Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 45^
MINNINGAR
SIGRÍÐUR ERLA
JÓNSDÓTTIR
+ Sigríður Erla
Jónsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 12.
mars 1933. Hún
andaðist á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
17. febrúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru: Ingvör
Anna Guðbjörns-
dóttir, f. 23.11.
1911, d. 28.1. 1965,
og Jón Jóhannsson,
f. 16.9. 1911, d. 5.3.
1967. Systkini Sig-
ríðar Erlu eru Jó-
hann Hafliði, f. 8.2.
1928, d. 16.5. 1998; Guðbjörg
Jóna, f. 8.3. 1935; Gunnar, f.
31.5. 1938, d. 21.7. 1991. Ingi-
björg, f. 15.1. 1943; og Gísli Sig-
urður, f. 23.3. 1945.
Hinn 23. nóvember 1953 gift-
ist Sigríður Erla Ragnari Berg-
steins Henryssyni, f. 31.3. 1927,
d. 9.11. 1987. Börn þeirra eru: 1)
Páll Arnar, f. 17.3. 1954, d.
16.10. 1983. Börn hans eru:
Bryndís Erla, f. 4.1. 1975, og
Gylfi Þór, f. 10.8. 1978. 2) Jón
Ingi, f. 3.10. 1956,
maki Ingibjörg Ás-
dís Torfadóttir, f.
22.5. 1959. Sonur
þeirra er Ingi Þór,
8.9. 1978. 3) Ragn-
ar Sigurður, f. 27.8.
1958, d. 27.4. 1981.
Dóttir hans er
Sandra Björk, f.
3.11. 1978, og dóttir
hennar er Arndís. 4)
4.9.
Þór
Ostensen, f. 10.9.
1955. Börn hennar
eru Sigríður Ragna
Sigurþórsdóttir, f. 25.9. 1984;
Sigurþór Arnar Sigurþórsson, f.
1.12. 1990; og Guðbjörg Ósk
Sigurþórsdóttir, f. 23.5. 1992.
Sigríður Erla vann framan af
ævi hjá Silla og Valda en árið
1964 hóf hún störf á Landakoti,
fyrst um sinn sem setukona, en
lærði síðan til sjúkraliða og
vann við það allar götur síðan.
Utför Sigríðar Erlu fer fram
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Það fyrsta sem ég tók eftir voru
tindrandi augun. Hún kynnti sig
sem Siggu, sjúkraliða á deildinni.
Blíðan og kátínan sem streymdu
frá þessari konu auðvelduðu dvöl-
ina á sjúkrahúsinu strax frá
fyrstu kynnum. Síðar urðum við
starfsfélagar; Sigga var á sínum
stað á 2-A en ég læknaritari. í því
starfi urðu kynni okkar Siggu
nánari, því nokkrum sinnum á dag
þurfti að skokka milli hæða með
sjúkraskýrslur og þá voru sam-
ræðurnar líflegar á ganginum á 2-
A eða inni í litla herbergi starfs-
fólksins þar sem alltaf var kaffi á
könnunni.
Það eru liðin 20 ár frá því ég sá
Siggu fyrst. Blikið í augunum er
það sem skýrast er í minningunni;
þessi hlýju augu sem sögðu svo
margt. Auðvitað dofnaði blikið á
stundum. Stundum eins og þeim
þegar hún kom að tveimur sonum
sínum látnum úr alvarlegum sjúk-
dómum sem ekki höfðu gert boð á
undan sér. Og þegar hún sá dóttur
sína ganga upp stigann að 2-A
vissi hún að sorgin hafði barið að
dyrum í þriðja sinn á sex árum. I
þetta sinn var það eiginmaðurinn.
Það var á þeirri stundu sem maður
skildi ekki í setningunni „Guð
leggur ekki meiri byrðar á fólk en
það getur borið“. En Sigga bar
harminn. Dóttirin og besta vin-
kona hennar, Adda, gerðu henni
kleift að halda áfram að lifa lífinu
og barnabörnin voru augasteinar
hennar.
Við Sigga hættum ekki að þekkj-
ast þótt árin liðu. Oft kom hún við
hér á Ránargötunni, við fengum
okkur kaffí og sígó og rifjuðum upp
góðu stundimar. Það var mikið
áfall að frétta að Sigga hefði fengið
heilablæðingu því þótt hún hafí
vissulega hlakkað til endurfunda
við syni sína og eiginmann, þá vildi
hún ekki fara úr þessari tilvist frá
dóttur sinni og barnabörnunum.
Hún var góð mamma, góð amma
og góð vinkona. Umfram allt var
hún Sigga góð manneskja, sem
hægt var að taka sér til fyrir-
myndar.
Ég votta dóttur hennar, barna-
börnum og fjölskyldunni mína
dýpstu samúð.
Guð blessi minningu þessarar
mætu konu sem auðveldaði líf svo
margra á erfiðum stundum.
Anna Kristine Magnúsdóttir.
Lokast blöð á blómum smáum,
blikar marglit dögg á stráum;
þreyttur leitar fuglað fró,
finnur hvíld í dimmum skóg.
(Þýð. Sigurður Júlíus Jóhannesson.)
Er Sigga okkar hverfur á braut
til annatra heima viljum við þakka
fyrir allar stundirnar sem við áttum
með henni.
Sigga vann á Landakoti frá árinu
1966, fyrst sem vökukona hjá St.
Jósefssystrum í fjögur ár og tók
sjúkraliðanámið hjá þeim. Hún
vann óslitið við Landakotsspítala
síðan, lengst af á deild 2-A.
Sigga hafði marga mannkosti til
að bera. Hún var afskaplega trygg-
lynd og samviskusöm og bar mikla
umhyggju fyrir sjúklingunum og
samstarfsfólki. Hún var hamhleypa
til verka og vann oft 16 tíma vaktir,
dag eftir dag. Ef skortur var á
starfsfólki var hún alltaf boðin og
búin að hjálpa. A erfiðum stundum
í vinnunni var gott að eiga Siggu
að. Hún þekkti sársauka og erfíð-
leika af eigin raun og kunni að gefa
af sér. Hennar verður sárt saknað.
Sigga mátti reyna margt um æv-
ina. Hún missti tvo syni sína og eig-
inmann, alla á sviplegan hátt, með
stuttu millibili. Oft undruðumst við
það æðruleysi sem einkenndi hana
eftir þá eiTiðu reynslu því fáir
hefðu farið í sporin hennar Siggu á
slíkum stundum. Hún bar sorg sína
í hljóði, enda fékk hún mikinn
stuðning frá Öddu, dóttur sinni, og
barnabörnum. Adda og Sigga vora
ekki bara mæðgur, heldur líka
miklar vinkonur og líf Siggu síð-
ustu árin einkenndist af þeim vin-
áttu og Adda og barnabörnin voru
henni allt.
Við vottum Öddu og fjölskyldu
og barnabörnum Siggu okkar
dýpstu samúð.
Hvíl í friði.
Samstarfsfólk á Landakoti.
Elsku amma, Sigriður Erla Jóns-
dóttir, er látin. Hún er farin en þó
mun hún halda áfram að líta eftir
okkur. Það er svo erfítt að skilja
dauðann en við tráum því að amma
lifí hjá Guði og ástvinum og að við
hittumst þar seinna. En amma
skildi eftir fjársjóð handa okkur,
allar góðu og fallegu minningarnar
um yndislega ömmu. Þær munum
við geyma og vai’ðveita í hjörtum
okkar. Góði Guð geymi ömmu.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfí Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englai- yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Kveðja frá
Landakotsspítala
Gegnum loft á kyrru kveldi
klukknahljómur eyra nær;
leiftra stjömur líkar eldi,
lög í fjarska gylla þær.
Bryndís Erla,
Gylfi Þór.
Taktu þátt í léttum leik og þú átt möguleika á að vinna
Motorola StarTAC 70 GSM-síma frá Símanum, Ijósa- eða
nuddkort frá sólbaðsstofunni Puntinum, Hraunbergi 4,
síðermabol, geisladisk með tónlistinni úr Ég veit enn... eða
miða á myndina.
Um þessar mundir er hrolIvekjan Ég veit enn ... (I Still
Know What You Did Last Summer) frumsýnd. Myndin
fjallar um draumaferð til Bahamaeyja sem snýst upp í
andhverfu sína.
Þú þarft ekkert að óttast, taktu bara þátt í leiknum á mbl.isi
H>mbl.is
-J\LLTAf= Œ/TTH\Sj\£> /SJÝn