Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 E 5
:
■
E
5
■
-
■
■
:
í
■
■ ■ ■
■ ■ ■ ■ ■ i
■■■■■■.■■■■■■■ ■ ■ ■ ■
FRAMKVÆMD AST J ORI
SPENNANDI
TÆKIFÆRI / VERKEFNI
IBOÐIER:
Starfhjá framsæknu og rót-
grónu fyrirtæki.
Krefjandi / fjölbreytt starf.
Góð vinnuaðstaða.
Skemmtilegur hópur
metnaðarfullra samstarfs-
manna.
Góð laun fyrir réttan
aðila auk árangurs- og arð-
semistengdra launaþátta.
Frjáls afnot af bifreið
fyrirtækisins.
Önnur fríöindi.
Stórt þjónustufyrirtæki á sviði stórmarkaðar í matvörugeiranum með um-
talsverða veltu hefur falið mér að leita að og útvega til starfa mikilhæfan ein-
stakling til að stjóma fyrirtæki þessu sem framkvæmdastjóri.
HELSTU STARFSSKYLDUR OG ÁBYRGÐ
Helstu verkefni framkvæmdastjóra em m.a. að stjóma og hafa yfirumsjón
með öllu rekstri íyrirtækisins þ.m.t. að stýra sölumálum þess, fjármálum,
skrifstofuhaldi o.s.frv. Þá byggir starfíð á því að vinna að hagkvæmum
innkaupum og annarri framþróun og nýjungum hjá fyrirtækinu, ásamt arð-
semisathugunum ýmiskonar, framlegðarútreikningum og þátttöku í að skoða
og meta ný sóknarfæri og aðrar stefnumótandi ákvarðanir fyrirtækisins.
HÆFNISKRÖFUR
Góð hagnýt starfsreynsla ásamt háskólamenntun og/eða önnur sambærileg
menntun á sviði rekstrar og einhver þekking á matvömmarkaðinum er nauð-
synleg. Leitað er að einstaklingi sem hefur umtalsverða reynslu af stjómun,
getur unnið sjálfstætt og skipulega, ásamt því að búa yfir ffumkvæði, hug-
myndaríki, sveigjanleika, þjóðnustulund, metnað og vilja til að ná árangri í
störfum sínum. Þekking og fæmi í öllum skrifstofustörfum ásamt tölvu- og
enskukunnáttu. Hæfni í mannlegum samskiptum og að viðkomandi sé í senn
bæði leiðtogi og fyrirliði í hópi samstarfsmanna sinna.
„FULLUM TRUNAÐI HEITIÐ’
leÁtwi Lár.
ATVINNUMIÐLUN - STARFSMANNASTJÓRNUN
Laugavegi 59. ~ Kjörgarði. ~ 3. hæð ~ 101 Reykjavík
sími 562-4550 / fax 562-4551 / netfang teitur@ itn.is
Allar nánari upplýsingar um starfþetta veiti ég á skrifstofu minni á venjulegum skrifstofutíma. Umsóknir er
tilgreini allar persónulegar upplýsingar, menntun, fyrri störf ásamt mynd afumsækjanda óskast mér sendar
sem fyrst og í seinasta lagi þann 14 maí 1999.
ÍTITTIT
Vilt þú starfa hjá alþjóðafyrirtæki sem býður þér tækifæri
til að viðhalda menntun þinni og vinna að fjölbreytilegum
og áhugaverðum verkefnum?
PricewaterhouseCoopers ehf. er
aðili að stærstu samsteypu
endurskoðenda og ráðgjafa í
heiminum með um 140.000
starfsmenn ogstarfsemi í um 150
löndum. Starfsmenn okkar á
íslandi eru um 75.
Við leggum áherslu á alþjóðlegt
starfsumhverfi, góða þjálfun og
að gefa starfsfólki okkar kost á
að þróast og starfa með erlendum
ráðgjöfum innanlands og
erlendis.
Endurskoðunarsvið PricewaterhouseCoopers leitar að viðskiptafræðingi til að
vinna með löggiltum endurskoðendum að margvíslegum verkefnum. Viðkomandi
þarf að vera nákvæmur, skipulagður og sýna frumkvæði í starfi. Nemar á fjórða
ári endurskoðunarkjörsviðs HÍ koma einnigtil greina.
Fyrirtækið býður þeim sem stefna að löggildingu til endurskoðunar, sérstök
undirbúningsnámskeið fyrir löggiIdingarpróf. Laun eru samkomulag.
Um er að ræða áhugavert svið í stöðugri mótun þar sem notaður er mjög
þróaður endurskoðunarhugbúnaður frá alþjóðafélagi PricewaterhouseCoopers.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers
merktar „Endurskoðun" fyrir 19. maí nk.
Pricewá!eRhousE(oopers §
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir hjá Ráðningarþjónustu
PricewaterhouseCoopers í síma 550 5300.
Netfang: katrin.s.oladottir@is.pwcglobal.com
Höfðabakka 9
112 Reykjavík
Sími 550 5300
Bréfasími 550 5302
www.pwcgloba I .com/is
Flensborgarskólinn Fiskvinnslu-
f Hafnarfirði skólinn
Kennarar óskast
til starfa
Við Flensborgarskólann eru eftirfarandi
stöður lausar:
Staða kennara í eðlisfræði (u.þ.b. ein staða),
staða umsjónarmanns með tölvum skólans,
en það starf felur hugsanlega einnig í sér
kennslu í tölvufræði.
Auk þess er laus kennsla í vélritun/ritvinnslu/
tölvufræði (u.þ.b. ein staða), efnafræði (u.þ.b.
hálf staða) og viðskiptagreinum (u.þ.b. ein og
hálf staða).
Næsta haust verður tekinn í notkun tölvu-
búnaður sem kallar eftir nýjum hugmyndum
og aðferðum. Okkur er því mikill akkur í að fá
til starfa fjölhæfa kennara sem þora að takast
á við nýjungar. Einnig er verið að byggja upp
öflugt innra matskerfi og undirbúa nýja nám-
skrá. Krafist er háskólamenntunar í ofangreind-
um greinum auk kennslufræðimenntunar eða
samsvarandi menntunar.
í Fiskvinnsluskólanum eru lausar
eftirtaldar stöður:
Stada kennara í fiskvinnslufræðum.
Um er að ræða fullt starf sem felur bæði í sér
verklega og bóklega kennslu. Krafist er veru-
legrar reynslu úrfiskiðnaði. Menntunarkröfur
eru háskólapróf í sjávarútvegsgreinum eða
hliðstæð menntun.
Stada kennara í matvælafræði.
Um er að ræða hálft (50%) starf. Krafist er há-
skólamenntunar í matvælafræði eða hliðstæðr-
ar menntunar.
Staða kennara í rekstrarhagfræði.
Um er að ræða hlutastarf. Krafist er háskóla-
menntunar í rekstrarfræðum og/eða verulegrar
reynslu í rekstrarbókhaldi fiskvinnslufyrir-
tækja.
í öll ofangreind störf verður ráðið frá 1. ágúst
næstkomandi. Laun eru samkvæmt launakerfi
opinberra starfsmanna. Umsóknum þarf ekki
að skila á sérstöku eyðublaði.
Umsóknirsendisttil Flensborgarskólans í
Hafnarfirði pósthólf 240.
Umsóknarfrestur um öll ofangreind störf renn-
ur út 25. maí 1999.
Upplýsingar um störf við Flensborgarskólann
veita skólameistari, Einar Birgir Steinþórsson,
eða aðstoðarskólameistari, Magnús Þorkels-
son í síma 565 0400.
Um Fiskvinnsluskólann svarar Gísli Erlendsson
forstöðumaður í síma 565 2099 eða 892 0030.
Skólameistari
Afgreiðslustarf —
þjónustustarf
Skóverslun Kópavogs óskar eftir að ráða starfs-
fólktil almennra afgreiðslustarfa frá og með
1. júlí 1999. Um er að ræða annars vegar heils
dagsstarffrá kl. 9 — 18 virka daga og annan
hvern laugardag og hins vegar 62% starf frá
kl. 13 — 18 virka daga og annan hvern laugar-
dag.
Við leitum að hressu fólki með góða þjónustu-
lund sem ertilbúið að leggja sig fram í að gera
góða verslun betri.
Umsóknum skal skilað í Skóverslun Kópavogs,
Hamraborg 3, 200 Kópavogi fyrir þriðjudaginn
18. maí.
SKÓUERSLUN
KÚPAVOGS
HAMRABORB 3 • SÍMI 554 17 59