Morgunblaðið - 09.05.1999, Síða 1
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 9. MAÍ1999 BLAÐ E
r
Störf í boði hjá Eimskip
Eimskip starfar í alþjóðlegu mnhverfi og
rekur nú 22 starfsstöðvar í II löndum. Hjá
Eimskip og dótturfyrirtœkjum innanlands
og erlendis starfa um 1.200 manns. Mikil
áhersla er lögð á frœðslu og símenntun starfs-
manna. Öflugt gœðastarf á sér stað innan
fyrirtœkisins þar sem hver og einn er virkj-
aður til þátttöku.
Kynningarfulltrúi í kynningardeild
Kynningardeild hefur yfirumsjón með kynningar- og
auglýsingastarfsemi Eimskips, ber ábyrgð á upplýsingamiðlun,
samskiptum við fjölmiðla, útgáfu kynningarefnis og fréttabréfi
og ársskýrslu. Kynningardeild heyrir undir þróunarsvið.
Deildin vinnur náið með markaðsdeildum félagsins á
flutningasviði og innanlandssviði svo og fyrirtækjum og
starfsstöðvum Eimskips erlendis.
Eimskip leitar að duglegum starfskröftum
til framtíðarstarfa í kynningardeild og við-
skiptaþjónustu.
Við leitum að drífandi einstaklingum sem
eru tilbúnir að takast á við spennandi verk-
efni í fyrirtæki sem býður upp á mikla fram-
tíðarmöguleika.
Umsóknir sendist til starfsmannastjóra Eim-
skips, Hjördísar Ásberg, Pósthússtræti 2,
101 Reykjavík fyrir 14. maí nk. Öllum um-
sóknum verður svarað og farið með þær sem
trúnaðarmál.
Starfssvið
• Ábyrgð á einstökum verk-
efnum á sviði kynningar-
mála, m.a. á sviði auglýsinga.
• Umsjón með og ábyrgð á
útgáfu og dreifingu ýmis
konar efnis og leiðbeininga
vegna þjónustu og almanna-
tengsla.
• Umsjón með og skipu-
lagning á móttökum og
sýningarhaldi félagsins í
samráði við kynningarstjóra.
• Samskipti við auglýsinga-
stofur og prentsmiðjur.
• Skrif texta í kynningarefni
á íslensku og ensku.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði
viðskiptafræði, markaðs-
fræða, almannatengsla
eða fjölmiðlafræða.
• Pekking og reynsla af
útgáfumálum.
• Ritfærni.
• Mjög góð enskukunnátta.
• Skipulögð vinnubrögð.
• Hugmyndaauðgi.
• Góð tölvukunnátta (Word,
Excel, Power Point og helst
Quark Express).
Þjónustufulltrúi í viðskiptaþjónustu
Viðskiptaþjónusta Eimskips svarar fyrirspurnum um flutn-
ingamál, tekur á móti beiðnum um þjónustu og tryggir
viðskiptavinum ábyrga úrlausn mála. Þar fer einnig fram
almenn afgreiðsla vegna innflutnings, útflutnings og
strandflutnings, sala og þjónusta vegna búslóða, sala
farmtrygginga og boðið er upp á tollskjalagerð.
Starfssvið
• Ábyrgð á og umsjón með
þjónustu, upplýsingagjöf og
samskiptum við viðskipta-
vini Eimskips. Ábyrgð á
þjónustu gagnvart ákveðn-
um viðskiptavinahópi.
• Umsjón með þjónustu-
beiðnum, framkvæmd
þeirra og að þarfir viðskipta-
vina séu uppfylltar.
• Samskipti við starfsmenn
skrifstofa og umboða
erlendis og aðra innlenda
og erlenda samstarfsaðila.
• Virk þátttaka í gæðastarfi
deildarinnar.
Hæfniskröfur
• Stúdentspróf, háskóla-
menntun æskileg.
• Frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð.
• Þjónustulund.
• Góð tölvukunnátta.
(Word, Excel)
• Góð enskukunnátta.
EIMSKIP
Eimskip leggur áherslu á að auka hlut kvenna
í ábyrgðarstöðum hjá félaginu og stuðla þar með
V
Sími 525 7373 • Fax 525 7379 • Netfang: info@eimskip.is • Heimasíða: www.eimskip.is
Dagvistj Fbarna
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra er laus til umsóknar.
Undanfarin ár hefur staðið
yfir markviss vinna við stefnu-
mótun hjá Dagvist barna.
♦ Leikskólinn verður staðsettur í Húsahverfi. Áætlað er að bygginga-
framkvæmdum Ijúki í júlí og starfsemi geti hafist í lok ágúst.
Meginverkefnið er að bæta
og styrkja alla þjónustu við
börn og foreldra þcirra. Þjón-
ustan byggir á þekkingu á
þörfum barnanna og á góðu
faglegu starfi í náinni sam-
vinnu við foreldra. Hjá Dag-
vist barna í Reykjavík starfa
um 1800 starfsmcnn og allt
kapp er lagt á að fá dugmikið
og áhugasamt fólk til starfa
hjá metnaðarfullri stofnun.
♦ Leikskólinn er þriggja deilda þar sem gert er ráð fyrir að dvelji
62 börn samtímis.
■f Leikskólakennaramenntun áskilin.
Nánari upplýsingar veita Margrét Vallý Jóhánnsdóttir deildarstjóri,
og Bergur Felixson framkvæmdastjóri, í síma 563 5800.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Dagvistar barna,
Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er 21. maí n.k.
að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði.
J
www.lidsauki.is
1
I
Verið velkomin á heimasíðu okkar,
þar sem í boði eru fjölmörg
áhugaverð og spennandi störf.
Atvinnurekendur jafnt sem
umsækjendur eiga erindi á
heimasíðuna.
Fó/fc og þekkirtgr __
Liósauki @
L
Skipholt 50c, 105 Reykjavík simi 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@lidsauki.is
HHHHMHHHHHHHMHMMMHHMMHMMHMMHHBMHMBraMMWiS^m^' ■ S .