrisiðgjöld vegna blaðbera. Hafi einhver rétt- indi verið fyrir hendi þá hefur mjög lítið verið gert af fyrirtækj- anna hálfu til að kynna blaðberum þau réttindi. Af þeim sökum eru slík réttindi álíka mikils virði fyrir starfsmanninn og að þau væru ekki til, enda hefur stéttarfélag Pi enga aðkomu að málinu. Það hafa, í nú um áratugi, verið talin eðlik'g samskipti á íslenskum vinnu- p markaði að vei'kafólk og atvinnu- rekendur geri með sér kjara- samning. Það hafa sem sagt verið viðurkenndar leikreglur á vinnu- markaðnum að báðir aðilar, þ.e. sá sem selur vinnuframlag sitt og sá sem kaupir það vinnuframlag, semji um öll réttindi og skyldur sem viðkomandi starfí fylgja. Það ; er ekkert flóknara sem blaðberar fe eru að fara framá. Blaðberar óska | eftir því að leikreglur „aðila f vinnumarkaðarins“ gildi um þá eins og annað launafólk. Hvar eru atvinnurekendur staddir? Á 19. öld, hóf verkafólk hér á landi að stofna með sér félög sem höfðu þann megintilgang að vera í forsvari fyrir hópinn í viðræðum ■ við atvinnurekendur um kaup og ■ vinnutíma. Það þurfti vissulega mikinn kjark og dug til að berjast fyrir stofnun og viðgangi þessara félaga gegn algeru drottnunai-valdi atvinnurekendanna. Þrátt fyrir harðvítug átök og margvíslegar hótanir atvinnurekenda hafði verkafólk sigur í þessum málum - verkalýðsfélög urðu staðreynd í ís- lensku samfélagi. Ástæðan fyrir g, því að sigur vannst var lýrst og fremst sú að samstaða verkafólks f|: var til staðar. Enn í dag erum við með hóp launafólks sem atvinnurekendur neita um kjarasamning. Athyglisvert verður að fylgjast með því hvort Morgunblaðið, DV og Dagur ætla, með fulltingi Vinnuveitendasambands Islands, að varða vegferð sína inn í 21. öld- ina með því að koma í veg fyrir að - gerður verði kjarasamningur fyrir blaðbera. Höfundur er fommður Efling- ar - stéttarfélags. Halldór Björnsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.