Morgunblaðið - 25.02.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 33
Vetni - orkuberi
framtíðarinnar?
VIÐ íslendingai- höfum í áratugi
verið í fararbroddi þjóða heims við
nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
Dæmi um það er rafmagnsfram-
leiðsla okkar með vatnsafls- og gufu-
virkjunum og hitaveituvæðingin þar
sem olíunotkun við kyndingu var
sagt stríð á hendur.
Það að við erum nánast sjálfum
okkur nóg með orku þegar undan er
skilin orka til samgangna og fisk-
veiða og að hún er að langstærstum
hluta umhverfisvæn, skapai- okkur
ákveðna sérstöðu meðal þjóða heims.
Sömuleiðis okkar einstæða reynsla
af því að skipta nánast á einni nóttu
úr einum orkugjafa í annan en þar á
ég við hitaveituvæðinguna.
Þessari sérstöðu þurfum við halda
og ég tel að við eigum möguleika til
þess. A þessu sviði getum við Islend-
ingar verið í fremstu röð. Því skipaði
ég í júlí 1997 nefnd sem falið var að
gera tillögur um aukna hlutdeild inn-
lendra orkugjafa í þjóðarbúskap
landsmanna og jafnvel til útflutn-
ings, því ljóst er að olíulindirnar fara
þverrandi.
Aukin nýting
innlendra orkugjafa
Eg áleit það hlutverk mitt sem
iðnaðarráðherra að láta kanna bæði
tæknilega og efnahagslega mögu-
leika á aukinni nýtingu innlendra
orkugjafa svo sem rafmagns og
hugsanlega vetnis. í kjölfarið þyrftu
að fylgja tillögur um leiðir til að
auka notkun innlendra orkugjafa. í
fyrrgreinda nefnd voitj skipaðir
fulltrúar atvinnulífs,
stjórnvalda, tækni- og
rannsóknastofnana og
Háskóla Islands. For-
maður nefndarinnar
var Hjálmar Arnason
alþingismaður. Nefndin
lagði mesta áherslu á
þróun tækni til að
framleiða og nýta vetni
en einn ötulasti tals-
maður þess að vetnis-
tæknin væri þróuð og
að við Islendingar
tækjum þátt í þeirri
þróun, Bragi Árnason
prófessor við Háskóla
Islands, átti einmitt
sæti í nefndinni.
Enn er nokkuð dýr-
ara að reka vetnisknúin farartæki en
hefðbundin en munurinn þar á hefur
þó farið hratt minnkandi á undan-
fórnum árum og allt útlit er fyrii- að
vetnistæknin geti orðið hagkvæm á
næstu áratugum. Kemur þar eflaust
ekki síst til aukin áhersla á þróun
umhverfisvænna orkugjafa eða
orkubera, sem og umræðan um um-
hverfismál almennt og bætta um-
gengni mannsins um náttúruna.
Með ofangreint í huga er mikil-
vægt að íslendingar fylgist náið með
þróun vetnistækninnar og verði und-
ir það búnir að söðla um í eldsneytis-
notkun þegar og ef aðstæður leyfa.
Tækist það gætu íslendingar hugs-
anlega sjálfir fullnægt eigin þörfum
fyrii- eldneyti og þannig stuðlað að
vistvænum samgöngum í og við land-
ið og orðið í fararbroddi
þjóða heims hvað þetta
varðar.
Aliugi erlendra aðila
Starf nefndarinnar
vakti fljótt athygli, ekki
einungis hér innan-
lands heldur vaknaði
einnig áhugi erlendra
aðila á samstarfi við Is-
lendinga um rannsókn-
ir og tækniþróun á sviði
vetnismála. Einkum
voru það þrjú erlend
stórfyrirtæki; Daim-
lerChrysler, Shell
International og Norsk
Hydro sem settu sig í
samband við nefndina
pg lýstu áhuga sínum á samstarfl við
Islendinga á þessu sviði.
Til að bregðast við þessum áhuga
kynnti nefndin hugmyndir um stofn-
un félags í eigu einkafyrirtækja og
opinbeiTa aðila, til að annast og taka
við þeim tengslum og þeim sam-
böndum sem nefndin hafði komið á
við erlend fyrirtæki. Það hefur nú
verið stofnað og hlotið nafnið Vi-
storka ehf. Stofnendur eru Áburðar-
verksmiðjan, Háskóli Islands, Hita-
veita Suðurnesja, Iðntæknistofnun,
Orkuveita Reykjavíkur og Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins, sem jafn-
framt er stærsti hluthafínn.
Alþjóðlegt samstarf á Islandi
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hafa Vistorka annars vegar og
DaimlerChrysler, Shell
Finnur
Ingólfsson
International og Norsk Hydro hins
vegar þegar undirritað samstarfs-
samning um stofnun og rekstur
hlutafélags; Islenska vetnis- og efn-
arafalafélagsins ehf., sem mun styðja
við rannsóknir og þróun á fram-
leiðslu og nýtingu vetnis. Akvörðun
hinna erlendu aðila er ekki síst til
komin vegna áhuga og stuðnings ís-
lensku ríkisstjórnarinnar en í yfír-
lýsingu hennai- segir m.a.:
„Það er stefna ríkisstjórnarinnar
að stuðla að aukinni notkun inn-
lendra endurnýjanlegi-a orkulinda í
sátt við umhverfíð. Ein þeiiTa leiða
sem til gi-eina koma í því skyni er
framleiðsla umhverfisvænna orku-
bera til að knýja farartæki og físki-
skip. Einn slíkra orkubera er vetni.
Stofnun félags í eigu íslensla-a aðila
og nokkurra erlendra fyi'irtækja
Orkumál
Við getum og eigum,
segir Finnur
Ingólfsson, að taka
forystu á þessu sviði.
sem standa í fremstu röð á sviði
vetnistækni getur leitt til þess að ný-
ir möguleikar opnist í þeim efnum.“
Með stofnun íslenska vetnis- og
efnarafalafélagsins ehf. er stigið
mikilvægt skref við að efla rann-
sóknar- og þróunarstarfsemi á sviði
orkumála og fá til þess fé frá erlend-
um stórfyrirtækjum. Möguleikarnir
sem með því kunna að skapast eru
að mínu mati miklir, það gæti lagt
grunninn að forystuhlutverki Islands
á nýrri öld. Umfjöllun erlendra fjöl-
miðla undanfarna daga um það skref
sem stigið hefur verið segir sína
sögu, en margir þeiiTa hafa gert
málinu góð skil og fjallað um það á
þeim nótum að hér sé um tímamóta-
viðburð að ræða. Má sem dæmi
nefna að lesendur fréttavefjar NBC
sjónvarpsstöðvainnnar völdu fréttina
eina þá athyglisverðustu í síðustu
viku og segir það kannski meira en
mörg orð.
Aukin notkun umhverfisvænna
farartækja
Tillögur nefndarinnar um aukna
nýtingu innlendra orkugjafá eru fjöl-
þættai'i en hér hefur verið rakið. Eg
vil sérstaklega tiltaka tvennt: I
fyrsta lagi leggur nefndin til að vist-
væn ökutæki njóti tímabundins
skattalegs hagræðis svo sem við af-
nám vörugjalds og þungaskatts.
Frá því í ársbyi-jun 1998 til árs-
loka 2000 ríkir undanþága frá gjald-
skyldu þungaskatts þeiiTa ökutækja
sem nýta innlenda orkugjafa í til-
raunaskyni. Undanþágan felur í sér
að bílar sem keyra á vetni, metanóli,
rafmagni eða öðrum innlendum
orkugjöfum bera ekki þungaskatt.
Frá því seint á árinu 1997 er enn-
fremur heimilt að falla frá innheimtu
vörugjalds af ökutækjum sem hafa í
fór með sér hverfandi mengun og
nýta óhefðbundna orkugjafa. Vera
kann að hvort tveggja þurfí að fram-
lengja en tíminn mun leiða það í ljós.
I öðru lagi gerir nefndin ráð fyrir því
að mótuð verði stefna um notkun
vistvænna ökutækja hjá hinu opin-
bera hvort sem er ríki eða sveitarfé-
lög. Sömuleiðis að stofnanii' þeirra
og einkafyrirtæki verði hvött til hins
sama. Á næstunni mun ég leita sam-
starfs við önnur ráðuneyti, ríkis-
stofnanir og sveitarfélag um að
koma vistvænum ökutækjum enn
frekar í notkun hjá opinberum stofn-
unum. Þannig verði opinberar stofn-
anir i fararbroddi við að koma slíkri
stefnumörkun á. Við getum og eigum
að taka forystu á þessu sviði. Við eig-
um þar mikla möguleika sem við
megum ekki láta fram hjá okkur
fara. Okkar er tækifærið, nú er að
nýta það.
Höfundur er iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.
Alveg eins
og hjá pabba!
FYRIR nokkru var
ég staddur úti á landi.
Eg gekk niður að höfn-
inni og gaf mig þar á
tal við mann sem þar
hugaði að bát sínum.
Eg spurði hann:
„Hvað veiðir þú mik-
ið á næsta ári?“ Hann
svaraði: „Ég veit það
ekki enn. Ég hef ekki
kvóta en þeir hringja í
mig þegar þeir eru
búnir að fá úthlutað og
segja mér hvað þeir
geta selt mér mikið.
Ég verð að kaupa, ég
sé fyrir fjölskyldu
minni með þessum
bát.“ Síðan brosti hann
og sagði: „Þetta er orðið alveg eins
og hjá pabba. Hann rak matvöru-
verslun hérna uppi í plássinu. Þá
mátti ekki flytja inn epli og appel-
sínur en sumir fengu leyfí hjá út-
Kvótinn
Heilu byggðarlögin,
segir Guðmundur G.
Þórarinsson, eru í
hlutverki eignalausa
leiguliðans.
hlutunarnefnd. Þeir sem voru inn-
undir og fengu leyfi hringdu í
pabba fyrir jólin og sögðu: „Nú er
ég búinn að fá leyfið. Ég get selt
þér leyfi til að flytja inn epli og
appelsínur núna.“ „Síðan brosti
hann aftur og sagði: „Og pabbi
keypti alltaf leyfið. Hann varð að
hafa epli og appelsínur fyrir við-
skiptavini sína. Nú er þetta alveg
eins hjá mér. Þeir hringja þegar
þeir eru búnir að fá leyfið og ég
kaupi til þess að geta séð fyrir fjöl-
skyldunni með bátnum.“
Greifínn af
halamiðum
Á miðöldum var í
Evi'ópu svokallað léns-
kerfi. Lénsherrar sem
þágu lén sitt og völd frá
konungi stjórnuðu hér-
uðum. Þeir fengu út-
hlutað landi, skógum,
veiðilendum, ökrum og
öðrum gæðum landsins.
Aðrh’ íbúar voru oftast
eignalausir leiguliðar
þeirra. Islendingar lifa
af fískveiðum. Um 70%
útflutningstekna okkar
koma frá sjávarútvegi
og fískvinnslu. Við höf-
um komið okkur upp
nokkurs konar lénskerfi hér. Við
höfum úthlutað veiðiréttindum við
ísland til nokkurra aðila sem höfðu
veiðireynslu fáein ár eftir 1980. Þeir
hafa haft öll veiðiréttindi í um það bil
tvo áratugi. Sumir hafa síðan hætt
útgerð og selt lénið, kvótann og þeg-
ið ekki tugi milljóna fyrir, heldur
hundruð eða þúsundir milljóna.
Ljóst er að á einhverju árabili, e.t.v.
einum eða tveim áratugum, þegar
aðilar þessir hætta í útgerð, munum
við, aðallega lífeyrissjóðirnir, kaupa
lénin, kvótann, til baka og greiða
lénsherrunum, kvótaeigendunum,
300 til 400 þúsund milljónir fyrh'.
Þannig komum við okkur upp eigna-
aðli í landinu. Jai'linn af Selvogs-
banka þiggur réttindi sín frá Alþingi
og ríkisstjórn. Heilu byggðarlögin
eru í hlutverki eignalausa leigulið-
ans. Við sem höfum hælt okkur af
meiri jöfnuði en gerist í flestum ná-
gi'annalöndum erum að búa til ójöfn-
uð af mannavöldum.
Við erum að verða of sein. Brátt
verða sjóðir fólksins búnir að kaupa
svo stóran hluta þessara úthlutuðu
réttinda til baka að ekki verður við
snúið.
Höfundur er verkfræðingur.
Guðinundur G.
Þórarinsson
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtaldra gjalda að gera skil nú þegar eða
í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald til og með 1. tb. 1999, með eindaga 15. febrúar 1999, og virðisauka-
skattur til og með 48. tb. 1998, með eindaga 5. febrúar 1999, og aðrar gjaldfallnar álagningar og ógreiddar hækkanir,
er fallið hafa í gjalddaga fyrir 15. febrúar sl., á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli,
áfengisgjaldi, launaskatti, aðstöðugjaldi, þróunarsjóðsgjaldi, kirkjugarðsgjaldi, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi
ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatli skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri
tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vömgjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum,
aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á
ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi og jarðarafgjaldi.
Álögðum opinberum giöldum sem í eindaga eru fallin. sem eru:
tekjuskattur, útsvar, sérstakur tckjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatrygginga-
gjald vcgna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð
aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, búnaðargjald og iðgjald til U'feyrissjóðs bænda.
Ennfremur kröfur sem innheimtar eru á grundvelli samnings milli Norðurlandanna um aðstoð í skattamálum, sbr. lög
nr. 46/1990, sbr. auglýsingu nr. 16/1990 og auglýsingar nr. 623/1997 og nr. 635/1997 og kröfur vegna ofgreiddra
bamabóta, ofgreidds bamabótaauka og ofgreiddra vaxtabóta.
Fjámáms verður krafist án frekari fyrin'ara að þeint tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt
dráttarvöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald
í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildar-
skuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast
óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og
virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjalden-
dur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningamúmer verði tckin af ökutækjum þeirra án
frekari fyrirvara.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keilavík
Sýslumaðurinn á Kefíavíkurfíugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgamesi
Sýsluntaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Isafirði
Reykjavík, 25. febrúar 1999.
Sýslumaðurinn í Bolungarvfk
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýsluntaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Neskaupstað
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn íVík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestljarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan i Vestmannaeyjum