Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 42

Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 UMRÆÐAN Pólitísk „viðhorf44 gegn kennslubók FIMMTUDAGINN 11. febrúar skrifaði Jakob F. Asgeirsson (JFÁ) pistilinn „Við- horf“ í Mbl. undir fyr- irsögninni „Af vondum kennslubókum". Efni hans er helgað Heimi Pálssyni sem er af- kastamikill höfundur • fræðibóka og þekktur skólamaður. En Jakob er ekki að þakka hon- um fyrir það. Pess í stað fer hann fram á að sett verði nokkurs konar starfsbann á Heimi, „skólastjórnir sýni sérstaka aðgát þegar bækur Heimis Pálssonar eru valdar til kennslu". JFÁ gerir því skóna að Heimir skrifi bækur sínar til að ,jafna reikninga" við rithöfunda og skáld. Tvisvar í greininni segir JFÁ það skilning Heimis að lesa beri bókmenntir sem „einfeldningslegar ritgerðir um félagsmál". Hér verður ekki ' rædd bókmenntatúlkun við Jakob ori/lame Náttúrulegar sænskar snyrtivörur . Ný tilboð mánaðarlega Sími 567 7838 - fax 557 3499 e-rnail raha@islandia.is 7' •. www.xnet.is/oriflame en mér blöskra dylgj- ur og pólitísk for- myrkvun í skrifum hans, og það fer hroll- ur um mig þegar hann kallar á valdstjórnina til þess að velja náms- efni til bókmennta- lestrar, JFÁ segir frá því að ekki alls fyrir löngu hafi komið út kennslu- bók fyrir framhalds- skóla í bókmennta- sögu tuttugustu aldar. (Jakobi láðist að vísu að geta nafns hennar en hún heitir Sögur, ljóð og líf. Vaka- Helgafell 1998.) Orðrétt segir Jak- ob: „Höfundur hennar er Heimir Pálsson, menntaskólakennari, sem yfirvöld kennslumála telja greini- lega sérlega vel til þess fallinn að skrifa kennslubækur ...“ í þessari litlu klausu kemst töluvert fyrir af ranghermi og misskilningi. í fyrsta lagi er starfsheitið mennta- skólakennari tæplega til því að 13 ár eru síðan við heitum framhalds- skólakennarar skv. lögverndunar- lögum. I öðru lagi eru 13 ár síðan Heimir hætti störfum við þetta skólastig, bæði sem skólameistari og kennari, og hefur síðan starfað fyrir útgáfufyi’irtæki en er nú lekt- or í íslensku við Kennaraháskól- ann. Þetta er í besta falli hlálegt flaustur hjá Jakobi og sýnir hvern- ig hann hefur undirbúið pistil sinn. En fáránlegast er að Jakob skuli halda að yfirvöld kennslumála hafí eitthvað um að segja hvaða bækur koma út hjá forlögum sem ríkið ræður ekki yfír á neinn hátt. Hér ráða lögmál markaðarins ef Jakob skyldi vilja kannast við þau. Og þótt hann ákalli „yfirvöld kennslu- mála“ til þess að banna bækur Heimis hafa þau ekki skipt sér af hvaða bókmenntir eru lesnar í framhaldsskólum - ekki enn. Þetta er því með öllu byggt á misskiln- ingi og bendir til að Jakob viti tæplega í hvaða landi hann er staddur. Nema draumar hans um hlutverk valdstjórnarinnar taki þarna völdin af veruleikanum. Utgáfa Fáránlegast er, segir Bjarni Qlafsson, að Jakob skuli halda, að yfírvöld kennslumála hafí eitthvað um það að segja, hvaða bækur komi út hjá forlögum, sem ríkið ræður ekki yfír á neinn hátt. Sjálfur er ég bókmenntakennari við framhaldsskóla. Þessar vikurn- ar er ég einmitt að ljúka við Eddu Snorra Sturlusonar með nemend- um mínum. Þeim er heimilt að nota hvaða útgáfu sem er af bók- inni en næstum allir lesa Eddu sem Heimir Pálsson bjó til prent- Bjarni Ólafsson Bjöm Bjarnason Ungu/n er það allra besf Skóla- og fræðslunefnd Sjálfstæðisflokksins heldurseinni fund sinn um stöðu og stefnu í skólamálum. Fundurinn er öllum opinn og allt áhugafólk um skólamál hvatt til að mæta. Fimmtudaginn 25. febrúar í Valhöll, salur I, kl.17.15-18.30. Nýjar námskrár - befri skóli Sigríður Anna Þórðardóttir WL Allar frekari upplýsingar um fundinn I er hægt að fá á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins IBiiWli í síma 5151700 eða á heimasíðu flokksins www.xd.is SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN Framsöguerindi: ■ Menning og menntun - forsenda framtíðar ■ Björn Bjarnason, menntamálaráðherra Sjálfstæðir menn - sterkir einstaklingar ■ Sigríður A. Þórðardóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna í kjölfar flutnings grunnskólans Helgi Árnason, skólastjóri. Þorvarður Elíasson Fundarstjóri er Þorvarður Elíasson, rektor Verzlunarskóla íslands. Helgi Árnason unar og skýrir. Bókin kom út hjá MM 1984. Þeir sem vilja dýpka skilning sinn á tímabili Snorra og honum sjálfum líta gjarnan í Frá- sagnarlist fyrri alda eftir Heimi, Forlagið 1985. Nýjasta bókin sem hentar skólamönnum, m.a. kennur- um, sem ætla að lesa sér til um heimsmynd samtíðarmanna Snorra heitir Lykill að Islendinga- sögum, MM 1998. Höfundur Heim- ir Pálsson. Þessa get ég til þess að skýra fyrir lesendum Mbl. hvað Jakob á við þegar hann segir um Heimi:... „frá honum hefur komið hver kennslubókin af annarri á undanförnum aldarfjórðungi." Og þess má geta að enginn hefur mér vitanlega orðið var við háskalegar ranghugmyndir í þessum bókum. Það hefur oft verið háttur þeirra sem grunnfærnislega gagnrýna greinar og bækur um bókmenntir að leita að því sem þeim finnst vanta í ritin og snúast síðan í kringum það eitt. Jakob hefur eftir „frétt Morgunblaðsins um útgáfu nýju bókarinnar ... að Heimir hafi þar valið „hundrað bestu“ höfunda aldarinnar." Er Jakob með þessari aðferð að gefa til kynna að hann hafí ekki lesið bókina en verði að láta Mbl. segja sér hvað í henni standi? En hér hlaut JFÁ að finna sér tilefnið. Fyrir valinu varð Kri- stján Karlsson, bókmenntafræð- ingur og ljóðskáld. Hér kemur ekki til greina að fara í neinn mannjöfnuð um verðleika Krist- jáns. Jakob gerir þó tilraun til þess í pistli sínum en skoðanir les- enda kunna að vera skiptar um hvort þeim finnst það allt Kristjáni til framdráttar. Á.m.k. hlýtur að vera erfítt fyrir bókmenntasögu- höfund að byggja á „ótöldum geysimiklum afskiptum Kristjáns í menningarlífinu bak við tjöldin um tíðina“! Jakob gerir sér nokkurn mat úr því hver sé munurinn á því að vera pólitískur og flokkspólitískur. Lát- um það alveg liggja milli hluta. En því ber ekki að neita að Heimir Pálsson er Alþýðubandalagsmaður og sat í bæjarstjórn Kópavogs eitt kjörtímabil. Leiddi reyndar lista síns flokks og var forseti bæjar- stjórnar. Hvað sem pólitík eða flokkspólitík líður bendir margt til að Heimir hafi frekar goldið stjórnmálaafskipta sinna en notið í viðskiptum sínum við veitingarvald ríkisins. Þótt einhver þíða virðist um þessar mundir hjá þeim sem völd hafa í þjóðfélaginu í garð sam- flokksmanna Heimis sýnist mér kalda stríðið enn í algleymingi í huga hægri mannsins Jakobs F. Ásgeirssonar. Nema hér eigi við það sem Jakob orðar þannig í grein sinni: „En hætt er við að hér búi eitthvað persónulegt að baki. Það gerir það venjulega í svona til- vikurn." Eg minnist þess ekki að pistlin- um „Viðhorfum" í Morgunblaðinu hafi fyrr verið beint af alefli gegn einum manni og allra síst að þar sé farið á flot með atvinnuróg. Pistill- inn hefur vissulega verið fjöl- breyttur og oft vandaður og marg- ir lesa hann. Ber kannski svo að skilja að nú eigi að verða einhver breyting á stefnunni, kosningar eru í nánd og ný dæmi sýna að stærri fiskar en Jakob F. Ásgeirs- son eru tæpir á taugum um þessar mundir. Samt er orðið sjaldgæft í umræðu hérlendis að ýjað sé að ritskoðun. Þótt það hafí ekki verið gert að umtalsefni hér fjallar JFÁ í grein sinni um sögukennslu í ís- lenskum skólum með þeim hætti að sögukennsluskammdegið á 9. áratugnum rifjast upp. Sjálfum fínnst mér dapurlegt að horfa upp á gamlan og góðan nemanda minn og sæmilegan kunningja birtast í gervi samanbitins ofstækismanns í útbreiddasta blaði landsins. Höfundur er framhalds- skólakennari. Ráðstefna um upplýsinqatækni í skókstarfi Ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi verður haldin í Menntaskólanum í Kópavogi dagana 26. - 27. febrúar. Dagskrá og upplýsingar á slóðinni: www.ismennt.is/vefir/ut99. Skráning í síma 553 2460 eða með tölvupósti til sky@sky.is Þátttökugjald 2000 kr. Menntamálaráðuneytið og Skýrslutæknifélag íslands www.ismennt.is/vefir/ut99

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.